Tíminn - 14.05.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.05.1988, Blaðsíða 7
Laugardagur 14. maí 1988 Tíminn 7 iværur vegna oTDeiais, naroræöis og ólöglegrar handtöku bornar undir „Lögreglan hittir menn á viðkvæmari stundum en ella og sér æði margt, sem aðrir verða aldrei varir við. Lögreglumenn þurfa að taka ákvarðanir, sem oft á tíðum eru umdeildar síðar. Það er því enginn vafi á því, að innan opinbera geirans er starf lögreglumanna með því erfiðara sem gerist. Ég held því alveg hiklaust fram.“ Það er Böðvar Bragason, lögreglustjóri næstum 300 manna lög- regluliðs í Reykjavík, sem tekur svo afdráttarlaust til orða. Að undan- förnu hefur mætt á honum vegna ásakana um ofbeldi og harðræði lögreglunnar auk þess, sem Ijóstrað var upp um að hún fylgdist náið með ferðum þekkts hvalfriðunarsinna, á meðan fram fór ráðstefna hér á landi um nýtingu sjávardýra. Almenningi koma njósnir af slíku tagi á óvart, - fáir höfðu raunar gert sér grein fyrir að þeir, sem halda uppi lögum og reglu, meti það svo að þörf sé á njósnum - og menn verða óhug slegnir, þegar fréttist af því, að fangar handleggsbrotni í skiptum við lögreglumenn í fangageymslu. Eða að menn lendi í átökum við lögreglumenn á götum úti. Dæmi þess er skammt að minnast og er tilefni til viðtals við lögreglustjóra nú. „Ég hef ákveðið að taka upp þá stefnu alfarið," segir Böðvar, „að lögreglan svari fyrir sig á opinberum vettvangi að svo miklu leyti sem hún getur og upplýsi þann þáttinn, sem snýr að henni í kærumálum. Það gest nú ekki öllum að því, hér innan stofnunarinnar. Það verður að gæta að því, að lögreglan getur ekki rætt eins opinskátt um málavexti og margar aðrar ríkisstofnanir geta gert. Aftur á móti fer ég fram á það, að hún fái hlutlausa meðhöndlun í fjölmiðlum.“ - Er hægt að bregða ljósi á þá atburði, sem gerðust um síðustu helgi, þegar lögreglumanni og vegfaranda laust saman á götu úti? „Varðandi það mál, er ég búinn að svara því til, sem hægt er á þessari stundu,“ svarar Böðvar. „Allar kærur eru undantekningarlaust skoðaðar. Það fer svo eftir framvindu rannsóknarinnar hvenær hægt er að taka ákvarðanir. í þessu máli áttu fjórir einstaklingar hlut að máli, - tveir lögreglumenn, sá sem kærir og fyrrverandi eiginkona hans.“ Konan er leigubílstjóri og ók bílnum, þegar lögreglan stöðvaði þau fyrir of hraðan akstur. Manninum leiddist þófið á meðan lögreglan ræddi við konuna og afréð að hafa tal af lögreglunni sjálfur. Afskipti hans enduðu með því, að lögregla neytti aflmunar við að handtaka hann. Maðurinn var allsgáður og á leið til vinnu sinnar. Hann hefur ekki áður komið við sögu lögreglu. „Mikill greinarmunur var á milli frumframburðar lögreglunnar annars vegar og hinna tveggja hins vegar. Það varð til þess, að ég ákvað að vísa málinu til frekari rannsóknar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, beinlínis með það fyrir augum að þeir komist að hinu sanna.“ RLR hefur borist kæran, en af rannsókn málsins er ekkert frekar að frétta að svo stöddu. Málið er tvíþætt, því að lögregla kærir manninn fyrir hindrun í starfi, en hann kærir lögreglu fyrir harðræði og ólöglega handtöku. - Er rétt að vísa lögreglumönnum, sem hafa verið kærðir fyrir að beita ofbeldi, tímabundið úr starfi? „Sama dag og fréttin af þessum atburði var fyrst gefin út og öllum mætti vera ljóst að málið var í skoðun hringdi í mig blaðamaður utan úr bæ. Hann spurði óðar um það, hvort búið væri að víkja viðkomandi lögreglumönnum úr starfi. Ég sagði við þennan mann, að fyrst yrðum við að athuga málavexti og byrja á réttum enda. í lögum um opinbera starfsmenn er yfirmönnum veitt heimild til að leysa menn frá störfum eða veita þeim áminningar fyrir yfirsjónir og því um líkt. Til þessara hluta kemur fyrst, þegar menn hafa áttað sig á um hvað málið snýst. Það er einmitt það, sem verið er að gera núna hjá RLR. Þá fyrst er hægt að taka ákvörðun um hvort eigi að beita þessa menn viðurlögum eða ekki. Það er þá byggt á mati á þeim staðreyndum, sem fyrir liggja. Það verður að gæta að því, að brottvikning úr starfi er enginn dómur yfir viðkomandi. Það segir einfaldlega, að líkindi hníga í þá átt, að eitthvað hafi farið úrskeiðis og að það þyki rétt að viðkomandi sé ekki í starfi þangað til að dómur gengur. Það er bara della ef ég á að leysa lögreglumenn frá starfi undir eins og maður kemur til mín og kvartar undan þeim. Slíkt bara gengur ekki. Það verður að vera fótur fyrir slíkum ásökunum. Ég gagnrýni það af einurð, að menn setji þumalskrúfurnar á yfirmenn um að þeir taki ákvarðanir, áður en þeir hafa fengið nægileg gögn í hendurnar til þess að þær geti verið teknar af skynsemi. Það er í þessu ljósi sem ég segi, að fjölmiðlum veiti ekki af að átta sig á innviðum þessa kerfis okkar. Það er þó ennþá frumregla í íslenskum rétti, að maður er saklaus þar til búið er að sanna sekt hans.“ - Fréttir af njósnum lögreglunnar, ofbeldi í fangageymslu og nú síðast kæru vegna harðræðis og ólöglegrar handtöku hljóta að rýra álit almennings á lögreglunni. „Ég tel að almenningur eigi rétt á því að fá að vita um störf lögreglu, - bæði þau sem eru jákvæð og þau sem eru neikvæð. Ég biðst alls ekki undan því að fjölmiðlar flytji fréttir af lögreglunni, hvort sem þær eru góðar eða vondar. Þær veita stofnuninni aðhald. Það eina sem ég bið um, er að fjölmiðlar gæti velsæmis og sanngirni í fréttaflutningi, en taki ekki of mikið upp í sig að órannsökuðu máli.“ Spurður segir Böðvar að í áranna rás hafi það ekki verið óalgengt, að lögreglumenn hafi orðið fyrir meiðslum og örkuml. Þeir lögregluþjónar, sem áttu þátt í handtökunni um siðustu helgi, hlutu þó enga áverka, að því best er vitað. „Hvað er þetta stórt brot af allri þeirri starfsemi, sem fram fer hjá lögreglunni?,“ spyr Böðvar og á við mál, sem lögreglan fær á sig kærur vegna. „Við skulum fyrst taka dæmi af því, þegar óhapp varð í fangageymslunni og maður handleggsbrotnaði. Hér eru gistingar á ári hverju sennilega um sjö þúsund. Og því miður eru ekki allir gestir í góðu ástandi þegar þeir koma. Þá ræðum við um atvik, sem á sér stað við radarmælingar um síðustu helgi. Það er algengt, að framkvæmdar séu á annað hundrað svipaðar aðgerðir á einum degi. -* Ég vil að menn athugi þetta í þessu ljósi einnig. Það er ekki hægt að gera þá kröfu, að ekki gerist óhöpp. Ég er þó ekki að afsaka nokkurn skapaðan hlut. Ein kæra er einni of mikið. En það verður að líta á málin frá fleiri en einni hlið, þegar svo víðtækt starf, sem starf lögreglumannsins er, er skoðað." - Gera menn óbærilegar kröfur til lögreglunnar? „Það verður að gera miklar kröfur til hennar og við setjum markið hátt. Til þess er einmitt stofnun eins og Lögregluskóli ríkisins og ég held að hann sé ein af þessum stóru forsendum fyrir því, að við getum verið með lögreglu sem er treystandi. Lögreglustarfið þarf að læra og það er afskaplega krefjandi fyrir marga. Menn hætta í lögreglunni vegna þess að þeim finnst álagið of mikið. Þeir þurfa að vera vel að sér um ýmsa þætti þjóðlífsins og vita hvernig beri að bregðast við ólíklegustu og sorglegustu atburðum.“ - Félagar þess lögreglumanns, sem handtók þann unga mann, sem síðar handleggsbrotnaði í snerru í fangageymslu, segja að hann hafi verið reyndur laganna vörður og afskaplega vandaður í alla staði. „Hann hafði verið lengi í lögreglunni, það er rétt. Og aldrei bárust neinar kvartanir undan honum fyrr en þetta á sér stað. Þeir lögreglumenn, sem eiga hlut að máli um síðustu helgi, höfðu sömuleiðis hreinan skjöld. Sé tekið mið af þeim málafjölda, sem lögreglan fæst við, og hvers konar atvik, eru klögumál og kvartanir fáar. “ - Gera umdeild atvik undanfarið lögreglu erfiðara fyrir í starfi? „Ég vona ekki. Lögreglan er ekki öðru vísi gerð en fólk er flest og hún er hluti af þjóðfélaginu. Hún stendurekki utan við það. Það verða menn að skilja. Það er enginn fullkominn. Verði mistök verðum við vitanlega að viðurkenna þau og reyna að bæta úr þeim. En það þýðir ekki að fara fram á, að mál upplýsist sama dag og þau birtast í einhverjum blöðum. Mér virðist það vera krafa, sem sett er fram, en við henni er ekki hægt að verða. Vönduð vinnubrögð fylgja sjaldan slíku hastverki. Það verður að leyfa réttarkerfinu að vinna og gefa því frið til þess. Ella höfum við ekkert réttarkerfi í þessu landi.“ þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.