Tíminn - 06.01.1988, Side 15

Tíminn - 06.01.1988, Side 15
Miðvikudagur 6. janúar 1988 llllllllllllllllllllll minning . " Páll Júlíusson Fæddur 20. desember 1934. Dáinn 9. desember 1987. Páll Júlíusson var fæddur í Hítar- nesi í Kolbeinsstaðahreppi 20. des- ember 1934. Hann var yngstur 11 barna hjónanna Kristínar Stefáns- dóttur og Júlíusar Jónssonar bónda og hagyrðings í Hítarnesi. Páll dvaldi í Hítarnesi alla tíð, en hann tók við búi af föður sínum 1966. Þá var móðir hans látin en Júlíus faðir hans dvaldi í Hítarnesi hjá syni sínum til dánardægurs. Árið 1959 fórst togarinn Júlí og með honum þrjátíu manns. Einn af þeim var bróðir Páls, Aðalsteinn, ungur efnilegur maður. Ung kona, Kristbjörg Þórarinsdóttir, missti mann sinn einnig í þessu mannskæða sjóslysi. Hún var nú ekkja með sex ung börn. Kristbjörg fór í Hítarnes sem ráðskona með fjögur börn sín. Páll og hún gengu síðan i hjónaband og eignuðust þau saman fimm börn. Þau eru: Kristín búsett í Vestmanna- eyjum, Aðalheiður, Halldór, Stefán og Júlíus, öll heimilisfólk í Hítar- nesi. Kristbjörg og Páll voru mjög sam- hent í búskapnum og samrýmd. Þegar Páll tók við búi í Hítarnesi tók hann þegar til við miklar fram- kvæmdir. Hann stækkaði túnið, byggði nýtt íbúðarhús, fjós og hlöðu. Var með ólíkindum hve miklu hann kom í verk þegar þess er gætt hve mikla ómegð hann hafði. En Páll var ákaflega vinnusamur og vannst allt vel. Hann var þó hægur í fasi og rólegur og virtist alltaf hafa nógan tíma. Hann var einn af þessum mönn- um sem reynast drýgri til margra verka en þeir sem meira láta. Páll var ágætlega greindur og gæddur mörgum hæfileikum þótt hann flíkaði þeim ekki. Páll var t.d. orðinn fullorðinn maður þegar menn komust að því að hann var góður söngmaður, hafði mikla og góða bassarödd. Og eins og í öðru lá Páll ekki á liði sínu að efla fáskrúðugt sönglíf fámenns sveitarfélags. Hann söng í kirkjukór Kolbeinsstaða- kirkju og um tíma var hann í Mýra- mannakórnum. Það vissu fáir fyrr en á seinni árum að Páll var líka ágætur hagyrðingur. En ekki flíkaði hann mikið vísum sínum. Páll hefur sjálfsagt aldrei óskað sér annars hlutskiptis en að vera bóndi íHítarnesi. Hann hafði gaman af skepnum og lét sér annt um þær eins og góðra bænda er siður. Eink- um hafði Páll yndi af góðum hestum og átti góða reiðhesta. Annir bónd- ans hafa vafalaust komið í veg fyrir að hann gæti sinnt hestamennsku að einhverju ráði. Eins og áður sagði var Páll hæglát- ur maður og hafði ekki hátt á mannfundum. En hann bjó yfir hlýrri glettni og var manna skemmtilegastur í góðra vina hópi. Ég sem þetta rita hef þekkt Pál alla ævi, enda fæddur og uppalinn í sama sveitarfélagi. En sem fullorð- inn maður flutti ég á næsta býli við Hítarnes og hóf þar búskap. Þá kynntist ég því vel hve mikill mann- kostamaður Páll var. Á frumbýlisár- um mínum þurfti ég oft að leita til Páls um aðstoð við eitt og annað, fá lánaða vél eða vél og mann. Aldrei taldi Páll sig hafa svo mikið að gera að hann gæti ekki gert mér greiða. Allt var sjálfsagt. Á ég og fjölskylda mín Páli mikið að þakka bæði þá og síðar. Betri granna getur enginn óskað sér. Ég og fjölskylda mín sendum Kristbjörgu, börnunum og systkin- um Páls okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hallbjörn Sigurðsson, Krossholti. Foreldrar Páls voru hjónin Júlíus Jónsson frá Einifelli í Stafholtstung- um og Kristín Stefánsdóttir í Hítar- nesi, en þar er ætt Kristínar búin að vera í hart nær heila öld. Þau bjuggu rausnarbúi í Hítarnesi um 50 ára skeið og áttu 11 börn, sem öll urðu uppkomin, nema eitt, sem lést í bernsku. Tveir bræðurnir eru látnir, Stefán og Aðalsteinn, en Aðalsteinn fórst með togaranum Júlí frá Hafnarfirði 1959. Páll var yngstur af sínum systkin- um og var alltaf í foreldrahúsum og varð fljótt stoð og stytta foreldra sinna við búskapinn. Er móðir hans lést 1958 tók hann við forsjá heimilis- ins að mestu. í apríl 1960 réðst til hns ung kona úr Reykjavík, Krist- björg Þórarinsdóttir. Kristbjörg var orðin ekkja fyrir rúmu ári, en maður hennar, Skúli Lárus Benediktsson fórst með sama togaranum og Aðal- steinn bróðir Páls. Kristbjörg var þá orðin móðir 6 barna. Hún flytur að Hítarnesi með fjögur elstu börnin, það elsta 7 ára, en tveim yngstu bræðrunum kemur hún í fóstur. Þetta var upphaf á hamingju Páls og Kristbjargar með sinn stóra barn- ahóp. Þau Páll og Kristbjörg gengu í hjónaband og eignuðust 5 börn. Er tvíburabræðurnir voru 11 ára, fluttu þeir einnig að Hítarnesi, þá höfðu þeir misst fósturmóður sína. Svo barnahópurinn var stór, sem ólst upp í Hítarnesi. Páll gengdi þar miklu föðurhlutverki, sem hann leysti af hendi með prýði. Páll réðst fljótt í að rækta og endurbyggja á jörðinni, svo Hítarn- es er höfuðból, eins og það hefur verið í gegnum tíðina. Börn Kristbjargar og Skúla eru öll flutt að heiman, en þau eru: Þórunn Katrín, Þórður Kristján, Guðvarður Jósep, Kristbjörg, Skúli Lárus og Ingi Þór. En börn Kristbjargar og Páls eru: Kristín Júlía gift í Vest- mannaeyjum, Aðalheiður, heima, Halldór, við búfræðinám, Stefán Helgi, heima og Júlíus ófermdur. Þetta er í stuttu máli lífshlaup bóndans, sem nú er fallinn frá fyrir aldur fram, með því ívafi sem við sem kunnug erum þekkjum nokkuð til. Páll var með afbrigðum góður nágranni og greiðamaður, sem og verið höfðu foreldrar hans. Að kveldi 30. júní sl. hafði ég símasam- band við Pál og spurði hvort hann járnaði fyrir mig hest ef ég kæmi með hann til hans. Jú, hann bjóst við því, en segir síðan: „Á ég ekki heldur að koma til þín“. Þannig var Páll, það var svo sjálfsagt að greiðinn væri sem best af hendi leystur. Eftir hálftíma var Páll kominn. Það tognaði úr viðstöðunni og það var komið fram yfir miðnætti er við kvöddumst hér á hlaðinu. Júnínóttin var svo björt og hlý sem hún frekast getur orðið. Túnin biðu þess að vera slegin, bóndinn gladdist yfir góðum grasvexti því aldrei er hann eins nátengdur gróðurmoldinni og um hásumarið, ilmurinn úr mold og grasi orkar sterkt á vitund hans, sem á allt sitt undir tíðinni. Ekki hvaflaði að mér þá, að þetta yrði í síðasta sinn sem Páll yrði gestur minn. Fáum dögum seinna fréttum við að hann hefði farið til læknisskoðunar og fljótlega gekk hann undir aðgerð og var bundinn við sjúkrabeðinn framundir miðjan ágúst, er hann kom heim aftur, og var að mestu heima úr því en mátti tíðum leita til sjúkrahúsanna til skemmri dvalar. Ég hitti hann tvívegis í haust hann virtist nokkuð hress og brá fyrir sig sínum létta „humor“, sem honum var svo eiginlegur, en það fór ekki leynt að það var farið að hausta í hans ævi, þó aldur væri aðeins yfir það að vera á hásumri. Einhver spekingur á að hafa sagt að bókemnntirnar væru sál aldanna. Þetta er vafalaust rétt, svo langt sem það nær. En ætli einstaklingurinn - maðurinn - og þau áhrif sem hann hefur á samtíðina, sé ekki sál ald- anna og ef þau áhrif eru af hinu jákvæða, þá geta þau orkað til góðs á framvindu lífsins. Páll var einn af þeim mönnum sem aldrei var krefjandi en oftast veitandinn. Það var þessi sami hugs- unarháttur, sem talið er að hafi einkennt aldamótakynslóðina, sem aldrei spurði um hvað samtíðin gæti gert fyrir sig, heldur hvað hún gæti gert fyrir samtíðina og framtíðina. Það voru ófáar ferðirnar sem Páll fylgdi ferðafólki um Löngufjörur og suður Mýrar var gjarnan pantaður á móti, því hann sat nokkuð miðsvæð- is á þeim fjöruleiðum. Munu margir minnast hans nú með þakklæti. Hann var hestamaður, sem verið hafði faðir hans, en barst ekki á í því frekar en öðru. En þó kom fyrir að hann lagði „gangvarann" á hesta- mótum og vann til sigurs. Vel hag- mæltur var hann og fljótur að kasta fram vísu en fór dult með, og það er ekki langt síðan ég vissi að hann fengist við slíkt. Ég minnist þess að eitt sinn í skilarétt í hans heimasveit að hand- sama þurfti baldið trippi. Ungir menn í réttinni hugðust taka hrossið en það fór allt í handaskolum hjá þeim, en Páll stóð hjá og hafðist ekki að, þá segir réttarstjórinn með hægð: „Vilt þú ekki handsama hrossið Páll?“ Það liðu ekki margar mínútur þar til Páll hafði tekið hrossið. Hann var í héraðslögreglunni um tíma. Þar var réttur maður á réttum stað, vel að manni og með þessa einstaklega þjálu skapgerð, að fara aldrei úr jafnvægi, en sjálfsagt hefur starfið ekki verið að hans skapi, hann var of mikill friðsemdarmaður til þess. Þegar ég nú við leiðarlok kveð vin minn Pál í Hítarnesi, þá er mér vel ljóst að við hlið stóð mikilhæf kona, sem mætt hefur mótlæti og afkastað óvenju miklu dagsverki, það eru sumir þannig gerðir að þeir koma stærri og sterkari út úr sorgum og mótlæti. Ætli það sé ekki það sem kallað er að vinna sigur yfir sjálfum sér. Kristbjörg mín. Við systkinin sendum þér og börnunum og öðrum nákomnum ættingjum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum þann Guð sem gaf okkur sýn að hjálpa ykkur að axla þá byrði sem á ykkur er lögð því hann: ... stýrir vorsins veldi og verndar hverja rós frá þínum ástar eldi fá allir geimar Ijós. (D.ST.) Jón Gudmundsson. iR BÍLALEIGA Útibú i kringum landið REYKJAVIK:.. 91-31815/686915 AKUREYRI:.... 96-21715 23515 BORGARNES: ......... 93-7618 BLÖNDUÓS:...... 95-4350/4568 SAUÐARKROKUR: . 95-5913/5969 SIGLUFJORÐUR: ..... 96-71489 HUSAVIK: .... 96-41940/41594 EGILSSTAÐIR: ....... 97-1550 VOPNAFJORÐUR: . 97-3145 3121 FASKRUÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ... 97-8303 irrterRent Tíminn 15 Skip til sölu Tilboð óskast í Vitaskipið Árvakur, þar sem það liggur við Suðurhöfnina í Hafnarfirði, í því ásig- komulagi sem skipið er í núna. Skipið verður til sýnis eftir nánara samkomulagi við forstöðumann vita hjá Vitamálastofnun og gefur hann jafnframt allar nánari upplýsingar: sími 27733. Tilboð leggist inn á skrifstofu vora eigi síðar en 20. jan. n.k. kl. 11.30 f.h. og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Þroskaþjálfi eða aðstoðarmanneskja óskast sem fyrst og út skólaárið til að aðstoða fatlað barn í Foldaskóla. Upplýsingar hjá forstöðumanni sálfræðideildar skóla, Réttarholtsskóla, sími 32410 eða hjá yfir- kennara Foldaskóla, sími 672220. Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur + Móöir mín og amma okkar Guðný Jónsdóttir Heiöargerði 80 Reykjavík sem andaöist 30. desember s.l., veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. janúar kl. 15.00. Nanna Tryggvadóttir GuömundurJónsson Tryggvi Jónsson + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Margrét Finnsdóttir Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi áður Haugum, Stafholtstungum verður jarösungin laugardaginn 9. janúar kl. 14 frá Stafholtskirkju. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Sigurður Þorsteinsson Ágúst Þorsteinsson Guörún Jóhannsdóttir Finnbogi Þorsteinsson Ingi Þorsteinsson Pálína Guömundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn + Útför eiginmanns míns Alberts Jóhannessonar Kleppsvegi 12, Reykjavík verður gerö frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 6. janúar kl. 16.30. Blóm eru vinsamlegast afbökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Islands. Nelly Eva Jóhannesdóttir. + Eiginmaður minn, Ragnar H. Ragnar isafirði verður jarðsunginn frá Isafjarðarkapellu fimmtudaginn 7. janúar kl. 2 síðdegis. Sigríður Jónsdóttir Ragnar + Guðni Skúlason bifreiðarstjóri Grýtubakka 20 sem andaðist á Borgarspítalanum 29. desember sl. verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju 7. janúar kl.13.30. F.h. vandamanna Herdís Karlsdóttir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.