Tíminn - 24.01.1988, Side 15
Tíminn 15
Sunnudagur 24. janúar 1988
llllllflllllilHlllllllí , fólk
Gettu nú
Þau ætla að gifta
sig í vor
Sabrina Le Beauf er Islenskum
sjónvarpsáhorfendum betur þekkt
undir nafninu Sondra í framhalds-
myndaflokknum „Fyrirmyndar-
faöir“ þar sem hún leikur elstu
dóttur Bill Cosby.
Hún mun nú vera ástfangin upp
fyrir haus af John nokkrum O'Neill
og hófu þau búskap síðastliðið
haust í húsi sem Sabrina keypti
síðastliðið sumar. Neill hefur
eitthvað fengist við leik í fyrrnefnd-
um þáttum og þykir allra hugljúfi,
ekki síst Cosby sjálfs.
- Við erum mjög ástfangin en
ákváðum að búa saman í einhvern
tíma áður en við giftum okkur, þvr
ég ætla mér ekki að gifta mig nema
einu sinni. Þegar ég segi, JÁ, þá
ætla ég að meina það, sagði Sabrina
og bætti við, ég hef aldrei verið
eins hamingjusöm, þannig að búast
má við giftingu í vor.
Skötuhjúin eru ekki mikið fyrir
skemmtanalífið, heldur finnst
þeim best að liggja fyrir framan
arineldinn á kvöldin og slappa af,
eða þá að fá sér göngutúr um
nágrennið.
Þá er bara að bíða og sjá þegar
Cosby giftir „dóttur“ sína, en hann
mun vera mjög hrifinn af þessu
framtaki skötuhjúanna.
Myndin sem við birtum
í síðustu getraun af sér-
kennilegri bergmyndun
má finna á Langjökli og
kallast Fjallkirkja.
Á suð-austurhorni
landsins má hinsvegar
finna þennan fallega foss
sem hér sést.
Sabrina og kærastinn John O'Neill hafa keypt sér lítið snoturt hús
í New Jersey sem þau kalla árstarhreiðrið.
Cosby og elsta „dóttirin", Sabrina. Cosby mun vera mjög ánægður
með áform skötuhjúanna.
KROSSGÁTA