Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 19
'ci.i ,'jí "i:ocbu!e.c-, ' a»
Föstudagur 10. júní 1988 Tíminn 19
Hin skapmikla og illkvittna Alexis
í Ættarveldinu hefur svo sannarlega
haft sín áhrif á búskap í Noregi. f
bændablaðinu norska kemur nýlega
fram, að hvorki fleiri né færri en 267
norskar mjólkurkýr heita Alexis.
Pess má líka geta að 144 heita
Krystle.
Listinn í norska bændablaðinu er
eflaust hin merkilegasta lesning fyrir
fræðinga, því af aldri kúnna og
nöfnum má fylgjast harla vel með
sjónvarpsdagskrá undnfarinna ára
hjá frændum okkar.
Stöllurnar Krystle og Alexis eiga margar nöfnur í Noregi, Alexis þó öllu fleiri,
einkum skapmiklar mjólkurkýr.
Apakattarstrik
Michaels
Stacy Keach leikur Ernest Heming-
way í afar vönduðum og tilkomum-
iklum sjónvarpsþáttum um ævi
Hemingways.
Golf er erfiðari íþrótt en hún lítur út fyrir að vera og margir
golfleikarar em sjálfsagt slegnir út af laginu áður en þeir nálgast 10.
og 11. holu. En sumir láta sér aldrei segjast!
Lífiðerekkertgrín
við10. ogll.holu
Hjónin Frank og Ann-Marie
Klouda gætu átt hið friðsælasta
líf ásamt fjölskyldu sinni í á
fallega bóndabænum sínum í
grennd við Strömstad í Svíþjóð
ef þau ættu ekki þennan erfiða
nágranna.
Golfvöllur er í næsta nágrenni
við bæinn og rétt hjá húsinu
þeirra eru einmitt holur nr. 10 og
11. Þaðan stafa vandræðin og á
síðasta ári voru þau skrásett
svona:
• Sex sinnum var brotin rúða
í svefnherberginu!
• Sjö sinnum brotnaði rúða í
stofunni!
0 Sjö sinnum voru golfboltar
slegnir ofan í barnavagninn hjá
yngsta syni þeirra hjóna!
0 Þrjú eldri börnin sögðu for-
eldrum sínum frá því 18 sinnum
að þau hefðu orðið fyrir golfkúlu-
skoti!
• Fjölskyldubíllinn ber þrjár
dældir til vitnis um skothríðina
frá golfvellinum!
• Á forhlið timburhúss þeirra
má sjá 12 djúp för eftir villuráf-
andi golfkúlur!
0 600 kúlur mátti fjölskyldan
tína upp í ávaxtagarðinum!
0 Búpeningurinn gefur sí og
æ frá sér óhugnanleg hræðslu-
hljóð. Ekki hefur tekist að kasta
tölu á hversu oft dýrin hafa orðið
að skotspæni óhittinna golf-
leikara!
Þrátt fyrir þessa óskemmtilegu
reynslu fjölskyldunnar leggur
Frank Klouda áherslu á að hann
hafi sjálfur mikla ánægju af því
að leika golf. „En mér er illa við
golfleikara sem ekki kunna að
leika golf,“ segir hann.
Fjölskylduna langar helst til að
fara í hvarf núna þegar ný golf-
vertíð er hafin.
Alexis og kýrnar
aðeins péturssporið í hökunni var i
skapað í síðari aðgerðinni. Michael j
aftekur með öllu, að hafa látið i
breyta á sér vörunum eða lýsa húð- |
ina.
Ein lítil saga að lokum: Nýlega j
þáði Michael dýrindis kvöldmáltíð
hjá Yoko Ono og syni hennar, Sean.
Eftir matinn gerði gesturinn sér lítið
fyrir og bauð matsveini Yoko hærri
laun en hann hafði þar, fyrir að
koma og elda ofan í sig. Yoko og
Sean eru öskuvond.
Undanfarna mánuði hafa æ fleiri
farið að efast um geðheilsu Michaels
Jackson og lái þeim hver sem vill.
Nýjasta uppátæki hans er að læra
apamál, til að geta talað við besta
vin sinn, simpansann Bubbles. Mic-
hael hefur látið það út ganga, að
hann sé reiðubúinn að greiða apa-
málskennaranum sínum allt að 40
milljónir króna, ef hann geti gert sig
skiljanlegan við Bubbles.
Til að koma í veg fyrir allan
misskilning, þá er það apinn
Bubbles, sem sést á meðfylgjandi
mynd, með plötuumslag Jacksons
milli handanna, ekki öfugt.
Alheimur veit, að nýkomin er út
sjálfsævisaga Jacksons, „Moon-
walk.“ Þar fullyrðir hann án þess að
blikna, að hann hafi aðeins tvisvar
látið gera á sér aðgerð til að breyta
útlitinu. Að vísu tínir hann ekki til,
hverju var breytt í fyrra skiptið, en
Keach leikur
Hemingway
Frumsýning sjónvarpsþátta um
líf og störf rithöfundarins Ernest
Hemingway er á næstu grösum í
Bandaríkjunum. f aðalhlutverkinu
er Stacy Keach, sem við þekkjum
sem Mistral í „Dóttur málarans“ og
spæjarann Mike Hammer.
Keach þykir hæfa einkar vel sem
Hemingway þar sem hann getur
leikið harðjaxl og viðkvæma sál
samtímis. Þættirnir eru mikið fyrir-
tæki og veita honum frábært tækifæri
til að sanna hæfileika sína. Áhorf-
endur geta líka notið ægifagurs
landslags í þremur heimsálfum.
-Ég hef leikið í nokkrum ævisög-
um, en Hemingway er sú viðamesta
þeirra allra, segir Keach. -Þetta
hefur verið erfitt, en afskaplega
skeipmtilegt.
Keach var valinn í hlutverkið
vegna hæfileika sinna, reynslu og
ekki síst hversu líkur hann er Hem-
ingway í útliti. Meðleikarar hans eru
Marisa Berenson, Josephine
Chaplin, Lisa Banes og Pamela
Reid.
Þættirnir kostuðu nær 700 milljón-
ir króna í framleiðslu, en þeir pen-
tngar munu fljótlega skila sér, því
sjónvarpsstöðvar kváðu standa í
röðum til að kaupa þættina. Svo er
bara að vona, að önnur hvor okkar
stöðva sé í röðunum.
Hemingway varð frægur um 25 ára
aldur og hefur skrifað mörg af helstu
bókmenntaverkum Bandaríkjanna.
Nefna má „Vopnin kvödd“,„Hverj-
um klukkan glymur" og „Gamli
maðurinn og hafið“. Líf hans var
goðsögn, svo mikilfenglegt og öfga-
kennt var það að öllu leyti. Heming-
way var heimshornaflakkari og í eðli
sínu einsetumaður. Hann tók þátt í
styrjöldum og daðraði beinlínis við
hætturnar. Hann var fjórkvæntur og
konur hans þurftu svo sannarlega
ekki að kvarta yfir tilbreytingarlausri
tilveru.
Um Hemingway segir Stacy
Keach: -Þessi maður naut ekki
þeirrar ástúðar, sem hann þarfnaðist
og átti rétt á frá fjölskyldu sinni,
allra síst móðurinni og það hafði alla
tíð áhrif á ástalíf hans. Hemingway
leitaði alltaf þeirrar einu konu, sem
gæti séð um hann. Hann var ekki
kvennamaður, heldur vildi hann að
konur flekuðu sig.