Tíminn - 06.05.1988, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 6. maí 1988
Samvinnuskólinn
Bifröst
Rekstrarfræði á háskólastigi
Samvinnuskólapróf í rekstrarfræðum á há-
skólastigi miðar að því að rekstrarfræðing-
ar séu undirbúnir til ábyrgðar- og stjórnun-
arstarfa í atvinnulífinu, einkum á vegum
samvinnuhreyfingarinnar.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði-
eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frum-
greinum við Samvinnuskólann eða annað
sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Markaðarfræði, verslunar- og
framleiðslustjórn, fjármálastjórn og áætlana-
gerð, starfsmannastjórn og skipulagsmál,
almannatengsl, lögfræði og félagsfræði, fé-
lagsmálafræði, samvinnumál o.fl.
Námslýsing: Ahersla lögð á sjálfstæð, raun-
hæf verkefni og vettvangskannanir í atvinnu-
lífinu, auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí
hvort ár.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir,
skólaheimili, félagsaðstaða og mötuneyti á
Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum,
bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv.
Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og
fræðsla áætluð um 32.000,- kr. á mánuði
fyrir einstakling næsta vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skóla-
stjóra Samvinnuskólans á Bifröst fyrir 10.
júní. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar,
upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti
skírteina og upplýsingar um fyrri störf. Ekki
sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öllu
landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem
orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast
starfsreynslu í atvinnulífinu.
Miðað er m.a. við reglur um námslán.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi, simi: 93-50000.
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Viö Nýja hjúkrunarskólann er laus til umsóknar ein og hálf staöa
námsstjóra. I stööunum felstfagleg ábyrgð á námsbraut, skipulagning
og stjórn, auk þess kennsluskylda að hluta til.
Viðfangsefni næsta ár verða:
Gjörgæsluhjúkrun,
félags- og heilsuverndarhjúkrun,
hjúkrunarstjórnun,
geðhjúkrun, svæfinga- og skurðhjúkrun.
Ráðið verður í stöðurnar til eins árs. Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 622150 klukkan 10-12 alla virka daga.
Við Framhaldsskólann á Húsavík eru lausar kennarastöður í
eftirtöldum greinum: Þýsku, frönsku, ensku, viðskiptagreinum, stærð-
fræði, tölvufræði og hálf staða í tónmennt. Jafnframt er óskað eftir
sérkennara til að kenna nemendum með sérkennsluþarfir.
Við Menntaskólann og Iðnskólann á ísafirði eru lausar eftirfarandi
stöður:
Ein og hálf staða í íslensku og stærðfræði, heilar stöður í þýsku,
vélstjórnargreinum, rafvirkjun, rafeindavirkjun, grunnnámi rafiðna og
þjálffræði íþrótta og skíðaþjálfun, tveir þriðju stöður í dönsku og
skipstjórnarfræðum, hálfar stöður í frönsku og eðlisfræði. Ennfremur
starf húsbónda, húsmóður og ritara, allt hálfar stöður.
Umsóknir ásamt upplýsingum um ménntun og fyrri störf sendist
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 25. maí
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Laus er til umsóknar tímabundin lektorsstaða við námsbraut í
sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla íslands. Staðan miðast við hálft
starf og gert er ráð fyrir að ráðið verði í hana til tveggja ára frá 1. júní
n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 31. maí
n.k.
Menntamálaráðuneytið,
3. maí 1988
Steingrímur á
ráðherrafundi
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra, er nú staddur í Stras-
bourg, þar sem hann sat ráðherra-
fund Evrópuráðsins í gær og í dag.
Meginefni fundarins eru samskipti
iðnvæddra ríkja og þróunarlanda og
hefur utanríkisráðherrum Argen-
tínu, Filippseyja og Senegal verið
boðið að sitja fundinn af því tilefni.
Evrópuráðið hefur að undanförnu
lagt áherslu á að efla skilning og
samstöðu með þróunarríkjum með
því að minna á að iðnvæddu ríkin
eiga ekki síður framtíð sína undir
því komna að fátækari ríkin eflist til
sjálfsbjargar og þróunar, segir í
fréttatilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu.
Einnig er fjallað um samskipti
austurs og vesturs, sérstaklega fram-
vindu mála á ráðstefnunni um öryggi
og samvinnu í Evrópu og möguleika
Evrópuráðsins að efla tengslin við
ríki Austur-Evrópu.
Loks er rætt um ástand mála fyrir
botni Miðjarðarhafs, bæði á her-
numdu svæðum ísraels og við Persa-
flóa. Utanríkisráðherra mun jafn-
framt undirrita fyrir íslands hönd
viðbótarbókun við Félagsmálasátt-
mála Evrópuráðsins.
Frá Strasbourg heldur Steingrím-
ur til Lissabon þar sem hann mun
sitja fund um efnahagsþróun í heim-
inum og tengsl norðurs og suðurs.
Fundurinn fer fram 7. og 8. maí og
er hann haldinn í boði prof. Anibal
Cavaco Silva forsætisráðherra Port-
úgals og Friedrich Neumann stofn-
unarinnar í V-Þýskalandi.
Næst komandi mánudag og
þriðjudag, dagana 9. og 10. maí, eru
síðan fyrirhugaðir fundir utanríkis-
ráðherra með saltfiskinnflytjendum
í Portúgal. JIH
ísbrjóturinn Norðurvindur.
Tfmamynd: Krístján
43 ára gamall ísbrjótur í sínu síðasta verkefni:
Northwind skoðar hafís
Bandaríski ísbrjóturinn
Northwind, kvaddi íslandsstrendur
í byrjun vikunnar, en skipið var hér
statt til að taka um borð tækjabúnað
og vísindamenn, sem gera munu
rannsóknir á hafísnum norður af
landinu.
Norðurvindur er 81 rrjetra langur
og er 5.460 tonn að stærð. Hafís-
rannsóknirnar eru síðasta rannsókn-
arverkefni skipsins, en það verður
tekið úr notkun í nóvember næst
komandi.
Þegar rannsóknunum Iýkur, fer
skipið til St. John á Nýfundnalandi
og tekur um borð vísindamenn frá
hafísrannsóknardeild bandarísku
strandgæslunnar og verður júnímán-
uði eytt við rannsóknir á reki og
bráðnun hafíss. Þá mun Norðurvind-
ur halda til Thule til birgðaflutninga,
fer til Skotlands í nokkurra daga
heimsókn og mun síðan aðstoða
norska rannsóknarskipið Hvide-
bjornen við að komast inn í hafísinn
í minna en 400 mílna fjarlægð frá
Norðurpólnum. Að því loknu heldur
skipið í síðasta sinn til heimahafnar
sinnar í Wilmington Norður-Karól-
fnu.
Norðurvindur hefur 5 cm þykkan
byrðing og fjórar 10.000 hestafla
vélar og gerir þetta skipinu kleift að
brjótast í gegnum 4 metra þykkt
íslag. Þá hefur skipið 2 þyrlur til
leitar og eftirlitsstarfa.
Skipið er eitt þekktasta sinnar
tegundar og hefur fengið sjö viður-
kenningar á ferli sínum, ýmist fyrir
met eða unnin afrek.
Norðurvindur er væntanlegur aft-
ur til landsins 27. maí.
Skipherra er Kenneth J. Morris.
-SÓL
Jónas Egilsson, frambjóöandi, um pólitískan ágreining í kosningunum:
Ekki listaframboð
til stjórnar SÍNE
„Þetta er ekki spurning um pólit-
ískan ágreining milli frambjóðenda,
heldur er hann í nösunum á Kristjáni
Ara Arasyni, framkvæmdastjóra og
formannj," segir Jónas Egilsson,
einn frambjóðenda til stjórnar
SÍNE, en hann hafði samband við
Tímann vegna fréttar blaðsins um
hörð pólitísk átök um forystu sam-
bandsins.
Jónas er einn þeirra fitnm, sent
meirihluti stjórnar SÍNE segir, að
standi að baktjaldamakki ásamt fé-
lögum sínum í SUS til að ná yfirráð-
um í SÍNE. Frambjóðendurnirfimm
sendu sameiginlegt kynningarbréf
til kjósenda stjórnar SÍNE, en nú-
verandi meirihluti segir að einatt
áður hafi verið kosið um einstakl-
inga, en ekki lista, svo sem meiri-
hlutanum virðist nú verða kosið um.
„í fyrsta lagi er þetta ekki sameig-
inlegt framboð,“ segir Jónas, „held-
ur sendum við út kynningarbréf
sameiginlega." Ekki skilgreindi
hann nánar muninn á þessu tvennu.
„í öðru lagi er framboð okkar ekki
á vegum SUS. Sumir okkar fimm
eru félagar í SUS, aðrir ekki,“
sagði hann ennfremur.
Jónas fullyrðir að forysta SUS
komi hvergi nálægt framboðinu til
kosninga í stjórn SINE. Jónas leggur
ríka áherslu á, að ekki sé um lista-
framboð að ræða.
„Við höfum orðið að svara opin-
berlega ásökunum Kristjáns Ara, en
hann snýr því öllu upp í ofsóknir á
hendur sér, samanber orð hans í
viðtali í Alþýðublaðinu, þar sem
hann er „gáttaður á makalausum
árásum“,“ segir Jónas. „Hann reið á
vaðið með sprengingu og við áttum
ekki um annan kost að velja, en að
svara." þj