Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Föstudagur 6. maí 1988 FRÉTTAYFIRUT VARSJÁ - Aö sögn verka- manna réðst pólska óeirðalög- realan rétt fyrir dögun inn í staliðjuverið í Kraká þar sem verkamenn hafa verið í verk- falli að undanförnu í kjölfar þess að pólska ríkisstjórnin sagðist myndi gera upp málin við hin ólöglegu verkalýðs- samtök Samstöðu. í Gdansk hafa hundruð óeirðalögreglu- manna umkringt Lech Walesa leiðtoga Samstöðu og þá 3000 verkamenn sem hafa yfirtekið Lenínskipasmíðastöðina. Wa- lesa telur að lögreglan geri árás fyrir kvöldið. JERÚSALEM - Eldflaug- um rigndi yfir svokallað örygg- issvæði sem Israelsmenn hafa lýst yfir í Líbanon við landa- mæri Israels, eftir að siðasti ísraelski hermaðurinn hélt á ný inn yfir landamæri ísraels eftir tveggja daga herför sína um suðurhluta Libanon. Fólk í landamærabæjum ísraels í norðri óttast hefndarárásir Pal- estínumanna og skæruliða Hizbollah samtakanna sem studd eru af Irönum. en þeir voru aðalskotmark fsraela í herförinni. BAGDAD - Irakar tilkynntu að herþotur þeirra hefðu gert árás á stórt sjávarskotmark á Persaflóa við strendur írans. Stórt sjávarskotmark er yfirleitt stórt olíuskip eða stórt vöru- flutningaskip. Talsmaður hers- ins sagði að þoturnar hefðu komist heilar á húfi til baka úr árásarförinni eftir árangursríka ferð. NORCO, LOUISIANA - Sprenging varð í efnaverk- smiðju Shell olíufélagsins í Norco í Louisiana. Einn maður lét lífið og 19 særðust. Tals- maður ríkislögreglu í Louisi- ana sagði að rúmlega 2800 manns hafi verið fluttir á brott þegar svartur reykur frá sprengingunni lagðist yfir ná- grennið. TOKYO - Japönsk sjón-- varpsstöð sjónvarpaði beint frá 1 toppi Everestfjalls í gær og er það í fyrsta skipti sem beir útsending er frá toppi þessa' hæsta fjalls veraldar. Myndin var kristaltær og fín. Það var sjónvarpslið rá Nippon sjón- varpsstöðinni sem sá um út- sendinguna sem var send út í gegnum gervihnött. Þettaverk-1 efni er hluti af sameiginlegu verkefni Japana og Kínverja. ÚTLÖND Frönsku gíslarnir í Líbanon og Kale- doníu frelsaðir Skærliðar Kanaka í baráttuhug. Fimmtán menn úr þeirra hópi létu lífið í bardaga þegar franskir hermenn frelsuðu 22 gísla sem Kanakarnir höfðu í haldi. Mannræningjarnir í Líbanon slepptu sínum gíslum eftir samningaviðræður. í fyrradag var þeim þremur frönskuni gíslum sem verið hafa í haldi í Líbanon í þrjú ár sleppt úr haldi. Þá voru frönsku gíslarnir sem voru í haldi hjá aðskilnaðarsinnum Kanaka á Nýju Kaledoníu frelsaðir ígærmorgun. Þessir atburðir setja nokkurn svip á frönsku forsetakosn- ingarnar, en á sunnudaginn skera franskir kjósendur úr um hvort Mitt- errand heldur forsetastólnum, eða hvort Chirac forsætisráðherra nær að merja sigur. Mitterrand hefur verið með örugga forystu í skoðana- könnunum, en vegur Chiracs kann að hafa aukist eftir að farsæl lausn fékkst í gíslamálunum. Gíslarnir í Líbanon Chirac hefur ntjög beitt sér fyrir því að gíslarnir í Líbanon yrðu leystir úr haldi. Að undanförnu hafa franskir sendimenn verið á þönum milli Frakklands og hinna ýmsu landa í Mið-Austurlöndum í von um að ná samkomulagi við mannræn- ingjana sem hliðhollir eru klerka- stjórninni í íran. Menn velta því fyrir sér hverju Chirac hefur þurft að tilkosta í þessu máli, en það er deginum ljósara að lausn gíslamáls- ins nú fjórum dögum fyrir kosningar ætti að koma Chirac vel. Raddir hafa heyrst um að Frakkar muni greiða himinháar innistæður Írana sem frystar voru í frönskum bönkum þegar íranskeisara var bolað frá völdum af stuðningsmönnum Khom- einis erkiklerks. Að auki hafi mann- ræningjarnir fengið vænar fjárfúlgur í eigin vasa. Frelsun gíslanna á Nýju Kaledoníu Það voru franskir hermenn sem frelsuðu hina tuttugu og tvo frönsku gísla sem hópur aðskilnaðarsinna Kanaka hefur haft í haldi á Nýju Kaledoníu í tvær vikur. Fimmtán Kanakar og tveir franskir hermenn létu lífið í fimm klukkustunda bar- daga sem varð þegar hermennirnir frelsuðu gíslana þar sem þeir voru í haldi í helli á strönd eyjarinnar. Þrettán Kanakar voru teknir höndum. Það var Chirac forsætisráðherra sem fyrirskipaði árásina eftir að Mitterrand forseti hafði gefið sam- þykki sitt. Franskir hermenn höfð fínkembt Nýju Kaledoníu í leit að gíslunum og fundu þeir íverustað mannræningjanna í fyrradag. Gíslarnir sögðu að Kanakarnir hefðu ekki farið illa með þá, en sumir gíslana voru hins vegar hlekkj- aðir við jörðu mest allan tímann. Mikil spenna er nú á Nýju Kale- doníu og hafa skæruliðar Kanaka lýst því yfir að þeir séu tilbúnir í skæruhernað við franska herinn til að ná fram sjálfstæði eyjunnar. Þá eru hvítir landnemar nú mjög ugg- andi um sinn hag og óttast hefndar- aðgerðir Kanaka. Áhrif á frönsku forsetakosningarnar Eins og áður segir setja þessir atburðir nú sterkan svip á frönsku forsetakosningarnar. Talið er að Chirac hafi styrkt stöðu sfna, en hann þarf að vinna upp 10% forskot Mitterrands. Þó gætu vopnin snúist í höndum Chiracs ef hann leggur of mikinn þunga á lausn gíslamálanna. Stórsprenging í efnaverksmiðju sem framleiðir geimskutlueldsneyti: Níu létust, fjöl- margir slösudust Að minnsta kosti níu manns létu lífið og um tvöhundruð slösuðust þegar gífurleg sprenging varð í efna- verksmiðju sem framleiðir eld- flaugaeldsneyti á geimskutlur Bandaríkjamanna. Efnaverksmiðj- an er í um 25 kílómetra fjarlægð frá Las Vegas og nötruðu hús í þessu fræga spilabæli í sprengingunni, svo öflug var hún. Rúður brotnuðu í húsum sem eru í 16 kílómetra fjar- lægð frá verksmiðjunni. Orsök sprengingárinnar var elds- voði sem braust út í verksmiðjunni. Starfsmenn hófu baráttu við eldinn en þegar ljóst var að ekkert var við hann ráðið var verksmiðjan yfirgefin. Flestir starfsmennirnir voru á leið frá verk- smiðjunni á bifreiðum sínum þegar sprengingin varð. Flestir hinna slös- uðu slösuðust þegar glerbrotum og öðru lauslegu rigndi yfir þá, en nokkrir voru fluttir á spítala vegna öndunarerfiðleika eftir að hafa and- að að sér eiturgufum frá eldinum. Að sögn talsmanns eigenda verk- smiðjunnar var það lán í óláni að eldurinn komst ekki í tvo stóra eldsneytisgeyma sem staðsettir eru við hlið verksmiðjunnar. Ef það hefði gerst hefðu mun fleiri látið lífið og slasast alvarlega. Herför ísraela lokið íbili ísraelski herinn dró sig út úr suðurhluta Líbanons í fyrrakvöld eftir tveggja sólarhringa hernaðar- aðgerð sem beint var gegn skærulið- um óvinveittum ísrael, sem hafa haft bækistöðvar sínar á þessu svæði. ísraelarnir lögðu í rúst eitt líbanskt þorp þar sem þeir lentu í hörðum átökum við skæruliða þar, hliðholla írönum. Talsmaður ísraelsstjórnar sagði að ísraelsmenn muni endurtaka að- gerðir sem þessar í suðurhluta Líba- nons ef árásir Palestínumanna og líbanskra skæruliða á ísrael og stuðningsmenn ísraela í Líbanon héldu áfram. Skip Filippsey- inga sökkva enn Skip Filippseyinga virðast gjörn á að sökkva þessa dagana. I gær sökk filippseyskt farþegaskip með um tvöhundruð farþega innan- borðs. Ekki er Ijóst hve margir komust af, en óstaðfestar fréttir herma að tuttugu og níu skipbrots- mönnum hafi verið bjargað. Enn er í fersku minni hið hræðilega ferjuslys í desembermánuði þegar þrjúþúsund manns létu lífið þegar filippseysk ferja sökk á áætlunar- ferð milli eyja 400 mílur suður af Manillu. Mörg hundruð ferjur sem flytja farþega og vörur eru í föstum ferðum milli hinna sjöþúsund eyja Filippseyja. Hafa eigendur ferj- anna oft verið sakaðir um að troða fólki um of í skip sín. Sem dæmi um það er ferjuslysið í desember, en þá voru langtum fleiri farþegar um borð en leyfilegt var. T

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.