Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 28

Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 28
Draugar og klappstýrur Öskudagur nálgast og um að gera að kíkja í fataskápana í leit að gömlum flíkum og fylgihlutum. Úr sér gengnar gardínur, buxur af afa og innkaupapokar eru prýðis efniviður í heimatilbúna búninga. Selma Ragnarsdóttir, kjóla- og klæðskerameistari, stóð á dög- unum fyrir hugmyndasmiðju um heimatilbúna öskudagsbún- inga í Gerðubergi. „Þetta snerist um að nýta það sem til er heima til að búa til öskudagsbúninga á sem ódýrastan hátt,“ segir Selma og bendir á að gamlar flíkur og gardínur séu tilvalin í búninga á börn enda þurfi ekki mikið efni í föt á þau. „Við vorum með ein- föld snið sem hægt var að breyta á margan hátt. Flest voru næst- um kassalaga en hægt var að búa til úr því bæði indjána og draug,“ segir Selma. Einnig var vinsælt að sauma samfestinga, skikkjur og að búa til klappstýruhristur úr innkaupapokum. Selma segir ekki mikinn vanda að útbúa öskudagsbúninga. Stund- um þurfi ekki einu sinni að kunna á saumavél. „Til dæmis er hægt að nota buxur af pabba eða afa, skella á þær axlaböndum og setja slaufu um hálsinn og þá er kom- inn fyrirtaks trúður,“ segir Selma en slaufuna segir hún auðvelt að gera, einungis þurfi að búa til kassalaga snið og rykkja það í miðjunni. Selma telur mun meira skemmtana- gildi fylgja þ v í a ð útbúa bún- ing heima en að kaupa hann tilbúinn í leikfanga- búð. „Það verð- ur alltaf meiri k a r a k t e r í kringum bún- inginn eins og var í gamla daga,“ segir Selma og bætir við að heimatilbúnu búning- arnir séu alveg örugg- lega ódýrari kostur. „Svo förum við vonandi líka að hugsa um að nýta meira það sem til er,“ segir Selma. Innt eftir því hvað sé vinsælast hjá krökkunum segir hún að strákarnir virðist frek- ar vera fyrir drauga og hrylling en stelpurnar séu heldur prinsessur og klappstýrur. Selma rekur bún- ingaleiguna Hexíu þar sem hún leigir út búninga fyrir fullorðna. Hún segir vinsældir leigunnar fínar en stærsta vikan hafi verið fyrir Hrekkjavöku. „Við erum með kjóla og fatnað frá alls konar tímabilum, dýr, þekktar persónur og ofurhetjur,“ segir Selma en á síðasta ári voru ABBA- búningarnir lang vinsælastir. solveig@frettabladid.is Gefum lífinu lit ÞEGAR GRÁMYGLULEGUR HVERSDAGSLEIKINN ER AÐ GERA ÚT AF VIÐ MANN ER TILVALIÐ AÐ GEFA LÍFINU LIT Í BÓKSTAFLEGRI MERKINGU. Einföld leið til að flikka upp á umhverfið og breyta til er að taka upp málningarpensilinn og láta gamminn geisa. Breyta má ótrúlega miklu bara með því að mála og ekki er nauðsynlegt að mála allt heimilið. Nóg getur verið að mála einn vegg í afgerandi lit eða mála skápa og húsgögn. Einnig er hægt að dúlla sér við að mála minni hluti eins og lyklaskápa, ramma og hillur. Þeir glysgjörnu geta síðan skreytt herlegheitin með stenslum, útflúri eða sjálfsprottn- um listaverkum. Einnig má líma skraut á verkið. - hs Draug- ar eru vinsælir á öskudaginn. Selma Ragnarsdóttir segir lítið mál að útbúa heimatilbúna öskudagsbúninga á krakkana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM IKEA býður upp á ókeypis andlitsmálun, myndatöku og skot- bakka á öskudaginn. Þá verður einnig búningasamkeppni og kötturinn sleginn úr tunnunni. Tilvalið tækifæri til að sameina innkaup og fjölskylduskemmtun.                 !""# $% &!''(%#)*+ ,  -. /00-#0* ,  -. Glæsile g hnífap ör Þola up pþvotta vél

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.