Tíminn - 12.04.1988, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Tíminn 11
S Vélstjórar -
\7 vélstjórar
Rafveita Siglufjarðar
1. Vélstjóra vantar að Skeiðsfossvirkjun í 18
mánuði frá 1. maí n.k.
2. Vélstjóra vantar að Skeiðsfossvirkjun til afleys-
inga í sumarleyfi vélstjóra í 3 mánuði frá 1. júní
n.k.
Hitaveita Siglufjarðar
3. Starf aðstoðarmanns verkstjóra Hitaveitu
Siglufjarðar er laust til umsóknar. Æskileg
menntun vélstjóra eða hliðstæð verkkunnátta.
Starfið verður veitt frá 1. maí n.k.
Laun fyrir þessi störf eru greidd samkvæmt
kjarasamningi S.M.S. og bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar.
Allar nánari upplýsingar gefur Sverrir Sveinsson
veitustjóri, símar 96-71700 og 96-71414.
Vísindastyrkir Atlantshafs-
bandalagsins 1988
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja unga
vísindamenn til rannsókna eða framhaldsnáms erlendis. Fjárhæð sú
er á þessu ári hefur komið í hlut íslendinga í framangreindu skyni
nemur 2,4 millj. fsl. kr. og mun henni varið til að styrkja menn er lokið
hafa kandídatsprófi í einhverri grein raunvísinda til rannsókna eða
námsdvalar við erlendar vísindastofnanir, einkum í aðildarríkjum
Atlantshafsbandalagsins.
Umsóknum um styrki af fé þessu - „Nato Science Fellowships" - skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 20. maí n.k. Fylgja skulu staðfest afrit prófskírteina og meðmæla,
svo og upplýsingar um starfsferil og ritverkaskrá. Þá skal tekið fram
hvers konar rannsóknir eða framhaldsnám umsækjandi ætli að
stunda, við hvaða stofnanir hann hyggst dvelja, svo og skal greina
ráðgerðan dvalartíma. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
7. apríl 1988
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í höfuðdælur og
rafmótora ásamt ræsibúnaði fyrir Nesjavallavirkj-
un. Stærð rafmótora er 400 kw og 900 kw.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
17. maí kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAH
Friltirkjuvagi 3 — Sími 2S800
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Prófessorsembætti í tölvunarfræði við stærðfræðiskor Háskóla
Islands er laust til umsóknar. Prófessornum er einkum ætlað að starfa
að fræðilegum þáttum tölvunarfræði, t.d. algoriþmafræði, forritunar-
málum, gagnasafnsfræði, hugbúnaðarfræði eða kerfisforritun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsókni.', svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní
1988.
Menntamálaráðuneytið
7. apríl 1988
Þakkir
Með glöðum og heitum huga þakka ég fjölskyldu
minni, ættingjum og vinum gjafir og hamingjuóskir
á áttræðisafmæli rnínu 5. apríl s.l. Ég óska þeim
öllum blessunar og heilla. Sérstakar þakkir sendi
ég starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Húsavík fyrir
umhyggju þess og fyrirhöfn á afmælisdaginn,
Ríkisútvarpinu að það skyldi minnast afmælis
míns í dagskrá sinni.
Páll H. Jónsson
llllllllllll ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllliillllllllilllllllllillllllllllllillllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllillilllllllllllll ÍÞRÓTTIR lilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllilllllllllillllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllll^^
Unglinga-
meistaramót
í borðtennis
Unglingameistaramót íslands í
burðtennis fór fram í íþróttahús-
inu á Akranesi um helgina. Kepp-
endur voru 139 og var keppt í 7
aldursflokkum, þrem stúlkna og
fjórum drengja.
Kjartan Briem KR varð þre-
faldur íslandsmeistari í flokki
drengja 15-17 ára en hann varð
sem kunnugt er íslandsmeistari
fullorðinna fvrir skömmu. í
flokki hnokka yngri en 10 ára
léku bræður til úrslita, þeir Ólaf-
ur Stephensen (9 ára) og Guð-
mundur Stephensen sem er að-
eins 5 ára. Sá eldri sigraði reyndar
en Guðmundur á framtíðina fyrir
sér.
íslandsmeistarar urðu eftir-
taldir:
Einliðaleikur:
Drengir 15-17 ára: Kjartan Briem
KR
Sveinar 13-15 ára: Halldór
Björnsson
Piltar 10-13 ára: Tryggvi Valsson
Víkingi
Hnokkar 10 ára og yngri: Ólafur
Stephensen KR
Stúlkur 15-17 ára: Fjóla Lárus-
dóttir UMSB
Meyjar 13-15 ára: Berglind Sig-
urjónsdóttir KR
Telpur 13 ára og yngri: Rakel
Þorvaldsdóttir UMSB
Tvíliðaleikur:
Drengir 15-17 ára: Kjartan Briem
KR og Arnór Gauti Helgason
Víkingi
Sveinar yngri en 15 ára: Halldór
Björnsson og Tryggvi Valsson
Víkingi
Stúlkur: Fjóla Lárusdóttir og
Lilja Benónýsdóttir UMSB
Tvenndarkeppni:
Lilja Benónýsdóttir UMSB og
Kjartan Briem KR.
- HÁ
Evrópumeistaramótið í badminton:
Þórdís fer í
aðalkeppnina
Þórdís Edwald stóð sig mjög vel á
fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í
badminton sem hófst í Kristiansand
í Noregi á sunnudaginn. Þórdís sigr-
aði alla andstæðinga sína í undan-
keppninni og tryggði sér sæti í aðal-
keppninni sem verður á fimmtudag-
inn. Tveir fslendingar verða meðal
keppenda í aðalkeppninni, Broddi
Kristjánsson fer beint í aðalkeppn-
ina í einiiðaleik og er það ákveðin
viðurkenning fyrir góðan árangur
hans á alþjóðlegum mótum að
undanförnu. Þá tryggðu Broddi og
Þórdís sér sæti í aðalkeppninni í
tvenndarleik með sigri á öllum and-
stæðingum sínum í undankeppninni.
í gær var landskeppni á mótinu og
mættu íslendingar Ungverjum. Ör-
uggur sigur vannst, 5-0. Norðmenn
verða mótherjarnir í dag og ætti
sigur að vinnast á þeim á góðum
degi. - HÁ
Körfuknattleikur, 1. deild kvenna:
Þórdís Edwald.
Keflavíkurstúlkur
Islandsmeistarar
Lið ÍBK tryggði sér í gærkvöldi
íslandsmeistaratitilinn í 1. deild
kvenna í körfuknattleik. Þær mættu
ÍR í Seljaskóla í síðasta leiknum og
áttu heimamenn aldrei minnstu
möguleika. ÍBK vann með 63 stigum
gegn 47 eftir að vera yfir allan
leikinn. ÍR hefði þurft að vinna með
13 stiga mun til að verða íslands-
meistarar en eftir tapið og sigur ÍS á
KR í gærkvöldi er ÍS í 2. sæti en ÍR
í þriðja. Þetta voru síðustu leikirnir
í deildinni.
Leikur KR og ÍS var þunglamaleg-
ur og það var ekki fyrr en í síðari
hálfleik sem brúnin léttist á ÍS-
stúlkum. KR hafði 5 stiga forskot í
leikhléi, en ÍS vann leikinn 51-38.
Þeir börðust kröftuglega undir körfunum í Valshúsinu á laugardaginn. Helgi Rafnsson virðist hér
ætla að hafa betur gegn Þorvaldi Geirssyni og Leif Gústafssyni. Timamynd Pjetur
Ragnheiður Runólfsdóttir vann bug á Ólympíulágmörkunum í 100 og 200 m bringusundi á sundmóti í Ósló um
helgina. Timamynd Pjetur.
Handknattleikur:
Sigurður til ÍBV?
Sú saga flýgur nú fjöllum hærra
í handknattleiksheiminum að Sig-
urður Gunnarsson Víkingur sé á
leið til ÍBV sem leikmaður og
þjálfari. Sigurður sagðist í samtali
við Tímann í gær ekki geta sagt
til um það á þessu stigi en Eyja-
menn væru þó inni í myndinni
eins og reyndar fleiri lið. Hjá
stjómarmanni ÍBV var sömu
fregnir að fá, viðræður hafa átt
sér staða en enn sem komið er
hefurekkert veriðákveðið. -HÁ
Bikarkeppnin í blaki:
Þróttarkonur urðu
bikarmeistarar
Þróttur varð um helgina bikar-
meistari í blaki í kvennaflokki. Sigur
Þróttara á Víkingum var öruggur,
þær unnu allar hrinurnar. Þá fyrstu
15-12, aðra 15-3 og loks þá þriðju
15-12. Þróttarar mættu til leiks með
sitt sterkasta lið en í lið Víkings
vantaði tvo af fastamönnum þess.
Leikurinn átti upphaflega að vera
í síðasta mánuði um leið og bikarúr-
slitaleikurinn í karlaflokki en var þá
frestað vegna forfalla. - HÁ
Ragnheiður náði
Ólympíulágmörkum
í tveimur greinum
Sex íslandsmet féllu á sundmóti í Osló
Ragnheiður Runólfsdóttir náði Ólympíulág-
mörkunum í tveimur sundgreinum á alþjóðegu
sundmóti í Osló um helgina. Þá hjó Magnús
Már Ólafsson mjög nálægt Ólympíulág-
mörkunum. Sex íslandsmet féllu á mótinu og
íslenska sundfólkið sigraði í sjö greinum.
Ragnheiður synti 100 m bringusund á
1:13,58 mín. og bætti eigið met úr 1:15,10 mín.
Ólympíulágmarkið er 1:14,00 mín. í 200 m
bringusundi synti Ragnheiður á 2:38,96 mín.
og bætti íslandsmetið úr 2:42,54 mín. Ólym-
píulágmarkið er 2:40,00 mín. Bætingin er
mjög góð hjá Ragnheiði í báðum þessum
greinum en rétt ár er síðan Ragnheiður setti
eldra metið í 100 m bringusundinu.
Magnús Már Ólafsson hjó mjög nálægt
Ólympíulágmörkunum í 100 og 200 skrið-
sundi. Hann setti íslandsmet í báðu greinum,
synti 100 m á 52,10 sek. (eldra met 52,36 sek.)
en Ólympíulágmarkið er 51,80 sek. í 200 m
synti Magnús á 1:53,46 mín. og bætti sig úr
1:55,09 mín. en Ólympíulágmarkið er 1:53,00
mín. Það sem vantar upp á að Magnús nái
lágmörkunum er nánast ekkert, 46/100 sek.
munur í 200 m skriðsundi nær því varla að vera
sjónarmunur ef um tvo sundmenn er að ræða.
Magnús setti þriðja íslandsmetið í 50 m
skriðsundi sem hann synti á 24,09 sek., bætti
eldra met úr 24,38 sek.
Arnþór Ragnarsson sló fjögurra ára gamalt
met Tryggva Helgasonar í 100 m bringusundi
er hann synti á 1:07,66 mín. Gamla metið var
1:07,71 mín. Þess má geta að met Tryggva var
annað af aðeins tveimur metum sem ekki voru
bætt á síðasta ári og er þá átt við þær
sundgreinar sem alla jafna eru syntar. Arnþór
var mjög nálægt eigin meti í 200 m bringusundi,
synti á 2:27,56 mín. en metið er 2:27,32 mín.
í þeim greinum sem Islandsmet féllu sigruðu
íslensku keppendurnir á þessu alþjóðlega
sundmóti Norðmanna sem raunar var ekki
mjög sterkt en Eðvarð Þór Eðvarðsson kom
einnig fyrstur í mark í 200 m baksundi á
2:09,86 mín. sem reyndar er nokkuð langt frá
hans besta árangri.
Bryndís Ólafsdóttir var sömuleiðis nokkuð
frá sínu besta á þessu móti, hún synti 100 m
skriðsund á 59,58 sek. og 200 m skriðsund á
2:07,49 mín. en mun að sögn fróðra manna
eiga alla möguleika á að bæta sig á næstunni.
Ragnar Guðmundsson keppti ekki á þessu
móti en hann keppir um næstu helgi á svipuðu
móti í Svíþjóð og mun þar reyna sig við
Ólympíulágmörkin. - HÁ
Urslitakeppm úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik:
Hart barist
um að komast
í úrslitaleik
- Þriðja leikinn þarf til á báðum vígstöðvum
Þriðja leikinn þarf til að skera úr
um það hvaða lið leika til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik. Njarðvíkingar gegn Valsmönn-
um annarsvegar og Keflvíkingar
gegn Haukum hinsvegar keppa að
nýju nú í vikunni, þeir síðarnefndu í
kvöld en hinn leikurinn verður ann-
að kvöld. Liðin hafa keppt tvívegis,
síðast nú um helgina, en unnið
sitthvorn leikinn. Sigurvegararnir úr
leikjunum í vikunni keppa til úrslita
um íslandsmeistaratitilinn.
Valur-UMFN 88-78
„Við eigum helmingsmöguleika á
sigri í Njarðvík," sagði Torfi Magn-
ússon Valsmaður eftir að lið hans
sigraði Njarðvíkinga með 88 stigum
gegn 78 í úrslitakeppni úrvalsdeild-
arinnar í körfuknattleik á Hlíðar-
enda á laugardaginn. Njarðvíkingar
unnu fyrri leikinn í Njarðvík í síð-
ustu viku og þarf því þriðja leikinn
til að skera úr um hvort liðið keppir
til úrslita um íslandsmeistaratitilinn.
Sá leikur verður í Njarðvík þar sem
Njarðvíkingar voru ofar á stigatöfl-
unni þegar deildakeppninni lauk.
„Við eigum alveg séns þar,“ sagði
Torfi og vissulega er það rétt en
möguleikar heimamanna verða þó
að teljast heldur meiri í „Ljónagryfj-
unni“ í Njarðvík.
Leikurinn á laugardaginn var
ágætlega leikinn af beggja liða hálfu
en Valsmenn sýndu allar sínar bestu
hliðar í seinni hálfleiknum og unnu
verðskuldaðan sigur í skemmtileg-
um leik. Þeir léku mjög góðan
varnarleik og skoruðu talsvert úr
hraðaupphlaupum. Síðustu mínút-
urnar léku þeir svo skynsamlega,
héldu knettinum í nær 30 sekúndur
áður en þeir reyndu skot.
Það kemur nokkuð á óvart hversu
bráðir Njarðvíkingar eru í sóknar-
leik sínum. Þeir reyna hvað eftir
annað skot nánast upp úr þurru og
úr mjög misjöfnum færum, skot sem
flest enda á sama veg, andstæðingur-
inn nær frákastinu. Þeir hafa e.t.v.
getað lcyft sér þetta fyrr í vetur en í
úrslitaleik sem þessum hafa Njarð-
víkingar einfaldlega ekki efni á slíku
lljótræði.
Tómas Holton átti einn af sínum
betri leikjum í liði Vals þótt hann
hafi reyndar byrjað rólega. Hann
var besti maður liðsins en þeir Leifur
Gústafsson, Þorvaldur Geirsson og
Torfi Magnússon léku einnig prýð-
isvel. Hjá UMFN var Helgi Rafns-
son bestur, tók að vanda mikið af
fráköstum og skoraði 18 stig. Valur
Ingimundarson var að vanda mikil-
vægur í leik liðsins en allt of skot-
glaður og Teitur Örlygsson átti góð-
an leik.
Helstu tölur: 0-2, 4-2, 4-5, 11-11, 13-11,
13-16, 15-20, 23-20, 23-28, 30-30, 35-35,
38-38, 43-38, 43-41 - 55-48, 55-52, 63-52,
67-59, 71- 62, 75-62, 81-67, 84-73, 88-73,
88-78.
Stigin, Valur: Tómas Holton 26, Leifur
Gústafsson 12, Svali Björgvinsson 12, Þor-
valdur Geirsson 12, Torfi Magnússon 11,
Einar Ólafsson 10, Björn Zoéga 3, Jóhann
Bjarnason 2. UMFN: Valur Ingimundarson
24, Helgi Rafnsson 18, Teitur örlygsson 13,
Sturla örlygsson 10, Isak Tómasson 5, Hreið-
ar Hreiðarsson 4, Ami Lárusson 2, Friðrik
Rúnarsson 2.
Dómarar: Ómar Scheving og Sigurður
Valgeirsson. Fremur slakir.
Haukar-ÍBK 85-69
Það var mikil barátta fremur en
góður leikur Haukanna sem tryggði
þeim sigur á Keflvíkingum í þessum
leik. Keflavíkurliðið átti fremur
daufan dag og leikurinn var í heild
ekki vel leikinn. ívar Webster, Pálm-
ar Sigurðsson og Henning Hennings-
son voru bestir í baráttuglöðu
Haukaliði en hjá ÍBK var Jón Kr.
Gíslason einna sterkastur.
Helstu tölur: 4-0, 4-6, 11-8, 14-16, 19-19,
31-31, 31-36, 39-36, 41-39 - 47-39, 52-49,
57-49, 62-61, 70-65,76-67,83-67, 83-69, 85-69.
Stigin, Haukar: Pálmar Sigurðsson 20,
Henning Henningsson 19, ívar Webster 14,
Reynir Kristjánsson 11, ólafur Rafnsson 10,
Tryggvi Jónsson 8, Ingimar Jónsson 2. ÍBK:
Jón Kr. Gíslason 15, Sigurður Ingimundarson
14, Magnús Guðfinnsson 10, Guðjón Skúla-
son 9, Axel Nikulásson 8, Falur Harðarson 7,
Hreinn Þorkelsson 6.
Dómarar: Jón Otti ólafsson og ómar
Scheving. Þokkalegir.
-HÁ
ívar Webster var grimmur í fráköstunum ð sunnudagskvöldið, tók 28
frðköst. Hér nær hann einu, með Keflvíking ð bakinu
Tímamynd Pjetur
Bæjakeppnin
í handknattleik:
Garðabær
vannNesið
Garðbæingar lögðu Seltirninga
að velli í fyrsta Ieik bæjakeppn-
innar í handknattleik í gærkvöldi.
Leikið var á Seltjarnarnesi.
Lokatölur urðu 33-25 eftir að
staðan í leikhléi var 15 mörk gegn
11 Garðbæingum í hag.
Gylfl Birgisson var markahæst-
ur í sigurliðinu nieð 11 mörk,
Sigurjón Guðmundsson gerði 7
og Skúli Gunnsteinsson 6. Hjá
Seltirninguni skoraði llalldór
Ingólfsson 8 mörk, Ólafur Valur
4, Þór Sigurgeirsson 3, og Axel
Friðriksson 3.
Lið Garðabæjar er þar með
komið í úrslit í keppninni ásamt
Njarðvíkingum, Reykvíkingum
og Hafnfírðingum.
- HÁ
Handknattleikur:
Páll frá
í 6 vikur
Páll Ólafsson landsliðsmaður í
handknattleik varð fyrir meiðsl-
um á æfingu í síðustu viku og
verður frá æflngum og keppni í
a.m.k. 6 vikur. Páll féll á vegg
þegar leikmenn Dusseldorf voru
að hita upp í knattspyrnu og
meiddist á vinstri öxl.
Páll mun ekki leika ineira með
Dússeldorf í vetur en vonir standa
til að hann verði búinn að náð sér
þegar lokaundirbúningur lands-
liðsins hefst hér heima í byrjun
júní. - HÁ
Air*
W NBA
Úrslit leikja í bandaríska atvinnu
mannakörfuknattleiknuni um
helgina:
Boston-New Jersey .......... 127- 90
Cleveland-Milwaukee......... 104- 85
Detroit-Philadelphia.......... 96- 86
Washington-Indiana........... 107-100
Chicago-New York............. 131-122
Dallas-Utah................... 118-95
Denver-San Antonio (framl.) . . 129-124
Golden State-Phoenix......... 112-111
LA Lakers-LA Clippers........ 126-107
Seattle-Portland . .......... 114-100
Detroit-Atlanta ............. 115-102
Dallas-Denver ............... 135-109
Milwaukee-Indiana............ 105-100
Phoenix-Sacramento............ 95- 92
Portland-LA Lakers .......... 119-109
Houston-Seattle ............. 108-104
Boston-Philadelphia.......... 117-108
Cleveland-New Jersey......... 119-105
New York-Washington........... 118-98
Sacramento-Golden State .... 121-115
LA CIippers-Houston.......... 122-105
Staðan
Austurströndin U T %
Y-Boston Celtics (A) 54 21 72,0
X-Detroit Pistons (M) 49 25 66,2
X-Atlanta Hawks (M) 47 27 63,5
X-ChicagoBuUs(M) 45 30 60,0
Milwaukee Bucks (M) 39 35 52,7
Cleveland Cavaliers (M) 37 39 48,7
Indiana Pacers (M) 35 39 47,3
New York Knicks (A) 34 41 45,3
WashingtonBuUets (A) 34 41 45,3
PhUadelphia 76ers (A) 32 42 43,2
New Jersey Nets (A) 18 58 23,7
Vesturströndin
X-Los Angeles Lákers(K) 56 18 75,7
X-DaUas Mavericks (Mv) 49 25 66,2
X-DenverNuggets (Mv) 48 27 64,0
X-Portland T'Blazers (K) 47 27 63,5
X-Houston Rockets (Mv) 43 31 58,1
X-UtahJazz (Mv) 40 34 54,1
X-SeattleSupersonics(K) 40 35 53,3
San Antonio Spurs (Mv) 28 46 37,8
Phoenix Suns (K) 25 49 33,8
Sacramento Kings (Mv) 22 53 29,3
Golden State Warriors(K) 18 56 24,3
Los Angeles CUppers(K) 17 58 22,7
Y-Deildarmeistarar, X-Komnir í úrslit
A-Atlandshafsdeild, M-Miðdeild,
Mv-Miðvesturdeild, K-Kyrrahafsdeild
Átta lið úr hvorum riðli fara i úrslita-
keppnina.
- HÁ/Reuter