Tíminn - 10.06.1988, Síða 11
Föstudagur- '10. jurií 1988
Tíniinn 11'
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild:
Lítil skemmtun en
sanngjarn sigur
KR lagði KA með tveimur mörkum gegn engu í Vesturbænum
Baríst um boltann. Það eru þeir Erlingur Kristjánsson og Gunnar Oddsson
sem hér eigast við.
íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild:
Þróttur enn
í neðsta sæti
Þróttarar eru enn í neðsta sæti 2.
deildarinnar og færðust stigi fjær
eftir tap á Sauðárkróki í gærkvöldi.
FH heldur efsta sætinu þrátt fyrir að
eiga leik til góða og Fylkir er enn
sem fyrr í 2. sæti.
Tindastóll vann Prótt í gærkvöldi
með tveimur mörkum gegn engu og
máttu Þróttarar að sögn heima-
manna þakka fyrir að sleppa þó það
vel. Árni Ólason (1-0) og Eyjólfur
Sverrisson (2-1) skoruðu fyrirTinda-
stól en Sverrir Pétursson (1-1) svar-
aði fyrir Þrótt. Á Kópavogsvelli
máttu heimamenn sætta sig við tap
fyrir Siglfirðingum, 2-3. Steve Rutt-
er og Hafþór Kolbeinsson (2) gerðu
mörk KS en Ingvaldur Gústafsson
og Helgi Bentsson skoruðu mörk
Breiðabliks.
Á Selfossi skildu heimamenn og
Árbæingar jafnir, hvort lið gerði 2
mörk. Guðmundur Magnússon
gerði bæði mörk Selfyssinga og Örn
Valdimarsson skoraði tvisvar fyrir
Fylki. Loks vann ÍR Víði 2-0 á
Valbjarnarvellinum og fengust þær
upplýsingar þar á bæ að þeir Magnús
og Hallur hefðu gert mörkin. Leik
FH og ÍBV var frestað en í Eyjum
hefur verið svartaþoka síðan í fyrra-
dag.
Staðan í 2. deild:
FH ..................3 3 0 0 8-2 9
Fylkir...............4 2 2 0 9-6 8
KS................. 4 2 1 1 10-9 7
ÍR...................4 2 1 1 7-6 7
UBK .................4 1 1 2 8-8 4
Víðir................4 1 1 2 5-5 4
Tindastóll.......... 4 2 0 2 8-10 6
1. deild kvenna:
Jafntefli
íslandsmeistarar (A og bikar-
meistarar Vals kepptu í gærkvöldi í
1. deild kvenna á Islandsmótinu í
knattspyrnu. Lauk leiknum með
markalausu jafntefli, 0-0. -HÁ
Selfoss .
lBV . . . .
Þróttur
.4 0 3 1 7-9 3
.3 1 0 2 6-8 3
4 0 1 3 7-11 1
-HÁ
KR-ingar unnu sanngjarnan sigur
á KA-mönnum á heimavelli sínum
við Frostaskjól í gærkvöldi. Lokatöl-
ur urðu 2-0 og komu mörkin sitt í
hvorum hálfleik.
KR-ingar hófu leikinn af mun
meiri krafti en gestirnir og fór leikur-
inn að mestu fram á vallarhelmingi
KA framanaf. KR fékk fljótlega
gott færi þegar Erlingur Kristjánsson
varnarmaður KA missti knöttinn frá
sér en Ágúst Már Jónsson skaut rétt
yfir. Fátt markvert gerðist fyrr en á
26. mín. þegar KA-menn áttu sitt
eina færi í hálfleiknum. Bjarni Jóns-
son fékk þá góða sendingu og skaut
í boga yfir Stefán í markinu en
knötturinn hafnaði í markslánni.
KA-menn sóttu heldur í sig veðrið
en þegar ellefu mínútur voru til hlés
kom mark KR, vægast sagt óvænt.
Fyrirgjöf sem virtist hættulítil kom
fyrir mark KA, Haukur sló knöttinn
í slá þaðan sem hann barst aftur út í
markteiginn. Þar var Willum Þórs-
son og skallaði laust í slá og inn.
Þetta mark var mjög klaufalegt bæði
hjá Hauki markverði og vörn KA.
Pétur Pétursson komst einn gegn-
um vörn KR rétt fyrir hlé og átti
aðeins markvörðinn eftir en Haukur
bjargaði vel með úthlaupi.
Síðari hálfleikur var naumast byrj-
aður þegar Gunnar Oddsson tók
aukaspyrnu og þrumaði upp í hægra
hornið án þess að Haukur kæmi
vörnum við, 2-0. Rúnar tók góða
rispu nokkru síðar en Erlingur bjarg-
aði á línu og Valgeir Barðason átti
síðara færi KA þegar hann skaut
framhjá einn á móti markverði eftir
góða sendingu frá Anthony. Loks
skaut Björn Rafnsson beint á Hauk
úr góðu færi rétt undir lokin og eru
þá upp talin færin í þessum leik.
Sigur KR-inga var sanngjarn en
varla er hægt að segja að þessi leikur
hafi verið áhorfendum mikil
skemmtun í þokunni í vesturbænum.
Mörk KR: Willum Þór Þórsson 34., Gunnar
Oddsson 48.
Gult spjald: Willum Þór Þórsson KR 78.
Lid KR: Stefán Arnarson, Rúnar Kristins-
son, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, Þorsteinn
Guðjónsson, Willum Þór Þórsson, Jósteinn
Einarsson, Ágúst Már Jónsson, Bjöm
Rafnsson, Pétur Pótursson, Gunnar Oddsson,
Þorsteinn Halldórsson. Lið KA: Haukur
Bragason, örn Viðar Arnarson (Ágúst Sig-
urðsson 81.), Gauti Laxdal, Jón Kristjánsson,
Erlingur Kristjánsson, Þorvaldur örlygsson,
Bjarni Jónsson, Valgeir Barðason, Stefán
ólafsson (Friðfinnur Hermannsson 55.), An-
thony Karl Gregory, Arnar Freyr Jónsson.
Dómari: Guðmundur Maríasson.
-HÁ
Frjálsar íþróttir:
Bubka bætti
heimsmetið
Sovétmaðurinn Sergei Bubka
bætti eigið heimsmet í stangarstökki
um 2 cm á frjálsíþróttamóti í Brati-
slava í Tékkóslóvakíu í gær. Bubka
stökk 6,05 metra en fyrra met hans
var 6,03 m. Árangrinum náði Bubka
á fyrsta Grand Prix móti ársins og er
þetta í áttunda sinn sem hann bætið
heimsmetið í greininni. Bubka fór
léttilega yfir rána í fyrstu tilraun.
-HÁ/Reuter
MERKJASALA
Bílbeltin
hafa bjargað
FJAROFLUN 10. OG11. JUNI1988
FYRIR ENDURHÆFINGARSTÖÐ HJARTASJÚKUNGA
LANDSSAMTÖK H|ARTAS|ÚKUNGA
HAFÍXrHÚSINU v/TRYGGVAGOTU - PÓSTHÓLF 830-121 REYKJAVlK - SlMI 25744
GÍRÓSEÐLA MÁ FÁ í BÖNKUM FYRIR ÞÁ SEM VIUA STYRKJA GOTT MÁLEFNI
Staðan 11. deild
KR 3 1 0 10-3 10
Fram 3 1 0 6-1 10
ÍA 2 2 0 4-2 8
KA 3 2 0 1 3-3 6
ÍBK 4 1 1 2 6-7 4
Valur 1 1 2 3-3 4
Víkingur... 1 1 2 4-7 4
Leiftur .... 0 3 1 2-3 3
Þór 0 2 1 2-3 2
Völsungur . 0 0 4 3-11 0
Evropukeppnin i knattspyrnu hefst í V-Þyskalandi i kvöld:
Dagskrá keppninnar
Le»i kdagur Riðill 1 ’Riðill 2
V—Þýska1and Italia Oanmörk Spánn Eng1and lr larid Ho11and Sovútrikin
F'ös tudagur 10. j úni V- Þýsl n ! and 'ltal la 18>$5
Laugardaqur 11. júni. Danmörk-Spánn 13.30
Sunnudagur 12. júni Eng 1 arid-'lr 1 and 13.30 Ho 11 arid-Sovétrl 1 í.n 18.15
Þr.ið judagur 14. júní V—Þyskal artd Danmörk 15.15 '1 ta 11 a-Spánn 18.15
Miðvikudagur 15. júni England-Holland 15.15 'I r 1 and-Sovétr i k in 1.8.15
Föstudagur 17. júnl V-Þyska1and —Spánn 18.15 'ltal ia-Danmörk 18. J 5
Laugardagur 18. júril England—Sovétrikin 13.30 'I r 1 and-Ho 11 and 13.30
Þriðjudagur 21. júni Undanúrslit, sigLtrvegari i 1. riðli gegn 2. sœti i 2. riðli. K1. 18.15
Miðvikudagur 22. júnl Undanúrsl it, sigurvegari i 2. riðli gegn 2. sieti. i 1. riðli. K1. 18.15
Laugardagur 25. júnl Urslitaleikur, sigurvegarar úr undanúrslitaleikjum keppa í Munchen kl. 13.30
J