Fréttablaðið - 24.02.2009, Qupperneq 2
2 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
FÓLK „Það er ótækt að eiga að þurfa
að fara í önnur sveitarfélög til að
komast í almennilegt sund einmitt
á besta tímanum,“ segir Magnús
Ólafsson leikari, ósáttur við fyr-
irhugaða sumarlokun Suðurbæjar-
laugar í Hafnarfirði.
Magnús er fastagestur í Suð-
urbæjarlaug og hefur verið frá
því laugin var opnuð fyrir nítján
árum. „Ég heyrði það nú bara hjá
starfsfólkinu að það eigi að spara
í launum og loka lauginni í júní og
stóran hluta af júlí,“ segir Magnús
sem skrifaði í framhaldinu bréf í
bæjarblaðið Fjarðarpóstinn og
krefur bæjaryfirvöld um skýr-
ingar.
Þrjár sundlaugar eru í Hafnar-
firði en Suðurbæjarlaug er sú eina
sem er útilaug. Magnús segir að
aðstaðan þar sé sú besta á land-
inu. „Fyrir okkur sem erum vön
útilaugum og útiklefum er alls
ekki það sama að fara í innilaug.
Og það er út í hött að ætla að loka
lauginni um mitt sumar þegar sól
er hæst á lofti og flestir vilja fara
í sund. Sérstaklega finnst mér það
hart gagnvart fjölskyldufólki sem
vill fara með krakkana sína í sund
á góðum degi,“ segir Magnús.
Að sögn Magnúsar hafa honum
ekki borist nein svör frá bæjaryf-
irvöldum. Sjálfur leggur hann til
í áðurnefndri blaðagrein að laun
bæjarstarfsmanna séu lækkuð
tímabundið eins og gert hafi verið
víða í einkageiranum.
„Allir bæjarbúar vita það að
bærinn er skuldsettur en á það að
bitna á okkur sem stundum þessa
heilsulind? Það veitir ekki af í
þessu erfiða árferði að fólk geti
hresst upp á sál og líkama,“ segir
í grein Magnúsar sem segir við
Fréttablaðið að laugargestir séu
hneykslaðir. „Nú er talað um að
safna undirskriftum gegn þess-
ari lokun eða að fá Hörð Torfason
og búsáhaldabyltinguna til að mót-
mæla líka,“ segir hann.
Björn Árni Ólafsson, forstöðu-
maður Suðrurbæjarlaugar, segir
áætlað að laugin verði lokuð frá 1.
júní til 10. júlí samkvæmt ákvörð-
un bæjarstjórnar. Ástæðan sé ann-
ars vegar sú að komið hafi verið að
nauðsynlegu viðhaldi laugarinnar
og hins vegar töluverður sparnað-
ur sem náist með því að þurfa ekki
að ráða sumarafleysingafólk.
„Starfsfólkið er í sjálfu sér ekki
sátt við þessa lokun en telur hana
þó skárri kost en að þurfa kannski
að stytta afgreiðslutímann allt
árið,“ segir forstöðumaðurinn.
gar@frettabladid.is
Gestir hneykslaðir á
sumarlokun í sundi
Magnús Ólafsson leikari segir áform um að loka einu útisundlaug Hafnfirðinga
stóran hluta sumars út í hött. Hann boðar söfnun undirskrifta. Forstöðumaður
laugarinnar segir töluvert sparast með lokun. Auk þess sé komið að viðhaldi.
MAGNÚS ÓLAFSSON Hefur verið fastagestur í Suðurbæjarlaug frá opnun og skilur
ekki hvers vegna spara þurfi með lokun laugarinnar á sólríkasta tíma ársins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gríptu eintak!
Þú getur nálgast glæsilegan sumarbækling okkar á Select-stöðvum
á höfuðborgarsvæðinu og Shell-stöðvum á Akureyri, Egilsstöðum og
í Vestmannaeyjum. Einnig má skoða hann á www.icelandexpress.is
SRI LANKA, AP Talsmenn Tam-
ílatígra, vopnaðrar hreyfingar
aðskilnaðarsinnaðra tamíla á Sri
Lanka, sögðust í gær vera reiðu-
búnir að semja um vopnahlé við
stjórnvöld, en tjáðu Sameinuðu
þjóðunum í bréfi að þeir myndu
ekki fallast á að leggja niður vopn.
Sri Lankastjórn hefur aftur á
móti hafnað boðinu, með þeim
orðum að skæruliðar Tamílatígra
séu „að reyna að bjarga sínum
auma rassi“.
Stjórnarhernum hefur með
sókn sinni undanfarnar vikur tek-
ist betur en áður að hrekja Tam-
ílatígra frá helstu vígjum sínum á
norðausturhluta eyjarinnar. - aa
Borgarastríðið á Sri Lanka:
Stjórnin hafnar
vopnahlésboði
JAPAN, AP Taro Aso, forsætisráð-
herra Japans, er nú kominn í
hóp þeirra ríkisstjórnarleiðtoga
í sögu lands-
ins frá stríðs-
lokum sem
nýtur minnstra
vinsælda. Hið
hverfandi fylgi
vekur efasemd-
ir um að Abe sé
sætt í embætti
mikið lengur.
Þetta sýndu
niðurstöður
tveggja viðhorfskannana sem
birtar voru í gær. Samkvæmt
könnun sem gerð var fyrir dag-
blaðið Mainichi er stuðningur við
Abe kominn niður í 11 prósent, og
samkvæmt könnun fyrir Nikkei-
viðskiptablaðið mælist hann um
15 prósent. Stór hluti kjósenda vill
að hann víki strax og enn stærri
hluti vill kosningar hið fyrsta. - aa
Japansstjórn óvinsæl:
Krafa um af-
sögn styrkist
TARO ASO
TÖLVUR „Þetta er mikil viðurkenning, ekki einungis fyrir
okkur hjá TM Software heldur íslenskan hugbúnað í heild
sinni. Það er frábært að okkur sé treyst fyrir því að taka
þátt í hönnun svo mikilvægra lausna og ábyrgðin sem því
fylgir er auðvitað gríðarleg,“ segir Magnús Ingi Stefáns-
son, viðskipta- og kerfisfræðingur og starfsmaður íslenska
hugbúnaðarfyrirtækisins TM Software.
Magnús fékk senda viðurkenningu og þakkarbréf frá
framkvæmdastjóra neyðarstjórnunarteymis Microsoft
í Bandaríkjunum fyrir lausn sem hann og fleiri starfs-
menn TM Software unnu vegna hamfaranna sem riðu
yfir Burma (Myanmar) á síðasta ári. Um hundrað þúsund
manns týndu lífi í hamförunum.
Microsoft, sem vinnur náið með Sameinuðu þjóðunum
(SÞ) að ýmsum mannúðarverkefnum, hafði samband við
TM Software í því augnamiði að þróa lausn, sem byggði á
SharePoint forritinu, til að halda utan um gögn og miðl-
un upplýsinga á hamfarasvæðinu. „Út frá þessu höfum
við verið að vinna í samráði við Microsoft að vefgátt sem
heldur utan um allar náttúruhamfarir sem verða í heim-
inum. Við erum einir með þetta verkefni en SÞ munu nýta
afraksturinn. Þetta er því mjög stórt verkefni og mikill
heiður,“ segir Magnús Ingi Stefánsson. - kg
Íslensk hugbúnaðarlausn hlýtur viðurkenningu Microsoft í Bandaríkjunum:
Heiður og gríðarleg ábyrgð
VIÐURKENNING Magnús Ingi Stefánsson og Þórmundur
Helgason, sem einnig vann að verkefninu, með viður-
kenningargripinn glæsilega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁSTRALÍA, AP Fjöldi íbúa í dreifbýli
Viktoríufylkis í Ástralíu flúðu
heimili sín í gær eftir að hvass-
viðri blés í bókstaflegum skiln-
ingi í glæður kjarr- og skógar-
eldanna sem hafa geisað þar um
slóðir síðustu vikur og orðið á
þriðja hundrað manna að aldur-
tila.
Slökkvilið og sjálfboðaliðar
hafa unnið þrotlaust að því að
ráða niðurlögum eldanna síðan
í verstu hrinunni í kringum 7.
febrúar.
En veður hefur haldist þurrt
og í gær fór hitastigið aftur upp
fyrir 30 gráður, sem ásamt vind-
hviðum lét eldana blossa upp á
ný. Í varúðarskyni flúði því fólk
úr næsta nágrenni eldanna úr
húsum sínum. - aa
Skógareldarnir í Ástralíu:
Nýir eldar í
hita og vindi
DANMÖRK Danska ríkisstjórn-
in hefur nú lagt fram tillögur
sínar að breyttri skattheimtu til
að bregðast við samdrættinum í
efnahagslífinu. Vaxtabætur verða
ekki skertar eins mikið og hug-
myndir voru uppi um, að því er
greint er frá á fréttavef Politiken.
Samkvæmt tillögunum á skatt-
byrði launþega og fyrirtækja
að lækka um sem nemur 570
milljörðum íslenskra króna. Þar
sem ekki er gengið eins langt og
skattanefnd stjórnarflokkanna
á þingi hafði mælt með, að fjár-
magna skattalækkanirnar með
lækkun vaxtabóta, verður hall-
inn á rekstri ríkissjóðs þeim mun
meiri. - aa
Kreppan í Danmörku:
Lækka skatta
og vaxtabætur
Þórður, kemstu þá ekkert á
netið?
„Jú, það eru nokkur grásleppunet
eftir.“
Þórður Vormsson á nú í deilum við
sveitarstjórn Voga á Vatnsleysuströnd en
bæjarstarfsmenn hentu 41 grásleppuneti
hans þegar hreinsunarátak fór fram þar
í bæ.
SAMFÉLAGSMÁL Eigendur taílenska
veitingastaðarins Thai Keflavík
í Reykjanesbæ hafa ákveðið að
bjóða ókeypis máltíð á fimmtudag-
inn. „Þetta er aðallega hugsað sem
okkar innlegg til að létta undir hjá
þeim ófáu sem eiga undir högg að
sækja í þessu árferði,“ segir Magn-
ús Heimisson, rekstrarstjóri og
einn eigenda staðarins.
Hann segir að ef vel takist til
muni Thai Keflavík bjóða upp á
eina ókeypis máltíð í mánuði fram
á sumar. „Og þá verður þetta alltaf
í lok mánaðar þegar það er farið að
þrengja að hjá fólki.“
Hann segir margt þurfa að koma
til svo hægt sé að gera svona nokk-
uð en nú séu flestir til í að leggja
hönd á plóg. „Ég er búinn að vera
að sanka að mér fiski, núðlum og
hrísgrjóni og svo hef ég fengið fjöl-
skyldumeðlimi til að taka til hend-
inni í þessu. Við erum sérstaklega
þakklát fyrir að hafa fengið fiskinn
á hagstæðum kjörum.“
Ekki er svo vítt til veggja á Thai
Keflavík að þeir geti boðið öllum til
sætis svo fólki er uppálagt að grípa
máltíðina með heim frá klukk-
an fimm síðdegis til klukkan átta.
Magnús segir það þekkt fyrirbæri
í hagfræðinni að það sé ekkert til
sem heiti ókeypis hádegisverður.
„En það gildir annað um kvöldverð-
inn,“ segir hann sposkur. - jse
Taílenskur veitingastaður í Reykjanesbæ býður upp á ókeypis kvöldverð:
Býður upp á ókeypis kvöldverð
Á THAI KEFLAVÍK Magnús segir að þó
að sagt sé í hagfræðinni að ekkert sé til
sem heiti ókeypis hádegisverður þá gildi
annað um kvöldverðinn á fimmtudag á
Thai Keflavík. MYND/VÍKURFRÉTTIR
STJÓRNMÁL Guðlaugur Þór Þórðar-
son, fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra, greiddi 24 milljónir fyrir
ráðgjöf í ráðherra tíð sinni sem
var frá vordögum 2007 þar til í
síðasta mánuði. Þetta kom fram í
kvöldfréttum RÚV í gær.
Allir voru ráðgjafarnir utan
ráðuneytisins og veittu liðsinni
um heilsustefnu, lyfjamál, fjöl-
miðlaframkomu og fleira. Arg-
yron ehf. sem er í eigu Ragnars
Þóris Guðgeirssonar og gerði
úttekt á heilbrigðisstofum Aust-
urlands og Suðurnesja fyrir ráðu-
neytið fékk hæstu greiðsluna, eða
rúmlega tíu og hálfa milljón. - jse
Guðlaugur Þór Þórðarson:
Ráðgjöf fyrir
24 milljónir
NÝHÖFNIN Skattbyrði launþega lækk-
ar um 570 milljarða íslenskra króna.
SPURNING DAGSINS