Fréttablaðið - 24.02.2009, Page 8

Fréttablaðið - 24.02.2009, Page 8
8 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1. Hvað verður rennibrautin í nýrri sundlaug á Álftanesi löng þegar hún verður fullbúin? 2. Hvaða starfi gegnir Ellisif Tinna Víðisdóttir? 3. Hvað heitir ástralski fjárfest- irinn sem hefur hug á að kaupa Morgunblaðið? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 26 Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka. Karlmaður, 52 ára. „Byggja upp andrúmsloft frumkvæðis og nýjunga“ *Samkvæmt vaxtatöflu Íslandsbanka 01.02.09 Vaxtasproti – nýjung í sparnaði Í samræmi við stefnu Íslandsbanka um að styðja við nýsköpun kynnir bankinn nýjung í sparnaði, Vaxtasprota. Reikningurinn ber góða vexti og bankinn leggur jafnframt 0,1% mótframlag í sérstakan frumkvöðlasjóð sem stofnaður hefur verið til stuðnings sprotafyrirtækjum. Kynntu þér Vaxtasprota á islandsbanki.is, í næsta útibúi eða fáðu nánari upplýsingar í Þjónustuveri í síma 440 4000. 17% ársvextir Hagur fyrir uppbyggingu og nýsköpun Bankinn leggur mótframlag í Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka >> Hagur fyrir þig Þú leggur inn á Vaxtasprota og færð 17% ársvexti* H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -2 2 5 3 Íslandsbanki og Nýsköpunarmiðstöð opna Kvosina – viðskiptasetur Öllum er ljóst mikilvægi nýsköpunar í breyttu samfélagi. Samningur Íslandsbanka við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um opnun viðskipta- seturs er liður í því að hlúa að sprotafyrirtækjum og skapa ný atvinnutækifæri. Frumkvöðlastarf í Kvosinni Íslandsbanki leggur Kvosinni til húsnæði í Lækjargötu þar sem frumkvöðlar geta unnið að viðskiptahugmyndum í skapandi umhverfi undir handleiðslu sérfræðinga Nýsköpunarmiðstöðvar. Fáðu nánari upplýsingar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar, www.nmi.is. SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Ingigerður Sæmundsdóttir gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. SAMFYLKING Íris Björg Kristjánsdóttir gefur kost á sér í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylk- ingar í Suðvesturkjördæmi. Skúli Thoroddsen gefar kost á sér í 1.-2. sæti á lista Samfylkingar í Suð- urkjördæmi. Gísli Baldvinsson sækist eftir 4. til 6. sæti á lista Samfylkingar í Norð- austurkjördæmi. Anna Pála Sverrisdóttir sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík. Björgvin Valur Guðmundsson býður sig fram í 5. til 6. sæti í Reykjavík. VINSTRI GRÆN Brynja Björg Hall- dórsdóttir býður sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík. FRAMSÓKNARFLOKKUR Bryndís Bjarnarson býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Arnheiður Hjörleifs- dóttir sækist eftir 2. sæti Framsóknar- flokksins í Norðvest- urkjördæmi. ERLENTP ÓFKJÖR NORÐURLÖND Afdrif hnattvæðing- arinnar í heimskreppunni og við- brögð Norðurlanda við þeirri þróun er aðalviðfangsefni leiðtogafundar Norðurlandanna sem fram fer við Bláa lónið í lok vikunnar. Fundurinn, sem fram fer hér á landi að þessu sinni þar sem Ísland gegnir formennsku í Nor- rænu ráðherranefndinni, er hald- inn í samstarfi við Norðurlanda- ráð undir yfirskriftinni Norrænt hnattvæðingarþing. Auk nor- rænu forsætisráðherranna fimm sækja það leiðtogar sjálfstjórnar- svæðanna Grænlands, Færeyja og Álandseyja, fulltrúar atvinnulífs á Norðurlöndum, fjölmiðla, frjálsra félagasamtaka, háskólasamfélags- ins og stjórnmála. Hugmyndin að árlegu hnattvæð- ingarþingi byggist á ósk forsætis- ráðherranna um umræðuvettvang um viðfangsefni og tækifæri hnatt- væðingar frá sjónarhóli Norður- landa. Þingið á bæði að vera hvetj- andi og ráðgefandi fyrir norrænu forsætisráðherrana og norrænt samstarf í heild sinni, að því er segir í fréttatilkynningu. Meðal mála sem rædd verða er hvernig það fer saman að reka virka stefnu í loftslagsmálum á samdráttartímum, hvernig koma má á samræðu einkaaðila og hins opinbera um nýsköpun, hvort Norðurlönd geta skapað stóriðnað í kringum framleiðslu rafmagns- bíla, og fleira. - aa BLÁA LÓNIÐ Vettvangur fjölmenns norræns hnattvæðingarþings 26.-27. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Leiðtogafundur Norðurlanda haldinn sem norrænt hnattvæðingarþing á Íslandi: Virk loftslagsstefna í kreppu? GRINDAVÍK Til stendur að setja upp veglegt skrautfiskasafn í Grindavík að því er fram kemur á vef sveitar- félagsins. Á grindavik.is er haft eftir Guð- mundi J. Sigurgeirssyni að hann sé að flytja til Grindavíkur og sé jafn- framt að leita að hentugu húsnæði undir skrautfiskasafn sem hann hafi mikinn áhuga á að koma á lagg- irnar. „Miðað við fyrirætlanir Guð- mundar er ljóst að skrautfiskasafn- ið er mjög metnaðarfullt verkefni sem myndi án nokkurs vafa vekja mikla athygli. Öll búr verða með sér útskorinn bakgrunn og því ekk- ert eins. Gert er ráð fyrir að í þeim verði skrautfiskar úr öllum heims- hornum eins og rafmagnsskattfisk- ar, piranafiskar, kuðungasíkliður, ferskvantsskötur, litlar tetrur og fleira,“ segir á vef Grindavíkur. „Ég hef lifað og hrærst í þessu síðan ég var átta ára og hef þá þekk- ingu og kunnáttu sem til þarf,“ er haft eftir Guðmundi sem sagður er hafa yfir þrjátíu ára reynslu af ræktun og umhirðu skrautfiska. „Atferli fiskanna og saga þeirra verður skrifuð við hvert búr til að gestir fái innsýn í veröld vatns- ins sem er flestum ekki sýnileg, ef þetta gengur nú allt saman upp. Ég vona svo sannarlega að svo verði en fyrst er að finna rétta húsnæðið,“ segir Guðmundur sem kveðst einn- ig munu setja upp gæludýraverslun í húsnæðinu. - gar Aðkomumaður á leið til Suðurnesja vill koma á laggirnar skrautfiskasafni: Pirana-fiskar til Grindavíkur SKRAUTFISKAR Bæjaryfirvöld í Grindavík taka vel í hugmynd um safn fyrir ferskvatns- fiska í bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Robert Dariusz Sobi- ecki, sem lýst var eftir í desember, hefur verið handtekinn í Póllandi. Maðurinn hafði verið dæmd- ur í Héraðs- dómi Reykjavík- ur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku á salerni á Hótel Sögu aðfaranótt 17. mars 2007. Hann var jafn- framt dæmdur til að greiða henni eina og hálfa milljón króna í skaðabætur. Þegar kom að afplánun á Litla- Hrauni kom í ljós að hann var horfinn, rétt eins og jörðin hefði gleypt hann. Nú er unnið að því að maðurinn afpláni refsingu sína í Póllandi. - jss Nauðgarinn fundinn: Afplánar dóm- inn í Póllandi ROBERT DARIUSZ SOBIECKI VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.