Tíminn - 06.04.1988, Page 2

Tíminn - 06.04.1988, Page 2
2 Tíminrí Miðvikudagur 6. apríl 1988 Frumvarp um aðskilnað dóms- og framkvæmdavalds lagt fyrir þing á mánudag nk.: Hrapað var að frumvarps- gerð að dómi sýslumanna Jón Sigurðsson, dómsmálaráð- herra, væntir þess, að frumvarp hans um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði verði tekið fyrir á Alþingi á mánudag, þegar þing kemur aftur saman eftir páska. I’rjú fylgifrumvörp voru kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær og fjalla frekar um verksvið embætta, sem breytist með nýjum sveitar- stjórnarlögum og gildistöku þess frumvarps, sem nú verður lagt fyrir hið háa þing. Hið fyrsta fylgifrumvarp fjallar um breytingu á lögum um hrepp- stjóra, en sýslunefndir, sem valið hafa hreppstjóra til þessa, verða lagðar niður með gildistöku nýrra sveitarstjórnarlaga. Annað kveður á um breytingu á lögum um þing- lýsingar, sem eftir gildistöku frum- varps um aðskilnað dóms- og um- boðsvalds, verða ekki dómsathöfn heldur stjórnvaldsaðgerð. í þriðja fylgifrumvarpi á hið sama við um lögbókandagerðir eða notorial- gerðir. Tíminn hefur áður skýrt frá, að frumvarpið muni mæta miklum mótbárum á þingi af ýmsum sökum. Til blaðsins hefur borist ályktun, sem samþykkt var á al- mennum félagsfundi í Sýslumanna- félagi íslands 25. mars sl. vegna frumvarpsins. Þar er því harðlega mótmælt. í ályktuninni er því haldið fram, að mikill og ófyrirsjáanlegur kostn- aðarauki fylgi frumvarpinu, þar sem ekki hafi farið fram „nauðsyn- legar og sjálfsagðar rannsóknir“. Það sé „hrapað að frumvarpsgerð- inni“. „Þekkingargrundvöll um stað- reyndir vantar. Ekki er að áliti félagsins nóg að styðjast við heim- spekikenningar frá 18. öld,“ segir í ályktuninni. Sýslumenn segja, að ekki liggi fyrir, hver kostnaður er og hver hann yrði með gildistöku þessara laga. Einnig að ekki sé ljóst, hvort „núverandi kerfi hafi valdið þegnunum réttarspjöllum. Sýslumannafélagið veit ekki til þess, að núverandi kerfi hafi komið nokkrum manni að sök“. í ályktun félagsins kemur fram, að það sætti sig mun fremur við Lögréttuhugmynd þá, sem Ólafur heitinn Jóhannesson lagði fyrir þing á sínum tíma. Því var þá hafnað sökum kostnaðar. Til að koma í veg fyrir kvartanir, svo sem þá, sem nú er fyrir mann- réttindanefnd Evrópuráðs í Strassborg, leggur félagið til, að sakborningi sé jafnan, um leið og honum er gefinn kostur á að fá réttargæslumann, jafnframt gefinn kostur á að kjósa, að dómari í öðru lögsagnarumdæmi fari með mál hans, t.d. í Reykjavík eða grann- umdæmi. Þá segir enn fremur í ályktun- inni: „Frumvarp til laga um að- skilnað dómsvalds og umboðsvalds stefnir ekki að þeirri skipan dóms- valds og stjórnsýslu, sem almanna- sjóðum og þegnunum er ódýrust og hagkvæmust. Núverandi emb- ætti sýslumanna og bæjarfógeta eru hagkvæm skipan Iítilli þjóð, sem býr í stóru landi. ... Dómstól- ar og réttarkerfi eru tákn kjölfestu og hefðar í þjóðfélaginu. Viðhafa þarf því fyllstu gát, þegar stofnað er til breytinga á dómstólunum, og komi fram agnúar, er affarasælla að ráða bót á þeim með hægfara þróun fremur en byltingu. Sýslu- mannafélagið álítur stofnað af hvatvísi til byltingar á dómstóla- skipaninni með fyrirliggjandi frum- varpi um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds." þj Frá undirskríft samninga. Sölustofnun lagmetis undirritar samning um sölu til Sovétríkjanna: Samningur uppá 234 milljómr Sölustofnun lagmetis og sovéska fyrirtækið Sovryblot f Moskvu undir- rituðu samning um sölu á niðursoðn- um og niðurlögðum sjávarafurðum í síðustu viku. Samningurinn er að verðmæti 6 milljóna bandaríkjadala, eða 234 milljóna króna sem er yfir hærri mörkum í rammasamningi á milli íslendinga og Sovétmanna. Samið var um sölu á gaffalbitum, fisklifur, kryddsíldarflökum, létt- reyktum síldarflökum og reyktri síld í loftæmdum umbúðum. Sovétríkin hafa aukið fjárveiting- ar til lagmetisviðskipta um 22% í bandaríkjadölum nú í ár frá því í fyrra en í ár eru einmitt 25 ár frá því að útflutningur á lagmeti hófst frá íslandi til Sovétríkjanna. Vörur þær sem um ræðir verða framleiddar hjá K. Jónssyni Co. Akureyri, Lifrarsamlagi Vest- mannaeyja, Hik Húsavík, Pólstjörn- unni á Dalvík og Egilssíld á Siglu- firði. JIH Móöir Sveins Jónassonar segir aö setið sé á svikráöum viö hann: Okkur var hótað í gegnum símann „Undanfarið hafa birst mjög meiðandi greinar í blöðum, sem beint er að mér og syni mínum, Sveini Jónassyni. Meiðyrði!," segir Guðrún Sveinsdóttir, móðir Sveins, sem handleggsbrotnaði á lögreglu- stöðinni. Hún ætlar nú að höfða mál á hendur ábyrgðarmönnum þeirra blaða, sem birt hafa lesendabréf og fréttir, sem að dómi Guðrúnar eru meiðandi. Eftir að atburðurinn á lögreglu- stöðinni komst í algleymi segist hún tvívegis hafa ansað símhringingum manns, sem kynnti sig ekki, en hótaði syni hennar öllu illu, - að síðustu lífláti. Hún hafi einnig orðið þess vör, að ókunnugir væru að hnýsast um þeirra hagi. þj M-hátíðum fram haldið af krafti á Sauðárkróki í vor og Austfjörðum 1989: Líf í tónlist og sýningar opnaðar „Það hefur verið talað um að það verði framhald á M-hátíðum. Það er nú í undirbúningi að næsta M-hátíð verði á Sauðárkróki fyrir Norður- land vestra. Ákveðið hefur verið að hátíð þessi verði í maí í sumar,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, er Tíminn innti hann eftir framhaldi á M-hátíð- um, sem haldnar hafa verið á ísafirði og á Akureyri. „Síðan hefur verið talað um að halda M-hátíð á Austurlandi næsta sumar og tengja hana þá 100 ára afmæli Gunnars Gunnarssonar sem fæddur var á Skriðuklaustri." Ekki hefur verið ákveðið hvar sú hátíð verður en ráðherra bjóst við að hún yrði haldin á Egilsstöðum. Erlendur Kristjánsson er sá sem annast hefur undirbúning hátíðar- innar af hálfu menntamálaráðuneyt- is ásamt Kristni Hallssyni. Erlendur sagði í samtali við Tímann að ákveð- ið hafi verið af undirbúningsnefnd hcimamanna og ráðuneytis, að há- tíðin hefjist 19. maí n.k. Sagði hann að dagskráin væri að mestu leyti borin uppi af heimamönnum. Dagskráin hefst með því að menntamálaráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson. setur hátíðina með opnun málverkasýningar skagfirskra málara. Það verður fimmtudaginn 19. maí kl. 18.00 í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Þá um kvöldið verður mikil tónlistarhátíð í íþróttahúsinu. Helsta atriðið verður í höndum Sin- fóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Páls P. Pálssonar og syngur karla- kórinn Heimir með hljómsveitinni. Á föstudag verða fleiri sýningar opnaðar og í gangi verður tónlistar- dagskrá sem ekki er frágengin enn. Á laugardag verður svo sjálf há- tíðardagskráin með crindum, tónlist og miklum söng. Þar verður áhersla lögð á umfjöllun um íslenska tungu og menningarmál. Að lokinni hátíð- ardagskránni þennan dag verður M- hátíðin formlega blásin af. Þó að M-hátíðinni ljúki formlega laugardaginn 21. maí, verða allar sýningar opnar út mánuðinn og sum- ar lengur. Erlendur Krístjánsson, menntamálaráðuneyti, hefur unnið að undirbúningi M-hátíðar á Sauðárkróki í samvinnu við áhugasama undirbúningnefnd heilliamanna. Tímamynd Pjetur „Þessar M-hátíðir hafa gefið góða raun og lyft utidir allt menningarlíf þar sem þær hafa verið haldnar. Uppistaðan í öllum flutningi er kom- in frá heimamönnum. M-hátíðir hafa gefið mönnum tækifæri til að koma vinnu sinni og iðju á framfæri. Hafa þær hátíðir sem haldnar hafa verið, skilið mikið eftir sig,“ sagði Erlendur. Sagði hann að heimamenn væru mjög áhugasamir um hátíðina og ánægjulegt hafi verið að starfa með þeim. Undirbúningnefnd heimamanna er skipuð þeim Marteini Friðriks- syni, frá tónlistarfélagi bæjarins, Hjalta Pálssyni, sögufélaginu, Er- lingi Erni Péturssyni, leikfélaginu, Jóni Edvard Friðrikssyni, bæjarfull- trúa, og Snorra Birni Sigurðssyni, bæjarstjóra á Sauðárkróki. KB

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.