Tíminn - 12.04.1988, Qupperneq 13
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Tíminn 13
FRÉTTAYFIRLIT
lllílll1 ÚTLÖND !:r!; ■ ■"! : !:^!'|j|';iiiiiil!![ii:ilpNií^l|:i:ii!l|j;;!!|íli!!i!|^
Stendur íran bak
við flugræningja?
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, segir flugræningjana sem hafa vél
frá Kúvait á valdi sínu, fá skipanir sínar utan frá. Taldi hann Iran
jafnvel vera viðriðið málið. Arafat hefur verið í nánu sambandi við
fulltrúa PLO í Larnaca.
TEL AVIV - Leiðtoaar Pal-
estínumanna sem staoið hafa
fyrir uppþotum á Vesturbakk-
anum hvöttu til _ enn frekari
aðgerða gegn ísraelum, en
heldur hefur dreaið úr þeim að
undanförnu. I fréttabréfi
leiðtoganna segir, „bjóðið
þeim byrginn. Ráðist gegn
þeim og styrk hersetuliðsins."
Um hádegisbilið í gær myrtu flug-
ræningjarnir annan gísl, mann frá
Kúvait. Hafa nú tveir menn verið
myrtir. UM 50 gíslar eru um borð í
vélinni.
Pegar þetta er skrifað er flugvélin
frá Kúvait ennþá stödd á flugvellin-
um í Kýpur og hefur talsmaður
PLO, svo og flugumferðarstjórn
Kýpur staðið í ströngum samninga-
viðræðum við flugræningjana síðan
á laugardag. Þeir hafa ekki gefið
eftir í kröfum sínum og krefjast þess
að vélin verði tafarlaust fyllt af
eldsneyti.
Furstinn í Kúvait virðistekki held-
ur líklegur til að gefa eftir og hafa
landsmenn hans lýst yfir stuðningi
við þá stefnu.
JAKARTA - OPEC mun
ekki draga úr framleiðslu á
næstunni en mun einbeita sér
að því að halda uppi aga á
meðal þeirra aðildarríkja sem
fara umfram kvóta, sagði orku-
málaráðherralndónesíu. „Það
var ákveðið að það væri ekki
tímabært fyrir OPEC löndin að
draga úr framleiðsiu,“ tjáði
Ginandjar Kartasasmita frétta-
mönnum er sneri aftur af fundi
fimm manna verðlagsnefndar
OPEC landanna, sem haldinn
var í Vín.
NICOSIA - irakar vörpuðu
flugskeytum að Teheran oq
Esfahan og bundu þar meo
enda á þriagja daga hlé í
stríðinu við írana. íran hét því
að svara í sömu mynt. Að sögn
Teheran útvarpsstöðvarinnar
létust 20 manns í sprengingun-
um og í loftárás sem gerð var
á landamæraþorpið Marivan.
NICOSIA - Trúarleiðtogi ír-
ana, Ayatollah Khomeini,
sagði að íranskir Haj pílagrím-
ar mundu efna til mótmæla í
Saudí Arabíu á þessu ári og
varaði Saudí Araba við að-
gerðum, sagði Teheran út-
varpsstöðin. Rúmlega 400
manns létust í bardögum sem
urðu í Mekka s.l. júlí, í kjölfar
mótmæla írana.
TOKÝÓ - Japanir segjast
hafa dregið úr tekjuafgangi af
milliríkjaverslun sinni ellefta
mánuðinn í röð. Minnkuðu þeir
tekjuafganga af versluninni við
Bandaríkin um 10%.
NEW YORK - Jesse
Jackson, sem berst um útnefn-
ingu demókrata, sakar vara-
forseta George Bush um að
hafa svikið drauma mannrétt-
indasamtakanna bandarísku
og neitar því að hann sé of
hallur undir málstað Palestínu-
manna.
TOKÝÓ - Japanskir vís-
indamenn hafa smíðað vél-
menni með lyktarskyn. Það
getur greint mun milli mismun-
andi viskí og víntegunda. Er
þetta fyrsta vélmenni sinnar
tegundar í heiminum.
Kína mjakast í
átt til lýðræðis
Kosningar voru haldnar í Kfna
síðast liðinn föstudag og laugardag.
Þingmenn landsins kusu í leynileg-
um kosningum í nokkrar mikilvægar
stöður. Yang Shagkun hershöfðingi
var þá kjörinn forseti.
Kínverjar hafa stefnt að því að
þróa opnara stjórnkerfi og lýsir Nýja
Kína fréttastofan þinginu í dag sem
því opnasta og lýðræðislegasta frá
upphafi en því var komið á fót 1954.
En breytingarnar virðast ætla að
taka sinn tíma því niðurstöður kosn-
inganna voru ekki birtar að þeim
loknum. Talið er að stjórnvöld hafi
viljað breiða yfir þá andstöðu sem
kom fram gegn Yang Shagkun hers-
höfðingja sem bauð sig fram til
forseta. Hann er náinn vinur Deng
Xiaoping, leiðtoga Kína.
Dagblöð í Hong Kong höfðu þó
upp á kosningaúrslitunum frá þing-
mönnunum sjálfum. Yang Shagkun
var kosinn forseti. Hann fékk 2725
atkvæði, 34 sátu hjá en 124 greiddu
atkvæði á móti honum. Þetta telst nú
tæplega hörð andstaða á okkar mæli-
kvarða en í Kína hefur þingið oftast
jánkað því sem fyrir það hefur verið
sett. Nú eru hlutirnir að breytast en
ekki átakalaust.
Wang Zhen var kjörinn vara-
forseti en 212 greiddu atkvæði á
nióti honum. Dagblöð í Hong Kong
hafa fagnað þróuninni í lýðræðisátt
og segja að fyrir 10 árum hafi verið
óhugsandi að koma með mótbárur á
þinginu. Námsmenn og kennarar
við Peking háskóla halda áfram að
krefjast aukins lýðræðis í vegg-
spjaldaherferð sinni.
Jackson reynir að mjólka at-
kvæðin.
Spenna í
NewYork
Amnesty angrar Thatcher
Það er ekkert nýtt fyrir Mannrétt-
indasamtökin Amnesty Internation-
al að fá skammir frá pirruðum ríkis-
stjórnum sem orðið hafa fyrir barð-
inu á þeim. Idi Amin, fyrrum ein-
ræðisherra Uganda, sagði að þau
hefðu kúgað yfir 100 þjóðir heims.
Trúarleiðtogi írana, Ayatollah
Khomeini, kallaði þau skósvein
djöfulsins. En nú beinast spjótin að
þeim frá Bretlandi.
Samtökin sendu Margréti
Thatcher forsætisráðherra bréf þann
30. mars s.l. þar sem þau lýsa yfir
áhyggjum yfir drápinu á þremur
liðsmönnum írska lýdveldishersins.
Sérsveit breska hersins hafði uppi á
þeim og varð þeim að bana þann 6.
mars s.l. á Gíbraltar. Teljasamtökin
Thatchcr er örg út ■ Amnesty Inter-
national.
Otti á Filippseyjum
Kaupsýslumenn á Filippseyjum
hafa miklar áhyggjur af því að
Gregorio „Gringo1' Honasan, upp-
reisnarleiðtoginn sem slapp nýlega
úr haldi yfirvalda, muni gera aðra
tilraun til byltingar á næstunni.
Corazon Aqiuno, forseti landsins,
verður í opinberri heimsókn í
Hong Kong 14. til 17. þessa mánað-
ar og eru menn hræddir um að
Honasan muni nota sér það tæki-
færi.
Hyggjast kaupsýslumenn veita
verðlaun hverjum þeim sem hand-
samar Honasan og hefur Remos
varnarmálaráðherra tekið vel í
slíkt uppátæki.
Tvö þúsund hermenn hafa verið
settir í viðbragðsstöðu þar til Aq-
uino snýr heim úr heimsókn sinni.
Honasan stóð fyrir byltingartil-
rauninni sem gerð var í ágúst í
fyrra og átti að koma fyrir herrétt
vegna hennar þegar hann slapp úr
gæslu á leiðinni til tannlæknis.
Uppreisnarleiðtoginn Gregorio
„Gringo“ Honasan.
að þeir hafi ef til vill verið skotnir án
viðvarana. Samtökin hafa farið fram
á rannsókn í málinu og bæði al-
menningur og stjórnvöld í Bretlandi
hafa brugðist harkalcga við.
„Ég vona aö Amnesty hafi áhyggj-
ur af þeim rúmlega 2000 manns sem
hafa verið myrtir af IRA síðan
1969,“ sagði Thatcher í þinginu.
Samtökin hafa ekki látið slík við-
brögð hafa áhrif á sig enda tóku
nokkur dagblöð í Englandi undir
rétt samtakanna til að spyrja slíkra
spurninga. Sjaldnast taka ríkis-
stjórnir gagnrýni samtakanna vel en
talsmaður samtakanna taldi þessi
harkalegu neikvæðu viðbrögð Breta
stafa af skilningsleysi á markmiðum
samtakanna.
„Fólk skildi ekki að með því að
draga einn hlut í efa erum við ekki
að lýsa yfir stuðningi við hinn aðil-
ann. Við tökum enga afstöðu til
IRA eða annarra svipaðra samtaka.
Það er utan okkar verksviðs. Okkar
samskipti eru við ríkisstjórnir. Að-
eins ríkisstjórnir bera ábyrgð á varð-
veislu mannréttinda," sagði talsmað-
ur Amnesty International.
Jesse Jackson sakar Edward
Koch, borgarstjóra New York,
um að hafa ýtt undir spennu milli
kynþátta og trúarhópa með jrví
aö hvctja gyðinga og aðra stuðn-
ingsmenn ísraela til að styðja sig
ekki í forkosningunum í New
York í næstu viku.
Koch er gyðingur og mótfallinn
skoðunum Jacksons á stöðunni í
Austurlöndum nær, þarsem ísra-
elar og Palestínumenn kljást.
Hann telur Jackson of hallan
undir málstað Palestínumanna.
Hann hefur einnig vitnað í urn-
mæli Jacksons fyrir síðustu for-
setakosningar þar sent Jackson
fór niðrandi orðum um gyðinga
sem búa í New York.
Um 25% kjósenda í New York
eru gyðingar og eru úrslit for-
kosninganna í fylkinu talin geta
ráðið úrslitum um hver hlýtur
útnefningu demókrata til forseta-
kosninganna í nóvember.
Koch segist muni styðja annað
hvort Dukakis eða Gore. Jackson
kvartar yfir því að önnur ntikil-
væg málefni hafi fallið í skuggann
af trúmálum.
Fegurðarsamkeppni
í Peking í sumar
Kínverjar ætla að halda fyrstu
fegurðarsamkeppnina í Pekingsíðan
kommúnistar komust til valda 1949.
Hingað til hefur kommúnista- flokk-
urinn fordæmt slíkar keppnir sem
lýsandi dæmi um hnignun og úrkynj-
un Vesturlanda.
Búist er við að nokkur hundruð
keppenda taki þátt í keppninni, að
sögn kínversks dagblaðs, og keppt
verður um tíu titla í júní. Keppendur
verða dæmdir jafnmikið eftir þekk-
ingu, söng- og danskunnáttu og
persónuleika, eins og fegurð.
Ef vel tekst til með þessa keppni
hyggjast skipuleggjendurnir efna til
svipaðra keppna fyrir unga menn og
fólk á miðjum aldri, segir í kínverska
blaðinu.
Fegurðarsamkeppni var haldin í
Kanton í fyrra, en hún er talin mun
líflegri borg en Peking. Einnig hefur
verið keppt í vaxtarrækt og hefur nú
líkamsræktaræði gripið um sig í
landinu.