Tíminn - 27.04.1988, Page 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 27. apríl 1988
Guöjón B. Ólafsson:
Athugasemd vegna launaumræðu
Guðjón B. Ólafsson.
í tilefni af umræðu um launamál
mín hjá Iceland Seafood Corpora-
tion sé ég ástæðu til að koma eftirfar-
andi á framfæri:
Launin
Á þeim rúmlega sex árum, sent
hér er fjallað um, námu heildar-
launagreiðslur til mín 1.529.000 döl-
um eða að meðaltali 20.660 dölum á
mánuði. Um þessar greiðslur hefur
aldrei verið deilt.
Endurgreiddur kostnaður
Á þessu tímabili nam endur-
greiddur kostnaður 393.502 dölum
eða að meðaltali 5.318 dölum á
mánuði. Staðgreiðsluskattur, reikn-
aður á hinn endurgreidda kostnað,
nam á tímabilinu 374.798 dölum eða
5.065 dölum á mánuði. Við þennan
útreikning ber þó að gera þá athuga-
semd, að nokkuð af þessum kostnaði
má rekja til áranna fyrir 1981; er
vikið að því síðar.
Það er þessi endurgreiddi kostn-
aður, sem verið hefur vefengdur af
fyrrverandi stjórnarformanni félags-
ins, eins og ég mun nú víkja að.
Um hvað hefur verið deilt?
Segja má að aðfinnslur fyrrver-
andi stjórnarformanns Iceland Sea-
food, Erlendar Einarssonar, hafi
beinst að tvennu. f fyrsta lagi taldi
hann sig ekki hafa vitað um eða geta
fallist á uppreikning hins endur-
greidda kostnaðar um staðgreiðslu-
skatta; hann telur sig ekki muna eftir
viðræðum, sem hinir bandarísku
endurskoðendur hafa staðfest að
þeir hafi átt við hann og mig um
þetta efni. Þess ber þó að geta, að á
stjórnarfundi í Iceland Seafood, sem
haldinn var 23. mars sl., staðfestu
allir stjórnarmenn, þ.m.t. Erlendur,
þessa vinnuaðferð hinna bandarísku
endurskoðenda. í öðru lagi hefur
Erlendur haldið því fram að hann
hafi ekki samþykkt alla þá kostnað-
arliði, sem endurgreiddir voru. Hér
er aðallega um að ræða tvær greiðsl-
ur, aðra á árinu 1982 en hina á árinu
1983. Taka þær báðar til kostnaðar,
sem ég varð fyrir á árunum þar á
undan. Ég hef haldið því fram að
fullt samkomulag hafi verið um
greiðslur þessara kostnaðarliða og
hafa bandarísku endurskoðendurnir
staðfest að svo hafi verið, enda fóru
þessar greiðslur, sem og allar aðrar
greiðslurtil mín, um þeirrahendur.
Um hvaða kostnað
er hér að ræða?
Þeir 393.502 dalir, sem getið er
hér að fram sem endurgreidds kostn-
aðar, greinast í stórum dráttum
þannig, að 172.306 dalir eða 44%
eru vegna kostnaðar við íbúðarhús,
svo og kostnaðar vegna búferlaflutn-
inga, 135.400 dalir eða 34% eru
þátttaka í skólakostnaði, afgangur-
inn 85.796 dalir eða 22% eru vegna
ýntiss konar annars kostnaðar,
þ.m.t. þátttaka í bifreiðakostnaði og
kostnaði við tryggingar.
í sambandi við kostnað við íbúð-
arhús skal þess getið, að húsið átti
ég sjálfur og greiddi af því skatta og
skyldur. Mér telst svo til, að sé
fjármagnskostnaður tekinn til
greina, ásamt fasteignagjöldum, hafi
endurgreiðslur frá fyrirtækinu staðið
undir minna en helmingi af rekstrar-
kostnaði hússins. í þessu sambandi
má geta þess að framkvæmdastjórar
Sambandsins og dótturfyrirtækja
þess í Evrópu hafa jafnan haft fría
bústaði, sem fyrirtækin hafa átt og
kostað að öllu leyti.
Hvað segja endur-
skoðendurnir um
skattaþáttinn?
í bréfi dags.. 7. desember 1987
staðfestu hinir bandarísku endur-
skoðendur, Laventhol & Horwath,
að það hefðu verið þeir sem ráð-
lögðu stjórn Iceland Seafood, með
viðræðum við Erlend Einarsson og
undirritaðan („through both Mr Ein-
arsson and yourself"), að hin eina
löglega leið til þess að koma greiðsl-
um að skaðlausu til viðtakanda,
hefði verið að hækka endurgreiðslu
vegna hinna umsömdu kostnaðar-
liða um staðgreiðsluskattinn. Þá
hafa endurskoðandinn, Mr Sanford
F. Snyder, og lögfræðingur Iceland
Seafood, Mr William D. Boswell,
ítrekað staðfest á fundum með stjórn
ISC, að þetta sé hin viðtekna aðferð
í bandarískum fyrirtækjum, þ.e. að
umsaminn kostnaður sé hækkaður
sem nemur staðgreiðsluskatti og síð-
an greiddur sem laun. Ástæðan er
m.a. sú, að laun eru að sjálfsögðu
frádráttarbær gagnvart skatti en
kostnaðargreiðslur vegna stjórn-
enda hins vegar ekki. Með tilliti til
þess, að Iceland Seafood var á
þessum tíma rekið með hagnaði ár
eftir ár, er ljóst að þetta var einnig
sú aðferð sem hlaut að henta fyrir-
tækinu best.
Um þetta segir Geir Geirsson í
skýrslu sinni: „Að ráði endurskoð-
anda félagsins var þessi kostnaður
greiddur í formi launa, að viðbættum
staðgreiðsluskatti, en eins og áður er
fram komið taldi hann annað ekki
löglegt, ef viðkomandi ætti að njóta
endurgreiðslnanna að fullu.“
Um ferðakostnað
sérstaklega
í umræðu þeirri, sem nú hefur
aftur verið sett af stað um málefni
mín hjá Iceland Seafood Corpora-
tion, hafa menn ekki látið sér nægja
að reyna að gera Iaunakjör mín
tortryggileg, heldur hefur verið látið
að því liggja, að ekki sé allt með
felldu um ferðakostnaðarreikning
minn hjá fyrirtækinu. Fullyrðingum
þess efnis, að kostnaður þessi sé
óeðlilega hár, er e.t.v. best svarað
með því að láta koma fram, að
síðustu fimm heilu árin sem ég
starfaði hjá ISC var kostnaður þessi
að jafnaði nokkru lægri á ári en hjá
eftirmanni mínum á fyrsta heila
starfsári hans, eða 95.400 dalir á
móti 98.100 dölum. í öðru lagi ber
að geta þess, að á ferðakostnaðar-
reikning er ekki aðeins færður ferða-
kostnaður, heldur og risna bæði
heima og heiman, svo og kostnaður
vegna þátttöku í ráðstefnum, en
öllum sem kunnugir eru bandarísku
viðskiptalífi mun ljóst, að þar er um
verulegan kostnaðarlið að ræða.
Bókhaldi hjá Iceland Seafood er
þannig háttað, að stór hluti af risnu
og ráðstefnukostnaði fyrir fyrirtækið
í heild lendir á „ferðakostnaðar-
reikningi" framkvæmdastjórans.
Flokksstarf
Fundur um borgarmálefni
Fimmtudaginn 28. apríl n.k. gengst borgarmálaráð Framsóknarfélag-
anna I Reykjavík fyrir fundi um málefni Reykjavíkurborgar í Nóatúni
21 kl. 18.00.
Dagskrá: 1 • Yfirlit yfir störf borgarstjórnar Reykjavíkur
Framsögumaður Sigrún Magnúsdóttir
2. Skipulagsmál, Alfreð Þorsteinsson
3. Umferðarmál, Sveinn Grétar Jónsson
4. Málefni S.V.R., Hallur Magnússon
5. Dagvistarmál, Þrúður Helgadóttir
6. Heilbrigðismál, Margeir Daníelsson
7. Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er öllum opin en sérstaklega er mælst til þess að þeir sem
gegna trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík mæti á
fundinn.
Sigrún
Alfreð
Sveinn Grétar
Hallur Þrúður
Framsóknarfélögin í Reykjavfk
Margeir
Rabbfundir LFK í kjördæmum
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum í kjör-
dæmunum í samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem
hér segir.
Vík i Mýrdal: fimmtudaginn 28. apríl kl. 21.00.
Ólafía Ingólfsdóttir Guðrún Sveinsdóttir Unnur Stefánsdóttir
Allar velkomnar.
Aðalfundur Félags ungra
framsóknarmanna é
á Ströndum
verður haldinn sunnudaginn 1. maí í kaffistofu f
Hraðfrystihússins á Hólmavík og hefst kl. 17.00. \: j/
Formaður Sambands ungra framsóknarmanna, W"
Gissur Pétursson,, mætir á fundinn og greinir frá starfsemi SUF. Gissur
Allir velkomnir. Petursson
Hafnfirðingar, nágrannar
Spilum félagsvist í íþróttahúsinu við Strandgötu fimmtudaginn 28.
apríl kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélögin Hafnarfirði
Þá hafa menn verið að fleygja því
á milli sín, að ég hafi fengið kostnað
þennan eða hluta af honum endur-
greiddan án þess að slíkar greiðslur
væru studdar fylgiskjölum. Þessum
ásökunum vísa ég algjörlega á bug.
Fylgiskjöl þessi voru hins vegar ekki
geymd með almennum fylgiskjölum
fyrirtækisins, heldur voru þau í sér-
stakri geymslu á mínum vegum. Hér
var fylgt vinnuaðferð sem er algeng
í bandarískum fyrirtækjum. Að
sjálfsögðu höfðu endurskoðendur
Iceland Seafood aðgang að þessum
fylgiskjölum. Þcss má geta, að þegar
skattaeftirlitsmenn settust upp hjá
okkur samkvæmt útdrætti, eins og
hér tíðkast, og grandskoðuðu færsl-
ur og bókhald yfir fjögurra ára
tímabil, þá leiddi sú skoðun ekki til
einnar einustu breytingar á færslum,
sem mig vörðuðu, m.a. vegna þess
að auðvelt reyndist að leggja fram
öll fylgiskjöl sem spurt var um.
Umfjöllun stjórnar
Sambandsins
Svo sem kunnugt er af fréttum
fjallaði stjórn Sambandsins um mál
þetta á fundi sínum í Reykjavík 29.
mars sl. Þar voru lagðar fram og
kynntar skýrslur Geirs Geirssonar,
löggilts endurskoðanda, og Sigurðar
Markússonar, framkvæmdastjóra.
Þess ber að geta, að skýrsla Sigurðar
hafði verið yfirfarin og endurskoðuð
af Guðjóni Eyjólfssyni, löggiltum
endurskoðanda, og Guðmundi Ein-
arssyni, verkfræðingi.
Geir Geirsson komst að þeirri
niðurstöðu, að ekki hefðu „ennþá
verið lögð fram nægilega skýr gögn
varðandi suma hinna greiddu bón-
usa“. Sigurður taldi hins vegar, að
hver einstök greiðsla hefði verið
skýrð til fullnustu og þar með
greiðslurnar allar í heild. Eftir að
hafa fjallað um skýrslurnar báðar
komst stjórn Sambandsins að þeirri
niðurstöðu, „að ágreiningur í launa-
og kjaramálum fyrrverandi forstjóra
fyrirtækisins (þ.e. fyrrv. forstjóra
Iceland Seafood) hafi að fullu verið
skýrður".
Lokaorð
í umræðum um þessi launakjör
mín hjá Iceland Seafood virðast
menn gleyma því, að fyrirtækið er
bandarískt og lýtur því bandarískum
lögum, reglum og venjum og því ber
við alla viðmiðun og umræðu um
laun mín að horfa til þess sem tíðkað
er hjá bandarískum fyrirtækjum af
sambærilegri stærð, en ekki til þess
sem tíðkast hér á íslandi. Ég tel að
launakjör mín hjá Iceland Seafood
hafi verið fyrir ofan meðallag síðustu
ár mín hjá fyrirtækinu, en það var á
þeim tíma þegar búið var að snúa við
efnahag þess og rekstri og það farið
að skila umtalsverðum tekjuafgangi.
Þegar ég orða þetta svo, þá ber ég
kjör mín saman við bandaríska
stjórnendur í fyrirtækjum af sam-
bærilegri stærð. Ég gæti komið með
mörg dæmi um betri kjör og eflaust
væri einnig hægt að finna dæmi um
rýrari kjör. I október 1987 gerði
bandaríska tfmaritið Business Week
athugun á kjörum stjórnenda í við-
skiptalífinu og komst að þeirri niður-
stöðu, að meðallaun þeirra hefðu
verið 651.000 dalir á árinu 1986.
Þetta er 59% hærri fjárhæð en ég
fékk greidda frá Iceland Seafood á
þessu sama ári, að meðtöldum
endurgreiddum kostnaði og skatta-
uppfærslu.
Éins og fram hefur komið í frétt-
um og vikið er að f þessari athuga-
semd hefur mál þetta nú hlotið
lokaafgreiðslu hjá stjórnum Iceland
Seafood Corporation og Sambands
ísl. samvinnufélaga. Hjá báðum
stjórnum voru allir stjórnarmenn
mættir og í báðum tilfellum hlaut
málið einróma afgreiðslu.
Með þessari athugasemd er um-
ræðu um mál þetta lokið af minni
hálfu.
Reykjavík 26. apríl 1988
Guðjón B. Ólafsson