Tíminn - 09.02.1988, Síða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 9. febrúar 1988
Kaupmenn vildu söluskatt af búðarkössum niðurfelldan:
Innsiglaðir kassar
í verslanir 1. maí
Fjármálaráðherra mun gefa út
reglugerð, þar sem
söluskattsskyldum aðilum er
gert skylt, frá og með 1. maí nk.,
að hafa sérstaka innsiglaða
búðarkassa á afgreiðslustað.
Þessu lýsti ráðherra yfír í
umræðum um efnahagsmál á
Alþingi á fímmtudag.
Þar með er komið í höfn mikið
baráttumál Ólafs Þ.
Þórðarsonar (F.Vf), en hann
hefur lengi krafíst virkara
eftirlits með söluskattsskilum
verslana og Qármagnsstreymi
innan þeirra og talið þessa
tegund búðarkassa eina
áhrifaríkustu leiðina til að
hindra söluskattssvik. Kassar
þessir verða skrásettir og eiga að
tryggja innheimtumönnum
ríkissjóðs aðgang að
innsigluðum strimlum í
búðarkössunum, þar sem hægt
er að athuga hvort innkoma er í
samræmi við skattskil.
Magnús Finnsson, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna,
sagði að kaupmönnum þætti reglu-
gerð fjármálaráðherra eðlileg, eftir
að komið var til móts við þá með
færri undanþágum og einni flatri
söluskattsprósentu á alla vöru, en
þeir væru undrandi á að ráðuneytið
hefði ekki orðið við beiðni samtak-
anna um, að fella niður söluskatt
af þeim búðarkössum, sem nú er
skylt að nota. Þar að auki gat
Magnús þess að söluskattsprósent-
an væri hærri, en Kaupmannasam-
tökin töldu að nægði eftir breyting-
una.
„Við hefðum talið eðlilegt, þar
sem svona stór hluti af heildartekj-
um ríkisins er innheimtur af smá-
söluversluninni, að hún a.m.k.
fengi þá umbun að söluskattur og
aðflutningsgjöld af þessum kössum
yrðu felld niður. Það þættu ekki
mikil innheimtulaun fyrir alla
þessu fúlgu, sem færð er ríkinu, en
við þessu var ekki orðið.“
Lárus Ögmundsson, deildar-
stjóri tekjudeildar fjármálaráðu-
neytis, sagði að ekki væri nauðsyn-
legt að skipta öllum búðarkössum
út. Peir kassar sem flestar stærri og
miðlungsverslanir hefðu keypt á
undanförnum árum uppfylltu skil-
yrði sem reglugerðin setti. Hugsan-
lega má einnig breyta eldri búðar-
kössum, svo þeir henti nýju fyrir-
komulagi. Um niðurfellingu á
söluskatti á búðarkössum, sagði
Lárus, að þess bæri að geta að
tollar á kössunum hefðu lækkað
verulega um áramótin. „Eigum við
þá ekki að fella niður söluskatt af
bókhaldsvélum og tölvum, ef
kaupmenn nota þær við skráningu,
sem myndar síðan upplýsingastofn
til að leggja skatt á? Hvar eigum
við að draga mörkin? Allir kassar
sem voru til í landinu voru hátoll-
aðir og með söluskatti. Þá má
langflesta nota áfram, eftir að
reglugerðin verður sett. Ber að
endurgreiða skattinn af þeim?
Búðarkassar hafa augljóst hags-
munalegt gildi fyrir verslunarmenn
til innra eftirlits, en eru ekki aðeins
til skattaeftirlits. Þetta hygg ég að
sé ástæðan fyrir því að söluskattur
var ekki felldur niður.“
ÞJ/þÆÓ
Bandarískur fræöimaöur
heldur fyrirlestur í
Odda í dag:
Utanríkis-
málastefna
Reagans-
stjórnar
í dag, þriðjudaginn 8. febrúar
mun dr. Robert Harkavy, prófessor
í stjórnmálafræðum við fylkisháskól-
ann í Pennsylvaníu í Bandaríkjun-
um halda fyrirlestur í boði Félagsvís-
indadeildar Háskóla íslands.
Efni fyrirlestrarins er utanríkis-
málastefna Reagansstjórnarinnar.
Prófessor Harkavy hefur stundað
rannsóknir á sviði bandarískra utan-
ríkismála, afvopnunarmála og
vopnasölu og hefur hann skrifað
fjölda greina og bóka um þessi svið
alþjóðamála.
Fyrirlesturinn, sem fluttur verður
á ensku, er öllum opinn og verður
hann í stofu 101 í Odda kl: 17:00 í
dag.
SLÓÍ
GEGN
Hér er á ferðinni BMW M3 sem
sópað hefur að sér hverjum verð-
launum af öðrum í aksturskeppnum
síðasta árs í Evrópu og víðar. Binda
þeir BMW- menn enda mikla vonir!
við gripinn og hyggjast ná góðum
árangri þetta árið líka. í hinum ýmsu
keppnum náði Roberto Ravaglia:
t.d. fernum fyrstu verðlaunum, sjö
öðrum verðlaunum og sex þriðju
verðlaunum. Þessi góði árangur
gerði honum kleift að verða einn í
fyrsta sæti í World Touring Car
Championship á M3 í fyrra.
Auk þess góða árangurs náðu
bílstjórar á BMW M3 að öðru leyti
fyrstu til þriðju verðlaunum í fjölda ;
aksturskeppna. Hefur M3 reyndar |
slegið svo í gegn að engin önnur
útgáfa af BMW hefur nokkurn tíma
náða jafn góðum árangri, á jafn
skömmum tíma og af jafn miklu
öryggi. Það þarf því ekki að koma
mjög á óvart að BMW hefur ákveðið
að tefla honum fram í nokkrum
keppnum í Evrópu og víðar á þessu
ári.
KB
BMW M3 er ættaður af 300 línunni
og er hann afsprengi frekari þróunar
á keppnisbfl upp úr BMW 325i, sem
er það sem kallast mætti rallútgáfan
af léttum BMW.
Atvinnumiölun Norðurlanda:
N0RDJ0BB ’88
HEFUR STÖRF
Farsóttalisti Reykjavíkurumdæmis í desember:
Mislingalaus
jólamánuður
Nordjobb 1988 hefur nú hafið
störf, og er þetta þriðja árið sem
þessi sumaratvinnumiðlun er
starfrækt.
Nordjobb er ætlað fyrir sumar-
störf á Norðurlöndum fyrir fólk á
aldrinum 18-26 ára og eru störfin
sem boðið er upp á í öllum löndun-
um, svo og í sjálfstjórnarsvæðunum,
éins og Grændlandi og Færeyjum.
Boðið er upp á allar tegundir starfa,
t.d. á sviði þjónustu, iðnaðar, land-
búnaðar og verslunar. Laun eru hin
sömu og borgað er fyrir starfið hér á
landi og er starfstíminn frá einum
upp í þrjá mánuði.
A íslandi er það Norræna félagið
sem sér um atvinnumiðlunina og sér
það um að taka við umsóknum og
veita upplýsingar fyrir fslendinga og
sjá um að útvega norrænum ung-
mennum atvinnu. Nánari upplýsing-
ar fást í síma 10165.
-SÓL
Leiðtogafundur NATO
í næsta mánuði:
Ráðherrar
til Brussel
Dagana 2. og3. mars næstkom-
andi verður haldinn leiðtoga-
fundur ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins í höfuðstöðvum banda-
Iagsins í Brussel.
Fundinn sækja af íslands hálfu,
þeir Þorsteinn Pálsson, forsætis-
ráðherra og Steingrímur Her-
mannsson, utanríkisráðherra, og
fylgja þeim aðstoðarmenn.
-SÓL
Samkvæmt farsóttarskýrslum sjö
lækna og Læknavaktarinnar sf.,
fengu 877 einstaklingar kvef og aðrar
veirusýkingar í efri loftvegum í des-
ember sl. Sjötíu og sjö einstaklingar
fengu iðrakvef, sem er veirusýking í
þörmum, og 55 fengu lungnabólgu.
Þá fengu 12 inflúensu, aðrir 12
skarlatssótt, einn fékk kíghósta, 16
hlaupabólu og fjórir hettusótt. Þrír
fengu maurakláða, sjö flatlús, níu
lekanda og 37 smitnæma þvagrásar-
bólgu, betur þekkta sem clamydiu.
Góðu fréttimar vom þær, að eng-
inn fékk einkirningasótt, rauða
hunda, matareitrun eða sárasótt. Þá
var jólamánuðurinn algerlega laus
við mislinga.
Samtals er því um að ræða 1.110
veikindatilfelli í desember. -SÓL