Tíminn - 30.03.1988, Side 20
ÞAÐ GEFUR AUGALEIÐ
...að þú getur haft áhrif á verðlagningu vöru og þjónustu
í upphafi þessa árs jók Verðlagsstofnun tíðni
verðkannana sem gerðar hafa verið í mörg ár. Ástæða
þótti til að kanna hvort tollalækkanir og niðurfelling
vörugjalds skiluðu sér í lækkuðu vöruverði til neytenda.
Þessar verðkannanir hafa leitt í ljós að gífurlegur
verðmunur er oft á milli verslana og reyndar einnig
innan þeirra. Því er erfitt fyrir neytendur að reyna að
átta sig á eðlilegu vöruverði.
í framhaldi af þessum könnunum ákvað
Viðskiptaráðuneytið að láta gera auglýsingar sem
hnykktu enn frekar á niðurstöðum verðkannanna með
almennum og einstökum dæmum.
Auglýsingar Viðskiptaráðuneytisins hafa vakið
athygli og hrint af stað nýrri umræðu um verðlagsmál.
En það er ekki nóg, því markmiðið hlýtur að vera að
ná niður verði, og það tekst einungis með því að þú
fylgist sjálfur, neytandi góður, með verðlagningu. Það
sem skiptir máli fyrir hag neytenda og lögð hefur verið
áhersla á í auglýsingunum er VERÐIÐ, en mat á
gæðum og þjónustu hlýtur að vera í höndum
neytandans.
Það er undir þér komið í hvaða verslun þú gerir
innkaupin, hvaða vörumerki þú kaupir og í hvaða
magni. Með því að gera verðsamanburð veitir þú þeim
sem selja vörur og þjónustu, aðhald sem örvar
samkeppni og leitt getur til lægra verðs.
Það liggur í augum uppi.
VERUM Á VERÐI
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ