Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 53

Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 53
FIMMTUDAGUR 19. febrúar 2009 37 Popparinn Michael Jackson virð- ist eiga í miklum fjárhagskrögg- um því hann ætlar að setja á uppboð yfir tvö þúsund hluti úr eigu sinni. Meðal annars verða til sölu bandarísku tónlistar- verðlaunin sem hann fékk fyrir plötuna Thriller, fjólublá skikkja sem börnin hans gáfu honum árið 1998, sokkar frá árinu 1981 og körfubolti sem Michael Jordan áritaði. Einnig verða á uppboðinu plat- ínu- og gullplötur sem poppar- anum hafa áskotnast í gegnum tíðina, sérsmíðað Harley David- son-mótorhjól og Rolls Royce-lúx- usbifreið. Uppboðið hefst 21. apríl og stendur yfir í fimm daga. Selur tvö þúsund muni MICHAEL JACKSON Jackson virðist eiga í miklum fjárhagskröggum um þessar mundir. Bernard Butler, fyrrverandi gít- arleikara Suede, þykir lítið til endurkomu hljómsveita á borð við Blur og The Verve koma. Báðar sveitirnar voru vinsælar á tíunda áratugnum, rétt eins og Suede. „Það er rosalega mikið af Brit- pop-sveitum að koma saman á ný og mér finnst það hallærislegt. Það er ekki í neinum tengslum við það sem er í gangi í augna- blikinu,“ sagði Butler, sem starf- ar sem upptökustjóri fyrir flytj- endur á borð við Duffy og Black Kids. „Ég er algjörlega á móti fortíðarþrá. Það sem skiptir máli er það sem þú ætlar að gera í næstu viku en ekki hvað þú gerð- ir í síðustu viku.“ Hallærisleg endurkoma BERNARD BUTLER Fyrrverandi gítar- leikara Suede þykir lítið til endurkomu sveita á borð við Blur og The Verve koma. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES „Við viljum bara fá fullt af skemmtilegum íslenskum lögum sem við getum spilað alveg í spað,“ segir Ólafur Páll Gunnars- son, útvarpsmaður á Rás 2, betur þekktur sem Óli Palli, um Baráttu- og bjartsýnissöngvakeppni hins nýja lýðveldis sem útvarpsstöðin efnir nú til. „Við byrjuðum á svona laga- keppnum fyrir nokkrum árum og þær eru mjög vinsælar í dag. Til dæmis voru send inn tuttugu lög í fyrstu jólalagakeppnina, en 160 nú síðast. Þessi keppni er mjög opin og lögin geta fjallað um allt svo lengi sem þau eru á íslensku. Menn geta eflaust látið sér detta eitthvað í hug í takt við líðandi stund og það sem við erum að hugsa, því það eru allir með hugann við lífið, tilveruna og ástandið eins og það er núna,“ bætir hann við. „Í þessari nýju keppni geta allir tekið þátt líkt og í öðrum laga- keppnum, bæði óþekkt fólk, gítar- og píanóeigendur og svo Bubbi Morthens, Megas og fleiri sem vilja. Reyndar er Bubbi búinn að vera að semja ný lög í hverjum útvarpsþætti hjá sér og er starfs- maður á stöðinni svo ég veit ekki hvort hann verður með, en ég skora á alla, líka Björk og Bjart- mar, að senda inn lag,“ segir Óli Palli brosandi og hvetur áhuga- sama um að skila inn geislaplötu í útvarpshæfu formi á Rás 2, Efsta- leiti 1, 150 Reykjavík, fyrir föstu- daginn 6. mars. Lögin sem komast í úrslit verða svo frumflutt á stöð- inni mánudaginn 9. mars. - ag Skorar á Björk og Bjartmar BARÁTTA OG BJART- SÝNI Óli Palli vonar að sem flestir taki þátt í Baráttu- og bjartsýnis- söngva- keppni hins nýja lýðveldis og skorar á Björk og Bjartmar að senda inn lög. Haraldur Leví Gunnarsson, sem rekur dreifingarfyrirtækið Record Records, hefur brugðið á það ráð að flytja til landsins frá Bandaríkj- unum harðkjarnaplötur sem hafa ekki verið fáanlegar í verslunum hérlendis. „Það hefur ekki verið neitt úrval af þessari tónlist og ég ætla að bæta úr því,“ segir Haraldur Leví. Fyrsta sendingin er á leiðinni til landsins og inniheldur hún plötur með sveit- um á borð við Architects, Converge og Trap Them. „Fyrsta sendingin er pínulítil og ég er eiginlega búinn að selja hana,“ segir Haraldur og bætir við að viðbrögðin hafi komið sér á óvart. Hann tekur reyndar fram að harðkjarnaunnendur séu þeir dyggustu sem fyrirfinnast. „Þetta er ábyggilega virkasta senan á Íslandi sem þú finnur. Þeir kaupa alltaf allar peysur og boli og allt sem þessar hljómsveitir selja.“ Ótryggt efnahagsástandið og lágt gengi krónunnar truflar hann ekki neitt. „Þetta er náttúrlega ekkert ódýrt en maður reynir bara að spila vel úr þessu og gera þetta rétt.“ - fb Bjargar harðkjarnanum HARALDUR LEVÍ GUNNARSSON Haraldur flytur til landsins harðkjarnaplötur frá Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Opið: 10-18 mán – fös. 11-14 laugard. Austurhrauni 3 210 Garðabæ Re yk ja ne sb ra ut ka pl ak ri ki LAGERHREINSUN ALLT Á AÐ SELJAST ALLT Á A Ð SELJAS T 90% AFSLÁTT URALLT AÐ CINTAMANI FLÍSPEYSUR FRÁ 3.900.- CASALL BOLIR OG BUXUR FRÁ 1.990.- TONY HAWK OG O’NEILL BOLIR FRÁ 990.-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.