Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 9

Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 9
Laugardagur 27. febrúar 1988 Tíminn 9 x Tímamynd Gunnar ir. Þessi líkön voru síðan sýnd í París. Vegnaútkomubókarmeð frásögnum, myndum og teikn- ingum eftir Daníel Bruun og Jóhannes Klein arkítekt, sem var hér með í ferðum, hafðist upp á þessum gömlu líkönum í Kaupmannahöfn. Engin von er til þess að við fáum þau hingað, en boðið hefur verið að mega taka afsteypur af þeim. Það kostar lítið fé að gera mótin, en þau þyrftum við að greiða. Mið- að við ástand mála er ekki nokkur von til þess að kostað verði til þessara móta, enda mætti segja að nær væri að ráða bót á viðvarandi leka í húsi Þjóðminjasafns. Jörðin geymir Fyrir 1960 voru nokkrir áhugasamir menn um fornminj- ar á ferð um Barðaströnd og komu víða við, þar sem grunur lá á að fornminjar fyndust í jörð. Barst þá í tal að rétt væri að athuga hvort þeir hjá Þjóð- minjasafni vildu ekki prófa að grafa. Þá kom svar frá manni, sem hefur lengi verið í minnum haft: Ég býst ekki við að þeir hafi áhuga. Þeir munu segja sem svo, að jörðin sé bestur geymslu- staður. Miðað við þau þrengsli og þann aðbúnað sem fornar minjar okkar búa við er þetta kórrétt svar. Það er hins vegar óneitanlega skrítið að heyra, að jörðin skuli enn vera bestur geymslustaður fornminja, eftir að háreist höll var byggð yfir minjar upp úr lýðveldisári. Og miðað við lýsingar á húsi Þjóð- minjasafns og fjársveltið og Þingmenn og gestir í boði Þjóð- minjasafns á afmæli safnsins, þar sem gestir gátu m.a. fengið hákarl og brennivín. áhugaleysið á málefnum þess í fjárveitinganefnd er alveg ljóst, að fyrrgreind orð eiga enn betur við í dag en fyrir rúmum þrjátíu árum. Og ef fer fram sem horfir mætti alveg eins álíta að upp risu ráðsnjallir menn á tuttugustu og fyrstu öldinni og skipuðu svo fyrir að munir í Þjóðminjasafni skyldu huldir moldu að nýju, enda væri þá húsið undir það orðið ónýtt vegna skilningsleysis fjárveitinganefndar og skorts á viðhaldi. Hinir peningalausu Hér að framan hefur verið minnst á tvö þau atriði, sem sýna viðhorf okkar til fornminja. í fyrsta lagi er það þáttur útlend- inga, sem við látum gjarnan lítið með en er þó merkilegur. Það er til dæmis ekki lítill fjársjóður- inn, sem geymdur er í þjóð- minjasafninu danska, annarri deild, þar sem finna má stafla af stórum öskjum með myndum og teikningum af flestu milli himins og jarðar sem var okkar daglega brauð á nítjándu öld, en er nú horfið af sjónarsviðinu og á eftir að verða enn fjarlægara í náinni framtíð, þegar upp renna kyn- slóðir í landinu sem þarf að skýra fyrir hvað sé orf og Ijár. Þessar dönsku teikningar hafa verið til nota fyrir þá íslendinga sem hafa verið að gera sig gild- andi í „fræðunum", án þess að þeir hafi alltaf verið að geta þess hvaðan þeir hafa vísdóminn. Auðvitað er þetta niðrandi ástand og eflir ekki virðingu manna fyrir sumu því sem verið er að tilkynna hér á landi með miklum handaslætti. Vegna ástands í fornminjavörslu hér, þar sem illa tekst að bjarga því sem er við bæjardyrnar, hefur ekki verið leitað eftir að fá hingað þau gögn, sem erlendir menn hafa skilið eftir sig erlend- is um það gamla ísland. Það var eins og að vinna í happaþrennu að fá hingað myndir Colling- woods og spratt af vinskapar- málum en ekki beinni eftir- grennslan hinna peningalausu. Og af sömu rótun er sú skoðun, að jörðin geymi betur fornminj- ar en fornminjasafn, sem er þegar sprungið utan af því sem fyrir er. Auðvitað verður að verða breyting á þessum við- horfum. En þar sem sú breyting þarf að liggja í gegnum fjárveit- inganefnd er varla við því að búast að stórtíðinda sé að vænta. íslandsklukkur Þjóðminjasafni íslands er skipt í tíu deildir og eru sýning- arsalir þess á tveimur hæðum. Á efri hæð eru sýndir munir frá fyrstu öldum eftir landnám. Þar eru einnig sérsöfn, kirkjumunir, klæðnaðir, útskurðurog vefnað- ur. Á neðri hæð eru munir frá sjávarútvegi og landbúnaði. Nú mun sýningarhúsnæði aukast nokkuð við að Listasafn íslands er flutt í burtu. Við það tækifæri er fyrirhugað að endurskipu- lcggja húsið að nokkru leyti og flytja t.d. skrifstofur og bóka- safn á jarðhæð, þar sem sjó- minja- og landbúnaðarsafn hef- ur verið til húsa. Sjóminjasafni hefur verið valinn staður í Hafn- arfirði, en er ekki enn nema svipur hjá sjón, og munu gripir Þjóðminjasafns varðandi sjó væntanlega færast þangað. Þá er farið að ræða tækniminjasafn og er þá komið að tuttugustu öld- inni, sem hingað til hefur ekki átt neinn sérstakan samastað í minjabyggingum okkar. Er talið líklegt að tækniminjasafni verði komið fyrir í sérstöku húsi. í bæklingi um Þjóðminjasafn segir: „í framtíðinni þarf Þjóðm- injasafn íslands að eignast nýtt og fullkomið sýningarhús til við- bótar gamla Þjóðminjasafnshús- inu. Þar yrðu haldnar skamm- tímasýningar og farandsýningar af ýmsu tagi, m.a. menningar- sögulegar sýningar sem fengnar yrðu hingað til lands frá erlend- um söfnum.“ Þessi hugmynd er góðra gjalda verð. Við fengjum þá ef til vill að sjá þá merku hluti menningarsögulegs efnis, sem útlendingar hafa dregið saman á ferðum sínum um landið á nítj- ándu öld og áður, eða eitthvað fleira en þessar íslandsklukkur sem útjaskaðir fjölmiðlamenn kalla nú hvern einasta klukku- belg, sem falbýðst í útlöndum og fluttur hefur verið héðan án minnstu heimildar. Væri ósk- andi að þeir iðkuðu sinn Laxness af öðrum tilefnum, því svona einföldun hæfir ekki fornminj- um. Sveimað á milli Þeir þjóðminjasafnsmenn ætla sýnilega ekki að valda fjár- veitinganefnd yfirliðum, þegar þeir tala um að „aðbúnað gesta þarf nauðsynlega að bæta og í því skyni þyrfti að reisa viðbygg- ingu austan við húsið. Þar yrði gengið inn í safnið á jarðhæð úr krikanum milli gamla hússins og viðbyggingar." Þar sem þjóð- minjahúsið stendur á háskóla- svæðinu er ekki alveg ljóst hvort svæði undir viðbyggingu liggur á lausu. Ekki vcrður heldur séð hvern vanda hún Ieysir. Það gerir kannski ckkert tií því mið- að við fjárveitingar mun eflaust i taka tuttugu og fimm ár að koma þessari viðbyggingu upp. Og til að kóróna ástandið segir í i bæklingi: „Þjóðminjasafnið hef- ur nú yfir að ráða geymsluhús- næði á nokkrum stöðum utan safnhússins. Er þar alls staðar um bráðabirgðahúsnæði að ræða.“ Æ, mig langar alltaf þó/ aftur að fara í göngur, var kveð- ið í eina tíð, og mættu þeir þjóðminjamenn hafa þennan vísupart í huga, þegar þeir eru að sveima um á milli bráða- birgðahúsnæðis við að líta eftir þjóðardýrgripum. Kerra Katrínar Hér hefur um stund verið fjallað nokkuö um margvíslegan vanda Þjóðminjasafns íslands. Ógetið er þá aðsóknar að safn- inu, sem mun mest byggjast á börnum og útlendingum og nær ekki hárri tölu á ári. Þótt fjöl- breytileikinn sé nokkur virðist hann ekki nógur til að fólk hafi vakandi áhuga á safninu. Auð- vitað ræðst fjölbreytnin af hvað fundist hefur og hver fjölbreytni mannlífs var á liðnum öldum. Þá getur uppskipting í sérsöfn valdið erfiðleikum, einkum þeg- ar húsakynni eru þröng fyrir. Annað mál væri cf safninu væri komið fyrir í rúmum húsakynn- um. Innan Kremlarmúra hefur verið komið fyrir miklu safni er snertirsögu Rússa. Þarergengið sal úr sal,/aunar í gegnum tíma og sögu. Á einum stað er komið þar sem stendur lystikerra Katr- ínar miklu og rúmhorn hennar svo stutt að hún hefur eflaust sofið sitjandi. Ekki er nú verið að splæsa á hana sérherbergi í Kreml. Það mætti kannski taka sér þetta til fyrirmyndar, en níu sérsöfn eru nú í Þjóðminjasafni íslands. Safn í lélegu húsnæði sem fæst ekki viðgert sökum fjárskorts og geymir að. auki muni sína í bráðabirgðahúsnæði út um alla borg, en heitir með réttu því virðulega nafni Þjóðminjasafn íslands, á skilið nýtt húsnæði. Það fer ekki á milli mála, að hverskonar tjasl og viðbyggingar leysa ekki vanda safnsins til frambúðar. Þetta nýja húsnæði | þarf ekki endilega að verða draumur mónúmentsjúkra arkí- tekta, heldur bygging sem held- ur vatni og vindum og hefur rakastýringu sem hæfir þeim við- kvæmu munum sem þar verða geymdir. Þjóðminjasafn íslands þarf allt að komast undir eitt þak, og þetta þak á að verða það stórt, að undir því rúmist einnig . Náttúrugripasafn íslands. Kom- ist bæði þessi söfn á einn stað mun hvorki skorta áhuga eða aðsókn. \

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.