Tíminn - 06.04.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.04.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn- Miðvikudagur 6. apríl 1988 VÓRUMERKI VANDLATRA NÆRFATNAÐUR NÁTTFATNAÐUR CALIDA Heildsölubirgðir: igurjónííon Ijf. Þórsgata 14 - sími 24477 Ný miðunar- stöð afhent Ægi í Garði Slysavarnasveitinni Ægi í Garði var í síðustu viku afhent ný miðun- arstöð, að viðstöddu fjölmenni. í Garði hafa verið fjórar tegundir miðunarstöðva frá upphafi, en Garður var þriðji staðurinn á land- inu sem setti upp slíkt nauðsynja- tæki fyrir öryggi sjómanna. Hér má sjá Sigfús Magnússon, formann Ægis, og Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóra Slysavarnafélags ís- lands við miðunarstöðina. Tímamynd: Pjetur Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits á Austurlandi Auglýst er til umsóknar staða framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits á Austurlandi. Jafnframt skal framkvæmdastjórinn gegna hlutverki heilbrigðis- fulltrúa í Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fljót- sdalshéraði og Borgarfirði eystra. Aðsetursstaður Reyðarfjörður. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1988. Frekari upplýsingar gefur formaður svæðisnefnd- ar, Stefán Þórarinsson, í síma 97-11400. Reykhyltingar Þeir sem útskrifuðust 1950-1951-1952 og 1953, svo og aðrir árgangar sem áhuga hafa. Mætum öll 8. apríl næstkomandi í Goðheimum, Sigtúni 3, Reykjavík, kl. 19.00. Matur og dans. Komum öll og skemmtum okkur saman. Hafið samband við eftirtalda: Eyþóra V. sími 91-74843 Jóhann W. sími 91-671105 Þórir M. sími 92-37680 Ólafur J. sími 93-11444 Nútíminn h.f. Aðalfundur Fundurinn verður haldinn föstudaginn 22. apríl n.k. á skrifstofu félagsins að Nóatúni 21. Fundurinn hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt lögum og sam- þykktum félagsins. 2. Ákvörðun tekin um hlutafjáraukningu. Stjórn Nútímans. Sjúkraliðaskóli íslands auglýsir inntöku nýrra nemenda sem hefja nám haustið 1988. Umsóknareyðublöð eru afhent í skólanum að Suður- landsbraut 6, 4. hæð, alla virka daga kl. 9-12. Umsóknarfrestur er til 13. maí n.k. Skólastjóri. Menningarsjóður félagsheimila: Tillaga um víðtækara verksvið sjóðsins Jón Kristjánsson hefur ásamt Gudmundi G. Þórarinssyni flutt á Alþingi tillögu um eflingu Menningarsjóðs félagsheimila. Fer tillögugreinin hér á eftir ásamt útdrætti úr framsöguræðu Jóns er hann mælti fyrir tiliög- unni á Alþingi. „Alþingi ályktar að efla beri Menningarsjóð félagsheimila, og felur ménntamálaráðherra að láta fara fram endurskoðun laga- ákvæða uin sjóðinn, og marka honum aukið verksvið um stuðning við menningarstarf- semi í landinu. Endurskoðunin skal fela það í sér að sjóðurinn geti stuðlað að auknu menning- arstarfi á landsbyggöinni, og auðveldað þeim menningar- stofnunum sem eiga að þjóna landinu öllu að gegna því hlut- verki sínu. Miðað skal við að ný löggjöf um sjóðinn taki gildi 1. janúar 1989“. Hlutverk Menningarsjóðs félagsheimila Núgildandi lagaákvæði um Menn- ingarsjóð félagsheimila er að finna í lögum nr. 107 um félagsheimili frá 28. október 1970. Þar er gert ráð fyrir að í félagsheimilasjóð renni skemmtanaskattur svo sem segir í lögum um skemmtanaskatt, en 10% af tekjum sjóðsins skuli varið til Menningarsjóðs félagsheimila sem hafi það hlutverk að stuðla að menn- ingarstarfsemi í félagsheimilum. Einnig hefur sjóðurinn heimild til þess að styrkja menningarstarfsemi utan félagsheimila „ef sérstaklega stendur á“, eins og það er orðað í lögunum. Jón Kristjánsson sagði í framsögu sinni að augljóst væri að það sé ástæða til þess nú, að endurskoða hlutverk Menningarsjóðs félags- heimila, efla hann og skapa honum víðara verksvið. Velti hann m.a. upp þeirri spurn- ingu hvort ástæða er til, að tengja starfsemi sjóðsins svo náið starfsemi félagsheimila sem í upphafi var gert ráð fyrir. Menningarstarfsemi færi í miklum mæli fram útan félags- heimila í kirkjum, skólum. og öðrum stöðum þar sem aðstaða er fyrir hendi. * Efling menningarstarf* semi á landsbyggðinni Jón sagði ennfremur að sérstök Jón Kristjánsson, alþm. ástæða væri til þess að kanna það sérstaklega með hverjum hætti sjóð- urinn getur stutt við menningarstarf- semi á landsbyggðinni, og stuðlað að því að tengja starfsemi ýmissa stofn- ana hér í höfuðborginni landsbyggð- inni betur. Má í því sambandi nefna Listasafn íslands sem nú hefur feng- ið mjög glæsilega starfsaðstöðu, ásamt öðrum söfnum, leikhúsum og öðrum menningarstofnunum. Má í þessu sambandi benda á fordæmi Sinfóníuhljómsveitar íslands sem leitast hefur við á seinni árum að hafa tónlistarflutning út um land. Mælist sú starfsemi mjög vel fyrir. Síðan sagði Jón: „Efling Menningarsjóðs félags- heimila mundi geta létt undir með þessum stofnunum í starfsemi sinni. og ekki er síður nauðsynlegt að sjóðurinn haldi áfram því starfi sem hann hefur innt af hendi og komið hefur að mjög miklu liði, því atvinnu og áhugafólkið sem sinnt hefur menningarmálum, og því hlutverki að auka menningarstarfsemi einkum á landsbyggðinni. Þar er þörfin mjög brýn, og mikill áhugi fyrir hendi. Eðlilegt þykir að nokkur tími gefist til þessarar endurskoðunar, en að frumvarp til laga um sjóðinn geti legið fyrir á komandi hausti, og við gerð fjárlaga fyrir árið 1989 sé tekið mið af þeim tillögum sem fyrir liggja um framtíð sjóðsins". Allir hafa eitthvað aðbjóða „Þótt efnishyggja setji mjög mark á þjóðfélagið um þessar mundir er ekki sanngjarnt að segja annað en að í menningarmálum er allmikil gróska. Það er jafnréttismál að þjóð- in öll fái notið hennar, notið þess sem listamenn hafa upp á að bjóða. Það er mikilvægur þáttur í því að mannlífið sé fjölbreytt og innihalds- ríkt. Ég þekki að út um landsbyggð- ina leggur fólk mikið á sig af einskær- um áhuga til þess að starfa við leiklist, söng og önnur menningar- efni. Þetta starf þarf að efla og kemur þar margt til. Þar kemur til þörfin fyrir félagsskap annarra manna, þörfin fyrir að skapa eitt- hvað, vera veitandi en ekki þiggj- andi. En til þess að veita öflugan stuðn- ing í þessum efnum þarf að efla Menningarsjóð félagsheimila fjár- hagslega og færa út starfssvið hans. Þannig gæti hann örvað atvinnu- menn jafnt sem áhugamenn til þess að miðla list sinni til sem flestra. Þess má geta að sjóðurinn hefur mörgum hjálpað á liðnum árum og komið ótrúlega víða við. Auðvitað mun efling hans kosta nokkra fjármuni, en það er skoðun mín að þeim sé vel varið. og það sé hægt að gera stóra hluti án þess að ríða efnahag þjóðarinnar á slig. Vilji er allt sem þarf í þessum efnum“.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.