Tíminn - 06.04.1988, Side 13

Tíminn - 06.04.1988, Side 13
Miðvikudagur 6. apríl 1988 Tíminn 13 AÐ UTAN II Bödunin er ákaflega þýöingarmikill liður í brúðkaupinu skv. siðum Indónesíumanna. Þá eru hjónaefnin hreinsuð til líkama og sálar áður en þau hefja nýtt líf. Hér eru það foreldrar brúðgumans sem sjá um hreinsun sonar síns... Brúðkaupsathöfnin fór í þetta sinn fram á hóteli í Bangkok. Hér er brúðurin að mata mannsefni sitt á gulum hrísgrjónum. ... og sama athöfn á sér stað heima hjá foreldrum brúðarinnar. köstuðu samanrúlluðum laufum betelhnetupálmans hvort í annað og á þetta að tákna að þau séu að ganga úr skugga um að alvara sé að baki. Þá var komið að því að „stíga á eggið“. Brúðguminn steig á egg og braut það. Þá steig brúðurin fram og kraup niður til að þvo eggjasull- ið af fótum lians með vatni með ilmcfnum. Brúðguminn rétti henni síðan hönd sína og reisti hana á fætur. í þessari athöfn felast tvenns konar tákn, eggjabrot brúðgumans táknar að hann hcfur nú stigið óafturkræft skrcf með því aðganga að eiga brúði sína. Brúðurin er hins vegar að sýna að hún gangi manni sínum heils hugar á hönd og taki að sér þá skyldu að gæta hans góða nafns, bæði ístríðu og blíðu. Næst í röðinni er athöfn, þar sem ungu hjónin leiðast og halda í jakkalöf föður brúðarinnar. Stefn- an er tekin á brúðhjónasætið og móðir brúðarinnar veitir þeim kær- leiksfulla vernd á leiðinni. Merk- ingin er að faðir brúðarinnar sýni ungu hjónunum á hverju ham- ingjusamt fjölskyldulíf byggist en móðirin sýni stuðningoghvatningu við að ná markmiðum ungu hjón- anna í lífinu. Þá er komið að list jafnvægisins. Brúðhjónin setjast sitt á hvort læri föður brúðarinnar og þegar móðir hennar spyr hvort sé þyngra, svarar hann að þau séu jafnþung. Þetta merkir að faðir gerir ekki grcin- armun á dóttur sinni og tengdasyni, bæði standa honum jafnnærri. Nú er komið að því að foreldr- arnir viðurkenni að brúðkaup hafi átt sér stað og gefa brúðhjónunum blessun sína. Brúðurin leggur nú útflettan vasaklút í kjöltu sína og brúðguminn hellir hnetum úr ofn- um poka á klútinn. Þetta táknar að allt það sem eiginmaðurinn vinnur sér inn fellur í skaut konunnar, sem sér um að nýta það til velferðar fjölskyldunnar. Brúðhjónin mata svo hvort ann- að með gulum hrísgrjónum og drykkjarvatni á eftir. Þetta táknar að í hjónabandi deila hjónin öllu hvort með öðru. Nú er komið að því að taka á móti foreldrum brúðgumans, sem loks eru komin. og þcim vísað til sætis næst brúðhjónunum. Síðar fer svo fram athöfnin Sugkeman, þegar brúðhjónin þakka foreldrum sínum fyrir uppeldið og biðja um blessun þeirra í byrjun nýs lífs. Síðast í helgiathöfninni skiptast brúðhjónin á hringjum. Nú var helgisiðunum fullnægt, og eru þeir þó ekki allir upptaldir, og gestum boðið að koma inn og bera fram hamingjuóskir til ungu hjónanna. Foreldrar brúðarinnar koma fyrir klumpi úr hrísgrjónaakri og laufum sykurreyrs sem tákn um að vclmegun skuli fylgja ungu hjónunum. Brúðurín hellir vatni með ilmefnum yfir fætur brúðgumans til að sýna fram á að hún gangi manni sínuni heils hugar á hönd. við vökunótt hjá brúðarcfninu, þar sem hún, ásamt vinum og vanda- mönnum bíður þess að hljóta bless- un tunglgyðjunnar. Daginn eftir mætti brúðarefnið með fríðu föruneyti. foreldrum og brúðarmeyjum, og hafði fórnar- gripi í fórum sínum. Brúðguminn mætti ásamt stnu fylgdarliði og nú stóðu þau tvö augliti til auglitis í fyrsta sinn síðan undirbúningurinn að brúðkaupinu hófst. Sjálf brúðkaupsathöfnin hófst með því að brúðgumi og brúður brúðkaupssiðir enn í heiðri hafðir Indónesar, sem að meirihluta eru múhameðstrúar, halda enn í heiðri ævaforna brúðkaupssiði að meira eða minna leyti, eftir því sem tök eru á. Þessir siðir eru að miklu leyti táknrænir og eiga að stuðla að heillaríkri framtíð brúðhjón- anna. í augum okkar Yesturlandabúa eru þessir siðir flóknir og þungir í vöfum. Og íburðarmiklir. Þó leyfa nútímalifnaðarhættir ekki að öllum siðunum sé viðhaldið. Nýlega héldu ambassador Indó- nesíu í Thailandi og frú hans hátíðlegt brúðkaup dóttur sinnar og landa hennar eins og það fer fram í konunglegu höllunum í Solo á miðri eyjunni Java. Ambassa- dorshjónin héldu brúðkaupið í Bangkok en að hefðbundnum sið að svo miklu leyti sem við var komið. Þó stóðu hátíðahöldin og helgiathöfnin ekki nema í tvo daga í stað viku, eins og hefðin býður. Daginn fyrir brúðkaupið sjálft fór fram Siriman eða böðunarat- höfnin, sem Indónesar telja ákaf- lega þýðingarmikla, þar sem fram fer hreinsun hjónaefnanna, bæði til líkama og sálar, áður en þau hefja nýtt líf sem hjón. Síðan tekur Hár, klippt af höfði brúðarinnar, er gróðursett í garði foreldra hennar og merkir það að hún er nú ekki lengur heimasæta í húsi þeirra heldur húsfreyja á eigin heimili. Sinn er siður í landi hverju: Gamlir indónesískir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.