Tíminn - 30.03.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 30.03.1988, Blaðsíða 20
ÞAÐ GEFUR AUGALEIÐ ...að þú getur haft áhrif á verðlagningu vöru og þjónustu í upphafi þessa árs jók Verðlagsstofnun tíðni verðkannana sem gerðar hafa verið í mörg ár. Ástæða þótti til að kanna hvort tollalækkanir og niðurfelling vörugjalds skiluðu sér í lækkuðu vöruverði til neytenda. Þessar verðkannanir hafa leitt í ljós að gífurlegur verðmunur er oft á milli verslana og reyndar einnig innan þeirra. Því er erfitt fyrir neytendur að reyna að átta sig á eðlilegu vöruverði. í framhaldi af þessum könnunum ákvað Viðskiptaráðuneytið að láta gera auglýsingar sem hnykktu enn frekar á niðurstöðum verðkannanna með almennum og einstökum dæmum. Auglýsingar Viðskiptaráðuneytisins hafa vakið athygli og hrint af stað nýrri umræðu um verðlagsmál. En það er ekki nóg, því markmiðið hlýtur að vera að ná niður verði, og það tekst einungis með því að þú fylgist sjálfur, neytandi góður, með verðlagningu. Það sem skiptir máli fyrir hag neytenda og lögð hefur verið áhersla á í auglýsingunum er VERÐIÐ, en mat á gæðum og þjónustu hlýtur að vera í höndum neytandans. Það er undir þér komið í hvaða verslun þú gerir innkaupin, hvaða vörumerki þú kaupir og í hvaða magni. Með því að gera verðsamanburð veitir þú þeim sem selja vörur og þjónustu, aðhald sem örvar samkeppni og leitt getur til lægra verðs. Það liggur í augum uppi. VERUM Á VERÐI VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.