Tíminn - 27.04.1988, Side 4
4 Tíminn
Miövikudagur 27. apríl 1988
Frá Menntamála-
ráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Hamrahlíð vantar
kennara í tölvufræði.
Við Verkmenntaskólann á Akureyri eru lausar
til umsóknar kennarastöður í eftirtöldum greinum:
Efna- og líffræði, félagsfræði, hagfræðigreinum,
íslensku, rafeindavirkjun, sagnfræði, saumum,
stærðfræði, tölvufræði, vefnaði, vélstjórn, við-
skiptagreinum. Auk þess vantar stundakennara í
ýmsum greinum.
Við Menntaskólann á Egilsstöðum vantar
kennara í þýsku, frönsku, dönsku, líffræði, stærð-
fræði, tölvufræði, félagsfræði, sálfræði, viðskipta-
greinum og íþróttum.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til
Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 20. maí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
VÖRUMERKI VANDLATRA
NÆRFATNAÐUR
NÁTTFATNAÐUR
CALIDA
Heildsölubirgöir:
Þórsgata 14 - sími 24477
Laus staða
Við Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla
íslands er laus til umsóknar staða handmennta-
kennara.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
námsferil og störf, skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
24. maí n.k.
Menntamálaráðuneytið,
25. apríl 1988
Askorun
til eigenda og ábyrgðarmanna fasteigna
um greiðslu fasteignagjalda í Reykjavík
Fasteignagjöld í Reykjavík 1988 eru nú öll gjaldfallin. Gjaldendursem
ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar,
mega búast við að óskað verði nauðungaruppboðs á eignum þeirra
í samræmi við I. nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengins
lögtaks.
Reykjavík 20. apríl 1988
Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík
Kaupfélag
Árnesinga auglýsir
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Hótel Selfoss fimmtudaginn 5.
maí og hefst kl. 13.30. Kjörnir fulltúar mæti í Árseli kl. 12.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Kaupfélags Árnesinga
Tímamynd ÖÞ.
Karlakórnum Heimi
boðið til ísraels
Nú hefur verið ákveðið að karla-
kórinn Heimir í Skagafirði fari til
Israels í júnímánuði n.k. í boði
stjórnvalda þar í landi. Mun kórinn
syngja á listahátíð þar, ásamt ýmsu
af kunnasta listafólki veraldar. Þykir
Skagfirðingum að kórnum sé sýndur
mikill heiður með þessu boði, sem
kom kórfélögum algerlega á óvart.
Líklegt er að kórinn haldi utan 6.
júní og ferðin standi í 17-20 daga.
Þegar hefur verið ákveðið að kórinn
syngi í fjórum borgum í ísrael en
haldi síðan til Egyptalands í boði
tónlistarfélags Kaíróborgar og syngi
á einum eða tveimur stöðum þar í
landi.
Þá hefur komið til tals að á meðan
dvalið verður í ísrael muni kórinn
syngja í kvikmynd sem íslenska
sjónvarpið mun ætla að taka upp í
borginni helgu, en þarna mun vera
um jólamynd Sjónvarpsins að ræða.
Hugmyndin er að kórinn syngi nokk-
ur sálmalög í myndinni.
Þrátt fyrir að kórnum sé boðið út
verður hann að taka nokkurn þátt í
kostnaði við ferðina og stendur nú
yfir fjáröflun af þessu tilefni.
Karlakórinn Heimir telur nú um
60 félaga og er meirihluti þeirra
bændur, en bændur hafa ávallt verið
uppistaðan í kórnum á 60 ára starfs-
ferli hans. Kórfélagar hittast að
jafnaði tvisvar í viku í félagsheimil-
inu Miðgarði, til æfinga. Undirleik-
ari er ensk stúlka, Katharina L.
Seedell, sem kennir nú við Tónlistar-
skóla Skagafjarðar. Einnig leikur
Jón Gíslason undir á harmóniku, en
stjórnandi kórsins er Stefán Gísla-
son tónlistarkennari í Varmahlíð.
Þ, Fljótum
Stjörnugjöf frá einni til fimm =
★★★ '12
Háskólabíó sýnir Throw Momma from the Train:
Hæ,hó,jibbýjey
og jibbýýý jeyy
Háskólabíó: Throw Momma from
the Train /Hentu mömmu af lestinni
Aöalhlutverk: Danny DeVito, Billy
Crystal, Kim Greist, Anne Ramsey
Leikstjóri: Danny DeVito.
Háskólabíó hefur nú til allrar
hamingju hætt að sýna myndina The
Big Town með Matt Dillon og Diane
Lane, sem var ein sú versta sem sést
hefur á þessu stóra hvíta tjaldi í
bíóinu við Hagatorg. En Háskólabíó
er eins og kamelljón, því þegar sú
versta fýkur, kemur sú besta inn.
Þetta er að sjálfsögðu myndin sem
fólk hefur beðið eftir, Throw
Momma from the Train.
Leikstjóri og annar aðalleikari
myndarinnar er enginn annar en
Danny DeVito, lítill, feitur, sköllótt-
ur og krumpaður eins og venjulega.
Hinn aðalleikarinn er homminn úr
Löðri, Billy Crystal, en sjónvarps-
áhorfendur sáu hann síðast kynna
afhendingu Grammy verðlaunanna
í síðustu viku, að ég held.
Hér segi ég frá söguþræðinum:
Larry (Crystal) er háskólakennari
í bókmenntum, en einn alversti
nemandi hans er Owen (DeVito),
sem býr við algert ofríki mömmu
sinnar. Larry á hinn bóginn er nýskil-
inn og konan hans fyrrverandi stal af
honum handriti að skáldsögu sem
síðan slær í gegn og eins og gefur að
skilja er Larry lítið hrifinn af því.
Owen gælir stanslaust við þá hug-
mynd að myrða móður sína og eftir
gífurlegan misskilning, heldur Owen
að hann og Larry hafi komist að
samkomulagi um gagnkvæm morð.
Þannig átti Owen að myrða fyrrver-
andi konu Larrys og Larry að myrða
móður Owens. Þannig átti að koma
í veg fyrir að lögreglan kæmist á
sporið, því ástæður fyrir morðinu
voru ekki fyrir hendi. En eins og
góðri mynd sæmir, þá fer ekki allt
eins og það á að fara.
Það eru ár og dagar síðan ég hef
hlegið jafn hjartanlega og á þessari
mynd. Þetta var ekki þvingaður
hlátur, heldur streymdi hann upp
um hálsinn og þeyttist út eins og
þegar hellt er úr mjólkurbrúsa (þetta
er fremur ógeðsleg lýsing á hlátri
ekki satt?).
DeVito hefur tekist alveg einstak-
lega vel upp með leikstjórnina, leik-
aravalið er frábært og með reglulegu
millibili koma svo stórkostlegir
brandarar, að ég á erfitt með að
setja þá ekki alla í þessa hrútleiðin-
legu gagnrýni. Hér er þó einn fyrir
ykkur sem eruð búin að sjá myndina
(svo þið getið hugsað til baka): „Yes
I‘m sick, I‘m sick..Cows!!“
Þetta er svona mynd þar sem
maður kemur brosandi út úr bíóinu
og syngur: Hæ,hó,jibbý,jey og jibb-
ýýý jeyy... það er kominn 17. júní
(þó það sé ennþá apríl).
Niðurstaða: Þetta er góð mynd
sem hann Lriðbert hefur valið til
sýningar í bíóinu. Hún er óborgan-
lega fyndin og skemmtileg. Hún var
mjög vinsæl erlendis, og mér finnst
það ekki mjög svo ofboðslega
skrýtið. Ég á erfitt með að hæla
Mömmu (Anne Ramsey) ekki, því
án hennar hefði svo sannarlega vant-
að heilan kafla í þessa frábæru
bíóbók. Ergo: Þú verður allt annað
en svikinn af því að fara á þessa
mynd. Ef þér finnst hún leiðinleg, þá
hlýtur þú að vera leiðinlegur líka
(Nei, ég meinti þetta ekki). Ég skora
bara á ykkur að fara á myndina, hún
er það góð. -SÓL