Tíminn - 10.06.1988, Side 11
HELGIN
11
\MAL SAKAMÁL SA
mynd um, var að meinafræðingar
áttu ekki í neinum erfiðleikum með
að sjá, að áverkarnir á líki Myru
höfðu verið veittir eftir að hún lést.
Þá var eftir að ganga úr skugga
um, hvernig hann hafði flutt líkið til
tjarnarinnar. Hann hlaut að hafa
notað bíl, en greinilega ekki sinn
eigin. Þess vegna hlaut hann að hafa
fengið lánaðan bfl, tekið hann á
leigu eða hreinlega stolið honum.
Singleton fór yfir lista yfir bíla,
sem stolið hafði verið frá sunnudeg-
inum 2. ágúst. Pað var stuttur listi,
aðeins þrír bílar og meðal þeirra var
grár sendiferðabíll, sem Singleton
fékk sérstakan áhuga á, því kona ein
kvaðst hafa séð gráan sendiferðabíl
við tjörnina, aðfaranótt 3. ágúst.
Samkvæmt lögregluskýrslu hafði
bílnum verið stolið utan við hús
eigandans, sem bjó skammt frá
heimili Poynters. Bíllinn fannst svo
daginn eftir, tæpum kílómetra fjær.
Singleton fór heim til bíleigand-
ans, Brians Dawson, til að vita,
hvort hægt væri að ganga úr skugga
um, hve langa vegalengd bílnum
hefði verið ekið, meðan hann var
týndur. Dawson hélt ekki bókhald
yfir slíkt, en gat skýrt frá, að bíllinn
hefði verið nær bensínlaus, þegar
honum var stolið, en þegar hann
fannst, var hann tæplega hálfur.
Af þessu varð séð, að þjófurinn
hlaut að hafa keypt bensín um
nóttina og eini staðurinn, sem slíkt
var hægt á, var í hálfs annars kíló-
metra fjarlægð.
Grár sendibíll
Bíllinn var dreginn til rannsóknar-
stofu lögreglunnar og þar tóku
tæknimenn við honum. Á meðan
ræddi Singleton við manninn, sem
verið hafði á vakt á bensínstöðinni
umrætt kvöld.
Maðurinn mundi mætavel eftir
manni á gráum sendiferðabíl, sem
keypt hafði bensín um nóttina. Hann
mundi ekki gjörla útlit mannsins, en
hann hafði verið með hanska.
í bílnum fundu tæknimenn örlitlar
blóðleifar, sem við nánari rannsókn
reyndust vera úr sama flokki og blóð
Myru Poynter.
Þá var bara eftir að finna staðinn,
sem Vincent Poynter hafði geymt
líkið á, áður en hann ók því að
tjörninni.
Lögreglan reiknaði út, að bílþjóf-
urinn hefði eytt um það bil fjórum
lítrum af bensíni á ferð sinni og þar
af leiðandi hafði hann haldið sig í
grenndinni, eða innan átta kílómetra
geisla. En í hvaða átt hafði hann
ekið? Hann hafði farið um bensín-
stöðina og þar með var líklegt að
hann hefði haldið áfram eftir þjóð-
veginum, en síðan beygt inn á ein-
hvern afleggjara hans seinna.
Ný tjara á hjólbörðunum gat af-
markað svæðið enn nánar. Eini veg-
arspottinn sem ný klæðning Hafði
verið lögð á síðustu daga, lá gegn um
smáþorpið Three Oaks, fimm kíló-
metra frá bensínstöðinni.
Hringurinn þrengist
Daginn eftir fór hópur lögreglu-
og tæknimanna til Three Oaks. í
gamalli vöruskemmu þar Tannst
sokkur ... og nýjar blóðleifar, sem
einnig voru af sama flokki og blóð
Myru.
Allt benti til að Vincent Poynter
hefði myrt konu sína í vöruskemm-
unni og síðan haft fataskipti. í
flýtinum hafði hann þó skilið eftir
sokk, sem reyndust örlagarík
mistök.
Föstudagskvöldið 28. ágúst var
Poynter handtekinn. Ekki var að sjá
á honum minnstu merki um geðs-
hræringu, þegar hann var leiddur
inn á stöðina. Lögreglan gerði hús-
leit hjá honum, í leit að sokknum á
móti hinum, en fann aðeins hrein
föt.
Á bíl Poynters fundust ^einnig
merki um nýja tjöru, sem benti til að
hann hefði ekið til Three Oaks, í
seinustu ökuferð Myru.
Vincent Poynter harðneitaði
þessu öllu og sakaði lögregluna um
að hafa komið „sönnunargögnun-
um“ fyrir, þegar henni tókst ekki að
hafa uppi á réttum morðingja.
Fyrir réttinum var hins vegar kom-
ið annað hljóð í strokkinn. Poynter
hefur líklega farið að ráðum lögfræð-
ings síns, þegar hann játaði sig þar
sekan af ákærunni.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í sorptunnur úr plasti.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verðaopnuðásamastaðfimmtudaginn 7. júlí n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Verkakvennafélagið Framsókn
Verkamannafélagið Dagsbrún
tilkynnir helgarvinnubann
í fiskverkun og fiskvinnslu á félagssvæði félag-
anna frá 15. júní til 1. september 1988.
Verkakvennafélagið Framsókn
Verkamannafélagið Dagsbrún.
BILALEIGA
meö útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Hvolpar fást gefins
Collie hvolpar af góðum fjárhundaættum fást
gefins.
Upplýsingar í síma 93-47861.
NordlX norrœna viðshiptasímashrdin \H9 er í
þurðarlíðnum. Tilhynntu þdtttoku sem fyrst
ordEX gæti auðveldað þér og
fyrirtæki þínu leiðir að nýjum
viðskiptasamböndum.
NordEX er norræn viðskipta-
símaskrá, sem hefur að geyma
upplýsingar um rúmlega 10.000
fyrirtæki á Norðurlöndum.
NordEX er gefin út á 5 tungumál-
um og dreift ókeypis til innflytj-
enda og annarra, sem Ieita eftir
nýjum viðskiptasamböndum.
í NordEX gefst fyrirtækjum
kostur á að auglýsa og kynna
starfsemi sína með nýjum hætti.
Við hvetjum alia þá sem hafa
fengið gögn varðandi NordEX
1989 að senda þau sem allra fyrst
í pósthólf 311, 121 Reykjavík.
Þeir sem ekki hafa fengið send
gögn, en hafa áhuga á að vera
með, eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við auglýsinga-
deild símaskrárinnar í síma
29141.
Mundu, að NordEX 1989, norr-
æna viðskiptasímaskráin, er alveg
í burðarliðnum.
PÓSTUR OG SÍMI 1
VEISLAIHVERRID0S
í ferðalagínu, 1 sumarbústaðnum
eða 1 eldhúsínu heíma.
Köcbdbr
# kasikijiH