Tíminn - 06.05.1988, Qupperneq 3
Föstudagur 6. maí 1988
Tíminn 3
Bjórinn afgreiddur til síðustu umræðu á Alþingi:
SÍÐASTA ATLAGAN
Bjórfrumvarpið svokallaða rann
í gegnum atkvæðagreiðslu við aðra
umræðu í efri deild Alþingis og var
samþykkt með 13 atkvæðum gegn
8. Er nú ekki eftir nema þriðja og
síðasta umræða í þeirri deild og
þar með hillir undir lokaafgreiðslu
„bjórsins". Enn er þó eftir þessi
síðasta orrusta og sögðu harðir
andstæðingar bjórsins að þeir
byggjust fastlega við því að fram
kæmu breytingartillögur við þriðju
umræðuna. Verði einhver breyt-
ingartillaga samþykkt við frumvarp
þetta um áfengismál, verður að
senda það aftur til umræðu í neðri
deild. Þar með félli það á tíma og
ekkert yrði um bjór í hillum ÁTVR
að ræða á næstunni.
Skæðasta breytingartillagan er
svipuð tillaga og kom fram í neðri
deild um að vísa endanlegri
ákvörðun um bjórinn til þjóðarat-
kvæðis. Þeir sem helst eru taldir
líklegir til að bera upp þessa tillögu
um þjóðaratkvæði, eru Guðrún
Agnarsdóttir (Kvl), Jón Helgason
(Frf.) eða Svavar Gestsson (Abl).
Við aðra umræðu fluttu þessir
þingmenn allir drjúgar ræður gegn
því að bjórfrumvarpið verði
samþykkt. Bentu Guðrún og Svav-
ar mjög á skýrslur og gögn sem
undirstrikuðu böl það sem hljóti
að fylgja almennri sölu á sterku öli.
Benti Guðrún á að ef fram kæmi
tillaga um að vísa málinu til þjóðar-
atkvæðis, myndi hún styðja hana.
Svavar spurði til hvers menn sætu
á Alþingi. „Sitja menn ekki hér til
að láta gott af sér leiða.“
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, vísaði til reynslu sinnar frá
þeim tíma er sala bjórlíkis var
Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, og Guðrún Agnarsdóftir eru með
hörðustu andstæðingum bjórsins í efri deild. Búast má við að andstæðingar
bjórsins geymi enn vopn til síðustu atlögunnar.
leyfð. Nefndi hann tvennt. Annað
var stórfelld aukning þeirra dóms-
mála er fylgdu ölvun manna við
akstur. Hitt væri það að bjórlíkis-
staðirnir hafi reynst gróðrarstía
þeirra sem fiska vildu í gruggugu
vatni og koma í sölu fíkniefnum.
„Með því að samþykkja bjórsölu
verður stofnað til aukinna vanda-
mála af þessu tagi, svo aðeins séu
tekin þessi tvö dæmi.“
Aðspurður sagðist Jón fastlega
búast við að fram kæmu tillögur til
breytingar á bjórfrumvarpinu.
Ekki vildi hann segja hvort hann
yrði til þess að bera þær upp, en
sagðist búast fastlega við að tillaga
um þjóðaratkvæði kæmi fram.
í>að má því búast við síðustu
alvarlegu atlögunni að bjórnum í
síðustu umræðu Alþingis um
málið. Þó að nokkuð Ijóst sé orðið
að meirihluti er nú fyrir áfengis-
lagafrumvarpinu í efri deild, líkt
og varð í neðri deild, er einnig
nokkuð ljóst að mjög tæpt verður
á atkvæðamun varðandi þjóðarat-
kvæðistillöguna. Er jafnvel talið
að sú afgreiðsla geti oltið á einu
atkvæði. KB
Mikil óvissa um blýlausa eldsneytið nýja:
Fræðilestur á bensínstöðvum
„Við eigum að vita allt, en oft
rekur mann í vörðurnar," segir af-
greiðslumaður á bensínafgreiðslu
OLÍS á Álfabakka. „Fólk spyr rosa-
lega mikið og veit ekki hvað það á
að velja, þegar maður býður súper-
bcnsín eða blýlaust bensín. Það veit
ekki hvað það er. Við verðum oft að
flytja alveg rosalegan fyrirlestur.“
„Fólk er mikið í óvissu hvort
blýlaust bensín henti bíl þeirra.
Einstaka bílar þola ekki blýlaust
eldsneyti. Þeim bjóðum við 98 oktan
bensín,“ sagði bensínafgreiðslumað-
ur Esso á Bíldshöfða. „Við erum
með lista uppi, sem við förunt eftir,
þegar spurt er hvort bílar þoli blýla-
ust bensín. Eins og staðan er í dag,
er það aukið álag á okkur, að
upplýsa allt um þetta nýja bensín."
„Við erum ekki enn komnir með
blýlaust bensín, en það gerist á
næstu dögum,“ sagði afgreiðslumað-
ur Skeljungs á Miklubraut. „Við
höfum ekki orðið varir við óvissu
fólks um blýlaust bensín og ekkert
spurðir."
Blýlausa bensínið er selt á kr.
31,90, en það er sama verð og 92
oktan bensínið er selt á. Súperbens-
ínið eða 98 oktan er dýrara.
Tíminn hafði samband við FÍB og
spurði, hvaða bílar þyldu blýlaust
bensín og hvaða bílar ekki, en
bíleigendur hafa mikið kvartað á
bensínstöðvunum yfir því að ekki
hafi nógu rækilega verið kynnt hvaða
breytingu blýlaust bensínframboð
hefði í för með sér.
Tæmandi skrá um á hvaða bíla
beri að setja blýlaust bensín er ekki
fyrir hendi. Það er tímafrekt verk,
að útbúa slíka skrá, en það er í
athugun hjá FÍB að taka hana saman
í samráði við bílaumboðin.
Jónas Bjarnason, framkvæm-
kvæmdastjóri FÍB, sagði, að bíl-
eigendum væri ráðlagt að snúa sér
beint til síns bílaumboðs með spurn-
ingar varðandi blýlaust bensín eða
að leita upplýsinga í handbókinni,
sem fylgir hverjum bíl. „Það er
undantekning, ef ekki fást svör á
öðrum hvorum staðnum,“ segir
Jónas.
Það getur skipt máli hvaðan upp-
lýsingarnar eru fengnar, ef kæmi til
málshöfðunar vegna bilunar í bifreið
vegna eldsneytisins, og þess vegna
er brýnt að bílaumboðin sjálf séu
með í ráðum við skráargerð eða veiti
upplýsingar milliliðalaust. Hér á eft-
ir verður þó birtur listi hins þýska
félags bifreiðaeigenda, sem gerður
var í samráði við bílaframleiðendur
og bíleigendur geta haft til hliðsjón-
ar til bráðabirgða. Með upplýsingar
um þá bíla, sem ekki eru í skránni,
vísast til viðkomandi bifreiðaum-
boðs og raunar alltaf öruggast. þj
Lyklar:
f82: framl. árið 1982 eða síðar
f4/85: framl. í apríl 1985 eða síðar
B: blýlaust bensín, 92 okt.
S: superbensín, 98 okt.
B3: 3ja hvert sinn annað bensín
B4: 4ðahvertsinnannaðbensín
B5: 5tahvertsinnannaðbensín
ALFA ROMEO
Allargerðir f76 S
AUDI
80,100, Coupé blýlaustáallaf77 B
1502______________f 1 /75 til f7/77_________________B4
1602.1802.2002 f66tilf75________________________S4_
316.318.2002 f9/75tilf8/80 EM
320/4_____________f9/75tilf8/77_____________________B4
Allargerðirmeðkatalysator B
AUSTIN ROVER
Triumph Acclaim, Rover 213, 213 S, Land Rover 90,
Land Rover110, RangeRover97kW B
CITROEN
2CV f70 s
f4/85 vél A06/664 B
Dyane, Acadiane 170 s
LN/LNA 2jacyl. S
4racyl.vél 162801 S
Visa 2ja cyl.fyrir 15/85 s
2ja cyl. Í6/85 V06/665 B
1.2109/5FVél-Nr. 162801 s
1.2109 P s
1.2109 K B
AX 10 B
11,14,GT S
GS/GSA s
BX 14150C, A, J, Nr. 387195 S
14150F Vél-Nr. 387195 B
16171A, B, C S
16171D B
16TRI, 19,19GTI S
CX 2.019/79 S 2.2185 S
2500,2500 Túrbó s
DAIHATSU
Allargerðir B
FIAT
126 f78tilf 10/87 B3
Í88 S
Panda 34,1000 CL B
45,45S, 750L s
127 29 kW f 2/75 B
33 kW f9/71 S
Uno 45 S
45fire,45fireS B
128 33 kW f4/75 B
Ritmo, Regata 75,75Sf8/85 B
131 1400/51 kW f5/81 s
132 2000Í3/80 S
Argenta f9/81,120 s
Spidereuropa 2000 s
Florino 900 f 5/78 s
900 Tf2/77,Ef78 B
FORD
Kveikjur flestra gerða verður að
stilla sérstaklega. Fordeigendur
snúi sér til umboðs.
HONDA
Jaz2 45/33 kW B4
Civic 1.2,1.3,1.5 f76 B4
1.2,1.3,1.5 f84 B
1,5ÍGT, CRX, CRX16 S
Accord 1.6,1.8 f77 B3
1.6/65 kW, 2.0/90 kWf86 B
Quintet B3
Prelude 1.6Í79 B3
1.8Í83 s
ISUZU
Allargerðir B
LADA
Allargerðir B
LANCIA
A112 Junior vél A112B2000 s
vél 112 A5000 f 1/81 S
Y10fire Ð
Delta, Prisma 1.3 vél 831 A2000 S
MAZDA
Allargerðir Í82 B
MERCEDES-BENZ
190 66 kW S5
77 kW s
RUF1. ársfjórðung f86 S
190 E RUFÍ8/85 s
190E2.3 RUF 3. ársf jórðung f86 s
190E2.3-16 RUFf8/85 s
200/123 69 kW f 6/80 S5
80 kWf 12/84 S5
80 kWf1/85 s
200/124 S
230/123 Í6/80 s
230E/124 RUFÍ4/85 s
260 E, SE RUF s
300 E, SE, SL RUF s
420 SE, SL RUF s
500 SE RUF s
500 SL Í9/85 s
560 SEL RUF s
230 G 66 kW B5
280 GE fyrir Í3/85 B5
Í4/85 B
MITSUBISHI
Allar gerðír siðan 1977 nota blýlaust bensín B
Allargerðirsíðan 1977 notablýlaustbensín B
Urvan vélZ20f1983 B
OPEL
Allar gerðir nema S-Euronorm vél
nota blýlaust bensín.
Eigendur Opel snúi sértil umboðs B/S
PEUGEOT
Allar gerðir nota 98 oktan súper S
PORSCHE
924S árgerðir86 + 87 B
f88 S
944 f88 s
944S S
944 Túrbó f86 s
928 árgerðir 78+79 B
928 S4 s
911 árg. 72til80f.u.Túrbó B4
RENAULT
R4 normalbensín vélar f82 B4
R5 27 kW f82 B4
Campus, SL, TL, GTR, f87 B
R9/11 TL, GTLf82 B4
TL, GTLÍ83 B
R21 TL, GTX, 2LTúrbó S
Espace GTS.TSE S
Trafic 1.4f84, allir 1.7 B
SAAB
900túrbó 16 érgerð1984 S
90,900,900 túrbó, allir 9000 f85 S
SEAT
Marbella.Terra B
Ibiza, Malaga, Ronda, 1.2 44 kW B
1.563 S
RapidCombi B
SUBARU
Allar gerðir með vél fyrir normaibensín f83 B
SUZUKI
Swift 1.3/54 kW +1.3 GXI/GTI S
AirargerðirSuzukl Ð
TOYOTA
1000, Starlet, Tercel, Corolla, Carina.Celica normalbensínf79 B
Carinall 1.8/74 kW s
Celica GT2.0f85 S
Landcruiser normalbonsínf79 B
Lite-Ace 1.5/51 kW B
Hi-Ace 1.9/58 kW B
VOLVO
360GLI, GLT, GLE 82kWf4/68 B
480 ES S
244/245 GLI.GLE 90 kWfyrirf81 s
240/240 GL 83 kWf81 S
740 GL S
740 GLE f85 s
VW
Kðfer Ð5
Polo, Derby, Golf,
Jetta, Sciroccio, Passat, Santana normalbensínf77 B
Transporter normalbensínf77 B
LT f 1 /84 normalbensín B