Tíminn

Dagfesting
  • fyrri mánaðurinjanuar 1988næsti mánaðurin
    mifrlesu
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    1234567

Tíminn - 24.01.1988, Síða 16

Tíminn - 24.01.1988, Síða 16
mg*■* I r^ .. »"•% 3 IA, BREYTTUR persónuafcláffun Nú 14.797 kr. fyrir hvern mánuð Persónuafsláttur í stadgreiðslu opin- berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797 krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan.- júní 1988. Þessi breyting á persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin úttil þeirra sem fengu sín skattkort fyrir 28. des. sl., heldur ber launagreiðanda að hækka persónu- afsláttinn við útreikning staðgreiðslu. Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann persónuafslátt, sem fram kemur á þessum skattkortum og aukaskattkortum (öllum grænum og gulum kortum), um 8,745% (stuðull 1,08745). Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að taka tillit til orðinnar hækkunar við útreikning staðgreiðslu. Launamaður má ekki heldur breyta upphæðinni sem fram kemur á skatt- korti hans. Hann afhendir launagreiðanda kort- ið óbreytt nema hann fái aukaskattkort. Skattkort sem gefin eru út 28. desember og síðar bera annan lit en þau skattkort sem gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka persónuafslátt þann sem þar kemur fram við útreikning staðgreiðslu. Heimilt er að millifæra 80% af ónotuðum persónuafslætti til maka. Þetta gildir bæði um hjón og sambúðarfólk, sem hefur heimild til samsköttunar. Launagreiðandi millifærir persónu- afsláttinn, þannig að hann tekur tillit til 80% þeirrar upphæðar sem fram kemur á skatt- korti og aukaskattkorti maka, hafi það verið afhent honum. Launagreiðendur afhugið að hœkka upphœð persónuafsláftar á eldri skatfkorfum um 8,745%

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar: 18. Tölublað (24.01.1988)
https://timarit.is/issue/280111

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

18. Tölublað (24.01.1988)

Gongd: