Tíminn - 10.06.1988, Síða 12
12 Tíminn
Föstudagur 10. júní 1988'
FRÉTTAYFIRLIT
JÓHANNESARBORG-
Mikil spenna ríkir þar sem
hersveitir Suður-Afríku og
Kúbu fylkja liði í runnunum sitt
hvorum megin við landamæri
Angólu og Namibíu.
ISLAMABAD - Zia-UI-Haq
forseti Pakistans birti ráðherra-
lista i nýrri ríkisstjórn sem mun
tryggja völd forsetans í bráð.
Fyrrum utanríkisráðherra Pak-
istans, Noorani, var settur af
og sagði hann það vera vegna
ágreinings við Zia vegna Genf-
arsamkomulagsins um málefni
Afganistans.
GENF - Svissneska lögregl-
an hafði hendur í hári eins
morðinqja fyrrum forsætisráð-
herra Italíu, Aldos Moros.
Maðurinn var einn af þeim er
rændu Aldo Moro árið 1978 og
drápu hann og fimm lífverði
hans.
Frakklandsforseli varaði við
því að hægri menn gætu aftur
komist til valda ef vinstrisinnar
skiluðu sér ekki á kjörstað í
síðari umferð frönsku þing-
kosninganna sem fram fer á
sunnudag.
MANAGVA - Ríkisstjórn
Sandinista og leiðtogar
Kontraskæruliða hófu síðasta
dag friðarviðræðna með því
að segja að viðræðurnar um
að binda enda á borgarastyrj-
öldina í landinu væru nú á
úrslitapunkti.
MOSKVA - Soyuz geimfar
með einn Búlgara og tvo
Sovétmenn innanborðs tengd-
ist geimstöðinni MIR án nokk-
urra erfiðleika.
MOSKVA " - Þúsundir
manna tóku þátt í mótmæla-
fundum í Jerevan höfuðborg
Armeníu til að leggja áherslu á
kröfur um að landsvæði sem
áður tilheyrðu Armeníu yrðu
sameinuð lýðveldinu á ný.
WASHINGTON - Heimur-
inn getur að öllum líkindum
brauðfætt allt að 10 milljarða
manna, tvisvar fleiri en í dag
gista jarðríki, þrátt fyrir að nu
sé matarskortur víða um heim.
GIZA, EGYPTALANDI - Eg-
yptar hafa nú ásamt erlendum
sérfræðingum hafið varnar-
starf gegn skemmdum sem
orðið hafa á Sfinxum sem stað-
ið hafa vörð um Giza pýramíd-
ana utan við Kaíró í 4600 ár.
WASHINGTON - Hnefa-
leikakappinn Muhammad Ali,
sem var farinn að tala sem
hrumur öldungur vegna tíðra
höfuðhögga er hann fékk á
ferli sínum, getur nú látið móð-
an mása af þeim unggæðings-
hætti sem einkenndi þennan
kappa forðum. Þökk sé nýju
lyfi sem brúkað ergegn Parkin-
sonsveiki.
Illllllllllllll
ÚTLÖND
Arabaríkin standa nú einhuga að baki Palestínumönnum og leggja megin-
áherslu á að Palestínuríki verði stofnað. Eining Palestínumanna er ekki alveg
sú sama því þeir berjast nú innbyrðis í Beirút.
Mannréttindi í Sovétríkjunum að glæðast:
hugar uppreisn
Palestínumanna
Krímtatarar fá
að flytja heim
Sovéskir tatarar geta nú
glaðst yfír því að hafa náð
langþráðu marki sem þeir
hafa barist fyrir í áratugi.
Þeir fá nú leyfí til þess að
flytjast búferlum til fyrri
heimkynna sinna á Krím-
skaga, en þaðan voru tvö-
hundruð þúsund tatarar
fluttir á stríðsárunum þar
sem þeir voru grunaðir um
að eiga samstarf við heri
öxulveldanna í stríðinu.
Sovéska fréttastofan Tass
skýrði frá þessu í gær.
Ákvörðun þessi ku hafa verið
tekin af sérstakri nefnd undir for-
sæti Andreis Gromykos forseta
Sovétríkjanna, sem sett var á fót til
að kanna hagi Krímtatara eftir að
sjöhundruð tatarar tóku sér mót-
mælastöðu á Rauða torginu í júlí-
mánuði síðastliðnum og kröfðust
þess að mál þeirra yrðu tekin fyrir
og að þeir fengju að flytja til sinna
fyrri heimkynna.
Nefndarskipan sem þessi hefði
verið óhugsandi á Brjesneftíman-
um og ennþá síður hefði þá mátt
búast við að kröfum tataranna
hefði verið sinnt á þennan máta á
þeim tíma. Þetta er því tímamóta-
ákvörðun sem tengist umbóta-
stefnu Gorbatsjovs og má skoða
sem viðleitni til að auka mannrétt-
indi í Sovétríkjunum, en manrétt-
indi voru ofarlega á baugi á leið-
togafundinum í Moskvu á dögun-
um.
Þó Krímtatarar fái leyfi til að
snúa aftur til Krímskaga, þá hafn-
aði nefndin algjörlega kröfum sem
ýmsir hinna róttækustu í hópi
Þau geta glaðst þessi gömlu Krímtatarahjón sem flutt voru nauðug frá
heimkynnum sínum á Krímskaga, því nú hafa sovésk stjórnvöld geflð
Krímtöturum leyfl að flytja á gamlar slóðir.
Krímtatara hafa sett fram um að
endurreist verði Sovétlýðveldi á
Krímskaga, en það var innlimað í
Úkraínu árið 1954.
Á sínum tíma voru tatarar sviptir
pólitískum réttindum, en fengu
þau á ný árið 1967. Hins vegar
hefur þeim ætíð verið meinað að
setjast að í fyrri heimkynnum sín-
um þar til nú.
Her Úganda
myrti 190
kúarektora
Hermenn í her Úganda og her-
skáir menn úr ættflokk Karamajong
myrtu 190 kenýska kúarektora í
norðausturhluta Úganda í síðustu
viku. Hinir kenýsku kúasmalar
höfðu haldið yfir landamærin til
Úganda með kúahjarðir sínar, eins
og þeir hafa gert svo lengi sem elstu
menn muna. Þessu vildu Úganda-
menn ekki una að þessu sinni og
gripu því til sinna ráða. í yfirlýsingu
stjórnvalda í Úganda þar sem til-
kynnt var um morðin sagði að Kar-
amajongmenn hefðu endurheimt
hóp stolinna nautgripa úr greipum
hinna kenýsku kúarektora.
Kúarektorar á þessum slóðum
hafa rekið nautgripahjarðir sínar
fram og aftur um landamæri Kenýa,
Úganda og Súdan mun lengur en
menn muna, enda voru landamærin
fundin út af nýlenduherrum með
pennastriki á herráðskorti, en þau
hafa aldrei tekið mið af búsetu
ættbálka né lifnaðarháttum þeirra.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAMAÐU
Leiötogar arabaríkja grafa fyrri ágreining
um afstöðu til PLO:
Styðja heilS'
Nýjung í þýskum umferðarmálum:
Kossabílastæði
Sérstök kossabílastæði er það ný-
jasta nýtt í umferðarmálum í Þýska-
landi. Það eru borgaryfirvöld í
Múnchen sem hafa tekið upp þá
nýjunga að taka frá ákveðin stæði
við neðanjarðarlestastöðvar svo ást-
fangið fólk geti kysst hvort annað
kveðjukoss í friði án þess að stöðva
alla bílaumferð. Borgaryfirvöld von-
ast til þess að með þessu sérstæða
framtaki muni umferð við neðan-
jarðarstöðvar ganga greiðar en nú
er, en umferðaröngþveiti hefur verið
fastur fylgifiskur neðanjarðarlesta-
stöðva í borginni. Hefur þá sérstak-
lega borið á því að ástfangin pör
hafa stöðvað alla umferð á meðan á
löngum, djúpum kveðjukossi hefur
staðið.
Leiðtogar araba hafa nú grafið
fyrri ágreining sinn í afstöðunni til
Frelsissamtaka Palestínumanna og
standa nú einhuga að baki sam-
tökunum og hyggjast gera allt sitt til
að koma á fót Palestínuríki. Það
gefur því augaleið að arabaríkin
styðja heilshugar uppreisn Pales-
tínumanna á hernumdu svæðunum
sem nú hefur staðið í hálft ár og
kostað að minnsta kosti 230 manns
lífið. Síðast í gær skutu ísraelskir
hermenn ungan Palestínumann til
bana og særðu þrjá.
Þó leiðtogar arabaríkja hafi
ákveðið að styðja heilshugar við
bakið á Palestínumönnum þá eru
Palestínumenn sjálfir ekki eins ein-
huga. í gær brutust út hörð átök milli
ólíkra fylkinga í Bourj Al-Barajh-
neh flóttamannabúðunum í Beirút,
en þar hafast ættjarðarlausir Pales-
tfnumenn nú við. Mátti heyra skot-
hríð og sprengigný frá búðunum, en
ekki er vitað um mannfall.
Átökin urðu á milli skæruliða
PLO og fyrrum félaga þeirra er kalla
sig Abu Musa og eru sérlega hlið-
hollir Sýrlendingum. Reyndar hefur
Palestínumönnum í þessum búðum
komið heldur illa saman að undan-
förnu því þetta er í fimmta sinn á
rúmum mánuði sem þeim lendir svo
harkalega saman.