Tíminn - 24.01.1988, Blaðsíða 16
mg*■* I r^
.. »"•% 3 IA,
BREYTTUR
persónuafcláffun
Nú 14.797 kr.
fyrir hvern mánuð
Persónuafsláttur í stadgreiðslu opin-
berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797
krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan.-
júní 1988.
Þessi breyting á persónuafslætti hefur
ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin úttil
þeirra sem fengu sín skattkort fyrir 28. des. sl.,
heldur ber launagreiðanda að hækka persónu-
afsláttinn við útreikning staðgreiðslu.
Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín
útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts
afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann
persónuafslátt, sem fram kemur á þessum
skattkortum og aukaskattkortum (öllum
grænum og gulum kortum), um 8,745%
(stuðull 1,08745).
Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki
upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á
að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að
taka tillit til orðinnar hækkunar við útreikning
staðgreiðslu. Launamaður má ekki heldur
breyta upphæðinni sem fram kemur á skatt-
korti hans. Hann afhendir launagreiðanda kort-
ið óbreytt nema hann fái aukaskattkort.
Skattkort sem gefin eru út 28. desember
og síðar bera annan lit en þau skattkort sem
gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort
munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið
janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka
persónuafslátt þann sem þar kemur fram við
útreikning staðgreiðslu.
Heimilt er að millifæra 80% af ónotuðum
persónuafslætti til maka. Þetta gildir bæði um
hjón og sambúðarfólk, sem hefur heimild til
samsköttunar.
Launagreiðandi millifærir persónu-
afsláttinn, þannig að hann tekur tillit til 80%
þeirrar upphæðar sem fram kemur á skatt-
korti og aukaskattkorti maka, hafi það verið
afhent honum.
Launagreiðendur afhugið
að hœkka upphœð persónuafsláftar
á eldri skatfkorfum um 8,745%