Tíminn - 12.04.1988, Side 19

Tíminn - 12.04.1988, Side 19
Þriðjudagur 12. apríl 1988 Tíminn 19 I vanda Þessi niynd var tekin í London, skömmu áður en Kathy uppgötvaði að hún var ófrisk. Þá tók hún til sinna ráða. Peter Holm Hinn sænski Peter Holm, sem Joan Collins losaði sig við með látum, er nú kominn í meiri háttar vandræði á ný. Seinasta vinkona hans, hin vellauðuga, handaríska Kathy Wardlow, hefur nú krafið hann um 65 milljóna bætur fyrir svik á hjúskaparloforði og frelsis- sviptingu. Kathy, sem segist vera komin þrjá mánuði á leið að barni Holms, fer að auki fram á fé vegna þess, sem nemur vegna þess, sem nemur nokkrum milljónum í nokk- ur ár. - Peter er illa við börn og hefur alltaf sagt, að ef ég yrði ófrísk, yrði ég að láta eyða fóstr- inu, eða gefa barnið við fæðingu, segir hún. - Ég vil bara hvorugt gera. Ófætt barn mitt er það besta sem gat gerst fyrir mér og mér þykir leitt að það skuli aldrei fá að hitta föður sinn. Mér kólnaði af skelfingu yfir viðbrögðum Peters, ssgar ég vissi að ég var ófrísk, bætir hún við. í fyrrasumar voru Holm og Kathy á Rivierunni og þaðan dreifði hann sögum um að þau myndu brátt gifta sig. Þá varð móðir Kathy hreint æf af vonsku. - Peter lokaði mig inni, heldur Kathy áfram. - Ég fékk ekki að fara út af lóðinni. - Það var skelfilegur tími, en samt var ég blind af hrifningu á honum. Hún segir líka, að í haust hafi hann spurt hana, hvort hún vildi vera ástkona hans áfram, þó hann kvæntist annarri konu. - Ég fann lista með nöfnum 50 kvenna, sem hann hafði allan að- gang að og nafnið mitt var númer 2, bætir Kathy við. - Það er afskaplega erfitt að umgangast hann. Hann missir auðveldlega alla stjórn á hlutnum og þá gengur hann berserksgang. Ég hef lent í því oftar en einu sinni. I lengstu lög reyndi ég að trúa, að Joan Collins lygi til að sverta hann, þegar hún talaði um hann í réttinum, en nú er ég sannfærð um að flest að því var satt hjá henni. Kathy lætur þess getið, að hún búist við að Holm yfirgefi Banda- ríkin innan skamms. Hann skuldar nefnilega Sámi frænda skatta að upphæð 50 milljónir króna. sína Kærastan lyfti Stephen upp á hilluna í símaklefanum svo hann eigi hægara um að hringja Þeir tylla sér á tá, en þær beygja sig niður að sínum heittelskaða. Scott og Jennie til vinstri og Stephen og Amanda kyssast og Ijósmyndarinn smellir af Tveirdvergarfengu Mjallhvíti Þeir Scott Smith og Stephen George leika í leikritinu „Mjallhvít og dvergarnir 7“, sem verið er í leikför með um Ástralíu og Nýja Sjáland. Þeir leika þar tvo af dvergunum, enda eru þeir ekki hærri en 1,27 m á hæð, og eru því reglulegir dvergar. Þeir hafa nú báðir öðlast þá hamingju að fá stúlkuna sem þeir elska; Scott, sem er 27 ára, er þegar kvæntur , en Stephen, og vinkona hans Amanda eru að undirbúa brúðkaup sitt. Hann er 25 og hún 22ja ára. Stúlkurnar þeirra eru um 1,60 m og eru því rétt í meðallagi háar, en gnæfa þó töluvert yfir litlu mennina sína. Jennie, eiginkona Scotts, er jafn- gömul honum. Hún segist vera mjög hamingjusöm í hjónaband- inu, og Scott tekur undir það, að þau séu áreiðanlega lukkulegustu hjón í heimi. Þau Jennie hittust á skemmti- stað, þar sem hún var með vinkon- um sínum að kveðja eina sem var að fara að gifta sig. Scott var þarna staddur með leikhúsfólki og herti sig upp í að bjóða Jennie upp, en var dauð- hræddur um að hún neitaði. Þau dönsuðu saman og settust svo og tóku tal saman. Næsta dag hringdi hann til hennar, -en þá sagðist Jennie vera upptekin. Það fóru að renna á hana tvær grímur út af því að „fara út með dverg,“ eins og hún sagði síðar. En seinna hringdi hún til hans og fór vel á með þeim. Þau fóru að vera saman og giftu sig eftir nokkra mánaða kunningsskap 1984. Jennie fékk líka vinnu við sama leikhús og Scott. Stephen og Amanda hittust á bar 1984 og hann varð strax skotinn í henni, reyndi við hana og bauð henni út að borða við kertaljós og rómantíska músík og stúlkan heill- aðist af Stephen litla, sem þorði varla að trúa því að þetta væri að gerast í alvöru. „Jú, auðvitað kemur fyrir að fólk glápir á okkur á götunni og pískrar, en mér er orðið alveg sama,“ segir Amanda brosandi. N

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.