Tíminn - 06.04.1988, Qupperneq 6

Tíminn - 06.04.1988, Qupperneq 6
6 Tíminn Miðvikudagur 6. apríl 1988 Stelpur! Drífum okkur á kvennaþing! Pöntum fyrir 15. apríl! Skráiö ykkur fyrir 15 apríl. Það þarf einnig aö greiða kr. 7.000 inn á fluggjaldið fyrir 15. apríl. Norrænt kvennaþing Norrænt kvennaþing verður haldið í Osló 31. júlí - 7. ágúst n.k. að tilstuðlan ráðherranefndar Norðurlandaráðs. LFK mun í samvinnu við miðflokkakonur á Norðurlöndunum standa fyrir verkefni er nefnist KONUR OG STÖRF f DREIFBÝLI: Undirbúningshópur LFK hefur tekið til starfa og eru þær sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningi og/eða koma með okkur á þingið í Osló beðnar um að hafa samband sem fyrst við Margréti í síma 91-24480 kl. 9-12 eða einhverja úr undirbúningshópnum. LFK Unnur Þórdís Vigdís Rabbfundir LFK í kjördæmum Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum i kjör- dæmunum í samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem hér segir: Austurland, helgina 8.-10. apríl Allar velkomnar Effco þurrkan læknar ekki kvef En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana Hún er svo stór og mjúk og heimilisstörfin, sem áður virtust særir nebbann ekki neitt. Svo þegar óyfirstíganleg, að skemmtilegum kvefið er batnað getur þú notað leik. Óhreinindin bókstaflega leggja afganginn af rúllunni til annarra á flótta þegar Effco þurrkan er á hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn, lofti. Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum oq verslunum. . .... . . Heildsala Höggdeyíir — EFFCO »inr»i 73233 BLIKKFORM Smiðjuvegi 52 - Sími 71234 Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land. (Ekið niður með Landvélum) Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, felur Byggðastofnun verðugt verkefni: Heildarúttekt á byggðaþróun Forsætisráðherra hefur falið Byggðastofnun að gera úttekt á þróun byggðar í landinu, búsetu- breytingum og stöðu höfuðat- vinnuveganna á landsbyggðinni. Einnig hefur forsætisráðherra óskað eftir því að stofnunin safni upplýsingum um fjárveit- ingar úr ríkissjóði til byggða- mála. Forsætisráðuneytið hefur óskað eftir því við Þjóðhags- stofnun og viðkomandi ráðu- neyti að Byggðastofnun verði veitt nauðsynleg aðstoð og fyrir- greiðsla í þessu sambandi. Ákvörðun forsætisráðherra um þessa byggðaúttekt var tekin í fram- haldi af minnisblaði Byggðastofnun- ar dagsettu 28. mars sl. til hans, þar sem tekið er fram að mjög alvarlega horfi með þróun byggðar í landinu, og svo hafi raunar verið um nokkurt skeið. í minnisriti Þróunarsviðs Byggða- stofnunar er tekið fram að ekki sé lengur forsvaranlegt að stjórnvöld sitji áfram aðgerðalaus, á meðan fólk flytji ár hvert svo hundruðum skiptir af landsbyggðinni til höfuð- borgarsvæðisins. Bent er á að fjár- Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra. hæðir, sem hefur beinlínis átt að nýta í nafni byggðastefnu, hafi ekki skilað sér til að bæta aðstöðu lands- byggðarinnar og fyrirtækja á lands- byggðinni. Einnig er minnt á að það fjármagn, sem Byggðastofnun hefur verið falið að annast á undanförnum árum, hafi í auknum mæli verið lánsfjármagn og æ oftar hafi þurft að nýta það til að koma fiskvinnslufyrir- tækjum út á landsbyggðinni á réttan kjöl. í minnisgrein Byggðastofnunar kemur enn fremur fram að stofnunin hafi nú starfað í rúm tvö ár. í Ijós hafi komið á þessum tíma að henni sé óhægt um vik að sinna hlutverki sínu, vegna þess hversu stór hluti fjármagns hennar sé lánsfé. Þess er getið að forsætisráðherra hafi varpað fram þeirri hugmynd að leggja tekjur af sölu fyrirtækja í eigu ríkisins til að auðvelda einstaklingum, félögum þeirra og fyrirtækjum að leggja fram eigið fé í starfandi eða nýjum fyrir- tækjum í heimabyggð. „Þetta er mjög álitlegt, sérstaklega í þeim tilgangi að geta lagt fram hlutafé í nýjum fyrirtækjum," segir í nefndri minnisgrein Byggðastofnunar. „Byggðastofnun er þess albúin að takast á við það verkefni að annast um slíkt áhættufjármagn hins opin- bera til að efla atvinnurekstur á landsbyggðinni. Engu að síður er nauðsynlegt að byggja markvisst upp framlag úr ríkissjóði sem hægt er að nota til ýmissa verkefna á lands- byggðinni sem stofnunin telur nauð- synlegt að ráðast í.“ óþh íslenskar ostaætur: Sporðrenndu 2542 tonnum á sl. ári íslendingar eru miklir ostasælker- ar. Það sannast, svo ekki verður um villst, á nýjum töluupplýsingum frá Osta- og smjörsölunni. Fram kemur að sala á osti jókst um rúm 9% á síðasta ári miðað við árið 1986. Landinn sporðrenndi 2542 tonnum af osti árið 1987, sem þýðir um 10,4 kg meðalneyslu á hvern íbúaámóti9,6 kgámannárið 1986. óþh Björg Þorsteinsdóttir opnar sýningu á verkutn síniini í Nor- ræna húsinu laugardaginn 9. apríl kl. 14.00. Á sýningunni cru á milli 40 og 50 málverk, pastelmyndir og teikningar. Þetta er 12, einkasýning Bjargar. Síðustu einkasýningar licnnar í Reykjavík voru í Gallerí Borg og Norræna húsinu 1985. Björg Þorsteinsdóttir stund- aði myndlistarnám í Reykja- vík, Stuttgart og Paris og hefur unnið jöfnum höndum við graiik og málverk. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis, m.a. í „Scandinavia today“, Bunda- rikjunum 1982, „Icelandíc Art 1944-1979, Minnesota Muse- um of Art 1979, „Nordiska kvinnor malare och teknare“, farandsýning um Norðurlönd 1980, „Islensk abstraktlist í 40 ár“, Kjarvalsstöðum 1987. Verk eftir Björgu cru í eigu listasafna á íslandi og ennfrem- ur safna og stofnana á Norður- löndum, Frakklandi, Holiandi, Póllandi, Spáni og Júgósiavíu. Björg hefur verið virk í félags- málum íslenskra myndlistar- manna. Hún var forstöðumað- ur Ásgrínissafns á árunum 1980-1984. Jarögöng í Ólafsfjaröarmúla boðin út: Verkið hefst í ár í frétt frá samgönguráðuneytinu segir að ráðherra samgöngumála, Matthías Á. Mathiesen, hafi með bréfi dags. 25. þ.m., falið vegamálastjóra að bjóða út framkvæmdir við jarðgöng um Ólafsfjarðarmúla til að framkvæmdir við verkið geti hafist á þessu ári í samræmi við fyrri samþykkt Alþingis. Matthías Á. Mathiesen leggur innan tíðar fram á Alþingi tillögu um endurskoðun vegáætlunar fyrir árið 1988, þar sem m.a. verður gert ráð fyrir fjármögnun þessara framkvæmda.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.