Tíminn - 10.06.1988, Page 3
Föstudagur 10. júní 1988
Tíminn 3
Enginn fótur fyrir fréttunum:
Rockall verður
ekki ruslakista
Að undanförnu hafa birst fréttir í Fjölmiðlum þess efnis að
breska fyrirtækið Merride and Ailen hafi stungið uppá því
við bresk stjórnvöld að Rockall verði notaður sem
ruslafata fyrir geislavirkan úrgang. Eins og gefur að skilja
gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslensk fiskimið ef
geislavirkur úrgangur kæmist einhverra hluta vegna inn
fyrir fiskveiðilögsögu íslendinga. Líkur á þess háttar slysi
mundu aukast til muna ef Rockall yrði notaður sem
geymslustaður fyrir geislavirkan úrgang.
En nú hafa línur skýrst í þessu
máli. Utanríkisráðuneyti íslands
hefur látið Sendiráð íslands í
London afla upplýsinga hjá breska
utanríkisráðuneytinu um þetta
mál. Hjá breska utanríkisráðu-
neytinu er talið, samkvæmt þessum
upplýsingum, fráleitt að Rockall
verði notaður í þessu skyni. Breska
utanríkisráðuneytið staðfesti ein-
nig við sendiráðið, að NIREX,
sem er stofnun sem hefur það
verkefni að finna heppilegan
geymslustað geislavirkra úrgang-
sefna, telji Rockall ekki heldur
koma til greina sem geymslustað.
Að sögn Helga Ágústssonar hjá
utanríkisráðuneytinu var málið
kannað í Bretlandi vegna frétta-
flutnings í fjölmiðlum, og komist
hafi verið að því að enginn fótur
væri fyrir þessum fréttum. Bretar
hafi aldrei hugsað Rockall sem
geymslustað geislavirks úrgangs.
Kvaðst Helgi ekki vita hvert yrði
farið með þennan geislavirka úr-
gang í framtíðinni. -gs
r
Islensk rannsókn á dánarmeinum bænda:
Bændur eru
langlífari
Bændur eru langlífari og deyja
síður úr flestum tegundum krabba-
meina og hjartasjúkdóma en íslensk-
ir karlar á sama aldri með þjóðinni
almennt. Þetta eru niðurstöður
rannsóknar sem gerð var hjá At-
vinnusjúkdómadeild Vinnueftirlits
ríkisins á dánarmeinum bænda.
Rannsóknin náði til 5923 manna,
sem greiddu til lífeyrissjóðs bænda á
árunum 1977 til 1975. Þar sem fáar
konur voru í þeim hópi, var þeim
sleppt. Rannsóknin var þannig gerð
að athugað var, hvað margir bændur
höfðu dáið á umræddu tímabili og
síðan reiknað út, hvað búast hefði
mátt við mörgum dauðsföllum úr
samsvarandi hópi íslenskra karla
almennt. Niðurstaðan var sú að 286
bændur höfðu dáið, en búast mátti
við 474.
Hópnum var síðan skipt niður
eftir aldri og gerður sams konar
samanburður. Þegar litið er nánar á
einstakar dánarorsakir hinna 286
bænda kemur í ljós, að 87 dóu úr
einhvers konar krabbameini, en bú-
ast mátti við 120. 15 dóu úr lungna-
krabbameini en búast mátti við 28.
11 dóu úr öndunarfærasjúkdómum,
en búast mátti við 23. Úr hjartasjúk-
dómum dóu 106, en búast mátti við
192 og af slysförum, eitrunum og
sjálfsvígum dóu 30, en búast mátti
við 49. Allar þessar niðurstöður eru
tölfræðilega marktækar. Hins vegar
dóu fleiri bændur úr hvítblæði en
vænta mátti eða 7, en búast mátti við
4. Úr krabbameini í húð og vörum
dóu 4 en búast mátti við 2 og 7 dóu
úr krabbameini í heila í stað 6 sem
vænta mátti. Þó svo að þessar niður-
stöður séu ekki tölfræðilega mark-
tækar eru þær samt athyglisverðar
vegna þess að hér gætir sömu til-
hneigingar og í erlendum rannsókn-
um á dánarmeinum bænda.
Langlífi bænda og færri dauðsföll
meðal þeirra eru skýrð á þann veg
að bændur hreyfa sig meira, en
drekka og reykja minna en aðrir
karlar á sama aldri. Færri slys meðal
bænda en annarra karla hérlendis
má ef til vill skýra á þann veg að
samanburður við þjóðina verður
þeim hagstæður vegna tíðra sjóslysa
við íslandsstrendur. Skýringin á auk-
inni tíðni krabbameins í húð og
vörum er skýrð með mikilli útiveru
bænda og kunna útfjólubláir geislar
sólar að vera orsök þess. í niður-
stöðunum kemur einnig fram að sú
bylting sem varð í íslenskum land-
búnaði um miðja öldina, kunni að
breyta miklu í framtíðinni varðandi
dánarmein bænda. - ABÓ
Enn mikil þensla á
vinnumarkaðnum:
Vantar
í 2.900
störf
Atvinnurekendur og sjúkrahúsin
telja sig vanta fólk í um 2.900 störf,
sem bendir til að þensla á vinnu-
markaðnum sé enn svipuð og hún
var vorið 1987. Athyglivert er að
rúmlega helming, 1.500, þessara
starfsmanna vantar til vinnu á Iands-
byggðinni, þar af um 1.000 verka-
karla og verkakonur, hvar af um 750
vantar í fiskvinnsluna. Af þeim 1.400
manns sem vantar til starfa á höfuð-
borgarsvæðinu eru aðeins rúmlega
300 stöður verkafólks og ekkert af
því til fiskvinnslunnar. Á höfuðborg-
arsvæðinu er mestur skortur á sér-
hæfðu starfsfólki, hvar af þörf
sjúkrahúsanna fyrir fleira hjúkrun-
arfólk og annað sérmenntað starfs-
fólk er mest áberandi.
Framangreint er niðurstaða úr
könnun Þjóðhagsstofnunar og
Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráð-
uneytisins á atvinnuhorfum og at-
vinnuástandi sem gerð var í apríl-
mánuði. Könnunin náði til allra
almennra atvinnugreina nema fisk-
veiða, landbúnaðar en ekki opin-
berrar þjónustu nema á sjúkrahús-
unum. Niðurstöðurnar voru svipað-
ar og úr samsvarandi könnun vorið
1987, laus störf þó talin um 300 færri
núna. Mat fýrirtækjanna er að
velta hjá þeim aukist um rúm 2% að
raunvirði frá árinu 1987, sem Þjóð-
hagsstofnun telur nokkru meira en
búast mætti við samkvæmt fyrri spá
hennar um raunbreytingu lands-
framleiðslu á þessu ári. HEI
Með varúð
*skal um vegL
landsins
fara.
Fullur salur af fallegum bílum.
- Verið velkomin í sýningarsal okkar
að Rauðagerði. Alltaf heitt á könnunni.
Einnig sýnum við, um helgar á sama
tíma, í nýja sýningarsainum hjá BSV.
að Óseyri 5, Akureyri.
Helgason hf
Sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Sími: 91 -3 35 60