Tíminn - 12.04.1988, Síða 3
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Tíminn 3
Breytingartillaga við bjórfrumvarp:
5 krónur af hverjum bjór
til varðveislu menningar
A Alþingi í gær var lögð fram breytingartillaga við bjórfrum-
varpið fjórum þingmönnum úr fjórum stjórnmálaflokkum, þeim
Sverri Hermannssyni, Sjálfstæðisflokki, Guðmundi G. Þórarins-
syni, Framsóknarflokki, Guðrúnu Helgadóttur Alþýðubandalagi
og Kjartani Jóhannssyni, Alþýðuflokki.
Tillagan kveður á um að af hverri seldri bjórflösku, eða dós,
skuli greiddar fímm krónur í sérstakan safnasjóð og hafí gjaldið
fullt verðgildi og það leiðrétt ársíjórðungslega.
Safnasjóðurinn hefði það hlut- safna í landinu, svo sem Þjóð-
verk að stuðla að vexti og viðgangi minjasafninu, Þjóðskjalasafninu,
Náttúrufræðisafninu og Snorra-
safninu í Reykholti, svo dæmi séu
nefnd. Það var haft á orði í gær
þegar breytingartillaga þessi kom
fram á Alþingi, að fari bjórfrum-
varpið sem nú er til afgreiðslu á
Alþingi í gegn á þessu þingi, sem
miklar líkur eru á, muni sú iðja
sem Þórður kakali er hvað kunn-
astur fyrir - að drekka - nú verða
til þess að skapa traustari fjárhags-
grundvöl! til að halda minningu
Snorra Sturlusonar frænda hans á
lofti í Snorrasafni í Reykholti.
Sjóðnum skal skipuð þriggja
manna stjórn af menntamálaráð-
herra og mun stjórnin setja sjóðn-
um stofn-og skipulagsskrá sem þó
er háð samþykki ráðherra.
Sérstaka athygli vekur að fyrsti
flutningsmaður tillögunnar
er Sverrir Hermannsson, en hann
er með hörðustu bjórandstæðing-
um. Sverrir sagði í gær að hugmynd
sín væri sú að freista þess að hækka
bjórverð ef til þess kæmi að bjórinn
yrði leyfður samhliða því að aflað
væri tekna til íslenskra safna sem
verið hafi í fjársvelti. -SÓL
Útvegsbankinn:
Aðalbankinn
verður útibú
Félagsdómur kvað upp dóm sinn í gærkvöldi í máli HÍK:
Verkfallsboðun HIK
ekki lögum samkvæmt
Félagsdómur komst aö þeirri
niðurstöðu í gærkvöldi að boðað
verkfall Hins íslenska kennara-
félags, sem átti að koma til
framkvæmda frá og með morg-
undeginum, væri ólögmætt.
Þar með virðist Ijóst að skóla-
starf raskist ekki í vor, eins og
stefndi í, en eins og kunnugt er
dæmdi Félagsdómur í síðustu
viku boðun verkfalls Kennaras-
ambands íslands, sem átti að
hefjast í gær, einnig ólögmæta.
Ef málsatvik eru í stuttu máli
rifjuð upp, þá er þess að geta að
samninganefnd ríkisins taldi að lög-
mætur meirihluti hafi ekki verið
fyrir boðun verkfalls HÍK. í at-
kvæðagreiðslu HlK var verkfalls-
boðun samþykkt með tveggja at-
kvæða ntun, 464 voru samþykkir
verkfalli en 462 voru á móti. Samn-
inganefndarmenn ríkisins töldu að
vegna þess að 60 félagar í HÍK
skiluðu auðu í atkvæðagreiðslunni
hefði minnihluti félagsmanna stutt
verkfallsboðun. Á þetta sjónarmið
féllst Félagsdómur og dæmdi verk-
fallsboðunina ólögmæta og vísaði
þar til laga sem segja að til þess að
verkfallsboðun sé lögmæt verði
meirihluti þeirra sem taka þátt í
atkvæðagreiðslu að vera henni sam-
þykkur.
Kennarar í HÍK, sem flestir starfa
í framhaldsskólum landsins. munu
koma saman á næstu dögum til að
ræða um niðurstöðu Félagsdóms og
ákveða næstu skref í kjarabarátt-
unni. Forsvarsmenn HÍK neita því á
þessu stigi að til frekari aðgerða
komi af þeirra hálfu á þessu vori,
enda er nokkuð Ijóst að tíminn er
floginn frá kennurum, a.nt.k. íbráð.
óþh
Nú geturðu hætt að hugsa um N.Ö.R.D.:
Skammstöfun á
skemmtidagskrá
Einhver best heppnaða auglýsingaherferð sem um getur á
íslandi, spurningaflóðið um N.Ö.R.D., er nú hér með nær
algerlega úr sögunni, þar sem Tíminn hefur af harðfylgi aflað sér
upplýsinga um hvað N.Ö.R.D. er.
Spurningar eins og, Er pabbi
N.Ö.R.D.?, Er N.Ö.R.D. á þínu
hcimili? og Er N.Ö.R.D. leikrit?,
hafa birst mönnum hvar sem þeir
voru og hvert sem þeir fóru, og
valdið mönnum ómældu hugar-
angri og leiðindum yfir að vita ekki
fyrir hvað skammstöfunin stendur.
Því skal það upplýst, að
N.Ö.R.D. er skammstöfun fyrir
Nær Öldungis Ruglaður Drengur,
sem er skemmtidagskrá sem þeir
félagar Þórhallur Sigurðsson.
þekktari sem Laddi, og Gísli Rún-
ar Jónsson, ásamt Gríniðjunni,
eru að setja upp á Hótel íslandi og
verður frumsýnd þar síðar í þessum
mánuði, eða nánar tiltekið þann
24. apríl.
N.Ö.R.D. cr samkvæmt hei-
mildum þcim sem Tíminn Itefur
aflað sér, þýðing á bandarísku
leikriti, cn þrátt fyrir margítrekað-
ar tilraunir, tókst ekki að bcra
þettaundirmeðlimi Gríniðjunnar.
-SÓL
Þann 1. apríl síðastliðinn var aðal-
banka Útvegsbanka íslands hf.
breytt í útibú. Breytingar þessar
hafa það í för með sér að yfirstjórn
bankans hættir að sinna afgreiðslu-
málum eins ákveðins útibús og setur
það í hendur útibússtjóra. Við það
léttir á bankastjórninni og hún getur
sinnt starfsemi allra útibúanna jafnt.
Þar með fá allir viðskiptavinir
bankans, hvar á landi sem er, sömu
þjónustu. Útibússtjóri Útvegsbank-
ans við Lækjartorg er Reynir Jónas-
son.
Sú þjónusta, sem áður var veitt í
aðalbanka fram yfir útibú, verður að
hluta færð til allra útibúa en sérdeild-
ir starfa undir stjórn yfirstjórnar.
Hótel Loftleiðir:
Kynferðis*
afbrot kært
„Mál, svo sem þetta, er flutt
fyrir luktum dyrum hjá dómstól-
um. Það er þess vegna eðlilegt að
ekki séu gefnar upplýsingar um
lögreglurannsókn þeirra heldur,“
sagði Þórir Oddsson, vararann-
sóknarlögregiustjóri, urn meðferð
kynferðisafbrots á hótelherbergi á
Hótel Loftleiðum, sem kona kærði
til RLR á sunnudag.
„Við ræðum ekki málið,“ sagði
Þórir og gaf ekki upp, með hvaða
hætti atburðurinn átti sér stað.
Rannsóknarlögreglan segir að um
meint kynferðisafbrot sé að ræða,
- en ekki nauðgun. þj
Þorsteinn EA í vandræðum fyrir NA:
Stjórnlaus í ísspöng
og töluvert skemmdur
Togarinn Þorsteinn EA 610 frá Akureyri, sem er í eigu Samherja,
rakst aöfaranótt sunnudags á ísspöng norður af Horni, og kom þegar
talsverður leki að honum. Þorsteinn varað veiðum á Reykjafjarðarál
þegar hann lenti í ísnum og komust togarar, sem voru að veiðum
nærri Þorsteini, hvergi að fyrir ís.
„Þeir voru með trollið hálf óklárt
í rennunni og þeir voru að laga það
þegar þeir rákust á ísspöngina, en
ísinn var þarna á töluverðri ferð.
Við það fór trollið í skrúfuna og
togarinn orðinn stjórnlaus,“ sagði
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja í samtali við
Tímann f gær.
Beðið var um aðstoð Landhelgis-
gæslunnar, þar sem útlitið þótti ekki
gott, og fór þyrla hennar, TF SIF,
þegar á vettvang. Tók hún fjóra
skipverja um borð og flutti í land, en
ekki þótti á hættandi að hafa fleiri
um borð en nauðsynlegt væri, ef
aðstæður versnuðu.
Gerðar voru nokkrar tilraunir til
að koma línu yfir í Þorstein og var
þar að verki Arnar HU 1 frá Skaga-
strönd. Línurnar skárust sífellt í
sundur í ísnum, en að lokum tókst
tilraunin og tók Arnar Þorstcin í tog
til Akureyrar og komu skipin þangað
í gærmorgun.
Skipið var tekið þar í slipp og
skemmdirnar kannaðar. Ljóst er að
skipið er töluvert skemmt.
„Skemmdir eru miklar. Við sjáum
stórar dældir ’fyrir ofan sjólínu og
þær eru einnig mjög stórar fyrir
neðan sjólínu. Þær sjást mjög vel,
t.d. í vélarrúminu, en svo erum við
líka búnir að senda niður kafara,“
sagði Þorsteinn.
Gert er ráð fyrir að sjópróf fari
fram innan hálfs mánaðar. -SÓL