Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 34
 19. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna Stærstur hluti bílalána helstu fjármögnunarfyrirtækja landsins er í erlendri mynt. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segja erfitt að gefa fólki ráð varðandi erlend bílalán. Afborganir bílalána í erlendri mynt hafa hækkað mikið á síðustu mánuðum vegna óstöðugs gengis krónunnar. Haft var samband við forsvarsmenn þriggja fjármögn- unarfyrirtækja til að athuga hvað lánþegum stendur til boða. SPFJÁRMÖGNUN Heildarfjöldi bifreiða í fjármögn- un hjá SP-fjármögnun er á bilinu 21 til 22 þúsund og þar af eru um 90 prósent þeirra fjármagnaðar með bílasamningi. „Lán í erlendri mynt voru um það bil 80 til 85 prósent af bíla- samningum. Ef staðan væri tekin í dag þá væru um 97 prósent í er- lendri mynt en það sveiflast eftir dögum og gengi,“ segir Haraldur Ólafsson, forstöðumaður þjónustu- sviðs SP-fjármögnunar. Haraldur segir ekki marga við- skiptavini SP vera í vandræðum en þó hafi þeir þurft að leysa til sín einhverja bíla. „Hlutfallslega eru þetta enn sem komið er ekki margar bifreiðar enda höfum við unnið náið með viðskiptavinum okkar frá því í október og komum með sértækar lausnir strax í nóv- ember,“ útskýrir Haraldur en þá var leigutökum gert kleift að greiða aðeins vexti af samningum sínum. Nú er boðð upp á nýtt form þar sem leigutaki greiðir sömu upphæð og fyrst þegar hann tók bílasamning. „Ef þú gerðir bíla- samning fyrir þremur árum með greiðslubyrði í 10.000 krónum sem síðan breyttist í 20.000 krónur, við fall krónunnar, þá greiðir þú nú 10.000 krónur + 25 prósent, eða samtals 12.500 krónur og ert þar af leiðandi ekki aðeins að greiða vexti heldur einnig niður hluta af höfuðstól lánsins,“ útskýrir Har- aldur, en þessi leið er veitt í allt að átta mánuði. Haraldur segir erfitt að ráð- leggja nokkuð um erlendu lánin. „Það veit enginn hvernig fer og við leggjum áherslu á að fólk taki sjálft meðvitaðar ákvarðanir um hvað það vill gera.“ AVANT Hjá Avant eru liðlega 12.000 ein- staklingar og fyrirtæki með bíla- lán og bílasamninga og er meiri- hluti útlána Avant í erlendri mynt. Magnús Gunnarsson, for- stjóri Avant, segir flesta við- skiptavini fyrirtækisins standa í skilum. „Þeim hefur þó fjölgað sem nú eru í lögfræðiinnheimtu. Avant reynir þó að finna raunhæf- ar leiðir fyrir hvern viðskiptavin sem sýnir viðleitni, getu og vilja til þess að standa í skilum þótt erf- iðleikar steðji að honum um tíma,“ segir Magnús. Hann segir erfitt að gefa fólki einhver sérstök ráð um hvað skuli gera við hin erlendu lán. „Höfuð- stóll lána í erlendri mynt tekur daglegum breytingum eftir því hvernig gengi viðkomandi myntar er skráð hjá Seðlabanka Íslands. Avant fór að tilmælum ríkisstjórn- arinnar um að þeim sem væru með lán í erlendri mynt byðist að frysta afborganir. Það gerðum við í trausti þess að ríkisstjórn- in hugðist beita aðgerðum til þess að styrkja gengi íslensku krón- unnar. Það hefur gengið eftir að nokkru leyti en ómögulegt er að segja hvort gengið mun styrkjast, standa í stað eða veikjast í náinni framtíð,“ segir Magnús og tekur fram að það sé í valdi viðskipta- vinarins að óska eftir breytingum á skuldbindingum sínum, eins og að breyta erlendu láni í íslenskt, greiða það upp eða bíða átekta. LÝSING Um það bil 15.000 einstaklingar eru með bílalán eða bílasamninga hjá Lýsingu og hafa flestir, eða um 85 prósent, kosið að taka lán í er- lendri mynt. Halldór Jörgensson, forstjóri Lýsingar, segir að einungis um fimm prósent viðskiptavina fyrir- tækisins eigi í einhverjum vanda. „Lýsing kemur að sjálfsögðu til móts við þá einstaklinga sem misst hafa vinnu undanfarið og eru á atvinnuleysisbótum eða öðrum bótum með því að bjóða þeim að greiða eingöngu vexti af lánum sínum. Hins vegar ráðleggjum við fólki að greiða af lánunum ef það mögulega getur en bjóðum upp á ýmis úrræði til að létta greiðslu- byrðina eins og að greiða 50 pró- sent afborgana í þrjá mánuði og 75 prósent af afborgunum næstu þrjá mánuði,“ segir Halldór. Hann segir, líkt og Magnús og Haraldur, að erfitt sé í þessari tíð að gefa fólki ráð varðandi erlendu bílalánin, fólk verði sjálft að taka ákvörðun um hvort skynsamlegra sé að greiða lánin upp eða breyta í íslenska mynt. - sg Vilja að fólk taki sjálft ákvarðanir Bílar bíða útflutnings. Vegna lítillar sölu bíla hér á landi eru margir fluttir aftur út. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Kleopatra Kristbjörg Brot úr bókinni Hermikrákuheimur Flestir heyra ekkert því þeir eru í hávaðanum, í tækni- væðingunni og í lífsgæðakapphlaupinu og hafa löngu týnt sér í öllu því sem glepur. Þetta mannkyn, þessir heimskingj- ar sem dreifa sér um jörðina eru fíklar. Það eru áfengisfíklar, eiturlyfjafíklar, spilafíklar,kynlífsfíklar, matarfíklar og ferða- fíklar svo það helsta sé nú nefnt og ferðafíknin er ekki sú besta. Það er ekki nóg með það að fólk tapi eigum sínum vegna ferðafíknar, heldur tapar það og týnir sjálfu sér í þess- ari endaleysis hringavitleysu, æðandi út um allan heim eins og vitfi rringar verður það alltaf rótlausara og eirðarlausara og getur því æ sjaldnar stoppað lengi heima og getur hvergi staldrað við eða við neitt því þá hefur það steypst í tómið, fíknin hefur tekið völdin. Af hverju verður manneskjan fíkill? Nú, það er nautnasýki og nautnasýkin er sprottin af sjálfs- elsku og myrkrið nær fólki í gegnum nautnasýkina. Agi er öllum nauðsynlegur og hann er meira en kostur, hann er dyggð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.