Tíminn - 27.04.1988, Page 13
Miðvikudagur 27. apríl 1988
Tíminn 13
lllillll
VETTVANGUR
W Jónas Egilsson
Arétting vegna fram-
komins misskilnings
Af ástæðum sem ekki verðar raktar frekar hér, var ekki
hægt að birta eftirfarandi athugaserad í Sæmundi, málgagni
íslenskra námsmanna erlendis, sem á að koma út bráðlega,
en eftirfarandi athugasemd og bréf var ætlað þar til
birtingar og miðast aUt orðalag við það.
Astæðan fyrir þessum greinarskrifum er misskilningur
sem vart hefur orðið í fjölmiðlum og víðar, sem sameigin-
legt bréf okkar „fimmmenninganna“ svoköUuðu, sem eru
í framboði til stjórnar SÍNE, virðist hafa valdið.
Eins og kunnugt er, þá sendum
við sameiginlega bréf til nokkurra
námsmanna erlendis, þar sem
framboð okkar og hugmyndir voru
lauslega kynntar, þó ekki væri um
sameiginlegt framboð að ræða.
Umræddir „fimmmenningar“
eru Belinda Theriault, Birgir Þ.
Runólfsson, Guðrún Kr. Guð-
finnsdóttir, Óskar Borg og sá er
þetta ritar, Jónas Egilsson.
Jafnframt skal það tekið fram
hér að ekki er ætlunin að fara út í
neinar ritdeilur við aðra frambjóð-
endur til stjórnar SÍNE, heídur
einfaldlega að koma nauðsynleg-
um leiðréttingum á framfæri.
Kemur þá greinin sem átti að
birtast í Sæmundi.
Kynningu á fram-
bjóðendum ábótavant
í lok febrúar sl. var ljóst að
kosningar yrðu til stjórnar SÍNE.
Kom þá fram að núverandi stjórn
SÍNE hafði ekki hug á að gefa út
sérstakan „kosninga Sæmund" eins
og tíðkast hefur. Fram til þessa,
hafa nemendur fengið kjörgögn og
aðrar upplýsingar sendar með
Sæmundi ár hvert, þangað til nú.
Þar af leiðandi gátu frambjóðendur
til stjórnar SÍNE, fyrir næsta kjör-
tímabil, ekki kynnt sín sjónarmið-
og hugmyndir eins og eðlilegt gæti
talist. Þess vegna og eingöngu þess
vegna töluðum við okkur saman og
ákváðum að senda stutt bréf í
sameiningu til eins margra náms-
manna erlendis og við höfðum tök
á.
Því miður var kostnaður það
mikill, pappír, umslög og aðallega
burðargjöld, að við gátum ekki
sent til ykkar allra eins og hefði
þurft að vera. Nöfn voru því valin
af handahófi víðsvegar af skránni
eftir því sem efni okkar leyfðu.
Öllum ásökunum um að einstak-
lingar hefðu verið valdir eftir ein-
hverjum pólitískum línum eru út í
hött og er vísað til föðurhúsanna.
Við viljum fagleg og
ábyrg vinnubrögð
Við höfum öll rekið okkur á það
að breytinga er þörf. Öll höfum við
áhuga á að vinna að umbótum í
lánamálum. Við teljum hagsmun-
um ykkar námsmanna sé best borg-
ið með faglegum og ábyrgum
vinnubrögðum, og að ekki sé dans-
að eftir flokkspólitískum línum.
Það mun rétt vera að sum okkar
eru tengd ákveðnum stjórnmála-
flokki, sem í sjálfu sér er ekkert
óeðlilegt, en það gildir ekki um
okkur öll. Langt því frá.
Að auki, sakaði ekki að minnast
á að margt það sem sett er fram í
bréfinu umrædda, samræmist ekki
stefnu umrædds stjórnmálaflokks
og öðru er beint beinlínis gegn
aðgerðum fyrrum ráðherra þess
sama flokks. Þannig að ekki er
með öllu ljóst hvemig hægt er að
setja þennan flokkspólitíska stimp-
il á okkur fimmmenningana, eins
og sumir hafa gert.
Námsland meginatriði?
Bæði f blaðagreinum og í kjör-
gögnum, er Iátið sem kosningarnar
snúist um námsland frambjóð-
enda. Við teljum fráleitt að skipta
fólki í flokka eftir námslöndum,
enda er um einstaklingskosningar
að ræða.
Jafnframt er það rangt að segja
að þó svo að við höfum öll verið
við nám í Bandaríkjunum, þá séum
við óhæf að gæta hagsmuna nem-
enda í öðmm löndum. Til dæmis
stundaði eitt okkar einnig nám á
Spáni, Englandi og í Frakklandi í
heilt ár, og annar þessara svoköll-
uðu fimmmenninga stundaði ein-
nig nám í Þýskalandi og ættu þau
því að vera kunnug hagsmunum
Evrópunemenda.
Á það er jafnframt bent að
stjórnin er sjö manna og að stjórnin
hlýtur einnig að vera skipuð náms-
mönnum frá öðrum löndum, þó
svo að við öll fimm næðum kjöri,
sem engan veginn er víst. Annars
er það mitt mat að það ætti ekki að
skipta neinu máli hvaðan fram-
bjóðandinn kemur. Við eigum að
standa sem einn hópur, en ekki
draga hvert annað í dilka eftir
námslöndum. Slík framkoma er
ekki vænleg til árangurs.
Ljóst er að núver-
andi formaður hefur
ekki hagsmuni SÍNE
að leiðarljósi lengur,
heldur snúist þessi
kosningabarátta, í
hans huga um völd Al-
þýðubandalagsins inn-
an SÍNE. Nú í fyrsta
skipti er hagsmunum
Alþýðubandalagsins,
sem hann er fulltrúi
fyrir, ógnað að hans
mati. Því ber að vinna
gegn allri skipulagdri
moldvörpustarfsemi
með öllum tiltækum
ráðum, svo orðbragð
formannsins sé notað.
Jafnvel að ganga í
berhögg við almennar
kosningahefðir og sem
kjörnefndarmaður fer
hann með í gang bar-
áttu gegn nokkrum
frambjóðendanna.
Styðjum alla áhugasama
frambjóðendur
Þessu framboði okkar er ekki
stefnt gegn neinum öðrum fram-
bjóðendum persónulega. Þó svo
að við höfum áhuga á að breyta til
innan samtakanna, þá hefur það
aldrei verið okkar meining að aðrir
geti það ekki. Við lýsum yfir fullum
stuðningi við aðra áhugasama
frambjóðendur sem vilja vinna að
hagsmunum íslenskra námsmanna
erlendis og vonum að störf þeirra
verði námsmönnum til hagsbóta.
Formaður SÍNE
í kosningabaráttu
Undirritaður vill leggja áherslu
á að við umræddir fimmmenningar
eigum ekki í neinum útistöðum við
aðra frambjóðendur til stjórnar
SÍNE. Hins vegar er orðið allalvar-
legt mál þegar formaður núverandi
stjórnar SÍNE og meðlimur í kjör-
stjórn er farinn að berjast opinber-
lega gegn okkur. Er það í hæsta
máta ódrengileg framkoma og
skora ég á hann að hætta þessum
áróðri gegn nokkrum frambjóð-
endanna eða hreinlega að segja af
sér sem kjörnefndarmaður og sem
formaður SÍNE, á meðan núver-
andi kosning stendur yfir.
Látum vera að núverandi for-
maður SÍNE eigi sæti í miðstjórn
Alþýðubandalagsins og starfi jafn-
framt sem talsmaður íslenskra
námsmanna erlendis, þ.e. formað-
ur og framkvæmdastjóri SÍNE. í
sjálfu sér er það alls ekki rangt.
Það jaðrar við hræsni hins vegar að
segja að einstaklingar með tengsl
við aðra stjórnmálaflokka geti ekki
unnið að hagsmunum námsmanna
og að kalla það nídingsverk þó svo
að við höfum lýst yfir áhuga á að
betrumbæta starfsemi samtak-
anna.
Ljóst er að núverandi formaður
hefur ekki hagsmuni SÍNE að leið-
arljósi lengur, heldur snúist þessi
kosningabarátta, í hans huga um
völd Alþýðubandalagsins innan
SÍNE. Nú í fyrsta skipti er hags-
munum Alþýðubandalagsins, sem
hann er fulltrúi fyrir, ógnað að
hans mati. Því ber að vinna gegn
allri skipulagðri moldvörpustarf-
semi með öllum tiltækum ráðum,
svo orðbragð formannsins sé
notað.
Jafnvel að ganga í berhögg við
almennar kosningahefðir og sem
kjörnefndarmaður fer hann með í
gang baráttu gegn nokkrum fram-
bjóðendanna.
Hér á eftir birtist bréfíð margum-
rædda og getur hver sem vill dæmt
um efnisinnihald þess.
17. mars 1988
Kæri námsmaður
Nú í fyrsta skipti í mörg herrans
ár og í annað sinn í sögu SÍNE fara
fram kosningar til stjórnar samtak-
anna. Við undirrituð höfum gefið
kost á okkur til kjörs stjórnar
samtakanna fyrir næsta kjörtíma-
bil. Öll höfum við dvalið langdvöl-
um erlendis og höfum því kynnst
ýmsu sem betur mætti fara. Við
höfum mikinn áhuga á að starfa í
stjórn samtakanna og gera þau að
virkum og þróttmiklum aðila í
hagsmunabaráttu ykkar.
Við viljum gera SÍNE að fagleg-
um hagsmunasamtökum náms-
manna erlendis. SÍNE á að berjast
fyrir réttlátum baráttumálum
námsmanna með ágbyrgum og
markvissum vinnuaðferðum.
Nú liggur mikið við að koma
sjónarmiðum námsmanna erlendis
á framfæri, þannig að mark sé á
þeim tekið. Á þann hátt einungis
næst árangur sem við getum unað
við. Núverandi ríkisstjórn hefur á
stefnuskrá sinni að endurskoða lög
LÍN, því skiptir miklu máli að
SÍNE sé sterkt og sameinað í
komandi baráttú.
Við viljum leggja áherslu m.a. á
eftirfarandi atriði:
•Við munum leggjast gegn því
að þak verði sett á námslán og
sérstakir vextir verði lagðir á um-
fram lán.
•Að framfærsla verði hækkuð.
Við teljum að alltof lengi hafi
dregist að leiðrétting fari fram og
að of margir nemendur gjaldi
seinagangs framfærslunefndar.
•Að lánað verði að jafnaði sem
samsvarar námsaðstoð í tvær
vikur, í upphafi og við lok náms,
vegna örðugleika við að koma sér
fyrir í nýju og oftast framandi
landi.
•Að sjóðurinn láni að jafnaði í
tvö misseri til málanáms, í stað
eins, eins og nú er, ef það er
undirbúningur fyrir nám erlendis,
sem fer fram á öðrum tungumálum
en ensku og norðurlandamálum.
• Að hætt verði að telja náms- og
rannsóknarstyrki og kennslulaun
(teaching assistantship) til tekna
og því lækki lán ekki sem þessum
styrkjum nemur, eins og nú er.
•Að lánað verði til fyrrihluta-
náms (til bachelorgráðu) við náms-
stofnanir erlendis, sem gera sam-
bærilegar kröfur til nemenda og
tíðkast í háskólanámi hérlendis.
Það er, að nemendum verði frjálst
að velja sér námsstað og að lán
verði ekki takmarkað við það nám
sem ekki er hægt að stunda hér-
lendis.
•Að mótuð verði langtíma-
stefna í lánamálum. Ekki verði
komið aftan að nemendum á miðju
misseri með skerðingu á fram-
færslu.
• Efla þarf samstöðu innan
SÍNE. Veita þarf meira fé til virkra
SÍNE-deilda erlendis og auka
tengsl við deildirnar, m.a. með
auknum bréfaskriftum og virku
samstarfi.
• Efla þarf tengsl stúdenta við
atvinnulífið m.a. með auknu sam-
starfi við Atvinnumiðlun stúdenta.
•Lengja og tryggja þarf opnun-
artíma skrifstofu SINE til að auð-
velda félagsmönnum og deildum
að koma málefnum sínum á fram-
færi.
Þetta er stefna okkar sem send-
um þér þetta bréf, námsmaður
góður. Það er von okkar að þú
sýnir ábyrgð og kjósir það fólk,
sem vill vinna að þínum hagsmun-
um, en ekki nota SÍNE í pólitísk-
um tilgangi, sem einungis getur
orðið til þess að ala á flokkadrátt-
um innan hreyfingar stúdenta og
veikja samstöðu þeirra.
Með vinsemd og virðingu,
Belinda Theriault,
Birgir Þór Runólfsson
Guðrún Kr. Guðfinnsdóttir
Jónas Egilsson
Óskar Borg
P.S. Stjórn SÍNE skipa sjö menn.
Það er því áríðandi að merkja við
öll þessi fimm nöfn.
Auglýsing
um skipti á fullvirðisrétti í mjólk yfir í
fullvirðisrétt í sauðfjárafurðum
Framleiðsluráö landbúnaðarins hefur ákveðið að
kanna hvort framleiðendur sem hafa fullvirðisrétt
til mjólkurframleiðslu vilja skipta á honum að jöfnu
fyrir fullvirðisrétt til sauðfjárframleiðslu.
Þeir sem áhuga hafa á slíkum skiptum eru beðnir
að tilkynna það bréflega til skrifstofu framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, Hagatorgi 1,107 Reykjavík,
fyrir 20. maí n.k.
LÁTTU
Tínnuin
EKKI FIJÚGA FRÁ ÞÉR
ÁSKRIFTARSÍMI
686300
Útboð Vesturlandsvegur um Bjarteyjarsand í Hvalfirði
''//V/Æ Sm W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint f verk. Lengd vegarkafla 2,6 km, fyllingar og burðarlag 14.000 m3 og skeringar 4.000 m3. Verki skal lokið 1. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 27. apríl. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 9. maí 1988.
Vegamálastjóri