Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 6. janúar 1988 Framsóknarflokkurinn í borgarstjórn: Tímamynd: Gunnar ADKOMAN AD MJODD VERDIADGENGILEG Bifreiöaeftirlitiö: Rekstur s.l. árs fyrir ofan núllið Bifreiðaeftirlit ríkisins skilar nokkrum rekstrarhagnaði á síðast- liðnu ári. Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits- ins staðfesti í samtali við Tímann að tekjur yrðu örlítið meiri en gjöld. Hann sagði að þetta væri árangur mikils rekstrarátaks sem hefði verið í gangi seinni hluta síðasta árs. „Veltan erámilli 130 og 140milljón- ir. Sparnaðurinn er á öllum sviðum rekstursins, t.d. á yfirvinnu og alls- konar öðrum rekstrarþáttum. Það er rétt að taka fram að við höfum ekki fengið meira fé á fjárlögum cn gert var ráð fyrir.“ Aðspurður sagði Haukur að einn nýr tekjupóstur Bifreiðaeftirlits væri fólginn í sölu á upplýsingum úr bifreiðaskrá. „Það eru mjög margir aðilar sem nota bifreiðaskrá. Þetta cru upplýsingar sem kostar að safna og geyma. Fyrir þessar upplýsingar hafa nienn þurft að greiða eins og t.d. aðgang að upplýsingum úr þjóðskrá. Tekjur af þessu hafa numið nokkrum milljón- um króna. Þessar tekjur hafa þó ekki skipt sköpum fyrir reksturinn," sagði Haukur Ingibergsson. óþh Leiðrétting Framsóknarflokkurinn í borgar- stjórn mun á næsta fundi borgar- stjórnar leggja fram tillögu um að aðkoma að verslunar- og jjjónustu- kjarnanum í Mjóddinni verði gerð aðgengileg að nýju, en eftir að vinstri beygju af Reykjanesbraut inn í Álfabakka var lokað hafa vegfarendur átt í erfiðleikum með að nýta sér þá aðstöðu sem verið er að byggja upp í Mjóddinni. Landsbankinn og aðrir þjón- ustuaðilar í Mjóddinni hafa kvart- að mjög vegna þess hve erfitt er fyrir vegfarendur að komast að Mjóddinni eftir að vinstri beygja af Reykjanesbraut inn í Mjódd var bönnuð og hafa þeir beðið um úrlausn sinna mála. Því hefur ekki verið sinnt. Að sögn Erlings Sigurðssonar hjá Olís dróst sala á bensíni og olíum á bensínstöð Olís við Álfa- bakka saman um 25-30% eftir að vinstri beygja var af Reykjanesb- raut var bönnuð á sínum tíma. Má ætla að lokunin hafi svipuð áhrif á önnur þjónustufyrirtæki í Mjódd- inni. Tillaga Framsóknarflokksins er sú að vinstri beygjan verði aftur tekin upp af Reykjanesbraut inn í Álfabakka að Mjódd og er bent á tvær leiðir. Önnur er sú að setja upp umferðarljós á Reykjanes- brautina sem tryggi vinstri beygju á sama hátt og gert er á Kringlu- mýrarbraut til að beina umferð inn í Kringluna. Hin er að byggja Gísli Karlsson og Gunnar Guðbjartsson. Gísli tók við af Gunnari sem framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins í gær. Mannaskipti hjá framleiðsluráði Gunnar Guðbjartsson fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins lét af störfum í fyrradag, en við tók Gísli Karlsson sem undanfarið hefur verið sveitar- stjóri í Borgarnesi, en var áður kennari við Bændaskólann á Hvanneyri. Gunnar Guðbjartsson er fæddur 6. júní 1987 og varð því sjötugur á síðasta ári. Hann hóf búskap á fæðingarbæ sínum, Hjarðarfelli í Miklholtshreppi á Snæfellsnesi árið 1942, en hafði áður stundað nám á Laugarvatni og Hvanneyri. Gunn- ar hóf snemma störf fyrir bænda- samtökin, fyrst sem formaður Bún- aðarsambands Snæfellinga. Hann var Búnaðarþingsfulltrúi í alls 32 ár og fulltrúi á aðalfundi Stéttar- sambands bænda í 36 ár. Gunnar Guðbjartsson var kos- inn formaður Stéttarsambands bænda árið 1963 og gegndi því starfi í 18 ár eða til ársins 1981. Árin 1963 til 1977 var hann formað- ur Framleiðsluráðs landbúnaðað- arins og var ráðinn framkvæmda- stjóri þess 1. janúar 1980. Gunnar er kvæntur Ásthildi Teitsdóttur og eiga þau 6 börn og 15 barnabörn. undirgöng undir Reykjanesbraut líkt og gert var undir Miklubraut- ina að þjónustukjarnanum í Kringlúnni. í greinargerð sem fylgir tillögu Framsóknarflokksins er bent á að borgaryfirvöld verði jafnan að gæta þess að aðilum í verslun og þjón- ustu sé ekki mismunað þegar um umferðarframkvæmdir er að ræða af hálfu borgarinnar og skipt geta sköpum fyrir viðkomandi aðila. -HM Meinleg villa er í grein í gær um véldreka, sem hafa fengið heitið „fis“ skv. nýrri reglugerð. Rangt er farið með nafn þess sem sagður er eiga heiður af nafngiftinni og er beðist velvirðingar á því. Átt var við Skúla Jón Sigurðarson, deildarstjóra í loftferðaeftirliti. Ómar Ragnarsson hafði samband við Tímann og árétt- aði að heitið „fis“ hefði verið notað hjá Rtkissjónvarpinu í tíu ár, eða frá því að slíkt loftfar var fyrst sýnt hér á landi. Arkitektúr í Ásmundarsal Fimmtudaginn 7. janúar nk. kl. 20.00, verður opnuð sýning á loka- verkefnum nýlega útskrifaðra arki- tekta, í Ásmundarsal Freyjugötu 41, húsi Arkitektafélags íslands. í tengslum við sýninguna munu höfundar kynna verk sín. Helmingur verkanna verður kynntur strax eftir opnun sýningarinnar, hinn helming- urinn fimmtudaginn 14. janúar kl.20.00. Á sýningunni eru 8 verk. Þau eru: MIÐBÆR { KUPPENHEIM, V- ÞÝSKALANDI, höf. Andrés Narfi Andrésson, Universitat Karlsruhe 1986, SÆDÝRASAFN í HAFN- ARFIRÐI, höf. Hafdís Hafliðadótt- ir, Arkitektskolen i Aarhus 1986, S.MARIA DELLA SCALA: MUS- EO CIVICO, SIENA, ITALIA, höf. Halldóra Bragadóttir, LTH Ar- kitektsektionen Lundi Svíþjóð 1985, „HÚS BORGARINNAR“ í I REYKJAVÍK, höf. Helgi MárHall- 1 dórsson, Arkitekthögskolen i Oslo Noregi 1987, FORM OG HÍBÝLI,. höf. Hjördís Sigurgísladóttir, Virg- inia Polyt. Institut and State Univ. Bandaríkin 1986, SJÓMINJASAFN í HAFNARFIRÐI, höf. Ólöf Flyg- ering, Arkitekthögskolen i Oslo Noregi 1985, HEILSUHÓTEL I SVARTSENGI, höf. Pálmi Guð- mundsson, Technische Universitat Berlin 1986 og BADHÚS ÖSJU- HLÍÐ, höf. Ragnar Ólafsson, Kunst akademiets arkitektskole Kaup- mannahöfn 1987. Sýningin verður opin virka daga kl. 17.00-21.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Sýningunni lýkur sunnudaginn 17. janúar. óþh Bessastaöir: Nefndskipuð Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til þess að gera tillögur til forsætisráðuneytisins um endur- bætur og framtíðaruppbyggingu forsetasetursins á Bessastöðum. Formaður nefndarinnar er Matt- hías Á. Mathiesen, samgöngu- ráðherra, og með honum í nefnd- inni eiga sæti Kjartan Jóhanns- son, alþingismaður, Kornelíus Sigmundsson, forsetaritari, Helga Jónsdóftir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Leifur Blum- enstein, byggingafræðingur, og Guðmundur Jónsson, húsa- smíðameistari.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.