Tíminn - 30.03.1988, Blaðsíða 11
10 1 íminn
Miðvikudagur 30. mars 1988
Miðvikudagur 30. mars 1988
Tíminn 11
llllllllllllllllllllllllllll- ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllflllllllllllllllllll
irnar því langar en hittni leikmanna
beggja liða afskaplega slök. Staðan
var enda 14-14 eftir 12 mínútna leik.
Hittnin fór heldur batnandi er á leið
en leikurinn var í heild ekki
skemmtilegur á að horfa.
ÍR-ingar náðu forystunni í upphafi
leiks og voru yfir lengst af, mestur
varð munurinn 11 stig um miðjan
síðari hálfleik. Þá tók lsak Tómas-
son til sinna ráða og stal knettinum
einum fjórum sinnum af bakvörðum
ÍR-liðsins. Árangurinn varð sá að
sjálfsöryggi þeirra fór á tímabili
bókstaflega í vaskinn og sóknar-
leikurinn þar með. Þegar upp var
Minnstu munaði að ÍR-ingar
næðu að slá bikarmeistara Njarðvík-
inga út úr bikarkeppninni í körfukn-
attleik í gærkvöldi. ÍR-ingar unnu
leikinn, 74-73 eftir að vera yfir
nánast allan tímann en Njarðvíking-
ar báru sigur úr býtum i fyrri leikn-
um, 69-62.
Njarðvíkurliðið var ekki sjálfu sér
líkt í gærkvöldi, sóknin var mjög
slök, skotið úr slæmum færum og
helst áður en knötturinn gekk eða
neinn var í aðstöðu til að taka
frákast. Sókn ÍR var alveg andstað-
an, gekk eins og best verður á kosið.
Vörn Njarðvíkinga var góð og sókn-
staðið reyndist þessi kafli afdrifarík-
ur. Þeir Karl og Jón Örn áttu annars
ágætan leik en ísak var sá Njarðvík-
ingur sem tók af skarið og kom sínu
liði í úrslitin.
Helstu tölur: 0-1, 6-1, 6-6. 12-6, 14-8, 14-14.
20-14, 29-26, 31-27 - 38-31, 44-40, 51-40,
51-47, 57-55, 58-59, 62-59, 65-63, 70-70, 74-
70, 74-73.
Stigin, ÍR: Jón öm Guðmundsson 23, Karl
Guðlaugsson 23, Bjöm Steffensen 8, Jóhann-
es Sveinsson 8, Ragnar Torfason 6, Vignir
Hiimarsson 4, Bragi Reynisson 2. UMFN:
lsak Tómasson 18, Teitur örlygsson 13,
Sturla örlygsson 10, Valur Ingimundarson 9,
Arni Lámsson 7, Hreiðar Hreiðarsson 6,
Friðrik Rúnarsson 5, Helgi Rafnsson 5.
Jón Páll Sigmarsson bar sigur úr
býtum á íslandsmótinu í vaxtarrækt
sem haldið var á Hótel íslandi á
sunnudaginn. Keppendur á mótinu
voru ekki ýkja margir, aðeins 17, og
skiptust niður á marga flokka.
Keppni í þyngdarflokkunum var þó
yfirleitt spennandi þar sem keppend-
ur voru almennt mjög jafnir. Spenn-
an náði þó hámarki þegar keppt var
í opnum flokki þar sem sigurvegarar
í þyngdarflokkunum keppa innbyrð-
is. Vitað var að keppnin kæmi til
með að standa milli Sigurðar Gests-
sonar sem hafði Islandsmeistaratitil
að verja, og Jóns Páls Sigmarssonar.
Svo fór að Jón Páll bar sigur úr
býtum, en keppnin var hörð. Áður
en dómarar kváðu upp endanlegan
dóm höfðu þeir kallað þá Sigurð og
Jón Pál þrívegis fram á gólfið til að
skoða þá betur saman.
Margrét Sigurðardóttir sigraði í
kvennaflokki en Sólmundur Örn
Helgason varð íslandsmeistari ung-
linga.
Engín hátíð án
bragðgóða, norðlenska lambakjötsins
íslandsmeistarar í vaxtarrækt 1988: Sólmundur Öm Helgason meistari unglinga, Jón Páll
Sigmarsson sigurvegari í opnum flokki og Margrét Sigurðardóttir íslandsmeistari í kvennaflokki.
Tímamynd Pjetur.
Eyjamenn tryggðu sér í gærkvöldi
íslandsmeistaratitilinn í 2. deild
karla á íslandsmótinu í handknatt-
leik. Þeir unnu HK 21-20 (10-11) í
Digranesi í gærkvöldi og tryggðu um
leið Gróttu 1. deildarsæti. HK átti
möguleika á 2. sætinu í deildinni
með sigri í gærkvöldi. Það var línu-
maðurinn Jóhann Pétursson, fyrrum
Gróttumaður, sem skoraði sigur-
markið en leikurinn var mjög jafn og
spennandi. Jóhann gerði 6 mörk og
Elías Bjarnhéðinsson einnig en
Kristján Gunnarsson var marka-
hæstur Kópavogsbúa með 11 mörk.
Margrét Sigurðardóttir íslandsmeistari í kvennaflokki er spengileg að sjá. Á innfelldu myndinni er Sigurður Gestsson.
Tímamyndir Pjetur.
Fjötíðnaðarstöð
Ajkareyri. S. 96-21400
Þeir háðu harða keppni; Sigurður Gestsson og Jón PáU Sigmarsson
Tímamynd Pjetur.
Tvöfaldur páskavinningur 6-7 milljónir
Munið útdráttinn á laugardag.
Flestir sölustaðir opnir á skírdag. /\ ^
Gleðilega páska! /
Gunnarsdóttir stóð sig best í Haukaliðinu.
Stigahæstar, ÍS: Helga G. 20, Anna Björk 10, Helga F.
10, Hafdís 9. Haukar: Herdís 17, Sólveig 12, Guðbjörg 9.
Þegar ein umferð er til loka 1. deildar
kvenna á íslandsmótinu í körfuknattleik er
ÍBK í efsta sæti eins og veríð hefur lengi vel í
vetur. Þær mæta ÍR í síðasta leik mótsins og
gæti ÍR með stórsigrí tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn en vonir ÍBK um sigur á mótinu
verða þó að teljast yfirgnæfandi. ÍS er sem
stendur í 2. sæti en mögulcikar liðsins á sigri
eru úr sögunni.
Þegar tvö lið, eða fleiri, eru jöfn að stigum
gilda innbyrðis viðureignir. Sigri ÍR ÍBK og ÍS
KR verða öll liðin jöfn með 28 stig. ÍR hefur
þá 2:1 sigurhlutfall gegn ÍBK, ÍBK 2:1 gegn ÍS
og ÍS 2:1 gegn ÍR. Innbyrðis stigahlutfall
ræður þá. ÍS kemur þar verst út, með -27, ÍR
hefur +1 og ÍBK +26 sem þýðir að ÍR verður
að vinna ÍBK með 13 stiga mun til að tryggja
sér íslandsmeistaratitilinn.
ÍS-Haukar 61-56 (54-54) (24-32)
Leikurinn var mjög hraður framanaf og
lengst af ágætlega leikinn af beggja liða hálfu.
Það var þó öðru fremur yfirvegaður sóknar-
leikur ÍS gegn Haukavöm sem oft opnaðist illa
sem úrslitum réði.
ÍS náði fjögurra stiga forskoti seint í hálf-
leiknum eftir að vera undir framanaf en
Haukar náðu að jafna á síðustu sekúndunum
eftir mikla spennu. í framlengingunni skoraði
ÍS strax, Haukar jöfnuðu en ótímabær skot
þeirra gegn yfirveguðum leik ÍS í framlenging-
unni tryggði heimaliðinu sigur í Kennarahá-
skólanum.
Helga Guðlaugsdóttir lék best í liði ÍS að
þessu sinni, jafnt í vörn sem sókn, en Herdís
ÍBK-KR 64-38 (36-24)
Jafnræði var með liðunum í upphafi og fram
yfir miðjan fyrri hálfleik en þá tóku Keflavík-
urstúlkumar leikinn í sínar hendur. Best hjá
ÍBK var Björg Hafsteinsdóttir en hjá KR var
það Helga Árnadóttir.
Stigin, ÍBK: Björg 17, Anna María 14, Krístin Bl. 10,
Auður 9, Guðlaug 7, Bylgja 5, Kristín Sig. 2. KR: Emilía 11,
Helga 6, Hrönn 6, Hildur 5, Guðrún 5, Asta 5.
UMFN-UMFG 27-28 (18-13)
Jafnræði var með liðunum í byrjun en síðan
náðu Njarðvíkurstúlkumar forystu og héldu
henni þar til aðeins fjórar mínútur vom til
leiksloka að Grindavík jafnaði 24-24. í lokin
var mikið um mistök á báða bóga en Grinda-
víkurstelpumar vom sterkari og sigmðu.
Bestar í liði Grindavíkur voru Svanhildur
Káradóttir og Marta Guðmundsdóttir en hjá
Njarðvík var það Þórunn Magnúsdóttir. Ágæt-
ir dómarar vom Sigurður og Gunnar Valgeirs-
synir.
Stigin, UMFN: Sigríður 9, Amý 5, Þórdís 4, María 4,
Þórunn 3, Gyða 2. UMFG: Marta 11, Svanhildur 10,
Guðrún 4, Hafdís 2, Ragnheiður 1.
Staðan:
IBK...................... 17 14 3 1033-753 28
ÍS ...................... 17 13 4 836-706 26
ÍR........................ 17 13 4 967-974 26
Haukar.................... 17 7 10 981-900 14
UMFG .................... 18 7 11 661-832 14
KR ....................... 17 3 14 703-937 6
UMFN ..................... 17 3 14 625-778 6
-HÁ/ms
Upplýsingasími: 685111
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Bikarkeppnin í körfuknattleik, undanúrslit:
meistarar
og Grótta
Urslitaleikurinn
Islandsmotið i körfuknattleik, 1. deild kvenna
4" . jJj
b , • M