Tíminn - 16.03.1988, Page 3
Miðvikudagur 16. mars 1988
Tíminn 3
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra um vanda Landakots:
Rekstrarvandi Landakotsspítala hefur verði mjög til umræðu síðustu daga,
og eins og kom fram í Tímanum i gær, er hann rekinn með um 12% halla og
skuldir hans, sem eru um 90% við ríkið, á annað hundrað milljónir króna.
Fáist ekki aukið fjármagn til rekstur hans, er einsýnt að loka verður tveimur
deildum, með samtals 53 rúmum, um mitt þetta ár.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, sagði í samtali við
Tímann í gær, að hann hefði gert
mönnum grein fyrir vanda sjúkra-
húsanna við fjárlagaafgreiðslu í vet-
ur og að fjárlögin gerðu ekki ráð
fyrir að sá vandi yrði leystur.
„Ég sagði þá að ég áliti að það
væri þá gert með því hugarfari að
takast á við vandann, þegar Ijóst
yrði hversu stór hann væri og hvar
hann væri helst að finna, því þær
upplýsingar lágu ekki nákvæmlega
fyrir í desember," sagði Guðmund-
ur, en hann er nú staddur erlendis.
Guðmundur sagði einnig að farið
hefði verið yfir skýrslu Ríkisendur-
skoðunar og hún staðfesti í raun og
veru að um halla sé að ræða, og að
það komi fram að það sé af eðlileg-
um ástæðum.
„Sjúkrahúsið hefur verið rekið
með því umfangi sem verið hefur
undanfarin ár, hvorki hefur verið
um samdrátt né aukningu að ræða,
umfram það sem menn gerðu ráð
fyrir. En fjárveitingarnar hafa verið
of litlar miðað við þá starfsemi, en
það er ekkert sem kemur óvænt eða
óeðlilegt fram í þeirri skýrslu," sagði
Guðmundur.
Hann sagðist búast við að ef málin
yrðu ekki leiðrétt og að það færi
þannig að ekki yrði hægt að laga eða
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis-
ráðherra.
leiðrétta fjárhag Landakots, án þess
þó að hann gæfi sér slíkt, þá þurfi að
draga verulega úr rekstri spítalans.
„Ég lít hins vegar svo á að mönn-
um hafi verið það Ijóst við fjárlagaaf-
greiðsluna að þarna þyrfti að koma
til fjárveitingar, þegar við sæjum
hvernig staðan er. Eg er ekki þar
með að segja að það komi ekki líka
til greina að við verðunt að líta á
rekstur sjúkrahúsanna almennt og
hvort við getum leitað þar frekari
sparnaðarleiða, eða hvaða aðferðir
eru bestar til að fá sem mest fyrir þá
fjármuni sem þeir hafa úr að spila,“
sagði Guðmundur.
„Ég mun að sjálfsögðu leggja til
að Landakot fái meira rekstrarfé og
það gerði ég reyndar um áramótin.
Pá var okkur það Ijóst að um var að
ræða nokkurn halla og fórum þá
fram á að hann yrði leiðréttur. Við
fengunt að hluta til leiðréttingu fyrir
áramótin, að vísu ekki nema lítinn
hluta þess sem vantaði og ég tel
algjörlega óhjákvæmilegt annað en
að leiðrétta það,“ sagði Guðmund-
ur.
Hann benti á að það væru stað-
reyndir að skuldir lægju þarna fyrir
og að það væri auðvitað útilokað að
sjúkrahúsið gæti sem slíkt borið þær
skuldir uppi til lengri tíma.
Þá sagðist Guðmundur búast fast-
lega við því að erfitt gæti reynst að
koma bráðavakt Landakots yfir á
hin sjúkrahúsin, þurfi spítalinn að
hætta þeirri starfsemi. Hann sagði
að alla möguleika yrði að skoða.
Guðmundur sagði að málin yrðu
skoðuð rækilega á næstu dögum, en
hann er væntanlegur aftur til lands-
ins í dag. -SÓL
Atvinnulíf í rúst í Eyjum:
Verkfallsaðgerðir í
stað yfirvinnubanns
Flest bendir til að atvinnulíf í Vestmannaeyjum lamist að mestu
að hálfum mánuði liðnum, en stjórn og trúnaðarráð Verkalýðs-
félags Vestmannaeyja ákvað á fundi í gær að aflýsa áður boðuðu
yfirvinnubanni, en boðuðu þess í stað allsherjarverkfall í Eyjum
frá og með 23. mars, ef ekki tekst að Ijúka kjarasamningagerð
fyrir þann tíma.
Snótarkonur og fulltrúar frá trúar frá verkalýðsfélögunum á Suð-
Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja ur- og Vesturlandi.
funduðu í gærmeð ríkissáttasemjara Líklegt er að samningaviðræður
í húskynnum hans við Borgartún í verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyj-
Reykjavík. Par voru sömuleiðis full- um við vinnuveitendur verði fram-
vegis þar. Viðræðunefnd vinnuveit-
enda myndi þá bregða sér til Eyja og
ræða þar málin við fulltrúa Snótar og
Verkalýðsfélagsins.
Það er Ijóst að viðræður atvinnu-
rekenda og verkalýðsfélaganna
verða mjög þungar í vöfum á næstu
dögum og vikum, ekki síst vegna
þess hversu dreifðar þær eru. En
eins og komið hefur fram mun ein
stór samninganefnd vinnuveitenda
ræða við Alþýðusamband Norður-
lands
á Akureyri, Alþýðusamband Aust-
urlands á Egilsstöðum, verkalýðsfé-
lögin í Vestmannaeyjum í Eyjum og
verkalýðsfélögin á Vestur- og
Suðurlandi í Reykjavík. Af þessum
sökum er búist við að mál gangi
hægar fyrir sig en ella, og hætt er við
að lítið þokist í samkomulagsátt
fyrir páska. óþh
Loðnuveiðar:
42.000
tonn eftir
10 bátar tilkynntu um Ioðnuafla á
mánudag, samtals 5.850 tonn, en
ekki einn einasti hafði tilkynnt
Loðnunefnd um veiði um miðjan
dag í gær. Bræla hafði verið á
miðunum i fyrrinótt, en vonast var
til að veðrið myndi skána í nótt.
Nú á aðeins eftir að veiða 42.000
tonn af loðnu, og sagði Ástráður hjá
Loðnunefnd að það væri alveg ör-
uggt að spáin sín stæði, að vertíðar-
lok yrðu annaðhvort 8. eða 11. apríl
næstkomandi.
„Ég stend alveg við það, annars
væri ég bara að hagræða eftir aðstæð-
um,“ sagði Ástráður.
23 bátar hafa nú klárað kvótann
og aðeins 26 bátar eftir. Ástráður
sagði að ef vel myndi veiðast það
sem eftir er vikunnar og um helgina,
yrðu innan við 10 bátar eftir á
miðunum á mánudag. -SÓL
Sjónvarps-
miðstöðin
á tveimur
stöðum
í bænum
Sjónvarpsmiðstöðin hf. Síðumúla
2, hefur fært út kvíamar og opnað
aðra verslun að Laugavegi 80. Um
árabil hefurSjónvarpsmiðstöðin lagt
megin áherslu á þjónustu og sölu á
loftnetsefni, sjónvörpum, bíltækjum
og hljómtækjum.
í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að markmið hinnar nýju versl-
unar sé að auðvelda viðskiptavinum
að skoða hið mikla úrval bíltækja,
sjónvarpstækja og hljómtækja sem
verslunin hefur upp á að bjóða.
Eigendur og starfsfólk Sjónvarpsmiðstöðvarinnar f.v. Hreinn Erlendsson,
Ragnar Gunnarsson, Elísabet Pálsdóttir og Arthur Moon.
Afkoma Flugleiða versnaði um 420 milljónir króna milli ára:
Hagnaður vegna
sölu á eignum
f gær komu saman stjórn Flugleiða
og forstjóri og samþykktu ársreikn-
inga flugfélagsins fyrir árið 1987.
Afkoma félagsins versnaði á árinu
um 420 milljónir frá árinu á undan
og varð hagnaður nú 14,5 milljónir
kr. Rekstrartap án fjármunatekna
og gjalda var 194 milljónir króna
áður. Breytingin milli ára er því
neikvæð um 544 milljónir króna.
Hagnaður nú, þrátt fyrir þetta
rekstrartap án fjármagnstekna og
gjalda, stafar af því að hagnaður
varð af sölu eigna um 239 milljónir
króna. í árslok var bókfært eigið fé
Flugleiða 1.184 milljónir króna.
Heildarvelta Flugleiða á síðasta
ári nam 8,2 milljörðum króna og
varð veltuaukning milli ára 19,8%.
Heildarfarþegafjöldi r áætlunarflugi
var 872.774 farþegar eða 13,6%
fleiri en 1986. Alls voru flutt 9.504
tonn af frakt sem er 25% aukning frá
árinu áður.
Á árinu störfuðu að meðaltali
1.716 starfsmenn hjá félaginu og
launagreiðslur námu samtals 1.926
milljónum króna.
Á aðalfundi Flugleiða, sem hald-
inn verður 22. mars nk., mun stjórn-
in leggja til að greiddur verði 10%
arður og að hlutafé verði aukið um
50% með útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa, þannig að hlutafé félagsins
hækki úr 315 í 472,5 milljónir króna.
Þj