Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 58
42 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
HESTAR Annað mótið í Meistara-
deild VÍS fer fram í Ölfushöllinni
í kvöld og hefst keppni klukkan
19.30. Að þessu sinni verður keppt
í fjórgangi.
Það verður væntanlega mikið
um dýrðir enda margir gæðingar
væntanlegir í Ölfushöllina.
Sigurður Sigurðarson, sem vann
fjórgangskeppnina í fyrra, kemur
með Sölva frá Ingólfshvoli, Ísleif-
ur Jónsson mætir á Landsmóts-
meistaranum Röðli frá Kálfholti
og Sigurbjörn Bárðarson keppir
á Melódíu frá Möðrufelli svo ein-
hverjir gæðingar séu nefndir. - hbg
Meistaradeild VÍS í kvöld:
Glæsilegir gæð-
ingar mæta
TILÞRIF Það má búast við flottri keppni í
kvöld. MYND/JENS EINARSSON
HESTAR Það verður ekki bara
glæsileg keppni í Ölfushöllinni í
kvöld heldur verður fyrsta happ-
drættið af fimm í kvöld.
Verðlaunin eru ekki af lak-
ari endanum eða folatollur undir
Landsmótsmeistarann Óm frá
Kvistum.
Ómur vann fimm vetra flokk-
inn á síðasta Landsmóti en hann
er undan Ófeigssyninum Víglundi
frá Vestra-Fíflholti og Otursdótt-
urinni Orku frá Hvammi. Ómur
hlaut 8,61 í aðaleinkunn á Lands-
mótinu og er með 9,5 fyrir skeið,
vilja og geðslag.
Happdrættismiðinn kost-
ar 1.000 kr. og verða aðeins 250
miðar seldir. - hbg
Meistaradeild VÍS:
Hver vinnur
folatollinn?
HANDBOLTI Það styttist í að Dagur
Sigurðsson taki við stjórnartaum-
unum hjá þýska úrvalsdeildarliðinu
Füchse Berlin. Þó svo Dagur hafi
ekki formlega hafið störf er hann
samt að vinna fyrir félagið í leik-
mannamálum og öðru.
Nú síðast gekk Dagur frá kaup-
um á danska línutröllinu Torsten
Laen sem hefur leikið með Ólafi
Stefánssyni undanfarin ár í Ciu-
dad Real. Svo er óvissa með það
hvort Dagur fái hreinlega peninga
til þess að semja við Sverre Jak-
obsson.
„Hann er fínn þessi strákur.
Hægt að nota hann í vörn og sókn
og fínn í hraðaupphlaupum. Svo
er þetta reyndur kappi sem er
jákvætt. Flott að fá þennan strák
og við sendum smá skilaboð út á
við líka með þessu,“ sagði Dagur
sem er ekki hættur að versla. „Við
eigum væntanlega eftir að ganga
frá einum í viðbót. Ég ætlaði að
taka varnarmann og rétthenta
skyttu en þarf kannski að finna það
í einum manni. Sverre er samt ekki
út úr myndinni en það verður samt
ekki samið við hann á næstunni.“
Það er nóg að gera hjá Degi þessa
dagana. Hann er enn starfandi sem
framkvæmdastjóri Vals, er lands-
liðsþjálfari austurríska landsliðs-
ins í handbolta og er byrjaður að
vinna hjá Berlín og undirbúa komu
sína þangað.
„Það gengur mjög vel að sinna
þessu öllu. Ég er búinn að vera tölu-
vert í Berlín og það þarf mikið að
undirbúa en þetta er allt að koma.
Ég hef minna verið í Austurríki
enda það meira afmarkað starf.
Svo hef ég verið að aðstoða arftaka
minn hjá Val sem er samt öllum
hnútum kunnugur í Valsheimilinu
og því er það nú ekki mikið mál,“
sagði Dagur.
Dagur neitar því ekki að hann
sé að verða óþreyjufullur að hefja
störf hjá þýska félaginu en hann
mun flytja utan í sumar.
„Þetta er að byrja að verða svo-
lítil bið núna en ég bíð mjög spennt-
ur eftir því að hefja störf formlega
hjá félaginu. Því oftar sem ég fer
út verð ég spenntari og hausinn
er kominn hálfa leið til Berlínar,“
sagði Dagur sem er byrjaður að
dusta rykið af handboltabókunum
og er byrjaður að þjálfa hjá Val til
þess að koma sér í rétta gírinn.
„Það er mjög gott að komast af
stað aftur. Fór líka til Selfoss í
handboltaakademíuna að þjálfa og
hitti svo Brynjar Karl með Side-
line forritið. Maður er að dusta
rykið af öllu svo maður verði eins
tilbúinn og mögulegt er.“
Dagur og fjölskylda hafa þegar
fundið framtíðarheimili sitt í Berl-
ín og er óhætt að segja að það sé á
besta stað.
„Þetta er nánast við Ólympíuleik-
vanginn. Við æfum þar rétt hjá og
því afar þægilegt að vera í göngu-
færi við æfingasvæðið,“ sagði
Dagur. henry@frettabladid.is
Getur ekki beðið eftir að
komast til Füchse Berlin
Það er nóg að gera hjá Degi Sigurðssyni þessa dagana enda í raun að sinna
þremur störfum. Hann er enn að versla leikmenn fyrir Füchse Berlin og tals-
verð óvissa er um hvort Sverre Andreas Jakobsson gangi í raðir félagsins.
FRAMKVÆMDASTJÓRI, LANDSLIÐSÞJÁLFARI OG FÉLAGSÞJÁLFARI Dagur Sigurðsson
hefur nóg á sinni könnu þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/HAGENPRESS
FÓTBOLTI Keflavík fékk fínan lið-
styrk í gær þegar miðvörðurinn
stæðilegi, Bjarni Hólm Aðal-
steinsson, ákvað að ganga í raðir
Keflavíkurliðsins frá ÍBV.
Þetta eru frábær tíðindi fyrir
Keflavík sem hefur mátt horfa
á bak þremur leikmönnum sem
geta spilað miðvarðarstöðuna
– Hallgrími Jónassyni, Guðmundi
Mete og Kenneth Gustafsson.
Missirinn að sama skapi mikill
fyrir ÍBV þar sem Bjarni hefur
verið lykilmaður. Félagið hefur
þó samið við Matt Garner upp á
nýtt. - hbg
Keflavík fær liðstyrk:
Bjarni Hólm til
Keflavíkur
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, segir að aðeins Liver-
pool geti barist við sitt lið um
enska meistaratitilinn. Hann
er búinn að afskrifa Chelsea og
Arsenal í baráttunni en ætlar að
fylgjast grannt með Aston Villa
sem læðist aftan að toppliðunum
tveimur.
„Chelsea er búið að spila þetta
upp í hendurnar á okkur og nú
verður baráttan á milli okkar
og Liverpool. Ég gleymi samt
ekki Aston Villa sem virðist hafa
tekið við keflinu af Arsenal. Ég
var mjög hissa á því að Chelsea
skyldi losa sig svo snemma við
reyndan og hæfan þjálfara sem
Scolari er. Þeirra viðbrögð er enn
ein myndin af þeirri sorglegu leið
sem fótboltinn stefnir þessa dag-
ana. Það vilja allir skyndiárang-
ur og félög hafa enga þolinmæði.
Árangur kemur aftur á móti með
stöðugleika og langtímamarkmið-
um,“ sagði Ferguson.
- hbg
Sir Alex Ferguson spáir því að Man. Utd og Liverpool muni berjast til enda:
Alex Ferguson afskrifar Chelsea
FÓTBOLTI Enn ríkir mikil óvissa
um framtíð Argentínumannsins
Carlos Tévez og hann segir núna
að sín mál muni ekki skýrast fyrr
en næsta sumar. Tévez er samn-
ingsbundinn Man. Utd til næsta
sumars en þangað kom hann á
tveggja ára lánssamningi.
Sky-fréttastofan segir að Man.
Utd sé þegar búið að samþykkja
að greiða um 30 milljónir punda
fyrir argentínska framherjann en
hefur dregið lappirnar í að ganga
frá málinu.
Á meðan bíður Tévez á vængn-
um og veit ekkert hvað muni ger-
ast en hann hefur margoft lýst
því yfir að hann vilji spila áfram
fyrir ensku meistarana.
„Hér líður mér vel og hér vil ég
spila næstu árin. Það yrði mjög
erfitt að yfirgefa eitt stærsta
félag heims. Nú erum við bara að
bíða fram í júní og ég mun ekk-
ert vita fyrr en þá,“ sagði Tévez í
útvarpsviðtali í Argentínu. - hbg
Carlos Tévez:
Veit framtíð
sína í sumar
TÉVEZ Veit ekkert hvar hann spilar næsta
vetur. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Svo gæti farið að Steven
Gerrard birtist óvænt á fótbolta-
vellinum um helgina er Liverpool
spilar gegn Man. City.
Gerrard tognaði aftan í læri í
bikarleiknum gegn Everton fyrr í
mánuðinum og var búist við því að
hann myndi ekki spila aftur fyrr
en gegn Real Madrid í næstu viku.
„Hann er allur að koma til og
hver dagur skiptir máli,“ sagði
Rafa Benitez, stjóri Liverpool,
sem sagði spænsku blöðin hafa
komið sér á óvart með fréttum af
fyrirliðanum sínum.
„Þar stóð að hann myndi leika
nokkrar mínútur um helgina og
síðan yrði hann fullkomlega klár
gegn Real. Sannleikurinn er að
við höfum ekki hugmynd um það,“
sagði Benitez. - hbg
Steven Gerrard:
Gæti spilað um
helgina