Tíminn - 27.02.1988, Side 19

Tíminn - 27.02.1988, Side 19
Laugardagur 27. febrúar 1988 Tíminn 19 MINNING 11 Jón Guðmundur Gunnlaugsson bóndi á Hofi í Hjaltadal Fæddur 6. júní 1924 Dáinn 15. febrúar 1988 í dag verður til moldar borinn Jón bóndi á Hofi í Hjaltadal. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu mánu- daginn 15. febrúar sl. Hann hafði gengið út að vitja hrossa sinna, en hneig niður og var örendur, þegar að var komið. Fyrir rúmum 11 árum hafði hann fengið alvarlegt hjartaáfall og náði aldrei fullri heilsu eftir það, þótt hann sinnti ýmsum léttari störfum. Þegar ég sest niður til að minnast móðurbróður míns, Munda, en svo var hann jafnan kallaður af skyld- fólkinu, kemur margt í hugann, því samskipti okkar eru orðin býsna löng og áhrif frá honum hafa vafa- laust mótað mig að einhverju leyti í æsku. Kynni okkar hafa varað í rúm 40 ár og hófust með því, að hann sótti okkur móður mína yfir á Sauð- árkrók á spítalann, þar sem ég fæddist, og flutti í bíl sínum heim að Hofi. Mundi var fæddur 6. júní 1924, yngsta barn foreldra sinna, Gunn- laugs Jónssonar og Sigríðar Guð- mundsdóttur í Víðinesi í Hjaltadal. Á fyrsta árinu fékk hann heiftarlega lungnabólgu, svo að honum var vart hugað líf. í>á voru engin súlfalyf þekkt til að vinna á þessum hættu- lega sjúkdómi, en móðir hans og systir skiptust á að sitja með hann í fanginu sólarhringum saman, því barnið þoldi ekki að liggja út af. Þær áttu von á að hann gæfi upp öndina þá og þegar, en þá var eins og eitthvað gerðist og honum létti skyndilega, fór síðan dagbatnandi upp frá því. I uppvextinum var Mundi ekki heilsuhraustur, en hann var kátur unglingur og óvenjulega geðgóður, skipti varla skapi. Sama vorið og Mundi fermdist hættu foreldrar hans búskap í Víði- nesi, en Fjóla systir hans tók við ásamt manni sínum, Guðmundi Sig- mundssyni. Mundi fluttist þá að næsta bæ, Brekkukoti, en þar bjó þá önnur systir hans, Guðrún, ásamt manni sínum Páli Jónssyni. í Brekkukoti átti hann síðan lögheim- ili næstu 13 árin, eða þar til hann stofnaði sitt eigið og hóf búskap. Um 1945 keypti Mundi vörubíl í félagi við annan mann. Þann bíl eignaðist hann svo allan ári sfðar og átti í ein tvö ár. Stundaði hann eitthvað vegavinnu og annan tilfall- andi akstur, en ekki mun þetta hafa orðið honum arðsamt fyrirtæki. Á þessum árum var hann tíma og tíma á Skólabúinu á Hólum og eitt sumarið var hann þar ráðsmaður, er Sigurður Karlsson ráðsmaður búsins tók sér frí. Sumarið 1950 kynntist Mundi konu sinni á Hólum og veturinn sem í hönd fór hélt hann suður til Vest- mannaeyja á vertíð. Þá festi hann sér jarðnæði og fékk til ábúðar og erfðafestu þriðjung jarðarinnar Hofs í Hjaltadal, en hún var og er í eigu ríkisins. Foreldrar mínir bjuggu þá á hinum hlutanum og stóð það sambýli til vorsins 1963, að þau fluttust til Akureyrar. Vorið 1951 hóf Mundi að byggja íbúðarhús sitt, og var steyptur upp kjallarinn. Þetta sumar svaf Mundi í tjaldi sunnar við gamla bæinn heima, en hafði fæði hjá foreldum mínum. Ég minnist komu minnar í þetta tjald. Ekki var þó svo auðugt þar innanstokks, eitt rúmstæði, koffort, borð og kassi með verkfærum, ef ég man rétt, en yfir þessu tjaldi var nokkur ævintýraljómi fyrir fjögurra ára stúf og endurminningin um kandísmola eða kringlubita, sem stungið var í lítinn lófa, greiptist í barnssálina. Um haustið var kjallar- inn gerður íbúðarhæfur og Mundi gat flutt inn fyrir veturinn með konuefni sitt. Búið var fremur lítið lengi fram- an af, því jarðnæðið leyfði ekki mikil umsvif og framkvæmdir urðu að taka mið af því. Ræktunin og íbúðarbyggingin þurftu að hafa forgang. Því bjó hann lengi við gömul og erfið peningshús, sem slitu kröftunum. Hann hafði yndi af hestum, var glöggur og góður fjármaður og fór vel með allar skepnur. I hjörð hans var löngum margt af mislitu, einkan- lega lagði hann sig eftir ræktun á höttóttu fé og dílóttu. Veturinn 1956 gerði afskaplegt fárviðri um Norðurland. í því roki fauk m.a. heyhlaða, sem Mundi átti, og varð hann fyrir stórkostlegum heyskaða. Það þótti aðdáunarvert, að þrátt fyrir þetta áfall kom hann með sóma fram öllum sínum skepn- um um vorið, án þess að kaupa hey. Á Hólaárum sínum hafði Mundi lært að vinna með dráttarvélum. Varð honum því vel ljós nauðsyn vélvæðingarinnar við bústörfin, og strax vorið 1951 keyptu þeir faðir minn í félagi nýjan Ferguson ásamt sláttuvél og jarðvinnslutækjum. Það var fyrsta dráttarvélin, sem kom í sveitina fyrir utan Skólabúið á Hólum, en sama vorið kom önnur samskonar vél í Hrafnhól, næsta bæ hinu megin í dalnum. Þessa einu dráttarvél áttu þeir og notuðu í félagi næstu 12 árin, eða meðan faðir minn hélt við bú. Margvísleg önnur samvinna og samskipti voru á milli heimilanna, sem að líkum lætur, og ég held að þar hafi aldrei borið skugga á. Sem lítill drengur þótti mér jafnan gott með Munda að vera. Hann talaði við mig, eftir því sem þroski minn og vit leyfði. Rólegt fas hans bauð upp á öryggi, en þó var grunnt á gamanseminni og jafnan var hann léttur í bragði. Sonur þeirra hjóna var fimm árum yngri en ég, en þegar hann komst á legg, lékum við okkur töluvert saman, og átti ég jafnan að mæta hinu besta atlæti á heimilinu. Mundi á Hofi var vel meðalmaður á hæð, fremur grannvaxinn og beina- smár og ekki þrekmikill, en laginn og útsjónarsamur til verka, mjög þrautseigur og duglegur, greiðasam- ur, og taldi ekki eftir sér að gera náunga sínum viðvik. Hann var ákaflega ókvalráður og harður af sér. Eitt atvik, sem ég varð barn áhorfandi að, hefur brennt sig í huga minn og lýsir vel þessum sjálfsaga. Þá hafði Mundi fengið heiftarlegt kýli neðarlega á mjöðm. Gróf í þessu dögum saman, og þótt svo væri komið, að hann gæti varla setið, gegndi hann verkum sínum eftir sem áður. í þá daga var ekki hlaupið til læknis út af smámunum, og Mundi tók slíkt ekki í mál. Kona hans var afbæjar um þær mundir og þá fékk hann móður mína, systur sína, til að stinga á kýlinu, þegar það var orðið fullgrafið. Graftarnaglinn, sem færðist upp úr kýlinu, var fingur- digur og eftir því langur. Þegar hann hafð verið fjarlægður skipaði Mundi móður minni að sótthreinsa með því að hella brennsluspritti í holuna, sem kom eftir. Ekki gaf hann frá sér svo mikið sem stunu, en líkaminn nötraði, þegar sprittið fyllti sárið. Þetta var hrottaleg aðgerð, en áhrifarík, því eftir þetta gréri um heilt. Mundi var þrifamaður í búskap sínum og öll umgengni hans lýsti snyrtimennsku. Nýtni og hagsýni var honum í blóð borin og sam- viskusemi um allt það, er honum var trúað fyrir. Hann valdist til ýmissa trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, var um árabil fjallskilastjóri, sat í hreppsnefnd um skeið og var sýslu- nefndarmaður eitt kjörtímabil. Fleira mætti telja, en verður ekki gert hér, enda hirti hann lftt um vegtyllur. Eftirlifandi kona Munda er Svein- björg Árnadóttir. Þau giftust 9. nóvember 1952 og eignuðust þrjú börn. Þau eru: Hörður, fæddur 24. maí 1952, bóndi og oddviti á Hofi; Harpa, fædd 1. apríl 1954, húsfreyja á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi; Helga, fædd 23. nóvember 1964, til heimilis á Hofi. Við fráfall Jóns bónda á Hofi er skarð fyrir skildi. Mestur er auðvitað missirinn fyrir hans nánustu, en margir aðrir eiga þar góðs vinar að sakna, og ég hygg, að flestir, sem kynntust honum eitthvað að marki, eigi eftir minningu um góðan dreng. Frændsemi og vinátta við hann hefur orðið sjálfum mér mikils virði og systur hans, Guðrún, Anna og Fjóla, minnast hans með ást og þakklæti. Samband þeirra var frá fyrstu tíð mjög gott, og bar aldrei skugga á. Það var einkennilegt, að fráfall Munda skyldi bera upp á 15. febrúar, sama mánaðardag og faðir hans, Gunnlaugur bóndi í Víðinesi fæddist árið 1864, og ég er ekki í vafa um, að hann hefur átt góða heimkomu við vistaskiptin. Ég votta Sveinbjörgu, eða Boggu, eins og mér er tamast að kalla hana, og börnum þeirra mína innilegustu samúð. Hjalti Pálsson frá Hofi. Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Pær þurfa að vera vélritaðar. ||| Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar í|r Droplaugarstaðir Heimili aldraðra, Snorrabraut 58 Starfsstúlkur vantar í eldhús, 100% starf og 35% starf, nú þegar. Einnig til afleysinga í eldhús í sumar. Starfsstúlkur í ræstingu 62,5% starf, nú þegar. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811 milli kl. 9-12 f.h. virka daga. == Útboð - fyllingar Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í fyllingar í Suður- höfn. Áætlað magn um 40000 rúmmetrar. Útboðsgögn afhendast á skrifstofu bæjarverk- fræðings, Strandgötu 6, gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. mars kl. 11. Bæjarverkfræðingur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.