Tíminn - 12.04.1988, Side 2
2 Tíminn:
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Ákvæði reglugerðarinnar taka gildi á föstudag:
Öryggisgrindur á
allardráttarvélar
í ársbyrjun 1987 gekk í gildi
reglugerð þar sem kröfur tii öryggis-
búnaðar dráttarvéla voru hertar.
Þar var gefinn frestur til að búa elstu
véiarnar öryggishúsi eða öryggis-
grind. Síðar var hann framlengdur,
en rennur út á föstudag, 15. apríl nk.
Reglugerðin er prentuð í heild í
bæklingi frá Vinnueftirlitinu, „Ör-
yggi við notkun dráttarvéla" sem
sendur var bændum í júlí 1986.
Síðan 1970 hafa að jafnaði orðið
tvö eða þrjú dauðaslys við landbún-
aðarstörf ár hvert. Samtals urðu
dauðaslysin 46 í greininni á árunum
1970 til 1987. f>ar af urðu 25 slys við
dráttarvélar eða drifbúnað þeirra,
langflest vegna veltu vélar án örygg-
ishúss eða öryggisgrindar. Tólf
þeirra sem létust voru yngri en 16
ára.
Um miðjan þennan mánuð verða
allar dráttarvélar að vera búnar
öryggisgrind. Þó eru nokkuð vægari
kröfur gerðar til dráttarvéla, sem
voru seldar eða afhentar fyrir 1.
janúar 1966, þannig að þær skulu
„... búnar öryggisgrind eða velti-
boga sem Vinnueftirlit ríkisins
viðurkennir ... “.
Undanþegnar þessum ákvæðum
reglugerðarinnar eru þær dráttarvél-
ar, sem eingöngu eru notaðar sem
kyrrstæður drifkraftur. Þær skulu
auðkenndar og hefur Vinnueftirlitið
látið gera sérstaka límmiða í þyí
skyni, sem á stendur: „Dráttarvél
þessa má aðeins nota sem staðbund-
inn aflgjafa.“ Miðamir eru afhentir
Skilti þetta skal staðsett á áberandi
stað í öryggishúsi dráttarvélanna.
Allsherjar-
atkvæða-
greiðsla um
nýjan kjarasamning
Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem gerður
var 8. apríl sl., verður mánudag, þriðjudag og
miðvikudag, 11., 12. og 13. apríl. Kjörfundur
stendur yfir frá kl. 09:00 til kl. 21:00 alla dagana,
nema miðvikudag 13. apríl, frá kl. 9.00-18.00 í
Húsi verslunarinnar, 9. hæð.
Félagsmenn V.R. eru hvattir til að taka þátt í
atkvæðagreiðslunni.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar, sími: 687100.
Jafnframt hefur yfirkjörstjórn ákveðið að hafa
kjörfundi í neðantöldum fyrirtækjum, vegna starfs-
fólks þessara fyrirtækja:
Þriðjudaginn 12. apríl.
Kl. 10:00-13:00:
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Tryggingamiðstöðin h.f.,
Árvakur h.f., Aðalstræti 6
Flugleiðir h.f., Reykjavíkurflugvelli
Osta- og smjörsalan, Bitruhálsi 2
Mjólkursamsalan
Samband ísl. samvinnufélaga, Sölvhólsgötu 4
Kl. 14:00-17:00:
Hagkaup, Skeifunni
JL-húsið, JL-Völundur, Hringbraut 121
Kaupstaður, Mjódd
Mikligarður s.f., Holtagarðar, Holtavegi
Miðvikudaginn, 13. apríl.
Kl. 10:00-13:00:
Eimskipafélag íslands, h.f., Pósthússtræti 2
O. Johnson og Kaaber h.f., Sætúni 8
Sjóvá h.f., Skeljungur, Nói/Hreinn/Síríus, B.B.
byggingavörur, Suðurlandsbraut 4
Kl. 14:00-17:00:
Húsasmiðjan h.f., Súðarvogi 3-5
Nýibær h.f., Eiðistorgi
Almennar tryggingar h.f., Síðumúla 39
Kjörstjórn
á aðalskrifstofu stofnunarinnar og
hjá umdæmisskrifstofum. Einnig er
veitt undanþága frá notkun öryggis-
grindar, þegar dráttarvélar eru not-
aðar innanhúss, þar sem húsrými
leyfir ekki notkun þessa búnaðar.
Loks er ákveðið að í öryggishús-
um eða grindum sé skilti á áberandi
stað með varanlegri svohljóðandi
áletrun: Aðvörun. Haldið fast um
stýrið ef vélin veltur. Stökkvið ekki
út.
Stórlækkun varð um áramót á
tollum á öryggisbúnaði eins og þeim,
sem nú er skylt að búa allar dráttar-
vélar. þj
!\ AÐVORUN
HALDIÐ FAST I STYRIÐ EF VELIN VELTUR
STÖKKVIÐ EKKI ÚT
Reglugerð frá
sjávarútvegsráðuneytinu:
Gjaldtaka af
gámafiskinum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
sent frá sér reglugerð um gjald á
ísfiski sem er fluttur óunninn úr
landi, og hefur gjaldtakan þegar
hafist. í reglugerðinni er kveðið
á um að frá og með 1. apríl til 30.
júní skuli koma sérstakt gjald af
ísfiski sem fluttur er á erlendan
markað, nema þann afla sem
veiðiskipin sigla með sjálf. Gjald-
ið kemur á þorsk og ufsa og
rennur í Verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaðarins. Af hverju kílói af
þorski skal greiða 80 aura, eða
800 kr. af hverju tonni og af kílói
af ufsa skal greiða 20 aura, eða
200 kr af hverju tonni. Þetta er
miðað við að fiskurinn sé slægður
með haus, en ef hann er slægður
og hausaður verður gjaldið 1 kr.
af kílói af þorski og 25 aurar af
kílói af ufsa.
Þessi reglugerð er sett í fram-
haldi af nýju kvótalögunum og
hefur þegar öðlast gildi. Upplýs-
ingar útflytjenda skulu koma
fram í útflutningsleyfum sem eru
nú afgreidd í gegnum utanríkis-
ráðuneytið.
Hverjar eru horfurnar meö komandi sumar?:
Hreint ekki slæmar
horfur að mati Páls
Nú er kominn sá árstími að
spámenn þjóðarinnar setjast á
rökstóla og spá í sumarið, hvernig
veður muni verða, gæftir, afla-
brögð og fleira.
Margir spámenn byggja á
hyggjuvitinu einu saman, en aðrir
er við hitamælingar í Stykkishólmi
af þeirri ástæðu að þar hafa mæl-
ingar lengst verið stundaðar á ís-
landi og því best fallnar til saman-
burðar. „Um gróðurinn vil ég enn
sem komið er segja sem minnst,
trúlega verður hægt að spá nánar
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
styðjast við tölulegar upplýsingar.
Einn þeirra er Páll Bergþórsson
veðurfræðingur. Árlegar spár hans
um ástand gróðurs og horfur um
heyskap má segja að teljist til
íslenskra vorboða. Spár Páls um
þetta atriði byggjast á hitameðal-
tali í Stykkishólmi sjö mánuði á
undan, frá október til apríl. Stuðst
fyrir um sumarið í lok aprílmánað-
ar. En það sem liðið er af viðmið-
unartímabilinu, hefur ekki verið
kalt. Það helgast fyrst og fremst af
hlýjum mánuðum í nóvember og
desember. Síðan hefur reyndar
verið heldur kalt, þannig að í
heildina er tímabilið heldur kald-
ara en undanfarin ár, en samt sem
áður mun betra en í köldum árum.
Það eru því síður en svo horfur á
slæmri uppskeru í sumar," sagði
Páll Bergþórsson í samtali við
Tímann.
Hann sagðist ekki hafa haft
spurnir af miklum svellalögum á
landinu í vetur, og það eitt gæfi
góðar vonir um að kaldraugurinn
herjaði ekki í ár á tún. Þó kunna
vorkuldar að drepa grasrótina og
skilja eftir sig kalskellur í túnum.
Þetta skýrist ekki fyrr en komið er
langt fram á vor, í endaðan maí
eða fyrripart júnímánaðar.
Auk þess að spá fyrir um hey-
skaparhorfur á landinu er Páll
þekktur fyrir að spá fyrir um hafís
við ísland að vori, en þá spá byggir
hann á 6 mánaða meðaltali (frá
ágústbyrjun til janúarloka) sjávar-
hita við Jan Mayen.
Hitastig sjávar við Jan Mayen
umrædda mánuði 1987-1988 reynd-
ist vera í lægra lagi á umræddum
mánuðum. Samkvæmt þesu spáði
Páll því í lok janúar si. að búast
mætti við ís í meira lagi hér við
land á vormánuðum. Páll bætti því
reyndar við í spá sinni í janúar að
vegna þess að sjór hér við land hafi
verið í mildara lagi að undanfömu,
mætti gera ráð fyrir að það dragi úr
líkum á landföstum hafís við landið
í vor. “Það er nú svo að ef ís er ekki
kominn að landi um miðjan apríl,
þá eru miklu meiri möguleikar að
sleppa að talsverðu leyti við hann.
Þó er hugsanlegt að hann lóni úti
fyrir Norðurlandi langt fram á
sumar. Með hverri vikunni sem
líður aukast líkurnar á því að við
sleppum við landfastan ís í vor,“
sagði Páll.
Aðspurður sagði Páll að hafís
hafi síðast verið landfastur á vor-
mánuðum árið 1979. „Þá lá ísinn
sérstaklega við NA-hornið, Mel-
rakkasléttu og Langanes. Síðan
hefur ekki verið verulegur ís við
landið,“ sagði Páll Bergþórsson.
óþh