Tíminn - 12.04.1988, Síða 6

Tíminn - 12.04.1988, Síða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 12. apríl 1988 JAZZ 8icew£s\ JAZ.Z m 8LUES BAW BIC BLU£S mm m 8W€S m SLUÍ: mm um Sveiflujass á Hótel Islandi Síðastliðinn fímmtudag, 7. apríl, hélt stórsveit Gugge Hedrenius tónleika á Hótel íslandi í Reykjavík. Hljómsveitin er á leið vestur um haf til tónleikahalds um þver og cndilöng Bandaríkin. Þeir komu hingað á vegum Jazzvakningar, með aðstoð Gunnars Reynis Sveinssonar tónskálds og hljómsveitarstjóra. Gunnari tókst að fá stórsveitina til að fljúga vestur með Ffugleiðum í stað SAS og gera tveggja daga stans á Islandi. Gugge Hedrenius Big Blues Band er fyrsta stórsveit sem kemur hingaö i'rá Evrópu. Þær sent hingað hafa komið áðureru frá Bandaríkjunum. Guggc hefur alltaf haft stórstjörn- ur í hljómsveitinni, t.d. Hank Crawford, Mel Lewis, Jimmy Wint- herspoon og sænsku toppana Jannie Schaffer og Pétur Östlund. Peir, sem komu með stórsvcitinni núna, eru: Trompetleikararnir Will- ie Cook, Rolf Eriesen, Bosse Bro- berg og Thomas Driving, Dicken Hedrenius og Lennart Löfgren á básúnur og saxófónleikararnir Brent Rosengren, John Högmann, Warner Fincr og Hakan Levin. Hrimsveitina skipa: Guggi sjálfur á píanó, Lasse Lundström á bassa og Mans Ekmann á trommur, en söngvari er Claes Janson. Willie Cook er trúlcga þekktasti blásarinn í sveitinni, að öðrum ólöstuðum. Hann lék í æsku með Jay McShann, Earl Hines og Dizzy Gillespie. Þekktastur er hann þó fyrir trompetleik sinn mcð stórsveit Dukes Ellington. Undirritaöur sá hann í Malmö í Svíþjóð 1963 með Ellington og fór hann þar á kostum, - og einnig nú með Gugga. Cook er sami listamaðurinn, þó hann sé nú hálfsjötugur. Rolf Ericsen er einn af þekktustu jassleikurum Svía. Hann lék með Stan Kenton, Woody Herman, Buddy Rich og Gerry Mulligan, en 1965 sneri hann aftur til Svíþjóðar. Aðrar stórstjörnur í sveitinni eru Brent Rosengren og Bosse Broberg. Þeir eru um fimmtugt eins og stjórn- andinn. Bosse lék með hljómsveit Reds Mitchell, - þar var Pétur Östlund á trommur. Bosse Broberg leikur á trompet. Brent Rosengren er af mörgunt talinn einn helsti saxófónleikari í Evrópu. Pað var mikill fengur í að fá stórsveit Gugga til íslands. Hún leikur svingmúsík af bestu tegund. Auk opusa Gugga voru verk Elling- tons og Basie, en þeirra tónlist er orðin sígild, enda voru þessar tvær Dicken Hedrenius, sonur stjórnand- ans, leikur á básúnu. Hann er yngst- ur í hljómsveitinni Willie Cook trompet og John Hög- mann baritonsax stórsveitir lengst á toppinum. Það cru þrjú ár síðan Count Basie lést. Stórsveit Gugga leikur hreinan sveiflujass, hefur þróttmikinn tón og léttan rytma. Samspil er mcð því besta sem ég hef heyrt, enda segja gagnrýnendur, sem gerst þekkja, sveitina hljóma eins og Basie stór- sveitina þegar hún var upp á sitt besta og lék hvað bestan stórsveit- arblús. Gugge Hedrenius Big Blues Band hefur starfað síðan 1971. Það sem vakti mesta athygli mína Brent Rosengren tenórsax Stórstjörnurnar - t.v. trompetleikar- arnir Bosse Broberg og Willie Cook, fremstur er Brent Rosengren, ten- órsaxófón Gugge Hedrenius Big Blues Band á Hótel ísland sl. fímmtudagskvöld (Tímamyndir GE) Guggc hljómsvcitarstjóri og tónskáld er að leika opus eftir sjálfan sig, Lasse Lundström á bassa Wamer Finer altsaxafon var yngsti hljóðfæraleikari hljóm- sveitarinnar-básúnuleikarinn Dick- en Hedrenius, sonur Gugge Hedren- ius hljómsveitarstjóra og tónskálds. Hann er aðeins tvítugur að aldri. Hann var með þróttmikinn og mjúk- an tón, tæknina vantaði ekki og hugmyndaflug í opusunum voru undraverðir. Maður sat stjarfur í sætinu. Þetta voru góðir gestir, sem við jassgeggjarar metum mikils. Ég þakka Jazzvakningu fyrir ánægjulega kvöldstund og það sem sá félagsskapur hefur gert á undan- förnum árum og vona að það verði framhald á því starfi á þessari sömu braut. Guðjón Einarsson Rolf Ericsen trompet og Brent Ros- engren tenórsax Bosse Broberg trompet

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.