Tíminn - 27.02.1988, Side 10

Tíminn - 27.02.1988, Side 10
10 Tíminn Laugardagur 27. febrúar 1988 VETTVANGUR Úr stríði Dana við drykkjuskapinn Skemmdir áfengis á líffærum líkamans í dag skulum við sjá hvað Finn Hardt nefnir einkum sem skemmdarverk áfengis á mannleg- um líkama. Áfengið berst með blóðinu til líffæra okkar, verkar á þau og bókstaflega eyðileggur einstakar frumur þeirra. Áfengi er því eitur, sem getur gjörspillt líkamanum. Eituráhrifin eru óháð því hvort vínandinn er meðtekinn sem öl, vín, brennivín, konjak o.s.frv. og engu skiptir hvort áfengið er dýrir og frægir árgangar eða einfalt heimabrugg. Eins og gildir um annað eitur er það magnið sem meðtekið er sem ræður hvort líkaminn er skemmdur eða ekki. Hve mikið má drekka daglega? Reynsla af sjúklingum sem hafa orðið veikir af áfengisneyslu veldur því að unnt er að reikna hve mikils áfengis neyta má daglega án þess að óttast þurfi áfengissjúkdóma. Fyrir karlmenn eru mörkin 5 staup daglega til jafnaðar og fyrir konur, sem ekki eru þungaðar, 3 staup daglega. Hvenær er maður alkóhólisti? Allir vilja stjórna áfengisneyslu sinni þannig að þeir hafi gleði af en losni við raunir ofneyslunnar. Sem betur fer er það líka svo með mikinn meiri hluta okkar. Margir eru þeir í Danmörku, - sennilega 300-500 þúsund - sem a.m.k. með köflum drekka svo mikið að þeir taka skaða af. Þá köllum við ofdrykkjumenn eða alkóhólista. Alkóhólismi metinn eftir þeim vínanda sem neytt er Strangt tekið ætti að telja þá, sem drekka meira en 5 (konur 3) staup daglega alkóhólista. Flestir, og þar með taldir læknar, munu þó ekki tala um alkóhólista fyrr en neyslan er 2-3 sinnum meiri, sem sé kringum 10-15 staup, sem alltaf hlýtur að verða til ills, ef svo er drukkið í 5-10 ár. Alkóhólismi metinn eftir drykkjuhneigð Skemmdir af áfengi ná ekki aðeins til líkamans, heldur einnig hins andlega. Sálrænar breytingar koma fram sem breyting á persónuleikanum. Vinsamleg og þægileg persóna get- ur t.d. orðið ör og óbilgjörn. Sjúkleg afbrýðisemi er oft ölvunar- einkenni sem gjörspillir fjölskyldu- lífi enda beinist hún gjarnan gegn maka og börnum. Sálrænar breytingar valda því að margur drykkjumaður verður háð- ur áfenginu. Drykkjumaðurinn sér, a.m.k. þegar hann er ódrukk- inn, að framhald ofdrykkjunnar hlýtur að spilla öllu fyrir honum, heimili, heilbrigði og fjárhag. Þrátt fyrir þetta er löngunin í áfengi svo mikil, að hann ræður ekki við. Hann er þrælbundinn hugsuninni um áfengi næstum því eins og eiturlyfjaneytandinn er háður sínu efni. Hverjir verða alkóhólistar? Bæði alkóhólistar sjálfir, vanda- menn þeirra og ýmsir sem stunda þá, hafa margar skýringar á því hvers vegna svo er komið sem komið er. Þessar eru algengar: * Slæm uppeldisskilyrði. * Skilnaður. * Óheppni á framabraut. * Andlegir erfiðleikar. Rannsóknir hafa sýnt, að þegar tekinn er hópur manna frá 18 ára aldri er ómögulegt fyrirfram að benda á þá, sem verða drykkju- sjúkir. Þeir geta verið lánsmenn hvað uppeldisskilyrði snertir og framhald ævinnar og verða þó ofdrykkjumenn. Hins vegarstanda aðrir sig þrátt fyrir áföll og harma án þess að þurfa að hugga sig við áfengi. Það er því miður oft þannig að mikilli vanabundinni áfengisneyslu fylgir röð af vandamálum, sem síðan eru notuð sem skýring á ógæfunni. Áfengið er fyrst - svo koma erfiðleikarnir. Þess vegna varðar miklu að vita það að dagleg drykkja getur áður en varir orðið gjöreyðandi ofdrykkja. Hvaða tjóni veldur áfengi í vélinda, maga og þörmum? Þess var getið í sambandi við timburmenn að kvöldstund með ríflegri áfengisneyslu gæti valdið kverkaskít og ógleði. Þessar magaþrautir vaxa mjög þegar neyslan er 10-15 staup á dag vikum saman, t.d. í sólarlandafríum. Það er ckki hægt að kenna veirusmitun um allar magaþrautir og niðurgang sem menn fá í Suðurlöndum. Stundum á magaveikin rætur að rekja til of mikils áfengis. Stundum er þessi magaverkur áþekkur þeim sem fylgir magasári og sjúklingurinn þá rannsakaður með magakíki. Læknirinn sér gegnum magakíkinn að slímhimn- an er rauð og Ijósar rákir á vélinda og maganum. Við þessu þarf ekki margt að gera umfram magatöflur sem binda magasýruna. Getur áfengi valdið magasári? Ekki er ljóst að ofdrykkjumenn fái magasár fremur en bindindis- menn eða þeir sem drekka í hófi. Þeir sem eru í læknismeðferð vegna magasárs geta því leyft sér að drekka bjór eða glas af víni með matnum án þess að spilla árangri meðferðarinnar. Hvers vegna ælir ölvaðfólk? Mikið áfengi gerir maganum erfitt að skila fæðu og drykkjar- föngum áleiðis til þarmanna. Við- brögð magans verða því að selja upp. Því getur fylgt sú hætta að ælan fari niður í lungun og kæfi manninn. Hvers vegna veldur áfengi niðurgöngu? Vínandinn binst blóðinu að mestu frá maganum og upphafi smáþarmanna (skeifugörninni). Það eru því aðeins smámunir sem ná lengra eftir þörmunum. Þó dugar það til að skemma slímhimn- ur þeirra svo að þær vinni síður vökvun og salt. Vatnið og saltið rennur því áfram eftir þörmunum og veldur niðurgöngu. Áhrif vínandans á slímhimnurn- ar spilla því líka að náist úr fæðunni viss fjörefni (einkum A og B) og steinefni sem eru okkur lífsnauð- syn (t.d. kalk og zink). Margir drykkjumenn verða nátt- blindir og oft kvarta þeir um að þeir finni ekki bragð eins og eðli- legt væri. Hvort tveggja stafar af vöntun á A fjörefni og zinki sem ekki skilar sér frá þörmunum vegna áfengisáhrifanna. Hvers vegna eru sumir drykkjumenn feitir en aðrir grannir? Vínandi hefur næstum því jafn- margar hitaeiningar og feiti. (7 hitaeiningar í grammi móti 9 hita- einingum í feiti). Tíu staup á dag skila næstum þúsund hitaeining- um. Meðan bris og lifur vinna nokk- urn veginn eðlilega meltist fæðan vandræðalaust. Oft borða menn þá langt umfram þarfir, þar sem 'afengið örvar matarlyst. Auk ríf- legrar fæðu koma svo hitaeiningar áfengisins. Árangurinn verður að sjálfsögðu talsverð yfirvigt. Þegar drykkjumaður tapar hold- um er það venjulega vegna bilunar í brisinu, svokallaðri brisbólgu. Þeim krankleika fylgir lystarleysi og auk þess vanhæfni að vinna fitu úr fæðunni. Brisið getur ekki leng- ur skilað þörmunum enzymum þeim sem nauðsynleg eru til að melta fituna. Þegar fitan meltist ekki verða hægðirnar lausar og ljósar, þar sem fitan fer ómelt eftir þörmunum. Drykkjumanninum bregðast þannig not af þeim fáu fitueiningum sem hann hefur með- tekið. Kvíði vegna magaþrauta (brisbólgu) minnkar oft löngun í áfengi, og það fækkar enn þeim hitaeiningum sem líkaminn fær. Þá léttast menn oft geysilega og drykkjumaðurinn verður horaður. Hvaða tjón vinnur áfengi á brisinu? Brisið liggur fast við skeifugörn- ina og byrgir hana upp af enzymum sem eiga að leysa fæðuna upp (feiti, sykur, eggjahvítu). Þar myndast líka og hvergi annars staðar í líkamanum hið þýðingar- mikla hormón insulin. Skorti það fá menn sykursýki. Áfengisskemmdir á brisi koma fram eftir 10-15 ára ofneyslu. Aftur á móti hefur oft verið drukkið um of í 20-25 ár áður en skorpulifur kemur til sögunnar. Sjúkrasaga Lilly H. er 38 ára, gift, hár- greiðslukona, sem lögð er inn á sjúkrahús síðdegis á sunnudegi, harðlega þjáð af magaverk. Læknirinn sem við henni tekur álítur að gallsteinar valdi. Við athugun finnur læknir að sjúklingurinn er dálítið gul í augum en að öðru leyti lítur hún vel út. Sjúklingurinn kvartar um verk og eymsli í maga. Læknir tekur blóð- sýni og gefur kvalastillandi sprautu. Svör frá blóðsýnunum fást um kvöldið og benda til áhrifa á lifur og bris. Læknirinn telur, með réttu. að það geti stafað frá gall- steini sem er kominn í gallpípuna og verkar því á brisið. Til að létta álagi af brisinu stingur hann slöngu niður í magann og tæmir hann. Á leiðinni út mætir læknirinn eiginmanni sjúklingsins og finnur greinilega áfengislykt af honum. Læknirinn tekur skýrslu sína og skráir að veiki í lifur og brisi kunni að stafa af áfengisneyslu. Næsta dag talar læknirinn eins- lega við Lilly H. og eftir nokkra stund játar hún að dagleg drykkja sín sé 8-10 sterkir bjórar og nokkur staup að auki eftir ástæðum. Þegar hún kom á sjúkrahúsið sagði hún aðspurð um áfengisneyslu sína að hún smakkaði vín um helgar en drykki ekki hversdagslega. Lilly H. var vel ljóst að hún drakk um of, en skammaðist sín fyrir að viðurkenna það. Eftir nokkra daga með slöngu án áfengis hverfur bæði gulan og verk- irnir. Lilly H. var með brisbólgu á byrjunarstigi. Það var vægt tilfelli en kemur eflaust aftur og þá stór- um alvarlegra ef hún heldur áfram að drekka eins og áður. Hvernig sönnum við að veiki hennar stafaði ekki frá gallsteini? M.a. má styðjast við skoðun með magakíki. Með honum sjáum við alla leið niður í skeifugörn þar sem gallpípan og æðin frá brisinu sam- einast. Unnt er að ná röntgenmynd sem sýnir hvort nokkur steinn er í gallpípunni. Sé þar um bólgu að ræða finnst hún með þessu móti. Sumir ofdrykkjumenn komast yfir fyrsta stig þessa sjúkleika án þess að leita læknis. Þeir koma þá fyrst til meðferðar þegar skemmdin er orðin varnaleg og brisið að mestu leyti ónýtt. Sjúkrasaga Þegar læknavakt er rétt byrjuð er læknir kallaður í vitjun til Egons S. Læknir þekkir hann, hefur oft vitjað hans og veit þegar að um er að ræða slæmar magaþrautir og uppsölu. Egon S. á heima í leiguherbergi. Það er lítt búið húsgögnum en þar er svefnbekkur sem alltaf er með óhreinum sængurfötum. Sófaborð- ið er þakið dagblöðum og yfirfyllt- um öskubökkum. Milli þess og sófans er ælustampur. Annars er aðeins litasjónvarp og nokkrar ferðaauglýsingar í herberginu. Egon S. er horaður og þjáður þar sem hann liggur með augljós- um ógleðimerkjum. Kviðurinn er settur stórum örum eftir uppskurði sem gerðir hafa verið vegna bólgu í brisinu. Egon S. biður ekki um sjúkrahúsvist. Hann hefur fengið að vita að þar er ekki unnt að gera meira. Læknirinn gefur honum, eins og oft áður, kvalastillandi sprautu og fer hið snarasta, og lætur Egon eftir leiðan og einmana. Egon S. var einu sinni dugandi pjátursmiður með góðar tekjur, átti konu og börn og heimili, en hann hafði strax á námsárum gam- an afáfengi. Neyslanjókst fljótt og varð 10-15 staup daglega. Á vinnu- stað drakk hann líka, en það var umborið. Hann var röskur verk- maður, skemmtilegur og vel þokk- aður. Egon S. hafði fengið aðvörun, sáran magaverk, en hann vildi ekki öðru trúa en hann þyldi áfengi og drakk sem áður. Hann hélt upp- teknum hætti þar til heiftarleg brisbólga neyddi hann til að fara á sjúkrahús. Brisið var að mestu ónýtt og gat hvorki framleitt enzym til melting- ar fæðunni né nauðsynlegt insulin. Egon S. var þjáður af niðurgöngu, varð þess vegna að hafa sérstakt mataræði og vegna sykursýkinnar varð hann stöðugt að taka insulin. Þrátt fyrir þetta drakk hann eins og áður. Hjónaband og fjölskyldu- bönd slitnuðu. Seinna missti hann svo atvinnuna. Hann var ekki framar æskilegur starfsmaður, merktur ofdrykkju með marga veikindadaga. Egon S. er 35 ára, verður nú að láta sér nægja örorkubætur. Nokkrum sinnum í viku hverri fær hann heimilishjálp. Það er örðugt að annast sjúkl- inga með brisbólgu. Þeim er ráð- lagt sérstakt fæði og reynt að bæta þeim upp skort á vissum fjörefnum og enzymum. Oft þurfa þeir insulin vegna sykursýki. H.Kr.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.