Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 36

Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 36
 19. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna Snyrtiskóli, förðunarskóli, na- glaskóli og fótaaðgerðarskóli eru undir hatti Snyrtiakademíunnar í Kópavogi. Þeir, sem langar að láta dekra við sig en leggja ekki út í kostnaðinn sem því fylgir, geta nýtt sér þjónustu nemenda skólans. Hægt er að panta tíma hjá nema í snyrtiskólanum og í fótaaðgerða- skólanum gegn vægu gjaldi og létta þannig á bókhaldi heimilis- ins. Meðal þeirra meðferða sem nemendur læra í snyrtiskólanum eru andlits-, herða- og höfuðnudd, djúphreinsun húðar og ýmiss konar sérmeðferðir. Í fótaaðgerðaskólan- um fara nemendur meðal annars í gegnum fótsnyrtingu og mýkja upp harða húð svo eitthvað sé nefnt. - rat Ódýrt dekur hjá snyrtinemum Hjá Snyrtiakademíunni í Kópavogi er hægt að panta tíma hjá nemendum gegn vægu gjaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bílaumboðið Ingvar Helgason býður viðskiptavinum sínum upp á léttskoðun bíla án endurgjalds. Gruni þá að eitthvað sé að geta þeir fengið skjóta ástandsskoðun hjá fagmanni. „Við bjóðum viðskiptavinum að koma til okkar og fá álit fagmanns. Hann skoðar bílinn, fer yfir alla öryggisþætti, skoðar helstu slit- fleti og gefur ráðleggingar um hvernig draga megi úr rekstrar- kostnaði bílsins,“ segir Loftur Ág- ústsson markaðsstjóri. - ve Léttskoðun án endurgjalds Með því að láta yfirfara ökutæki með reglulegu millibili er hægt að bregð- ast fyrr við og koma í veg fyrir óþarfa útgjöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Starfsfólk Landsbankans býður fram krafta sína í breyttu landslagi. Við ríkjandi aðstæður getur verið brýnt að endurskipuleggja fjármálin. Teljir þú þig þurfa á ráðgjöf að halda viljum við bjóða fram aðstoð okkar. Við förum með þér yfir möguleg úrræði. Markmiðið er að öðlast skýra yfirsýn yfir fjárreiður heimilisins og treysta fótfestuna. F J Á R M Á L H E I M I L I S I N S • Greiðslujöfnun • Lengja lánstíma • Skuldbreyta vanskilum • Fresta afborgunum vegna sölutregðu • Fresta greiðslu afborgana og vaxta LAUSNIR SEM GÆTU HENTAÐ ÞÉR STÖÐUMAT | HE IMIL ISBÓKHALD | RÁÐGJÖF Pantaðu ráðgjöf á landsbanki.is, í útibúinu þínu eða í síma 410 4000.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.