Tíminn - 24.01.1988, Side 12
12 Tíminn
Sunnudagur 24. janúar 1988
- rætt við Hörð
✓
Agústsson,
listmálara, um
áratuga
rannsóknir
hans á íslenskri
húsagerðarsögu
íslenskan menningararf
dettur mönnum
óhjákvæmilega fyrst í
hug hinn gamli
bókmenntaarfur. Fáir
leiða hugann að því
umhverfi sem hlaut að
vera til staðar svo aðrar
eins bókmenntir gætu
orðið til og hlýtur einnig
að vera þáttur
menningararfs okkar.
Það umhverfi hlýtur að
hafa verið ekki síður
glæsilegt en sjálfar
sögurnar og málið sem
þær eru ritaðar á. ísland
á sér nefnilega sögu
merkrar
byggingarlistar, þótt hið
forgengilega
byggingarefni og
veðrátta landsins hafí
orðið til þess að svo
miklu minna af þessu sér
stað en skyldi. Þó
leynist margt
athyglisvert og
stórkostlegt á síðum
þessarar sögu - sem
fyrst nú er að komast á
blað - og er afrakstur
fádæma vinnu og
áratuga rannsókna, sem
einkum einn maður
hefur staðið að, en hann
er Hörður Ágústsson,
listmálari og fyrrum
skólastjóri Myndlista og
handíðaskóla íslands. I
þessu viðtali er rætt við
Hörð um þessi efni og
við spyrjum fyrst hvað
hafí leitt athygli hans að
þessum málum.