Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 12
• / *■ I
^e,
12 A HELGIN
Laugardagur 11 júní 1988
-
W§m
1 JlpllSÍtí
]' ,
.
■ . . ■
• ■ • V :
WSiifMi 'm
% ■* ií 4 c - M
mm
Næturlíf í Moskvu:
Ljósin slökkt kl. 23 á
börum og veitingahúsum!
Nú hefur Moskva verið daglega á sjónvarpsskerminum hjá
okkur að undanförnu vegna fundar Reagans og Gorbatsjovs.
Þar höfum við fengið að sjá fegurstu hliðar borgarinnar
væntanlega, og fallegu salarkynnin í Kreml þar sem leiðtogi
Sovétríkjanna og frú hans tóku á móti Bandaríkjaforseta og
hans frú.
Auðvitað var borgin sneisafull af útlendum fréttamönnum
þessa daga sem ekki ætluðu að láta neitt fram hjá sér fara
sem kynni að gerast sögulegt en sennilega hafa þeir orðið
að hafa ofan af fyrir sér sjálfir á kvöldin á meðan leiðtogarnir
sátu dýrlega veislufagnaði. Og samkvæmt lýsingu banda-
rísks blaðamanns nýlega á næturlífinu í Moskvu hefur það
sennilega ekki verið auðvelt verk. Lýsingin gefur til kynna
að næturlíf Moskvuborgar, sem telur 9 milijónir íbúa, sé
vægast sagt líflítið!
Næturlíf ekki finnanlegt
í Sovétríkjunum
Svo segir í einum upplýsinga-
bæklingi sem gestum Sovétríkj-
anna stendur til boða að næturlíf í
landinu sé „varla finnanlegt í Sov-
étríkjunum“.
Gestur frá Vesturlöndum getur
þó fengið inngöngu á bari þar sem
hann greiðir fyrir varning og þjón-
ustu (áfengi og félagsskap kvenna)
með sterkum gjaldeyri. Þeir Rúss-
ar aftur á móti sem venja komur
sínar á þessa staði verða að búa yfir
ýmsum vafasömum eiginleikum.
Enda hefur blaðamaður eftir ein-
um Moskvubúa að þessir staðir séu
óhemju dýrir „og ómögulegt að sjá
afleiðingarnar fyrir af heimsókn á
í Gilyarowski-Café situr fólk við
kertaljós og klingir glösum með
kampavíni frá Krím. IMoskvu eru
um 150 kvikmyndahús, mörg
leikhús og nokkur diskótek, auk
nokkurra bara, en þeim fækkar
heldur en hitt vegna herferðar
yfirvalda gegn drykkjuskap. Og
veitingahús eru 360 talsins. Allir
þessir skemmtistaðir loka í síðasta
lagi kl. ellefu á kvöldin.
Erfitt og fábreytt
tilhugalíf
Ungur Rússi segir frá tilhugalíf-
inu á eftirfarandi hátt: Við fórum
aldrei neitt. Sjálfur bjó hann á
stúdentaheimili en kærastan deildi
íbúð með tveim fjölskyldum. „Við
sátum í stigaganginum í blokkinni
hjá henni og reyktum, eða fórum í
gönguferð og settumst í aðra stig-
aganga og reyktum,“ segir hann.
En það verður að viðurkennast
að þetta var ódýr skemmtun. Það
er hins vegar ekki ódýrt að
skemmta sér á Gilyarowski-Café.
En rétt eins og neyðin er sögð
kenna naktri konu að spinna hafa
framtakssamir ungir Rússar lag á
að komast út að skemmta sér.
Ungur Rússi, Sascha, segir blaða-
manninum frá: „Fyrir mann með
150 rúblna mánaðarlaun er það
dýrt að bjóða stúlku út að borða
fyrir 25 rúblur.“ í staðinn býður
Sascha tveim kunningjum, sem
hann hefur nýlega kynnst, á stað
sem er meira við hæfi öreiganna í
Moskvu, bjórbar. Við innganginn
hefur myndast löng biðröð en
Sascha ryður sér leið að dyraverð-
inum og kemur sigri hrósandi til
baka. Dyravörðurinn er hinn lipr-
asti þegar hann hefur veitt mútu-
fénu viðtöku.
„Þetta köllum við
svínastíuna“
Innandyra er þvaga af drekkandi
fólki. Þjónn færir gestum bjór og
nú getur Sascha slappað af. Hann
tekur sér vænan gúlsopa og hallar
sér aftur í sætinu. „Þetta er það
sem við Rússar köllum svína-
stíuna,“ segir hann.
Moskvubúar geta líka fengið
aðgang að góðum leikhúsum með
því að beita mútuaðferðinni. En
þeir borgarbúar sem annað hvort
burðast með siðferðisvitund eða
eru of fátækir að fé verða að láta
sér nægja viðskipti við söluturna
sem selja lélegri sæti á lélegri
sýningar.
Kvöld eitt voru á boðstólum
miðar á tónleika hinnar þekktu
söngkonu Bulat Okoujava. í ljós
kom að um var að ræða óþekkta
söngkonu sem söng söngva Okou-
java.
í Moskvu eru mörg söfn, þ.á m.
hið nýja brauð-safn. En vinsælasta
safnið í Moskvu er Listamannahús-
ið. Ekki vegna þeirrar listar sem
þar er boðið upp á heldur vegna
tyrkneska kaffisins sem þar er á
boðstólum.
Moskvubúar fylla vinalega kaffi-
stofu safnsins allar stundir dagsins,
alveg til kl. 9 að kvöldi, en þá eru
ljósin þar slökkt.
Blái fuglinn, „Blue Bird“ er
aðsetursstaður djassklúbba
Moskvuborgar. Þar tekur ungur
maður á móti 8 rúblum frá gestun-
um og tilkynnir um leið: „Enginn
djass í kvöld“. Hins vegar eru
hljómflutningstækin í fullum gangi
og músíkin drunar um salinn, þar
sem í hálfrökkrinu má greina dans-
andi fólk, u.þ.b. fimm sinnum
fleiri konur en karla.
Nýbreytni fyrir
einmana sálir
Nú hefur nýbreytni fyrir ein-
mana sálir haldið innreið sína í
Moskvu, þ.e. lokaðir klúbbar þar
sem fólk getur kynnst hvert öðru.
Þessir. klúbbar eru að vísu ekki
leyfðir í miðborginni þar sem em-
bættismenn óttast augsýnilega að
þeir veiti samkeppni þeim börum
sem Vesturlandabúar greiða þjón-
ustuna í beinhörðum gjaldeyri.
í einum þessara klúbba, í út-
hverfinu Dolgoprudni, verður eig-
andinn, Ludmilla Kremlyowa fyrir
svörum. Hún segir að það verði æ
algengara að fólk sækist eftir því
að koma á stefnumóti við einhvern. ■
Hún gefur auga gráhærðum manni
sem er önnum kafinn við að fylla
út langan spumingalista inni á
skrifstofu hennar. Aðrir tveir
menn eru þar líka staddir og fletta
í skjalaskrá sem hefur að geyma
upplýsingar um ýmsar konur.
Gráhærði maðurinn réttir frú
Kremlyowa útfylltan spurningalist-
ann og segir: „Mestu kostirnir sem
geta prýtt eina konu er að hún sé
ástúðleg og hlý.“ Þessu svarar
frúin með því að nú séu margir
karlar sem leiti eftir félagsskap
kvenna sem stundi viðskipti. En
maðurinn svarar á móti: „Allir
eiga rétt á því að finna hamingjuna.
í skjalasafninu héma ætti að vera
sérstakur flokkur fyrir ástúðlegar
og hlýjar konur.“
Föstudagskvöld
í „Usbekistan“
Nú er föstudagskvöld. Skemmt-
anasjúkir fylla „Usbekistan" út úr
dyrum og dansa í blikkandi ljósum
við ærandi hávaða úr mögnuðum
hljómflutningstækjum. Tapparnir
fljúga um allan sal úr kampavíns-
flöskunum og blómasalar bjóða
fólki rósir til kaups. Drukkinn
maður ásækir konu nokkra. Fylgd-
armaður hennar tekur hann í karp-
húsið. Sá fulli slær hann í andlitið.
Fylgdarmaðurinn rífur peysu þess
drukkna. Glas brotnar. Lögreglu-
menn koma æðandi.
Um kl. 23.15 hefur hljómsveitin
tekið saman hljóðfærin sín, borð
em rýmd og ræstingarliðið hefst
handa um að skrúbba gólfið með
salmíakshreinsiefni. Við útganginn
hvæsir kona að dmkknum fylgdar-
sveini sínum: „Ég skammast mín
fyrir þig. Þú veist ekki einu sinni
hvemig maður á að hegða sér í
veitingahúsi“.
Síðustu gestimir em famir og
ljósin slökkt. Klukkan er ekki enn
orðin hálftólf.