Tíminn - 09.02.1988, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 9. febrúar 1988
John 0‘Connor kardínáli dregur hring á fingur Alfred Jolson upp við háaltari Landakotskirkju, til merkis um
að nú sé hann biskup kaþólskra manna á íslandi. Erkibiskuparnir J. Foley frá Róm og H. Lamaitre frá
Kaupmannahöfn, fylgjast með.
Vígður biskup
Sr. Alfreð Jolson var á laugar-
daginn vígður til að gegna embætti
biskups Kaþólsku kirkjunnar á ís-
landi. Vígslan fór fram við hátíð-
lega athöfn í Dómkirkju Krists í
Landakoti og var fjöldi presta og
biskupa viðstaddur, auk erkibisk-
upa og kardínálans frá New York
sem stýrði vígslunni. Mikill fjöldi
manna sótti vígslumessuna og var
hver bekkur skipaður. Þar á meðal
var forseti íslands, biskup Islands
og frú, forsætisráðherra, kirkju-
málaráðherra, utanríkisráðherra
og forseti sameinaðs Alþingis.
Kardínálinn, John O'Connor,
stýrði athöfninni. Kom hann sér-
staka ferð til landsins á laugardags-
morgun og flaug aftur utan síðdegis
sama dag. Sendiherra páfans var
erkibiskupinn í Kaupmannahöfn,
H. Lematre og erkibiskupinn J.
Foley kom frá Róm.
Sína fyrstu messu flutti nýi bisk-
upinn svo á sunnudag í Landakot-
skirkju að viðstöddu nokkru fjöl-
menni. Það fylgir sögunni að Hall-
dóri Laxness hafi þótt það mikið til
koma um atburði þessa að hann
hætti ekki á annað en að gista í
bænum yfir helgina. KB
Mikill fjöldi vígðra manna og leikra tók þátt í athöfninni. Hér er borið
niður í ritnigarpróssesíu í fyrri hlutanum. Tímamyndir Pjetur
Jóhann einn af níu bestu
Það tókst hjá Jóhanni Hjartarsyni
að sigra Viktor Kortsnoj í einvígi
þeirra sem lauk á föstudagskvöldið
var. Svo virtist sem hvorugur kepp-
enda hefði nokkurn áhuga á jafntefli
í 8.skákinni og þar með hraðskákar-
úrslitum.
Að mínu viti hefur Jóhann teflt
þetta einvígi mun betur en Kortsnoj
og í raun má segja að þetta einvígi
hefði ekki átt að verða lengra en
fimm skákir.
Glæsilegt hjá Jóhanni og nú er
hann í hóp með eigi ómerkari mönn-
um en Karpov fyrrverandi heims-
meistara, Jusupov, Short, Speel-
man, Portisch, Timman og loks
Spragget frá Kanada sem sigraði
Sokolov í bráðabana. Allir þessir
eiga möguleika á að skora á Kaspar-
ov heimsmeistara. Fyrst þurfa þeir
að berjast innbyrðis uns einn stendur
eftir. Næsta umferð verður líklega í
Puerto Rico í júlí. Þá tcflir Jóhann
við Anatoly Karpov fyrrverandi
heimsmeistara eftir úrskurði Cam-
pomanes forseta FIDE.
Skoðum nú þessa sögulegu skák.
Hvftt: Viktor Kortsnoj
Svart: Jóhann Hjartarson
Katalónsk byrjun
1. d4-Rfó 2. c4-eó 3. g3-d5
4. Bg2-Be7 5. Rf3-0-0
6. 0-0-dxc4 7. Dc2
Það er líka algengt að leika 7.Da4-
Bd7. 8. Dxc4-Bc6 o.s.frv.
7. -aó 8.a4
Hvítur vill ekki drepa strax á c4
vegna 8. -b5 9. Dc2-Bc6
8. -Bd7 9.Dxc4-Bc6
10. Bf4-a5
Leikið til að koma riddaranum í
gagnið. Ef t.d 10. -Rbd7, þá
gæti komið ll.a5 og riddarinn á
engan reit og svartur stendur illa.
11. Rc3-Ra6 12. Hael!?
Þetta er óvanalegur leikur í þess-
ari stöðu. Venj ulega fer þessi hrókur
á cl og hinn hrókurinn áel. Kannski
hefur Kortsnoj óttast riddara svarts
á a6 sem getur hoppað á b4 og ef
Ólafur Helqi
Árnason
SKÁKSKÝRANDI
hrókur hvíts væri á cl og el þá er
hætta á gaffli á d3 ef drottning hvíts
þarf að vt'kja sér undan. Hvítur ætlar
ljóslega að leika e4. og fá þannig
meira rými.
12. -Rb4
Flestir voru óánægðir með þennan
leik og fannst Jóhann vera á villigöt-
um. Jóhann hugsaði í rúmar 20
mínútur um þcnnan leik og fannst
þetta besta áætlunin. Rólegri skák-
menn hefðu leikið 12. -Bd5
13. e4-Rd7 14. Hal
Valdar peðið á a4 ef svartur leikur
Rb6 og setur þannig bæði á drottn-
ingu hvíts og peðið.
14. -Bd6!
Jóhann leikur besta leiknum. Ef
hvítur drepur á d6 þá nær svartur
sterku miðborði og ef hvítur leikur
15. e5-Be7 þá hefur svartur náð
góðum tökum á d5 reitnum sem
skiptir miklu máli í þessari stöðu.
15. Be3-Rc2 16. Bg5 16. -Rb6!
Ef hvítur drepur 17. BxDa8 þá
drepur svartur 17. -RxDc4 18. Hacl-
Rc2e3 19. fxRe3-HaxBd8 ogsvartur
hótar peði á e3 og b3.
17. Dd3-Rb4
Enn vinnur svartur leiki
18. De2-De8!
Nú loksins forðar svartur drottningu
sinni úr skotlínu biskupsins. Á e8
stendur hún mjög vel, þrýstir bæði á
a4 og eftir f5 þá kemst hún í sóknina
á kóngsvængnum.
19. b3-f5!
Grefur undan valdi hvíts á d5 reitn-
um. Þetta lítur glæsilega út en er
langbesti leikurinn að ég held.
20. Hacl
Loksins finnur hvítur rétta reitinn
fyrir hrókinn.
20. -h6 21. Be3-Dh5!
Nú lítur svarta staðan mjög vel út.
Riddari hvíts á f3 er leppur. Svartur
gæti e.t.v. leikið f4!?. Hótar einnig
að drepa á e4 22. -fxe4.
22. d5??-fxe4
23. dxBc6-exRI3
Kortsnoj sat utan sviðs þegar þessi
leikur birtist. Hann hugsaði sig nú
nokkuð lengi um næsta leik án þess
að fara upp á svið (e.t.v. í mótmæla-
skyni), fór loks upp á svið en var
ekki ánægður að sjá. Ekki gengur nú
24. Bxf3-DxBf3 25. DxDf3-HxDB
26. cxb7-Hb8 27. BxRb6-cxBb6 28.
Rb5-Bc5 og hvítur er einfaldlega
manni undir.
24. Ddl
Eina leiðin til að halda manninum.
Nú hefði líklega verið best hjá
Jóhanni að leika 24. -Had8, því þá
hótar hann að leika 25. -Bxg3 og
hótar þá jafnt máti á h2 sem og
drottningunni á dl. Eini leikurinn
væri 25. Bd2-Rxc6 og svarta staðan
er hartnær unnin. Jóhann valdi
flækjunni leið.
24. -bxc6 25. BxRb6-cxBb6 26.
DxBd6-fxBg2 27. Hfdl
Kortsnoj hefur ekki áhuga á að leika
27. Dxe6t-Kh8 28. Hfdl-Hae8 og
allir menn svarts taka þátt í sókninni.
27. -Df5 28. Dd2-Rd3
Þennan mann má ekki drepa vegna
Dxf2t mát. E.t.v. var betra að leika
28. -Had8. Kortsnoj átti aðeins tvær
mínútur á tólf leiki, en Jóhann 15
mínútur.
29. Hc2-Re5
Enn kom 29. -Had8 til greina.
30. De2
Vegna 30. Rf3t og fjölskyldugaffall.
30. -Had8 31. Kxg2-Rf3 32. HxHd8-
HxHd8
Nú hótar svartur 33. -DxHc2
34.DxDc2-Relt og gaffall á drottn-
ingu.
33. Hcl-Rd4
Glæsilegur reitur fyrir riddarann.
34. De3-e5 35. Hdl-Dc2! 36. h4
Hvað annað. Kortsnoj leikur því
sem hendi er næst í tímahrakinu.
36. -Hf8!
Nú er skákinni í raun lokið. Svartur
hótar 37. -HB og riddari hvíts á c3
er dauðans matur. Kortsnoj sér ekki
allt í stöðunni, enda tíminn mjög
naumur.
37. Hcl?-Hxf2t 38. DxHf2-DxHcl.
39. Hvítur féll á tíma. Staða hvíts er
gjörtöpuð. Svartur hótar riddara í
stöðunni og einnig drottningarkaup-
um með Dc2
Til hamingju Jóhann!
Svo sannarlega verður spennandi að
fylgjast með Jóhanni í næstu umferð
þegar hann teflir við Anatoly Karp-
ov fyrrverandi heimsmeistara.