Tíminn - 10.06.1988, Qupperneq 14
14 Tíminn
Réttó Réttó Réttó Réttó Réttó
Árgangur ‘62
Munið hófið í Víkingsheimilinu
laugardaginn 11. júní.
Mæting helst klukkan 18.00.
Allt gamla gengið mætir
Stefán 681382/35261
Olga 611694
Ingibjörg 671890
: ’b ÖÐ A "r A FgTrÐ IN G A r' 1
Til afgreiðslu strax - Mikið úrval
FLATAHRAUNI 29
220 HAFNARFIRÐI.
S-91. 651800
Ath. broytt heimilistang
^Búvélar frá Boða — Boði hf. — Betri þjónusta i
Hafið samband við
sölumenn okkar
Kaupfélagsstjóri -
Framkvæmdastjóri
Starf kaupfélagsstjóra Kaupfélags Húnvetninga
og framkvæmdastjóra Sölufélags Austur-Hún-
vetninga er laust til umsóknar.
Nánari upplýsingar gefur Árni S. Jóhannsson í
síma 95-4200 og stjórnarformenn félaganna.
Umsóknir skal senda til Björns Magnússonar,
Hólabaki, Austur-Húnavatnssýslu sfmi 95-4473
stjórnarformanns K.H. eöa Magnúsar Ólafssonar,
Sveinsstöðum, Austur-Húnavatnssýslu sími 95-
4495 stjórnarformanns S.A.H.
Umsóknarfrestur er til 27. júní 1988.
Kaupfélag Húnvetninga
Sölufélag Austur-Húnvetninga.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur verður lokað frá kl.
13.00, e.h., föstudaginn 10. júní 1988 vegna
útfarar fyrrverandi framkvæmdastjóra Gunnars J.
Möllers, hrl.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
Föstudagur 10. juní' 1988
MINNING
llllllllll
lllllll
Jón Guðjónsson
í taumi sem hann sleppti ekki venju
fremur og í fallinu hafði hesturinn
kippt honum úr liðnum.
Engin blótsyrði féllu né æðruorð.
Jón fór í jeppann og var ekið til
Þingeyrar. Það var ekki auðvelt að
koma jafn hraustum manni í axlar-
liðinn og öxlin bólgin og voru honum
gefin verkjalyf m.a. til þess að fá
vöðvana til að slaka á. Þegar búið
var að koma honum í axlarliðinn um
þremur klukkutímúm eftir að hann
var kominn á læknastofuna lét
læknirinn þau orð falla, að hann
svæfi örugglega til hádegis. Ég svaf
í tjaldi á Söndum og hafði lítið sofið
þegar Jón var þar mættur kl. 8 um
morguninn til að ræða það við mig
að hann gæti ekki gegnt löggæslu-
störfum um kvöldið á dansleik hesta-
manna. Ég sagði Jóni að ef við
þegðum yfir því, að hann hefði farið
úr axlarliðnum væri þetta í lagi, því
það væri nóg ef hann léti sjá sig í
fullum skrúða. Engum dytti í hug að
hrófla við honum. Jón efaði það.
Auðvitað hefði Jón ekki þurft að
koma til mín og segja mér að
nýfarinn úr axlarliðnum gæti hann
ekki gegnt löggæslustörfum. Það var
of sjálfsagt. Þrátt fyrir lyfjagjöfina
hafði Jón ekki getað sofið lengur og
því komið út eftir.
Jón tók virkan þátt í félagsmálum.
Hann var formaður HVÍ, formaður
Hestamannafélagsins Storms og
Verkalýðsfélagsins Skjaldar. Ýmis
önnur afskipti hafði hann af félags-
málum. Jón safnaði ekki auði sem
mölur og ryð grandar, en með lífs-
hlaupi sínu auðgaði hann líf sam-
ferðamanna.
Far vel vinur.
Ólafur Þ. Þórðarson.
Húsmæðraskólinn Ósk, ísafírði.
Fæddur 7. aprfl 1934
Dáinn 25. maí 1988
Þegar mér voru sögð tíðindin af
slysinu á Dagverðardalnum leitaði á
hug minn erindi úr kvæði Matthíasar
Jochumsonar um börnin frá
Hvammskoti:
Eitt sá tómt helstríð
en hjálpaðist af.
Hin sáu guðsdýrð
en hárust í kaf.
Þrjú börn voru á leið heim til sín
frá spurningum er tvö þeirra drukkn-
uðu í Kópavogslæknum, en eitt
komst af. Lífssýn Matthíasar var svo
sterk að það, að halda á guðs síns
fund var ekki erfitt heldur hitt að
s’tanda eftir á bakka móðunnar
miklu, landamærum lífs og dauða og
sjá eftir ástvinunum var hið erfiða
hlutskipti. Þannig veit ég að vinur
minn Jón Guðjónsson skynjaði
einnig hlutina.
Margréti og börnunum votta ég
mína dýpstu samúð en veit að algóð-
ur guð styrkir þau á erfiðri stundu.
Jón Guðjónsson frá Veðrará er
eitthvert það víllausasta karlmenni
sem ég hef kynnst um dagana.
Líkamlegt þrek umfram aðra menn
var honum gefið en þó miklu fremur
æðruleysi þess hugarstyrks sem gerði
honum kleift að taka því sem að
höndum bar án þess að fárast yfir
hlutunum eða gefast upp. Ætt sína
rakti hann ekki til Egils Skallagríms-
sonar heldur til Hafliða Mássonar,
en hampaði ekki í mín eyru öðrum
forfeðrum sínum.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast Jóni og lífsviðhorfum
hans. Margar stundir áttum vic
saman. Mig langar að staldra við hjí
vörðubroti einnar minningar. Þac
var sumarnótt við Dýrafjörð. Hesta
mannamót á Söndum daginn eftir
Við Gemlufall járnuðum við hest oj
hugðumst svo halda áfram för okkai
fyrir Dýrafjörð. Jón hafði hesta-
skipti og fór á bak hesti sem jós um
leið og hann sté í hnakkinn. Éj
hafði varað hann við með þeim
orðum að lyfti stundum rassi. Þetta
gerðist svo snöggt að Jón féll við.
Hann stóð hægt upp fór ekki á bak
en kvaðst slæmur í öxlinni. Ég fór ai
baki og bað hann að gera ákveðna
æfingu með hendinni sem hann og
gerði. Kvalalaust sá ég að það var
ekki og eftir á að hyggja er mér
óskiljanlegt hvernig Jón gat gert
æfinguna. Hann hafði farið úr axlar-
liðnum. Hann hafði verið með hesl
Húsmæðraskólinn
Ósk 75 ára
Húsmæðraskólinn Ósk á ísafirði
varð 75 ára s.l. haust. Þeirra tíma-
móta var minnst með miklum hátíð-
arhöldum vestra í maí s.l. Að sögn
Elsu Bjartmarz skólastjóra var hóf í
skólanum föstudaginn 27. maí þar
sem gamlir kennarar, bæjarstjórn
Isafjarðar og aðrir gestir voru saman
komnir. Skólinn fékk svo til afnota
íþróttahúsið í Bolungarvík þar sem
afmælisgestir, hátt á fimmta hundrað
gamalla nemenda skólans komu
saman og skemmtu sér við endurnýj-
un gamalla kynna, söng og tónlist.
Aðal hvatamaður að stofnun skól-
ans fyrir 75 árum var frú Kamilla
Torfason, kona MagnúsarTorfason-
ar bæjarfógeta, sem þá var á ísafirði
og mun hún hafa verið fyrst íslenskra
kvenna til að taka stúdentspróf.
Allar götur síðan hefur skólinn verið
vel sóttur af stúlkum víða af landinu
og margar þeirra ílengst á ísafirði.
Lengst af hefur frú Þorbjörg Bjarna-
dóttir verið skólastjóri, eða um
fjörutíu ára skeið. Þá hefur einnig
Guðrún Vigfúsdóttir vefnaðarkenn-
ari kennt við skólann yfir fjörutíu ár
og starfar hún enn við hann.
í tengslum við afmælið hafa
nokkrir gamlir nemendur staðið fyrir
útgáfu afmælisrits og fengu til liðs
við sig þá Pál Ásgeir Ásgeirsson og
Pál Arnarson. Aðal uppistaða ritsins
eru gamlar myndir og viðtöl við eldri
nemendur skólans.
Elsa sagði ennfremur að fyrirhug-
að væri að gefa út sögu skólans frá
1962, en það ár er skólinn var 50 ára
kom út saga hans frá upphafi. -BD