Tíminn - 12.04.1988, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.04.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn Þriðjudagur 12. apríl 1988 iilí LANDBÚNAÐUR lllllllM^ I: ■■ ii :V!■ ■■ -nlliíiilÍÍllilillllllHlllllHIIIIIIIIÍ Haukur Halldorsson formaöur Stettarsambands bænda FyTTÍ hlllti Stefna í sauðf járrækt / (Utdrattur ur erindi sem flutt var a raðunautafundi 1988) Án efa er engin grein landbúnaðarins íslensku þjóðinni jafn hugstæð og sauðfjárræktin, svo samofin er sauðkindin sögu þjóðarinnar í blíðu og stríðu liöinna alda. Vafamál er að nokkur búgrein geti með jafnótvíræðum rétti kallast „landbúnaður‘% svo nátengd er sauðfjárræktin iandinu og nýtingu á gæðum þess. Á okkar dögum er hún í hugum flestra útvörður byggðarinnar. Hún er tákn um ákveðið lífsmunstur sem fólk hefur valið sér, og undirstaða þess kjarnmikla mannlífs sem þrífst í hinum dreifðu byggðum. Sauðfjárræktin hefur átt og á enn öfluga talsmenn, sem ótrauöir hafa bent á að varðveita beri og vernda þau verðmæti sem fólgin eru í dreifðri byggð landsins, húsa- kosti, ræktun og verkþekkingu og staðþekkingu fólksins. Síðast en ekki síst má þar nefna verðmæti sem fólgin eru í lifandi byggð. I þessari baráttu beita menn iðulega huglægum og tilfinningalegum rökum sem oft byggjast fremur á ósk- hyggju en raunsæi. Nú steðja að nýjar hættur eða eigum við að segja þróun sem örðugt er að segja hvert leiðir. í fyrsta lagi harðnandi sam- keppni á matvælamarkaðnum sem byggist á óskum neytenda um fjöl- breyttara fæðuval og fituminni vörur. í öðru lagi krafan um arðsemi og ávöxtun þessfjársem íbúgreininni er bundið. í þriðja lagi er svo krafa fólks um afkomu og samanburðurinn við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Þessar breytingar kalla á nýjar baráttuaðferðir og endurmat á ýmsum þáttum sem við hingað til höfum talið sjálfsagða. Slíkt endurmat verður að byggj- ast á raunsæi og hreinskilni og getur verið sársaukafullt. Hins vegar verða menn að gera sér Ijóst að barátta sem háð er á röngum forsendum vinnst ekki. Stefna stjórnvalda í búvörulögunum frá 1985 er mörkuð stefna stjórnvalda í fram- leiðslumálum landbúnaðarins. Þar segir að framleiðsla búvara til neyslu og iðnaðar skuli vera í sem nánustu samræmi við þarfir þjóðar- innar og tryggja ávallt nægjanlegt vöruframboð við breytilegar að- stæður í landinu. Einnig að nýta skuli sölumöguleika fyrir búvörur erlendis eftir því sem hagkvæmt þykir. Þá eru í lögunum ákvæði um lækkun útflutningsbóta niður í 5% af heildarverðmæti búvörufram- leiðslunnar árið 1992. Þetta er sá starfsrammi sem löggjafarvaldið hefur markað land- búnaðinum og afmarkar það svig- rúm til framleiðslu mjólkur og kindakjöts sem við höfum á næstu árum. Með tilliti til þessa er Ijóst að sauðfjárræktin þarf að búa sig undir að mæta stöðugt harðnandi samkeppni með minni stuðningi ríkisvaldsins. Sú hefur líka verið þróun undanfarinna ára. Frá árinu 1980 hafa framlög til landbúnaðarins sem hlutfall af ríkisútgjöldum lækkað úr 11,22% árið 1980 í 5,78% 1987. Þar er átt við öll framlög til landbúnaðar- ráðuneytisins og stofnana sem heyra undir það, búnaðarmál, út- flutningsbætur og niðurgreiðslur. Vegna endurgreiðslu á söluskattin- um hækka þessar tölur að vísu mjög mikið á þessu ári, en það breytir hins vegar litlu um þá augljósu stefnu ríkisvaldsins sem út úr þessum tölum má lesa. Litlar líkur eru á því að miklar breytingar verði á þessari stefnu stjórnvalda í þá átt að auka framlög til landbúnaðarins. Flestir stjórn- Endurmat á stööu sauðfjárræktarinnar verður að byggjast á raunsæi og hreinskilni og getur verið sárs- aukafullt. Hins vegar verða menn að gera sér Ijóst að barátta sem háð er á röngum forsendum vinnst ekki. málaflokkarnir hafa átt þátt í að móta þessa stefnu. Þetta verður enn Ijósara þegar á það er litið að pólitísk áhrif bændastéttarinnar fara sífellt minnkandi. Samkvæmt athugun Félagsvís- indastofnunar Háskólans, voru aðeins um 5,6% allra ársverka í landinu unnin við frumframleiðslu í landbúnaði árið 1983. Sé miðað við Norðurlönd hefur aðeins Sví- þjóð lægra hlutfall starfandi fólks í landbúnaði en ísland. Hvers vegna stuðningur við landbúnað? í þessu sambandi er vert að velta því fyrir sér af hvaða ástæðum ríkisvaldið leggur fé til stuðnings landbúnaðinum. Hvers vegna eru stjórnvöld reiðubúin að undirrita samning eins og búvörusamninginn sem gerður var í mars á sl. ári. Rétt er að rifja það upp í þessu sambandi að upphaflegar forsend- ur útflutningsbóta árið 1960 voru stuöningurviðinnlenda markaðinn svo að ekki þyrfti að taka gjald til þess að bæta upp útflutning. Mark- miðið þá var því ekki beinn stuðn- ingur við byggðastefnu. Ég tel hins vegar engan vafa á því að forsendur núverandi búvöru- samninga séu fyrst og fremst vilji samfélagsins til þess að viðhalda byggð. fþessu felst viðurkenning á í stuðningi ríkisvalds- ins við landbúnaðinn felst viðurkenning á því að í hinni dreifðu byggð séu fólgin verð- mæti sem þjóðfélaginu eru mikilvæg. því að í hinni dreifðu byggð séu fólgin verðmæti sem þjóðfélaginu eru mikilvæg. í öðru lagi fclst í þessum stuðn- ingi viðurkenning samfélagsins á því, að af öryggisástæðum er þjóð- inni nauðsyn að hér séu fram- leiddar búvörur. Krafa samfélagsins Eðlilegt er að næst sé spurt hvaða kröfu þjóðin eigi vegna þessarar fyrirgreiðslu við landbún- aöinn, í þessu tilfelli sauðfjárrækt- ina. Ég tel að fyrsta krafa samfélagsins sé sú að hér sé rekinn hagkvæmur búskapur og land nýtt hóflega. Niðurstöður búreikninga og úr- tök Hagstofunnar úr skattframtöl- um bænda benda til þess að hag- kvæmni í búrekstri sé víða ábóta- vant. í úrtaki sem Hagstofan vann úr skattframtölum rúmlega 100 hreinna sauðfjárbúa fyrirárið 1984 kom í Ijós að nær allar ráðstöfunar- tekjur fjölskyldunnar komu frá störfum utan búsins. Búreksturinn sjálfur gaf þessu fólki lítið í aðra hönd. Það ber að vísu að hafa í huga að árið 1984 var mjög erfitt ár fyrir bændur víða um land vegna árferð- is. Engu að síður er ástæða til þess að líta slíkar rekstrarniðurstöður mjög alvarlegum augum og þetta sýnir glögglega hve brýn þörf er á fræðslu og leiðbeiningum á hag- fræðilega sviðinu. Hvert á að sækja kjarabætur? Hér að framan hefi ég lagt áherslu á mikilvægi þess fyrir sauð- fjárræktina og hinar dreifðu byggð- ir að njóta skilnings samfélagsins. Hitt er jafn mikilvægt að allir geri sér ljóst að byggð verður ekki til lengdar haldið óbreyttri eða lítt breyttri í landinu nema með því að þeir sem í strjálbýlinu búa hafi hliðstæð kjör og þeir sem í þéttbýli búa. Það hefur einkum orðið hlut- verk sauðfjárræktarinnar að vera útvörður byggðarinnar í landinu. Þetta hefur ekki að öllu leyti verið Kjarabætur til handa sauðfjárbændum verða við núverandi aðstæður aðeins fengnar með hagræð- ingu í búrekstrinum, aukinni skipulagningu framleiðslunnar og hagræðingu á mark- aðnum. bændum hagstætt ef dæmið er skoðað út frá fjárhagslegu sjónar- miði og beinlínis bitnað á kjörum þeirra. Ég óttast líka að sú mikla dreifing sem nú er í sauðfjárfram- leiðslunni dragi úr hagkvæmni bú- greinarinnar og spilli þar með sam- keppnismöguleikum hennar. Vegna þess hve draga hefur þurft saman framleiðsluna geta bændur ekki lengur borið kostnað af byggðastefnu á sama hátt og áður var. Síðasti aðalfundur Stéttarsam- bands bænda sendi stjórnvöldum skilaboð um þetta efni sem ég held að engin leið sé að misskilja. Ályktun aðalfundarins er svo- hljóðandi: „Stéttarsamband bænda styður heilshugar hvers konar viðleitni stjórnvalda til varðveislu byggðar en bendir á að vegna þröngrar stöðu sauðfjárræktar getur hún ekki tekið á sig byrðar í því sambandi enda hlýtur það að vera hlutverk samfélagsins alls“. Eins og áður er vikið að er samanburðurinn við lífskjör ann- arra stétta ein áleitnasta spurningin í landbúnaðinum nú. ekki síst í sauðfjárræktinni. Hvert á að sækja kjarabætur handa sauðfjárbændum? Tveir hópar Eins og markaðsaðstæðum er nú háttað verða þær ekki sóttar til markaðarins með hækkun afurða- verðsins. Það er nú sem betur fer flestum að verða ljóst að einhliða hækkun verðsins er ekki leið sem skilar bændum kjarabótum. Þvert á móti spillir það samkeppnisaðstöðu afurðanna, dregur úr sölu og rýrir enn frekar framleiðslumöguleik- ana. Pólitískur vilji virðist ekki fyrir hendi til þess að auka raun- gildi niðurgreiðslna og hjálpa bændum með því að sækja kjara- bætur eftir þessari leið. Kjarabætur til handa sauðfjár- bændum verða við núverandi að- stæður aðeins fengnar með hag- ræðingu í búrekstrinum og aukinni skipulagningu framleiðslunnar. Éinnig með hagræðingu á mark- aðnum og aukinni samvinnu söluaðila. í þessu sambandi verða menn að átta sig á því og viðurkenna sem staðreynd að sauðfjárbændur skiptast í tvo hópa, og tekjuvanda- mál þessara hópa verða ekki leyst með sama hætti. í fyrrnefnda hópnum eru þeir sem stunda sauðfjárrækt sem aðal- starf eða stefna að slíkum bú- rekstri. Til þess að tryggja hag þessara bænda virðast þrjár leiðir einkum koma til greina. 1 fyrsta lagi hækk- un afurðaverðsins að því marki að búreksturinn gefi sambærilega af- komu og viðmiðunarstéttirnar hafa þrátt fyrir að í mörgum tilfellum sé ekki um fullt starfa að ræða og nýting fjárfestinga ófullnægjandi. Þessi leið yrði ekki farin án verulegr- ar röskunar á markaðnum og sam- dráttar í sölu kindakjöts. f öðru lagi að gera þeim kleift að stækka bú sín að því marki að vinna þeirra nýtist að fullu við búreksturinn og laun og fastur kostnaður dreifist á meira framleiðslumagn. Augljóst er að þessi leið verður ekki farin við núverandi aðstæður nema hluti þeirra bænda sem nú stunda sauð- fjárrækt hætti í því starfi eða minnki við sig. Þriðja leiðin væri að skapa þess- um bændum möguleika á öðrum störfum við hlið búrekstrarins þannig að vinna þeirra nýtist til fulls. Með því væri ýtt undir þá þróun enn frekar en nú er orðið, að sauðfjárrækt verði stunduð hér sem hliðarstarf. Hinn hópurinn er svo sá hluti framleiðenda sem hefur sauðfjár- ræktina sem hlutastarf og nýtir vinnu sína að öðru leyti til tekju- öflunar við önnur störf. Þessi hóp- ur gerir ekki sömu kröfur um hækkun afurðaverðs, en telurmeiri ávinning af því að halda verði kjötsins niðri og afsetja meira magn. Hagur þessara framleiðenda verður best tryggður með því al- mennt að efla atvinnustarfsemi í dreifbýlinu og tryggja með því næga vinnu fyrir þá sem hafa búskapinn sem hlutastarf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.