Tíminn - 09.02.1988, Page 19
Þriðjudagur 9. febrúar 1988
Tíminn 19
llllllllllllllllllllll SPEGILL
EKKI HOLLYWOODUPPELDI
Áreiðanlega muna einhverjir
enn eftir söngdúettinum Sonny &
Cher. Nú er Cher orðin leikkona
og að sögn nákominna enn ekki
fullorðin. Það er þó önnur saga.
Þessi fjallar um Sonny Bono, sem
söng með Cher og var þá reyndar
kvæntur henni líka. Saman eiga
þau dótturina Chastity, sem er 19
ára um þessar mundir.
Sonny verður faðir í þriðja sinn
í apríl nk. Hann er nú 53 ára og
segist aldrei hafa verið tilbúnari að
eignast barn en einmitt núna. Hann
fullvissar heiminn um að nýja barn-
ið verði alið upp á rólegu ham-
ingjuheimili í Palm Springs, fjarri
yfirborðsmennskunni og glysinu í
Hollywood. Hann ætlar li'ka að sjá
um að barnið fái ekki alla hluti
fyrirhafnarlaust upp í litlu hend-
urnar.
- Nú, þegar ég hef elst, er ég
mörgum sinnum öruggari, segir
Sonny, sem nú á veitingastaðinn
Bono í Palm Springs. - Með aldri
og reynslu hefur mér lærst, að
margt það sem ég taldi eftirsóknar-
verðast alls, er það hreint ekki. Ég
met fjölskyldulífið mest af öllu nú
orðið. Ég ætla svo sannarlega að
taka allan þátt í uppeldi þessa
barns.
Eldra barn Sonnys er 28 ára
dóttir, sem hann átti með fyrstu
konu sinni. Síðan kemur áður-
nefnd Chastity. Þriðja hjónaband
hans, með Susie, var barnlaust.
Fjórða eiginkonan er svo Mary, 26
ára, og verður þetta fyrsta barn
hennar.
Sonny heldur áfram: - Ég vil
ekki að þessu barni verði fært allt
upp í hendurnar. Það á að læra að
gera hlutina sjálft og vinna síðan
fyrir sér á eigin spýtur, í stað þess
að fá allt gefins.
Ég hef séð allt of mörg börn
foreldra í skemmtanaútveginum
vaxa upp í spillingu og dekri, með
brenglað gildismat. Þau hafa slæmt
af þessu og verða ófær um að
takast á við venjulegt líf er þau
stækka.
Ég ætla að beita mér fyrir því að
kenna barninu á heiminn, eins og
hann raunverulega er og hvernig
það á að bregðast við honum.
Rætur eru mikilvægar börnum. Að
alast upp í Beverly Hills eða Bel
Air er afskaplega einmanalegt.
Enginn hittir neinn, því þar leika
böm sér ekki að bolta á götunum.
Við ætlum að eiga heima í Palm
Springs framvegis. Þar er heilbrigt,
gullfallegt umhverfi fyrir börn.
Barnið mitt fær að kynnast ná-
grannabörnunum. Ég hlakka til að
verða faðir, því nú er ég loks
reiðubúinn til þess.
'M;.
Sonny og Mary, fjórða kona hans, eiga von á bami í vor.
Annað gæludýrið
Flestir kannast við dúettinn „Pet
Shop Boys“ eða strákana í gælu-
dýrabúðinni, eins og þeir eru gj arn-
an nefndir í Síbyljunum hér heima.
Þeir eiga sér stóran aðdáendahóp
hér sem víða annars staðar. Félag-
arnir heita Neil Tennant og Chris
Lowe. Við rákumst á sitt af hverju
fróðlegu um Tennant í blaði nýlega
og látum það koma hér.
Hann heitir fullu nafni Neil
Francis Tennant, er fæddur í
Newcastle þann 10. júlí 1959 og
því Krabbi. Hann er einhleypur og
býr í London. Hann er um 180 sm
á hæð og sem næst 72 kíló. Þess má
líka geta, að hann hefur alveg
einstaklega himinblá augu.
Af fyrri störfum Tennants má
nefna, að hann hefur ritstýrt mat-
reiðslubókum og verið blaðamaður
hjá fréttablaði um hljómplötuút-
gáfu. Eftirlætisefni hans í sjónvarpi
er sem nærri má geta poppþættir
og vinsældalistar. Hann gengur
oftast svartklæddur og borðar ít-
alskan mat, þar sem hann kemst í
hann. Bjór og iéttvín er það sem
helst rennur niður í Tennant, en
bjórinn segir hann að fari illa í sig,
hann verði eins og draugur upp úr
öðrum draug og stj arfur af þremur.
Lesmálið eru helst poppblöðin
og tómstundaiðjan er elda-
mennska, svona þegar hann er
ekki að laga til, því Tennant segir
það nær sjúklegan ávana sinn, að
vera alltaf að laga í kring um sig.
Stundum tímir hann varla að elda,
því hann þolir ekki eldhúsið öðru-
vísi en tandurhreint og með hverj-
um hlut á sínum stað.
Það besta sem Tennant segir
hafa komið fyrir sig, var að hitta
Chris í hljómtækjaverslun á Kings
Road. - Við vorum báðir að bíða,
fórum að spjalla saman og upp-
götvuðum, að við áttum meira en
lítið sameiginlegt. Þar byrjuðum
við. Tennant segir þá stefna að því
að gera sem flestar góðar plötur og
til þess hafi þeir feikinógan tíma.
Aðstoð
að handan
Taryn Power: - Við pabbi tölum reglulega saman. Hann ráðleggur mér.
Taryn Power, gullfalleg, 32 ára
dóttir hins dáða leikara Tyrones
Power, segir að andi framliðins
föður síns hjálpi sér nú að reisa
leikframann úr rústum að nýju.
- Milli okkar pabba er alveg
sérstakt samband, segir Tary n, sem
allir spáðu glæstum frama fyrir 12
árum, þegar hún lék á móti Rich-
ard Chamberlain í Greifanum af
Monte Cristo. - Ég tala við hann,
þegar ég vitja leiðis hans og það er
alveg opið samband.
Ég sé eftir að taka ekki því sem
mér bauðst sem dóttur pabba, fyrir
mörgum árum. Ég barðist gegn því
öllu og hélt að móðurhlutverkið
væri það eina rétta fyrir mig í
lífinu. Nú veit ég að eitthvað
vantar - framann. Nú reyni ég að
fara í reynslutökur, þar sem ég
mögulega get.
Taryn lék í sex kvikmyndum,
áður en hún dró sig í hlé og gerðist
virkur þátttakandi í baráttu friðar-
samtaka. Ein mynda hennar, Ma-
Með föður sínum, Tyrone Power,
skömmu fyrir lát hans 1958.
ria, gerði það gott í Suður-Amer-
íku og Evrópu og er ein af fimm
best sóttu myndum allra tíma í
Mexíkó. Nú hefur Taryn samið um
að leika í hasarmynd í stíl við
Indiana Jones í Mexíkó.
Móðir Taryn, leik- og söngkon-
an Linda Christian, skildi við Ty-
rone, þegar Taryn var tveggja ára
óg þremur árum síðar lést hann.
Þó liðin séu 27 ár, fullyrðir Taryn,
að hann hafi mikil áhrif haft á
ákvörðun hennar um að reyna fyrir
sér á nýjan leik.
Hún kveðst alltaf hafa verið
næm fyrir návist hans, en anda-
læknir og miðill hafi komið sér í
gott samband við hann fyrir mörg-
um árum. - Það var afar notalegt
og ég veit að pabbi gefur mér góð
ráð.