Tíminn - 16.03.1988, Page 11
Miðvikudagur 16. mars 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
Erfitt verkefni
hjá Anderlecht
Belgíska knattspyrnuliðið Ander-
lecht sem Arnór Guðjohnsen leikur
með verður í sviðsljósinu í kvöld í
Evrópukeppninni í knattspyrnu.
Þeir leika þá síðari leik sinn gegn
portúgalska liðinu Benfica í átta liða
úrslitum og verður leikurinn í
Brussel. Benfica vann fyrri leikinn
2-0 og eiga Arnór og félagar því
erfitt verkefni fyrir höndum. í
Madrid eigast við Real Madrid og
Bayern Munchen en þar vann Bay-
ern fyrri leikinn 3-2.
Frá því Benfica og Anderlecht
kepptu í Portúgal fyrir hálfum mán-
uði hefur gengi Anderlechtliðsins
verið á stöðugri uppleið. Raymond
Göthals tók við þjálfun liðsins
skömmu fyrir fyrri leikinn og hafði
nánast engan tíma til breytinga en
nú er því spáð að „galdramaðurinn"
sé tilbúinn að mæta Benfica á ný.
Anderlecht vann auðveldan sigur
um helgina þar sem Arnór skoraði
eitt af fjórum mörkum en Benfica
fékk versta hugsanlegan undirbún-
ing, 0-0 jafntefli í slagsmálaleik þar
sem 6 leikmenn meiddust. Pað er
því ástæða fyrir heimamenn í Brus-
sel til að líta björtum augum á
leikinn.
í Madrid ætla Spánverjarnir að
taka Bayern í kennslustund en vörn
Bayern er heimskunn og verður
fróðlegt að sjá hver niðurstaðan
verður. - HÁ/Reuter
Norbert Eder kom mikið við sögu í fyrri leik Bayern og Real, skoraði og gaf
Real nánast mark. Hér reynir hann að sleppa framhjá Tendillo.
Iþróttirnar
í kvöld
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Fimm lið berjast
um tvö laus sæti
Þegar tvær umferðir eru til loka
úrvalsdeildarkeppninnar í körfu-
knattleik berjast fimm Iið um tvö
laus sæti í úrslitakeppninni. Aðeins
UMFN og ÍBK hafa tryggt sér sæti
þar en Valur, KR, UMFG, Haukar
og ÍR eiga öll möguleika á hinum
tveimur sætunum. Telja verður allar
líkur á að Blikarnir séu þegar fallnir
í fyrstu deild en Þórsarar gætu
bjargað sér með því að vinna úrslita-
leik um sæti við næst efsta lið 1.
deildar sem væntanlega verður ÍS
eða UÍA.
Möguleikar Valsmanna og KR-
inga eru óneitanlega mestir á að
komast í úrslitakeppnina en Haukar
standa þeim jafnfætis takist þeim að
leggja IR-inga að velli annað kvöld.
Grindavík og ÍR koma svo skammt
undan en verða að teljast eiga veika
von.
Staðan í deildinni er þessi eftir
leikina um síðustu helgi:
UMFN 15 13 2 1329-1115 26
ÍBK 14 11 3 1094- 930 22
Valur 14 8 6 1114- 977 16
KR 14 8 6 1186- 999 16
UMFG 14 7 7 1024-1016 14
Haukar 13 7 6 964- 920 14
ÍR 13 6 7 951- 977 12
Þór 15 2 13 1126-1456 4
UBK 14 1 13 807-1155 2
Valsmenn eiga eftir tvo leiki,
útileik gegn ÍR og heimaleik við
KR. Það má segja það sama um
þessa tvo leiki og heimaleik KR
gegn Haukum, þeir geta nánast
endað á hvaða veg sem er. Haukarn-
ir eiga inni leik við ÍR í Hafnarfirði
og keppa auk KR-inganna við Blika
í Hafnarfírði. Það ættu að vera
nokkuð örugg tvö stig en engin leið
er að spá um úrslit hinna tveggja
leikjanna. Grindvíkingar sem unnu
íslandsmeistarana í Grindavík þurfa
nú að mæta þeim í Njarðvík og
verður að telja vafasamt að þeim
verði mikið ágengt þar. Að auki eiga
Grindvíkingar eftir að mæta ÍR.
ÍR-ingar eiga heimaleik við Val,
útileik við Grindavík og loks frest-
aða leikinn við Hauka sem verður
annaðkvöld.
Það ætti að verða ljóst af þessari
samantekt að úrslitin eru fjarri því
að vera ráðin og svo gæti jafnvel
farið að það verði ekki fyrr en í
síðustu umferðinni 27. mars sem í
ljós kemur hvaða lið fylgja UMFN
og ÍBK í úrslitakeppnina.
- HÁ
í kvöld verður mikið um að vera
á íþróttasviðinu hér innanlands.
Þrír af fjórum leikjum í átta liða
úrslitum í bikarkeppni HSÍ, tveir
stórleikir í blakinu og einn leikur í
úrvalsdeildinni.
f bikarkeppninni í handknattleik
mætast Breiðablik og FH í Digra-
nesi kl. 18.30. Kl. 20.00 keppa svo
Eyjamenn og KR-ingar í Vest-
mannaeyjum og á sama tíma Vals-
menn gegn Fylki í Seljaskóla.
í blakinu verðttr uppgjör á
toppnum milli Víkings og UBK í
kvennaflokki í Hagaskóla kl. 18.30
og strax á eftir keppa Þróttur og
KA í bikarnum.
f úrvalsdeildinni í körfuknattleik
fá Blikar Keflvíkinga í heimsókn í
Digranesið kl. 20.00. - HÁ
Mikið verður um að vera á íþróttasviðinu í kvöld. Valsmenn keppa m.a. við Fylki í átta liða úrslitum bikarkeppninnar
en Víkingar bíða til morguns með að mæta Frömurum. Myndin er úr leik Vals og Víkings á Hlíðarenda á
mánudagskvöldið. Það er Guðmundur Guðmundsson sem hefur klemmt handlegg Júlíusar Jónassonar og dregið
Júlíus með sér í gólfið. Þetta er hornamannsbragð sem stundum sést í leikjum og platar oft dómarana. Niðurstaðan
varð einmitt sú hér, Júlíus var rekinn af leikvelli í tvær mínútur. Tímamynd Pjetur.
Innanhússmót öldunga í frjálsum íþróttum:
Sautján Islandsmet
Sautján íslandsmet voru sett á
innanhússmóti öldunga í frjálsum
íþróttum sem haldið var í Baldurs-
haga um helgina. Keppendur voru
30 á aldrinum 30-67 ára.
Jóhann Jónsson Víði og Reinhard
Sigurðsson KR voru iðnastir við að
slá íslandsmetin. Jóhann keppir í
flokki 65-69 ára og hljóp 50 metrana
á 7,9 sek., stökk 4,18 m í langstökki
og 8,58 m í þrístökki. Þá stökk hann
2,23 m í langstökki án atrennu og
1,15 m í hástökki með atrennu en
allt eru þetta íslandsmet í flokki
65-69 ára.
Reinhard Sigurðsson KR stökk
1,20 m í hástökki án atrennu, 8,68 m
í þrístökki, 2,43 m í langstökki án
atrennu, 6,56 m í þrístökki án at-
rennu og varpaði kúlunni 9,20 m.
Þetta eru allt met í flokki 60-64 ára.
Ingvi Guðmundsson KR stökk
3,47 m í langstökki í flokki 55-59 ára
og 7,55 m í þrístökki sem hvoru-
tveggja er íslandsmet.
Friðrik Þór Óskarsson ÍR, marg-
faldur íslandsmeistari í greininni,
setti met í þrístökki í flokki 35-39
ára þegar hann stökk 13,41 m. Hann
náði einnig ágætum árangri í lang-
stökki, 6,20 m sem þó er ekki ls-
landsmet.
Karl Stefánsson UBK bætti þrí-
stökksmetið í flokki 40-44 ára í
11,18 m og Guðmundur Hallgríms-
son UÍA 50-54 ára metið í 10,13 m.
Sigurður Friðfinnsson FH setti
þrjú met í flokki 55-59 ára, stökk
2,49 m í langstökki án atrennu, 7,08
m í þrístökki án atrennu og 1,35 m í
hástökki með atrennu.
í kvennaflokki féllu tvö fslands-
met, Oktavía Hrönn Edvinsdóttir
Víði stökk 7,62 m í þrístökki sem er
met í flokki 30-34 ára og Anna
Magnúsdóttir HSS varpaði kúlunni
8,60 m í flokki 40-44 ára. Einnig má
geta árangurs Oddnýjar Árnadóttur
IR í 50 m hlaupi þar sem hún hjó
nærri íslandsmetinu í 30-34 ára
flokki, hljóp á 6,7 sek. Þess má geta
að íslandsmetið í kvennaflokki er
6,3 sek. -HÁ
Molar
I SJÓ TAPLEIKIR
IRÖÐ HJÁ SAN ANTONIO
Pétri Guðmundssyni og félóg-
um I San Antonio Spurs gengur
ckki sem best í atvinnumanna-
slagnum í bandaríska kórfubolt-
anum þessa dagana. Á mánu-
dagskvöldið töpuðu þeir sjöunda
leiknum í röð, gegn Washingtnn
Bullets. Úrslit urðu 112-106.
Önnur úrslit í deildinni á mánu-
dagskvöldið: Detroit-Sacra-
mento 109-97, New York-Cleve-
land 104-102, Dallas-Golden
State 121-101, LA Lakers- New
Jersey 115-105.
Hástökk, stökk sem mælt er
frá gólfi að hæl þess scm stekkur.
Um það er mikið rætt i háskóla-
körfuboltanum í Bandaríkjun-
um. Mikið er gert af því að ntæla
stökkkraft leikmanna og um þess-
ar mundir virðlst sem 40 tommu
múrínn (1,02 m) skilji að þá góðu
og hina. Margir hafa orðið til að
cfast um að þessar tölur standist,
getur það virkilega vcrið, eins og
þeir sem kannað hafa málin gefa
í skyn, að þeír bestu í háskóla-
körfuboltanum stökkvi virkilega
svona hátt, í hverjum leik og það
án allrar atrennu? „Ja, ég cr í
mestu vandræðum með þessa
hæð,“ segir Dwight Stones fyrr-
um heimsmethali í hástökki. „Ég
trúi því ekki að körfuboltamcnn
geti stokkið nærri Qögur fel upp
í loftið án atrennu.“ Joey John-
son (1,93 m) bakvörður Arizona
State cr sagður stökkva 50 tomm-
ur (1,27 m). „Það kemur einfald-
lega ekki til grcina,“ segir Stoncs.
Það myndi þýða að hann væri
með mjaðmimar í 2,29 m hæð
sem er aðeins 13 cm undir heims-
metinu í hástökfci og það án
atrennu! Johnson er að vísu mjög
góður hástökkvari og á best 2,28
m en engu að síður neilar Stones
að trúa þessum gífurlega stökk-
krafti og segir aðferðina við að
mæla hann ekki nógu nákvæma.
Það cina sem fullkomlega stand-
ist sé að íþróttamaður standi upp
við vcgg með krít, striki á vegginn
þar sem hann nær hæst mcð þvi
að teygja sig, stökkvi þvínæst
upp jafnfætis og striki eins hátt
og þeir geta þannig. „Ég stekk
innanvið 30 tommur (76 cm) og
ég trúi því ekki að neinn stökkvi
yfir 40 tomniur. Það vildi ég fá að
sjá,“ segir Stoncs og ekki er
annað hægt en að taka undir það
en cins og körfuknattleiksnhuga-
menn hafa séð hafa sumir leik-
mannanna eigi að síður gífurleg-
an stökkkraft.