Tíminn - 24.01.1988, Qupperneq 2

Tíminn - 24.01.1988, Qupperneq 2
2 Tíminn Sunnudagur 24. janúar 1988 nnmnr HS&9HÍ n ri n iTi nnn ítiíti Verð frá : Trooper - bensín 2,3 Itr. Kr. 1.096.000,- Trooper - diesel 2,8 Itr. tu. b. Kr. 1.358.000,- ISUZU TROOPERer framleitldur af fyrsta og elsta bílaframleiðanda Japans. ISUZU TROOPERer fjölhæfur og sterkbyggöur ferðabíll meö gnaegö rýmis t’yrir farþega og farangur, þægilegurog sparneytinn fólksbíll í borg og bæ. ISUZU TROOPERer oröinn einn vinsælasti innflutti jeppinn í Bandaríkjunum og valinn einn af 10 bestu fjórhjóladrifsbílum þar í landi. ISUZU TROOPERer án efa einn sá traustasti á markaöinum í dag, enda íramleiddur af Styttri geröir fáanlegar um áramót. □m s \ JL JL. dögunum slógumst við í för meö fulltrúum frá félögum aldraðra á suðvesturhorninu og var ferðinni heitið að Flúðum í Hrunamannahr eppi. Tilefni ferðarinnar var að skoða þá aðstöðu sem búið er að byggja upp á Flúðum til að taka við þeim aukna straum ferðamanna sem leggur leið sína á þennan stað. frá sunnudegi til föstudags, þar sem sérstök áhersla verður lögð á styttri skoðunarferðir um nágrennið og að þátttakendur komist í beina snert- ingu við íbúa Hrunamannahrepps, m.a. með heimsóknum á bæina. í samtölum við fulltrúa frá Félags- starfi aldraðra kom m.a. fram, „að sú aðstaða og dagskrá sem nú væri boðið upp á fyrir eldri borgara á Flúðum hefði sárlega vantað. Fólk hefur hingað til þurft að leita út fyrir landsteinana til að fara á hótel og fá þjónustu við sitt hæfi. Reykjavíkur- borg hefur á sinni könnu níu félags- miðstöðvar. Vinsælust er spila- mennskan en einnig er hægt að fá ýmsa þjónustu, t.d. er hægt að fara í bað, fá handsnyrtingu, fótsnyrtingu og hárgreiðslu. Einnig eru allskonar námskeið í gangi svo sem tungumál og leikfimi svo eitthvað sé nefnt.“ FJÖLBREYTT UMHVERFI Flúðir hafa ekki eingöngu upp á að bjóða vistlega gistiaðstöðu, held- ur er einnig ótal skemmtilegra gönguleiða og staða sem athyglisvert er að skoða. Má þar m.a. nefna fágætt minjasafn í eigu Emils Ás- geirssonar. Stór og góð sundlaug er á staðnum, með gufubaði, hvíldar- herbergi og ljósabekk, og 9 holu golfvöllur sem stendur til að stækka, einnig er stórt hverasvæði skammt frá. Stutt er á alla fegurstu og sögu- frægustu staði í Árnes- og Rangár- vallasýslum, svo sem Gullfoss, Geysi, Skálholt, Þjórsárdal, Laugar- vatn, Þingvelli og fleiri áhugaverða staði sem vert er að skoða. í þeim þéttbýliskjarna sem þama hefur myndast búa um 150 manns, en heildarfjöldi íbúa í Hrunamanna- hreppi er tæplega 500 manns. At- vinnulífið á Flúðum er fjölbreytt, en fyrir utan umfangsmikla ferða- mannaþjónustu þá er stunduð þar mikil gróðurhúsarækt, verslun, við- gerðarverkstæði, banki og límtrés- verksmiðja, svo dæmi séu tekin. Hverju herbergi fylgir utisetlaug sem nýtur mikilla vinsælda hjá gestunum. Auk þess hefur hvert nerbergi sér forstofu, steypibað, snyrtingu og ísskáp, svo dæmi séu tekin. (Timamynd abó) KOMA AFTUR ÁR EFTIR ÁR Á sumrin eru það einkum erlendir ferðamenn sem gista Flúðir, en einn- ig hefur íslendingum sem leggja leið sína að Flúðum farið stöðugt fjölg- andi. Að sögn heimamanna hefur nýtingin yfir vetrarmánuðina verið allgóð, því staðurinn hefur notið sífellt meiri vinsælda meðal einstakl- inga og hópa sem koma ár eftir ár, til að njóta sumar- og vetrardaga fjarri ys og þys þéttbýlisins. Síðastliðið haust hófst samstarf Ferðaskrifstofunnar Sögu og Skjól- borgar hf., en svo heitir hótelið á staðnum, um markaðssetningu og bókanir á gistiherbergjum og annarri aðstöðu Skjólborgar að Flúðum. Tilgangur þessa samstarfs, að sögn forsvarsmanna fyrirtækjanna, er að auka nýtingu gistirýmis Skjólborgar allan ársins hring en það var stækkað um 12 gistiherbergi í vor sem leið. Áður hafði Skjólborg yfir að ráða 8 gistiherbergjum, sem reist voru fyrir 12 árum. í vor er síðan stefnt að því að taka í notkun 4 herbergi til viðbótar, þannig að í Skjólborg verða fyrir hendi 24 gistiherbergi næsta sumar, sem hvert um sig hýsir 2 gesti, auk þess sem hægt er að búa um 1 til 2 aukarúm í hverju þeirra. Herbergin eru hin vistlegustu, og fylgir hverju þeirra heitur pottur, sturta og salerni. í Félagsheimili Hrunamanna er rekin veitingasala, þar sem gestir Skjólborgar og aðrir ferðamenn geta keypt veitingar jafnt að sumri sem vetri. Á sumrin er skólahúsnæðið á staðnum einnig tekið undir gistiað- stöðu og bætast þá við 19 herbergi sem eru misjöfn að stærð. Fyrir tveim árum var opnað tjald- stæði að Flúðum sem notið hefur mikilla vinsælda og gestum þess farið sífellt fjölgandi á þessum stutta tíma. SÉRSTAKAR HÓPFERÐIR FYRIR ALDRAÐA í febrúar, mars og apríl er boðið upp á sérstakar hópferðir sem hafa verið skipulagðar fyrir eldri borgara og verða í umsjón Sigurbjargar Hreiðarsdóttur, en hún hefur séð um tómstundastarf eldri borgara í Hrunamannahreppi. Um er að ræða ferð sem stendur í fimm sólarhringa, BÍLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 mmr Msa-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.